Morgunblaðið - 09.07.2002, Qupperneq 46
DAGBÓK
46 ÞRIÐJUDAGUR 9. JÚLÍ 2002 MORGUNBLAÐIÐ
MORGUNBLAÐIÐ, Kringlunni 1, 103 Reykjavík. SÍMAR: Skiptiborð: 569 1100. Auglýsingar:
569 1111. Áskriftir: 569 1122. SÍMBRÉF: Ritstjórn: 569 1329, fréttir 569 1181, íþróttir 569 1156,
sérblöð 569 1222, auglýsingar 569 1110, skrifstofa 568 1811, gjaldkeri 569 1115. NETFANG: RIT-
STJ@MBL.IS, / Áskriftargjald 2.100 kr. á mánuði innanlands. Í lausasölu 190 kr. eintakið.
Skipin
Reykjavíkurhöfn: Í dag
eru væntanleg Helga-
fell, Svanur RE, Laug-
arnes og farþegaskipið
Astoria.
Hafnarfjarðarhöfn: Í
dag eru væntanleg
Kleifaberg og Sonar.
Fréttir
Mæðrastyrksnefnd
Kópavogs, Hamraborg
20a. Lokað vegna sum-
arleyfa frá 1. júlí til 23.
ágúst.
Mannamót
Aflagrandi 40. Kl. 9
vinnustofa og kl. 13
vinnustofa og bað.
Árskógar 4. Kl. 9 bað-
þjónusta, kl. 9 bókband
og öskjugerð, kl. 9 opin
handavinnustofa, kl.
9.30 Íslandsbanki á
staðnum, kl. 13 opin
smíðastofa og handa-
vinnustofa. Kl. 13.30
frjáls spilamennska.
Bingó er 2. og 4. föstu-
dag í mánuði. Púttvöll-
urinn er opinn kl. 10–16
alla daga. Allar upplýs-
ingar í s. 535 2700.
Bólstaðarhlíð 43. Kl.
8.30–14.30 böðun, kl. 9–
16 handavinna kl. 9–17
fótaaðgerð, kl. 14–15
dans. Skoðunarferð um
Þingvöll fimmtudaginn
11. júlí. Lagt af stað frá
Bólstaðarhlíð kl. 13.
Kaffihlaðborð á Valhöll.
Vinsamlega greiðið
ferðina í síðasta lagi fyr-
ir hádegi þriðjudaginn
9. júlí. Uppl. og skrán-
ing í síma 568 5052.
Félagsstarfið, Dalbraut
18–20. Kl. 9–12 aðstoð
við böðun, kl. 9–16.45
hárgreiðslustofan opin,
kl. 11.15 hádegismatur,
kl. 15 kaffiveitingar.
Félagsstarfið, Löngu-
hlíð 3. Kl. 8 böðun, kl. 10
hársnyrting, kl. 13 fönd-
ur og handavinna.
Félagsstarf aldraðra,
Garðabæ. Fótaaðgerð-
arstofan: tímapantanir
eftir samkomulagi, s.
899 4223.
Félag eldri borgara,
Hafnarfirði, Hraunseli,
Flatahrauni 3. Í dag
verður púttað á Hrafn-
istuvelli kl. 14–16. Á
morgun, miðvikudaginn
10. júlí, er púttkeppni
við púttklúbb Hrafnistu
á Hrafnistuvelli. Mæt-
ing kl. 13.30. Keppt um
Sparisjóðsbikarinn.
Fjölmennið og hvetjið
okkar menn. Félags-
heimilið Hraunsel verð-
ur lokað vegna sum-
arleyfa starfsfólks til 11.
ágúst. Upplýsingar um
orlofsferðir að Hrafna-
gili við Eyjafjörð 19.–23.
ágúst og að Höfða-
brekku 10.–13. sept. eru
gefnar í síma 555 1703,
555 2484 og 555 3220.
Félag eldri borgara,
Reykjavík, Ásgarði,
Glæsibæ. Kaffistofan
opin alla virka daga frá
kl. 10–13. Kaffi – blöðin
og matur í hádegi.
Göngu-Hrólfar fara frá
Hlemmi miðvikudags-
morgun kl. 9.45.
Ferð í Galtalæk á úti-
tónleika 14. júlí 2002
með Álftagerð-
isbræðrum og Diddú.
Örn Árna og Karl Ágúst
slá á létta strengi. Lagt
af stað kl. 15 frá
Glæsibæ. Nánari upp-
lýsingar á skrifstofunni.
