Morgunblaðið - 10.08.2002, Page 6
FRÉTTIR
6 LAUGARDAGUR 10. ÁGÚST 2002 MORGUNBLAÐIÐ
LOTHAR Schmid, sem var yfirdóm-
ari „skákeinvígis aldarinnar“ milli
Borisar Spasskys og Bobbys Fisch-
ers í Reykjavík 1972, afhenti í gær
Skáksambandi Íslands afrit sem
hann átti af skorblöðum einvígisins
og ýmis skjöl því tengd. Á skor-
blöðin voru leikir skáksnillinganna
skráðir og þau gögn sem skjalfestu
að Fischer varð heimsmeistari.
Schmid kom til landsins í gær frá
Þýskalandi til að vera viðstaddur
málþing Skáksambandsins í Þjóð-
menningarhúsinu í dag ásamt Boris
Spassky og fleiri gestum. Hrannar
B. Arnarsson, forseti Skák-
sambands Íslands, veitti skorblöð-
unum viðtöku ásamt Helga Ólafs-
syni stórmeistara.
Í tengslum við málþingið fer fram
sýning á sama stað þar sem skor-
blöðin verða til sýnis ásamt fleiri
munum tengdum einvíginu fyrir 30
árum, m.a. sýnishorn af umfjöllun
Morgunblaðsins um einvígið. Nefn-
ist sýningin „Skákarfur Íslendinga
og Einvígi aldarinnar“ þar sem
einnig er vikið að skáksögu Íslend-
inga til dagsins í dag. Hluti sýning-
arinnar var í Ráðhúsinu sl. vetur.
Stórkostlegir tímar
Morgunblaðið átti samtal við
Lothar Schmid í Þjóðmenningar-
húsinu í gær þar sem hann tyllti sér
í stól Fischers við skákborðið, sem
er til sýnis með öðrum munum, og
blaðamaður settist varlega í stól
Spasskys. „Hér streyma minningar
fram í hugann,“ sagði Schmid í upp-
hafi samtalsins og var greinilega
ánægður með að vera kominn til Ís-
lands að nýju. Hann hefur ekki
komið hingað síðan einvígið var háð
í Laugardalshöllinni.
„Þetta voru stórkostlegir tímar
fyrir þrjátíu árum, ekki aðeins í
skákheiminum heldur einnig í um-
heiminum. Kalda stríðið var í al-
gleymingi og þarna mættust við
skákborðið fulltrúar austurs og
vesturs, ef svo má segja. Einvígið er
að mínu mati eitt hið mikilvægasta í
allri skáksögunni, ekki síst með til-
liti til aðstæðna í heimsmálum á
þessum tíma. Þetta var ekki aðeins
mikilvægur viðburður fyrir Íslend-
inga heldur fyrir heiminn allan. Við
getum líka verið þakklát Íslend-
ingum fyrir að halda einvígið og
gera það vel, “ sagði Schmid.
Hann taldi einvígið hafa markað
upphaf betri samskipta milli stór-
veldanna. Þrátt fyrir vissa erfið-
leika hefðu deilumál verið rædd og
þau leyst. Hann væri því þakklátur
bæði Spassky og Fischer fyrir
þeirra framlag. Ánægjulegt væri að
hitta Spassky á Íslandi en því miður
væri Fischer fjarverandi, fáir ef
nokkrir vissu hvar hann væri ná-
kvæmlega niður kominn í heim-
inum.
Hótaði að mölva skákborðið
„Hlutverk okkar dómaranna var
mjög erfitt. Fylgdarmenn Spasskys
voru erfiðir viðureignar, alveg eins
og Bobby Fischer og hans menn.
Einvígið var þrungið spennu. Þarna
mættust tveir snillingar skáklistar-
innar, þeir bestu í heiminum á þess-
um tíma,“ sagði Schmid og rifjaði
næst upp gang fyrstu skákanna,
m.a. þegar hann varð að dæma
Spassky sigurinn þegar Fischer
mætti ekki til leiks í annarri skák-
inni. Síðan hefði þurft að láta þriðju
skákina fara fram í öðrum sal
vegna kvartana Fischers og hans
manna yfir myndavélum, sem þeir
töldu vera of hávaðasamar, og fleiri
atriðum.
