Morgunblaðið - 10.08.2002, Side 1
185. TBL. 90. ÁRG. LAUGARDAGUR 10. ÁGÚST 2002 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS
STOFNAÐ 1913
MORGUNBLAÐIÐ 10. ÁGÚST 2002
KOMIÐ hefur í ljós, að bandaríski
fjarskiptarisinn WorldCom taldi sér
ekki aðeins ranglega til tekna 3,8
milljarða dollara, 326 milljarða ís-
lenskra króna, heldur 7,1 milljarð
dollara alls eða 608 milljarða kr. Við
nánari skoðun fundust 3,3 milljarðar
dollara eða 282 milljarðar kr. að auki.
Fyrirtækið sagði í yfirlýsingu í
fyrrakvöld, að bandaríska fjármála-
eftirlitinu hefði verið skýrt frá þessari
nýju stöðu en vegna hennar á að end-
urskoða alla ársreikninga fyrirtækis-
ins fyrir árið 2000. Þá kallar hún einn-
ig á endurmat á eignum þess og er
búist við, að verðmæti þeirra verði
fært niður um 50,6 milljarða dollara,
rúmlega 4.330 milljarða króna. Gæti
það gert að engu vonir um að fyr-
irtækinu megi bjarga en gjaldþrot
þess yrði það mesta í bandarískri
sögu.
Þegar WorldCom fór fram á
greiðslustöðvun í júní sl. mat það
sjálft eignir sínar á 107 milljarða doll-
ara, 9.160 milljarða kr., og skuldirnar
á 41 milljarð dollara, 3.510 milljarða
kr. Nú eru horfur á, að eignirnar
verði færðar niður um helming og þar
við bætist, að netfyrirtækið SBC
Communications hefur beðið dómara
í New York að tryggja, að það fái
greitt fyrir þjónustu sína við World-
Com. Fari önnur fyrirtæki að dæmi
þess er talið, að rekstur WorldCom
stöðvist.
Varað við enn meiri ótíðindum
Í yfirlýsingu WorldCom segir, að
fjárfestar og lánardrottnar fyrirtæk-
isins skuli búa sig undir frekari ótíð-
indi þar sem ekki sé enn víst, að öll
kurl séu komin til grafar.
John Sidgmore, núverandi aðal-
framkvæmdastjóri WorldCom, segir í
viðtali, sem birtist í Washington Post
í gær, að þeir Scott D. Sullivan, fyrr-
verandi fjármálastjóri fyrirtækisins,
og David F. Myers, fyrrverandi eft-
irlitsmaður með fjárreiðum þess, hafi
átt alla sök á bókhaldsblekkingunum.
Þeir voru handteknir fyrir nokkrum
dögum og hafa verið ákærðir fyrir
margvísleg svik og fölsun.
Í viðtalinu við Sidgmore var hann
spurður hvort nýjustu upplýsingarn-
ar breyttu einhverju um tilraunir til
að bjarga WorldCom. „Að því gefnu,
að við séum gjaldþrota, sé ég ekki, að
þær breyti neinu,“ svaraði hann.
Fátt virðist geta komið í veg fyrir gjaldþrot WorldCom
Bókhaldssvikin enn
meiri en talið var
Washington. AFP.
SARAH Baartman, sem var köll-
uð „Hottintotta-Venus“ og sýnd
nakin sem kynferðislegt viðundur
í Bretlandi og Frakklandi á
nítjándu öld, var borin til grafar í
Suður-Afríku í gær. Joseph
Little, höfðingi Khoisana, sem áð-
ur voru kallaðir hottintottar,
stjórnar hér greftrunarathöfninni
í dal þar sem Baartman fæddist
fyrir 213 árum.
Sarah Baartman bjó í Höfða-
borg árið 1810 þegar breskur
skipslæknir bauðst til að taka
hana með sér til London og sagði
að hún gæti stórauðgast á því að
sýna Evrópumönnum líkama sinn.
Í Bretlandi var hún höfð til sýnis
í fjölleikahúsum, söfnum, öld-
urhúsum og háskólum. Henni var
síðan þröngvað til vændis í
Frakklandi og hún dó þar úr
berklum 26 ára að aldri.
Líkamsleifar Baartman voru til
sýnis í Mannkynssafninu í París
til 1974 og fluttar til Suður-
Afríku í mars síðastliðnum eftir
sjö ára samningaviðræður milli
suður-afrískra og franskra
stjórnvalda.
„Sarah Baartman hefði aldrei
átt að vera flutt frá ættjörð sinni
og höfð til sýnis sem villimaður
og viðundur,“ sagði Thabo Mbeki,
forseti Suður-Afríku, við um
7.000 manns sem voru við greftr-
unina. „Það var ekki einmana
afríska konan í Evrópu sem var
villimaður, heldur þeir sem komu
fram við hana af villimannslegri
grimmd.“
Reuters
„Hottin-
totta-
Venus“
grafin
DICK Armey, leiðtogi repúblikana í
fulltrúadeild Bandaríkjaþings, hefur
látið í ljós andstöðu við „tilefnislaus-
ar árásir“ á Írak og bendir það til
þess að ágreiningur sé meðal repú-
blikana um þá stefnu George W.