Dagsferð 15. júlí: Flúð-
ir-Tungufellsdalur (veg-
ur liggur upp í gegnum
dalinn sem er með skógi
á báðar hendur)-
Gullfoss-Geysir-
Haukadalur-Lauga-
vatn-Þingvellir. Kaffi-
hlaðborð í Brattholti.
Leiðsögn Sigurður
Kristinsson Skráning
hafin.
Fyrirhugaðar eru ferðir
til Portúgals og Tyrk-
lands í haust, fyrir fé-
lagsmenn FEB, skrán-
ing er hafin,
takmarkaður fjöldi.
Nánari upplýsingar á
skrifstofu FEB.
Silfurlínan er opin á
mánudögum og mið-
vikudögum frá kl. 10. til
12 f.h. í síma 588 2111.
Skrifstofa félagsins er
flutt að Faxafeni 12,
sími. 588 2111. Fé-
lagsstarfið er áfram í
Ásgarði, Glæsibæ. Upp-
lýsingar á skrifstofu
FEB.
Félagsstarfið, Hæð-
argarði 31. Kl. 9–16.30
opin vinnustofa, m.a.
tréskurður, kl. 9–17
hárgreiðsla, kl. 12.40
Bónusferð, kl. 13.15
bókabíll.
Gerðuberg, félagsstarf.
Lokað vegna sum-
arleyfa frá mánudegi 1.
júlí. Opnað aftur þriðju-
daginn 13. ágúst. Á veg-
um Íþrótta- og tóm-
stundaráðs eru sund og
leikfimiæfingar í Breið-
holtslaug kl. 9.30 mánu-
daga, miðvikudaga og
föstudaga. Umsjón
Brynjólfur Björnsson
íþróttakennari.
Gjábakki, Fannborg 8.
Handavinnustofan opin,
kl. 14 þriðjudagsganga.
Gullsmári, Gullsmára
13. Félagsheimilið, Gull-
smára 13, verður lokað
frá 8. júlí til 6. ágúst.
Fótaaðgerðarstofan
verður opin, sími
564 5298, hársnyrtistof-
an verður opin, sími
564 5299.
Hraunbær 105. Kl. 9–17
fótaaðgerð. Kl. 10–11
boccia. Kl. 12 hádeg-
ismatur. Kl. 12.15 versl-
unarferð. Kl. 13–17 hár-
greiðsla.
Hvassaleiti 56–58. Kl.
9.45 bankaþjónusta.
Fótaaðgerð, hársnyrt-
ing. Allir velkomnir.
Grillveisla: Fé-
lagsþjónustan í Hvassa-
leiti ætlar að vera með
grillveislu föstudaginn
12. júlí nk. kl. 16–19.
Elsa Haraldsdóttir
kemur með harmonikk-
una, spilar og heldur
uppi fjöri. Verð 2.500
kr. Skráning fer fram á
skrifstofunni og í síma
588 9335.
Hæðargarður. Hár-
greiðsla kl. 9–17.
Háteigskirkja, eldri
borgarar. Á morgun
miðvikudag, samvera,
fyrirbænastund í kirkj-
unni kl. 11, súpa í Setr-
inu kl. 12, spil kl. 13.
Norðurbrún 1. Vinnu-
stofur lokaðar fram í
ágúst. Kl. 9–17 hár-
greiðsla. Ganga kl. 10.
Norðurbrún 1 og Furu-
gerði 1. Sumarferð.
Fimmtudaginn 11. júlí
verður ekið í Fljótshlíð-
ina að Odda og Berg-
þórshvoli. Súpa og
brauð í hádeginu á
Hvolsvelli. Leið-
sögumaður er Tómas
Einarsson. Lagt verður
af stað frá Norðurbrún
kl. 9.30, síðan teknir far-
þegar í Furugerði. Nán-
ari upplýsingar í Norð-
urbrún í síma 568 6960
og Furugerði í síma
553 6040.
Vesturgata 7. Kl. 9
fótaaðgerðir og hár-
greiðsla, kl. 9.15–16 al-
menn handavinna, kl. 13
spilamennska.
Vitatorg. Kl. 9 hár-
greiðsla, kl. 10 fótaað-
gerðir, kl. 9.30 morg-
unstund og handmennt,
kl. 10.30 boccia, kl. 14
félagsvist. Smiðjan lok-
uð til 6. ágúst.