„Lögmaður Bobbys Fischers,
Marshall að nafni, kom til mín og
sagði að þeir vildu að þriðja skákin
færi fram í hliðarsal í Laugardals-
höllinni. Hann sagði Bobby finna
fyrir óþægindum af myndavélunum
og fleiru. Ég sagði þetta aðeins vera
hægt ef hávaðinn væri svo mikill að
hann truflaði einbeitingu Bobbys
eða ef eitthvað væri í sjónlínu hans
sem truflaði. Lögmaðurinn sagðist
þá ætla að taka stóran hamar og
mölva skákborðið. Mér fannst þessi
framkoma ótrúleg og jafnframt
leiðinleg, en ég spurði Spassky
hvort hann vildi tefla í öðrum sal.
Hann sýndi mikla íþróttamannslega
framkomu með því að samþykkja
þetta en var líka að færa fórn. Hann
tapaði þriðju skákinni og átti erfitt
uppdráttar eftir það,“ sagði
Schmid.
Hann sagðist hafa hitt Spassky
nokkrum sinnum frá einvíginu 1972
en Fischer hefði hann ekki séð síð-
an hann dæmdi skák þeirra Spass-
kys í Svartfjallalandi fyrir tíu árum.
Fyrstu árin eftir Reykjavíkur-
einvígið hittust þeir nokkrum sinn-
um, m.a. á heimili Schmids.
Hvað skorblöðin varðaði sagðist
hann vera ánægður og sáttur með
að þau væru komin í varðveislu Ís-
lendinga, þar ættu þau heima en
ekki hjá gömlum manni eins og
honum! „Þið megið eiga þau næstu
hundrað árin eða jafnvel lengur, í
minningu um magnað einvígi,“
sagði hinn aldni en glaðværi yfir-
dómari að endingu í samtalinu yfir
skákborðið, miðpunkt einvígisins
fyrir þremur áratugum.
Hluti af dýrgripum einvígisins
Hrannar B. Arnarsson sagði við
Morgunblaðið að gjöf Lothars
Schmids væri ánægjuleg og afar
mikilvæg. Skorblöðin væru hluti af
þeim dýrgripum sem fylgdu einvíg-
inu. Hann vildi hvetja alla áhuga-
menn um skák að koma á mál-
þingið, sem væri öllum opið, og þar
gæfist einstakt tækifæri til að hlýða
á flesta „aðalleikara“ einvígisins og
spyrja þá spjörunum úr. Sömuleiðis
sagði hann sýninguna mjög áhuga-
verða, þar væri m.a. merkilegur
forngripur frá Þjóðminjasafninu,
svokallað hneftafl sem víkingar
spiluðu á 11. og 12. öld og er forveri
taflsins eins og það þróaðist hér og
víðar um heim.
Með mikilvæg-
ustu einvígjum
skáksögunnar
Morgunblaðið/Jim Smart
Lothar Schmid afhendir skorblöðin í Þjóðmenningarhúsinu í gær í
hendur Hrannars B. Arnarssonar, forseta Skáksambandsins, og Helga
Ólafssonar stórmeistara. Standa þeir við skákborðið og stólana sem
Spassky og Fischer tefldu við fyrir 30 árum.
Lothar Schmid, yfirdómari skákeinvígisins 1972,
gaf Skáksambandinu skorblöð og fleiri skjöl tengd einvíginu
BANDARÍSKI kvikmynda-
leikarinn John Travolta hafði
stutta viðkomu á Keflavíkur-
flugvelli í gærmorgun. Að sögn
starfsmanns flugumsjónar á
Keflavíkurflugvelli lenti Tra-
volta Boeing 707B þotu sinni í
Keflavík um sexleytið og stopp-
aði vélin í rúman klukkutíma, á
meðan fyllt var á eldsneyti við
Leifsstöð. Travolta var sjálfur
við stjórnvölinn og yfirgaf hann
ekki stjórnklefa vélarinnar.