Bush Bandaríkjaforseta að koma
Saddam Hussein Íraksforseta frá
völdum.
„Ég er sjálfur þeirrar skoðunar að
við eigum að leyfa Saddam Hussein
að vera með rosta, þenja sig og
þvæla,“ sagði Armey, repúblikani frá
Texas, í ræðu í fyrrakvöld.
Armey varaði við því að Bandarík-
in kynnu að einangrast á alþjóðavett-
vangi ef ráðist yrði á Írak án þess að
stjórn Saddams hefði ögrað Banda-
ríkjunum með augljósum hætti. „Ef
við látum til skarar skríða gegn
Saddam Hussein, án augljósrar ögr-
unar af hans hálfu, munum við ekki
njóta stuðnings annarra ríkja sem
kynnu að styðja réttlætanlegar að-
gerðir gegn honum.“
Schröder útilokar þátttöku
Þjóðverja í árásum á Írak
Ný skoðanakönnun CBS-sjón-
varpsins bendir til þess að tveir
þriðju Bandaríkjamanna séu hlynnt-
ir hernaði gegn stjórn Saddams, en
þeir vilja að Bush leiti fyrst eftir
samþykki þingsins og stuðningi vina-
þjóða. Bush hefur lofað að ráðfæra
sig við þingið og leiðtoga vinaþjóða
áður en hann fyrirskipi árásir á Írak.
Gerhard Schröder, kanslari
Þýskalands, sagði í gær að ekki
kæmi til greina að Þjóðverjar tækju
þátt í hernaði gegn Írökum og ekkert
gæti breytt þeirri afstöðu hans.
Stuðningsmenn hernaðar gegn
stjórn Saddams segja að Írakar séu
að þróa gereyðingarvopn, sem geti
ógnað grannríkjunum og Bandaríkj-
unum. Neiti Saddam að hleypa
vopnaeftirlitsmönnum á vegum Sam-
einuðu þjóðanna inn í Írak sé það
nógu mikil ögrun til að réttlæta árás-
ir á landið. Armey er á öndverðum
meiði og segir þetta ekki gefa tilefni
til hernaðar.
Sharif Ali, einn af leiðtogum
Íraska þjóðarráðsins, samtaka út-
lægra andstæðinga Saddams, ræddi
í gær við embættismenn í Wash-
ington. Hann sagði að Saddam nyti
svo lítils stuðnings í Íraksher að ekki
myndi koma til átaka ef Bandaríkja-
menn réðust inn í landið. Írösku her-
mennirnir myndu ekki berjast.
Repúblikana
greinir á um
árásir á Írak
Washington. AP, AFP.
KRÁKAN Betty hefur komið bresk-
um vísindamönnum á óvart með því
að búa til verkfæri og slá þannig
dýrum eins og simpönsum við. Er
hún fyrsta dýrið sem vitað er að hafi
búið af sjálfsdáðum til verkfæri í
sérstökum tilgangi, að sögn vísinda-
manna við Oxford-háskóla.
Betty er í búri í rannsóknarstofu
Oxford-háskóla þar sem rannsakað
var hvort hún og önnur kráka, karl-
fuglinn Abel, gætu náð lítilli fötu
með fæðu upp úr tilraunaglasi, ann-
aðhvort með beinum vír eða króki.
Þegar fuglarnir höfðu reynt þetta
fjórum sinnum stal Abel króknum
og flaug í burtu, en kvenfuglinn
greip þá til þess ráðs að beygja vír-
inn og búa til krók. Krákan notaði
hann síðan til að krækja í handfang
fötunnar og ná henni upp. Henni
tókst þetta í níu tilraunum af tíu.
Karlfuglinn notaði hins vegar að-
eins beina vírinn til að stinga í fæð-
una.
Vísindamenn við Oxford-háskóla
sögðust hafa orðið steinhissa þegar
þeir sáu krákuna búa til krókinn.
„Þótt mörg dýr noti verkfæri er það
óþekkt að dýr breyti hlutum í sér-
stökum tilgangi til að leysa ný
vandamál, án þjálfunar eða fyrri
reynslu,“ sagði Alex Kacelnik, pró-
fessor í atferlisvistfræði við Oxford-
háskóla.
Bandaríski fuglafræðingurinn
Richard Banks, sérfræðingur í
krákum, segir þetta óvænt tíðindi.
Vitað sé að nokkrar fuglategundir
hafi notað verkfæri án þess að hafa
búið þau til.
Simpansar í Afríku hafa sést velja
og nota steina til að brjóta hnetur
og vitað er að apar nota trjásprota
til að veiða æta maura og termíta.
„Verkfæragerð og -notkun hefur
verið álitin meðal sérkenna æðri
greindar,“ sagði Kacelnik. „Nú hef-
ur fugl reynst búa yfir meiri kunn-
áttu en mörg dýr sem eru skyldari
okkur mönnunum.“
Krákurnar tvær eru af tegund-
inni Corvus moneduloides sem lifir á
eyjunni Nýju-Kaledoníu í Kyrrahafi.
Kráka slær
mannöpunum við
Washington. AP, AFP.
AP
Krákan Betty með krók í gogginum á rannsóknarstofu í Oxford.