Félag eldri borgara á
Suðurnesjum. 4 daga
ferð verður farin á Vest-
firðina 22.–25. júlí. Vin-
samlegast látið vita fyr-
ir 10. júlí. Nánar
auglýst í Suðurnesjaf-
réttum. Ferðanefndin.
Félag ábyrgra feðra.
Fundur í Shell-húsinu,
Skerjafirði, á mið-
vikudögum kl. 20, svar-
að í s. 552 6644 á fund-
artíma.
Minningarkort
Styrktarfélag krabba-
meinssjúkra barna.
Minningarkort eru af-
greidd í síma 588 7555
og 588 7559 á skrifstofu-
tíma. Gíró- og kred-
itkortaþjónusta.
Samtök lungnasjúk-
linga. Minningarkort
eru afgreidd á skrif-
stofu félagsins í Suð-
urgötu 10 (bakhúsi) 2.
hæð, s. 552 2154. Skrif-
stofan er opin miðvikud.
og föstud. kl. 16–18 en
utan skrifstofutíma er
símsvari. Einnig er
hægt að hringja í síma
861 6880 og 586 1088.
Gíró- og kred-
itkortaþjónusta.
Minningarkort MS fé-
lags Íslands eru seld á
skrifstofu félagsins,
Sléttuvegi 5, 103 Rvk.
Skrifstofan er opin
mán.–fim. kl. 10–15.
Sími 568 8620. Bréfs.
568 8621. Tölvupóstur
ms@msfelag.is.
Heilavernd. Minning-
arkort fást á eft-
irtöldum stöðum: Í síma
588 9220 (gíró), Holts-
apóteki, Vesturbæj-
arapóteki, Hafnarfjarð-
arapóteki,
Keflavíkurapóteki og
hjá Gunnhildi Elíasdótt-
ur, Ísafirði.
Í dag er þriðjudagur 9. júlí, 190.
dagur ársins 2002. Orð dagsins:
Þegar nú Drottinn Jesús hafði
talað við þá, var hann upp numinn
til himins og settist til hægri
handar Guði.
(Mark. 16,19.)
K r o s s g á t a
LÁRÉTT:
1 handtak, 8 stúlkan, 9
trylltar, 10 skepna, 11
regn, 13 beiskar, 15 búa
litlu búi, 18 aflmikil, 21
lengdareining, 22 fugl, 23
hylur grjóti, 24 land í
Evrópu.
LÓÐRÉTT:
2 frægðarverk, 3 dútla, 4
öls, 5 lærir, 6 bergmál, 7
þrjóskur, 12 hestur, 14
rándýr, 15 byggingu, 16
ástfólgnir, 17 þverneita,
18 duglegur, 19 dáin, 20
þráður.
LAUSN SÍÐUSTU KROSSGÁTU:
Lárétt: - 1 fljót, 4 glögg, 7 ólgan, 8 ætlar, 9 der, 11 sært,
13 eggi, 14 endur, 15 spöl, 17 róma, 20 krá, 22 golan, 23
túlum, 24 rígur, 25 kiðin.
Lóðrétt: - 1 flóns, 2 jagar, 3 tind, 4 glær, 5 öflug, 6 gerpi,
10 eldur, 12 tel, 13 err, 15 sýgur, 16 örlög, 18 óglöð, 19
auman, 20 knýr, 21 átak.
6
8
11
15
22
1
24
12
3
10
17
21
4
9
13
18
23
14
5
19
7
20
2
16
Víkverji skrifar...
VÍKVERJI tók daginn snemma ásunnudag og keyrði sænskan
frænda sinn, konu hans og tvær ung-
ar dætur suður í Flugstöð Leifs Ei-
ríkssonar. Veður var með besta móti
þennan morgun, sól og blíða, og fróð-
legt var að fylgjast með mannlífinu í
Reykjavík og nágrannabæjarfélög-
um. Fáir voru raunar á ferli fyrsta
kastið, upp úr klukkan fimm, stöku
hræða á stangli. Einkum ungmenni á
leið heim af öldurhúsum. Fáir bílar
voru á ferð, nær eingöngu leigubílar,
þéttsetnir ungmennum. Víkverji átti
sitt blómaskeið á galeiðunni og kippti
sér því lítið upp við þetta, þannig haf-
ast íslensk ungmenni að. Hinum
sænsku gestum brá hinsvegar nokk-
uð í brún. „Er fólk virkilega ennþá að
skemmta sér?“ spurði frændinn er
klukkan nálgaðist sex og þótti þessi
háttur með hreinum ólíkindum. Þar
sem hann býr, í Smálöndunum, eru
menn komnir í koju klukkan tvö eftir
upplyftingu, ekki mínútu síðar, og
ganga sinna verka á vit daginn eftir,
fjallbrattir. Sama verður nú ekki
sagt um Íslendinga, svo mikið er víst.