Stóð til að hann myndi
stoppa hér
„Það stóð til að hann myndi
stoppa hér á landi en þegar
hann flaug að var ákveðið að
þetta yrði stutt stopp. Það fóru
einhverjir frá borði úr áhöfn en
ekki hann. Mér skilst að hann
sé með fulla áhöfn en ég veit
ekki hvað það voru margir í vél-
inni,“ segir starfsmaðurinn.
Áætlanir heimsferðar leikar-
ans hafa raskast vegna bilana
sem hafa verið í flugvélinni en
til stóð að hann dveldi eina nótt
hér á landi. Fram kemur á
fréttavef Víkurfrétta að Tra-
volta hafi komið til Íslands frá
Anchorage í Alaska og var ferð-
inni heitið héðan til meginlands
Evrópu. Þá segir að tveir ör-
yggisverðir Travolta hafi verið
hér á landi síðustu daga og
meðal annars skoðað gististaði
og hugsanlega áfangastaði.
Reynt var að bóka herbergi á
Hótel Keflavík en þar var fullt.
Einnig segir að ætlunin hafi
verið að fara í Bláa lónið.
Travolta er í sérstakri ferð er
nefnist á ensku „Spirit of Fri-
endship“. Ferðin er farin á veg-
um ástralska flugfélagsins
Quantas í þeim tilgangi að bæta
ímynd flugsins og boða frið í
kjölfar hryðjuverkanna í
Bandaríkjunum fyrir tæpu ári.
Travolta
stoppaði
stutt
JÓN Birgir Jónsson, ráðuneytis-
stjóri í samgönguráðuneytinu, segir í
samtali við Morgunblaðið að ákveðin
mistök hafi verið gerð í ráðuneytinu
þegar það tók rúmt ár að svara fyr-
irspurn umboðsmanns Alþingis en
tekur jafnframt fram að í áliti um
álögð skipagjöld af gamla varðskip-
inu Þór, sem greint var frá í Morg-
unblaðinu í gær, sé umboðsmaður
fulldómharður í garð ráðuneytisins.
Hann segir margt koma til sem skýri
þann drátt sem varð á að svara, m.a.
annir í fámennu ráðuneyti, en um
tuttugu manns starfa í samgöngu-
ráðuneytinu að jafnaði.
„Okkur finnst það of sterklega til
orða tekið hjá umboðsmanni að við
höfum ekkert svarað bréfum eða lát-
ið vita af okkur. Við vorum í síma-
sambandi við hann á þessum tíma en
hér voru miklar annir í ráðuneytinu.
Við vorum með í gangi tíu lög sem
þurfti að gera breytingar á og við
tókum þau í ákveðinni forgangsröð.
Nú eru tvenn lög eftir. Hvað hafnar-
gjöldin varðaði fór mikil vinna fram
við þann lagabálk og við vorum að
bíða eftir gögnum til að láta fylgja
með í svari okkar til umboðsmanns.
Samkomulag náðist heldur ekki í
siglingaráði um sumar lagabreyting-
ar og við gátum því miður ekki kynnt
umboðsmanni niðurstöðurnar,“ seg-
ir Jón Birgir.
Reynum eftir bestu getu
að svara öllum bréfum
Aðspurður hvort umboðsmanni
hafi verið gerð grein fyrir ástæðum
þess að svo langan tíma tók að svara
fyrirspurn hans segir Jón Birgir það
hafa verið gert að hluta til.
„Auðvitað á að svara öllum bréfum
og við reynum það eftir bestu getu.
Þessi mál sem nefnd eru í álitinu lýsa
ekki vinnubrögðum okkar í ráðu-
neytinu. Hér er duglegt fólk sem
vinnur mjög vel. Þarna urðu því mið-
ur mistök, eins og getur gerst, og ég
er ekki að bera í bætifláka fyrir það,“
segir Jón Birgir.