Víkverji hafði yndi af þessari um-
ræðu og setti fram þá söguskýringu
að afgreiðslutími skemmtistaða hefði
verið gefinn frjáls fyrir fáeinum
misserum til að dreifa álaginu í mið-
bænum. Sú var tíðin að slagbrandi
var brugðið fyrir dyr á öllum stöðum
á sama tíma, klukkan þrjú, og skap-
aðist þá kaótískt ástand. Þúsundir
manna þustu út á götur á sama tíma.
Og svona rétt til að krydda frásögn-
ina, að íslenskum sið, bætti Víkverji
því við að oftar en ekki hefði komið til
handalögmála, þegar kappsfullir
kráaröltarar komu saman, ósáttir við
að hætta leik þá hæst stóð. Þótti hin-
um sænsku gestum þetta stórmerki-
legt og hlógu við tilhugsunina.
Það vakti athygli Víkverja á heim-
leiðinni að mun fleira fólk var þá á
ferli, milli klukkan hálf sjö og sjö. Og
þá ræðir um ölvað fólk. Hann mætti
þremur ungmennum í Hafnarfirði
sem rásuðu í vegarkantinum, nær
dauða en lífi. Hættulegur leikur það.
Leigubílarnir voru enn sneisafullir af
ungmennum og nú stóðu hendur – og
jafnvel fætur – út um glugga. Er Vík-
verji nam staðar á umferðarljósum
renndi leigubíll upp að hlið hans.
Einn farþega renndi niður rúðu og
sagði Víkverja í óspurðum fréttum
að fara í rass og rófu. Á enskri tungu,
nema hvað, eins og íslenskra ung-
menna er siður.
Á Ártúnshöfða mætti Víkverji síð-
an ungum manni sem var ekkert að
spígspora í jaðrinum, eins og þríeyk-
ið í Hafnarfirði, heldur gekk bara
hröðum skrefum á miðri götunni.
Heilsaði hann Víkverja að her-
mannasið.
Þegar Víkverji skreið aftur undir
sæng, fáeinum mínútum síðar, sáttur
við Guð og menn, hugsaði hann með
sér: Gott er að galeiðuróðrinum er
lokið.
x x x
VÍKVERJI horfir ekki mikið átennis en fylgist eigi að síður
jafnan með gangi mála á stórmótum.
Wimbledon-mótinu lauk um helgina
með sigri Ástralans Lleytons Hew-
itt. Rúllaði hann argentínskum and-
stæðingi sínum, David Nalbandian,
upp. Hewitt þessi er aðeins 21 árs
gamall, kraftmikill og teknískur
tennisleikari, sem virðist hafa burði
til að einoka íþróttina um langt skeið.
Gaman verður að fylgjast með hon-
um í framtíðinni.
Ómissandi dagblöð
FRÉTTABLAÐIÐ hefur
ekki komið út í nokkurn
tíma og er söknuður að því.
Ég var einn af mörgum sem
sótt gátu blaðið í póstkass-
ann á hverjum morgni,
ásamt Morgunblaðinu. Síð-
an fer að bera á því, að
Fréttablaðið fer að berast
seint og illa og hverfur að
lokum. Engar skýringar
fékk ég á þessu, þótt leitað
væri hjá dreifingardeild.
Skýringa þarf ekki að leita
lengur, blaðið kemur ekki
út, þótt vonir standi til að
svo verði.
Hver sem ástæðan var
verður hún ekki rakin hér,
en oft kemur fyrir, að ég
bregð mér á reiðskjóta og
hjóla vítt og breitt um bæ-
inn.
Í nokkrum ferða minna
um bæinn tók ég eftir að
víða lágu pakkar í plastum-
búðum, undir bekkjum og á
fleiri stöðum. Ef betur var
að gáð kom í ljós að um
Fréttablaðið var að ræða. Í
óleyfi kom það fyrir, að ég
leyfði mér að taka eintak
heim, til aflestrar.
Sem lesandi, og með
fasta áskrift til margra ára
að Morgunblaðinu, vil ég
þakka fyrir skilvísan út-
burð. Sjaldan eða aldrei
hefur Morgunblaðið vantað
í minn póstkassa að morgni,
nema því fylgi skýringar.
Vona ég að svo verði
áfram. Ekki ætla ég að líkja
þessum tveim blöðum sam-
an, slíkt væri óréttlátt, en
ég sakna Fréttablaðsins
engu að síður. Alltaf mun þó
Morgunblaðið standa upp
úr hvað blaðaútgáfu snertir,
það er hreinlega langbest
blaða.
Virðingarfyllst,
Svanur Jóhannsson.
Tapað/fundið
Ljós kápa – A. Hansen
SÍÐASTLIÐIÐ föstudags-
kvöld milli kl. 22 og 24 var
ljós hálfsíð Benetton-kápa
með hettu tekin í misgrip-
um úr fatahengi veitinga-
staðarins A. Hansen. Kápan
hefur mikið tilfinningalegt
gildi fyrir eiganda og er
hennar sárt saknað. Sá sem
tók kápuna eða sá sem veit
hver tók hana er vinsamleg-
ast beðinn um að hringja í
síma 820 4406 eða koma
kápunni til A. Hansen.
Leigubílstjóri með
gallajakka
RÚMLEGA tvítugur piltur
tók leigubíl (sennilega frá
Hreyfli) í Skógarhlíð,
þriðjudagsmorguninn 25.
júní sl. Hann var veskislaus
og lét gallajakka sinn í
geymslu fyrir greiðslu.
Ítrekað hefur verið reynt að
hafa uppi á bílstjóranum,
sem lét enga kvittun af
hendi, en án árangurs. Ef
bílstjórinn les þessar línur
er hann vinsamlegast beð-
inn að hafa samband í síma
897 4954.
Samsonite í óskilum
VIÐ fundum Samsonite-
kvensnyrtitösku á áningar-
stað við Borgarvirki í Húna-
vatnssýslu fimmtudaginn 4.
júlí. Sú sem getur lýst henni
má sækja hana til okkar.
Síminn er 862 9108.
Lykill að Daihatsu
týndist
LYKILL að Daihatsu týnd-
ist í febr./mars fyrir utan
Safamýri 38. Skilvís finn-
andi hafi samband í síma
567-8422.
Mongoose-fjallahjól
týndist
BLÁTT Mongoose-fjalla-
hjól týndist frá Dofrabergi
27 í Hafnarfirði 27. júní sl.
Þeir sem hafa séð hjólið hafi
samband í síma 565 2822
eða skili hjólinu til lögregl-
unnar.
Bakkar, Breiðholti
NÝTT rautt stelpureiðhjól
24" Prostyle Pallace hvarf
úr hjólageymslu í Dverga-
bakka 10. Þeir sem geta
gefið upplýsingar um hjólið
vinsamlega hafi samband í
síma 567 1768 eða 865 9578.
Fundarlaun.
VELVAKANDI
Svarað í síma 569 1100 frá 10-12 og 13-15.
Netfang velvakandi@mbl.is
SR. BALDUR Rafn Sig-
urðsson, sóknarprestur í
Njarðvík, skipulagði
dagsferð með eldri borg-
urum í Reykjanesbæ sem
farin var hinn 14. maí sl.
Farið var um Dalina,
Fellsströnd og Skarðs-
strönd, og komið við í bæ
Eiríks rauða þar sem
ferðamálafulltrúi Dala-
byggðar tók á móti okk-
ur. Sr. Óskar Ingi Inga-
son, prestur í Búðardal,
var leiðsögumaður okkar
og var unun að því að
hlýða á orð hans því hann
er hafsjór af fróðleik.
Vil ég þakka vel skipu-
lagða og ánægjulega
ferð. Þá vil ég þakka sr.
Baldri og Lionsmönnum í
Reykjanesbæ fyrir
ánægjulegar sam-
verustundir í Njarðvík-
urkirkju í vetur og einnig
meðhjálparanum sem sá
um kaffiveitingar. Það
hefur verið föst regla í
nokkur ár að eldri borg-
urum hefur verið boðið
að koma saman í
safnaðarheimilinu til að
spila og þiggja kaffiveit-
ingar og er samverustund
í kirkjunni á eftir.
Allt þetta hefur verið
okkur að kostnaðarlausu.
Hittumst hress í haust.
Ein úr hópnum.
Ánægjuleg ferð