Í frétt frá samgönguráðuneytinu,
sem send var út vegna álits umboðs-
manns Alþingis, segir að ráðstafanir
hafi verið gerðar til að tryggja skjót-
ari afgreiðslu en varð í þeim málum
tengdum ráðuneytinu sem umboðs-
maður hefur fjallað um nýverið. Að-
spurður hvaða ráðstafanir það eru
segir Jón Birgir að í ráðuneytinu sé
hver skrifstofustjóri gerður ábyrgur
fyrir sínum málaflokki. Ákveðið hafi
verið að einn skrifstofustjórinn bæti
við sig því verkefni að fylgjast með
bréfum sem dregist hefur úr hófi
fram að svara í ráðuneytinu.
„Svona mál geta farið á milli
deilda hjá okkur án þess að mikið
gerist. Við ætlum að tryggja það að
eftir ákveðinn tíma verði öll bréf tek-
in fyrir sem hefur dregist að svara
og rekið verði á eftir þeim á venju-
legum skrifstofutíma,“ segir Jón
Birgir.
Mistök gerð en
óþarfa dómharka
Ráðuneytisstjóri samgönguráðuneytis um álit umboðsmanns
borð við Falun Gong teljist til upp-
lýsinga um einkamálefni einstak-
linga sem sanngjarnt og eðlilegt sé
að leynt fari, nema sá samþykki
sem eigi í hlut.
Aftur á móti skuli leiðbeinandi
upplýsingar efst á listanum vera
opinberar, en þar kemur fram að
fólkið á listanum er flokkað í tvo
flokka, annars vegar þá sem áreið-
anlegar upplýsingar og/eða gögn
séu um að séu meðlimir í Falun
Gong og hins vegar þá sem óstað-
festar ábendingar séu um að við-
komandi geti verið meðlimur í Fal-
un Gong. Þurfi að kanna það nánar
til dæmis með því að spyrja við-
komandi.
Í bréfinu til Flugleiða segir með-
al annars að að mati ráðuneytisisns
sé mjög mikilvægt að hindra komu
mótmælenda úr hreyfingunni Falun
Gong hingað til lands á tímabilinu
11.-16. júní og þar með að spara
umstang við landgöngusynjun og
sendingu viðkomandi til baka. „Er
þess því farið á leit við yður, að því
fólki sem skráð er á framangreind-
an lista verði synjað um flugfar
hingað til lands, enda yrði það
hvort eð er stöðvað í Leifsstöð og
endursent til sama lands og það
kom frá,“ segir í niðurlagi bréfsins.
ÚRSKURÐARNEFND um upp-
lýsingamál hefur komist að þeirri
niðurstöðu að bréf dómsmálaráðu-
neytisins til Flugleiða vegna heim-
sóknar forseta Kína hingað til lands
í vor skuli gerð opinber, en Stöð 2
kærði synjun ráðuneytisins þess
efnis.
Í úrskurði nefndarinnar kemur
fram að þótt bréfin hafi vissulega
tengst öryggisráðstöfunum í
tengslum við opinbera heimsókn er-
lends þjóðhöfðingja hingað til lands
sé þar ekki að finna neinar upplýs-
ingar sem varði öryggi ríkisins
þannig að mikilvægir almannahags-
munir krefjist þess að þeim sé hald-
ið leyndum. Við það mat nefnd-
arinnar hafi meðal annars verið
tekið tillit til þess að megininntak
bréfanna hafi þegar verið gert
kunngert opinberlega og að hinni
opinberu heimsókn sé lokið.
Nafnalistarnir
ekki gerðir opinberir
Nefndin kemst hins vegar að
þeirri niðurstöðu að nafnalistar sem
fylgdu bréfi dómsálaráðuneytisins
skuli ekki gerðir opinberir þar sem
nefndin líti svo á að upplýsingar um
trúarbrögð manna, svo og um aðild
þeirra og afstöðu til hreyfinga á
Úrskurðarnefnd um upplýsingamál
Bréf ráðuneytis
til Flugleiða
gerð opinber