Morgunblaðið - 10.08.2002, Side 10
FRÉTTIR
10 LAUGARDAGUR 10. ÁGÚST 2002 MORGUNBLAÐIÐ
RANNSÓKNARLÖGREGLAN
hefur tekið við stjórnun aðgerða á
vettvangi í Fákafeni 9 þar sem stór-
bruni varð á miðvikudagskvöld og
aðfaranótt fimmtudags. Aðstæður
til slökkvistarfs voru mjög erfiðar
og er ljóst að slökkviliðsmenn hafa
unnið afrek með því að halda eld-
inum og hitanum frá listaverka-
geymslu Listasafns Reykjavíkur.
Brunaskemmdir í kjallaranum, þar
sem eldurinn kom upp, eru nær ein-
ungis í lager Teppalands, en
geymsla listasafnsins liggur að lag-
er Teppalands. Einnig má þakka
það, að ekki fór verr, því að vel var
staðið að öllum brunavörnum í hús-
inu.
Jón Viðar Matthíasson varaslökk-
viliðsstjóri segir að öllum mögu-
legum aðferðum við slökkvistarf
hafi verið beitt. „Til að eldur geti
lifað þarf hita, súrefni og eldsmat.
Við notuðum froðu og vatn á eldinn
og sprautuðum kolsýru inn í teppa-
lagerinn. Hún ryður í burtu súrefn-
inu og kælir eldinn niður. Svo tók-
um við heilu parketstæðurnar út og
keyrðum 8–10 vörubíla á haugana
til að minnka eldsmatinn.“ Jón Við-
ar segir að aðgerðirnar hafi að
mörgu leyti minnt frekar á rústa-
björgun en slökkvistarf, þar sem
loftbor, vörubílar og gröfur voru
m.a. notuð. „Orðið eldsvoði er notað
yfir svaka bruna, en ég myndi kalla
þetta náttúruhamfarir. Þetta voru
hamfarir, ég hef líkt þessu við að
þurfa að slökkva eld í einbýlishúsi í
gegnum bréfalúgu. Þarna vorum
við að glíma við litlar ristar og að
reyna að dæla inn í rýmið í gegnum
þetta litla op. Það var ekki fyrr en
við stækkuðum opið sem okkur fór
að verða eitthvað ágengt.“
Geymsla Listasafns Reykjavíkur
var við hlið Teppalandslagersins en
þrátt fyrir að gat kom á vegginn,
sem skildi þessi tvö rými að, voru
mun minni skemmdir á listmunum
og öðru í geymslu listasafnsins en
menn óttuðust. Telur Jón Viðar að
það sé einkum notkun kolsýrunnar
að þakka. „Við teljum að gatið hafi
komið tiltölulega seint í ferlinu, það
var lítið brunnið fyrir innan gatið
og því hefur hitinn ekki getað verið
mikill þegar gatið var að myndast.“
Mikið lán hafi verið að veggurinn
hélt svo lengi sem hann gerði. Segir
Jón Viðar að einnig megi þakka það
því að eldurinn þurfti að éta sig í
gegnum þrjár parketstæður áður
en hann náði að veggnum. Telur
hann að hitinn hafi verið langt yfir
1.000° C þegar mest var.
„Slökkvistarf gekk í raun eins vel
og hægt var að óska sér. Eini lag-
erinn sem er algjörlega brunninn er
Teppalandslagerinn og má því
segja að árangurinn sé mjög góð-
ur.“
Góðar brunavarnir
skiptu sköpum
Brunavarnir í húsinu voru mjög
góðar og segir Jón Viðar að það
hafi einnig skipt sköpum. Steinullin,
sem er mjög eldþolin, var fest með
vír og varði því veggina á bak við.
Hún stendur enn uppi þó hún sé að
stórum hluta brunnin. Þá er ekkert
op í kringum rör sem liggja í gegn-
um brunaveggi. „Oft sér maður að
menn hafa vandað brunaveggi mjög
mikið en svo borað gat í gegnum
hann til að leggja rörin og skilið eft-
ir op í kringum rörin. Þá er gjarnan
það fyrsta sem við sjáum þegar við
mætum á vettvang að eldvarnar-
hurð liggi á gólfinu. Hurðin sjálf er
kannski mjög góð en festingin út í
vegginn bagaleg. Hér skiluðu eld-
varnarhurðir alveg sínu,“ segir Jón
Viðar. Eins og fyrr segir er þó talið
að eldvarnarhurðin að lager Teppa-
lands hafi staðið opin.
Á gangi kjallarans hafi þó verið
stæður af parketi og öðru og eld-
varnaeftirlit leyfi ekki að efni sé
geymt utan geymslurýmis. Segja
Geir Thorsteinsson og Þórhallur
Andrésson, tveir eigenda hússins,
að margoft hafi verið bent á það að
bannað væri að geyma hluti á gang-
inum.
Eldsupptök eru enn óljós en lög-
reglan byrjaði rannsókn sína í gær.
Segir lögregla ómögulegt að segja
til um hvenær rannsókninni verði
lokið.
Morgunblaðið/Þorkell
Hrólfur Jónsson slökkviliðsstjóri og Jón Viðar Matthíasson varaslökk-
viliðsstjóri segja að brunavarnir hafi að miklu leyti verið til fyrirmynd-
ar. Hér sýnir Hrólfur að eldþolin steinullin var fest með vír.
Góðar brunavarnir björguðu því að ekki fór verr
Slökkvi-
starfið
mikið
afrek
EIGENDUR húseignanna Fáka-
fens 9 og 11 og eigendur fyrirtækja
í húsunum tveimur funduðu í gær
með slökkviliði, rannsóknarlögreglu
og fulltrúum tryggingafélaga. Lang-
flest fyrirtækin voru tryggð fyrir
tjóni af völdum bruna og einhver
þeirra eru einnig með rekstrar-
stöðvunartryggingu. Þó eru 2–3 fyr-
irtækjanna alls ótryggð, að sögn
tveggja eigenda húseignarinnar í
Fákafeni 9, Geirs Thorsteinssonar
og Þórhalls Andréssonar. Eigendur
hússins eru með skyldubrunatrygg-
ingu og segja að samkvæmt trygg-
ingaskilmálum ætti hún að ná yfir
allt tjónið á húseigninni.
Óljóst hvort rekstrinum
verður haldið áfram
Heildartjónið hefur enn ekki ver-
ið metið en ljóst er að tjónið hleyp-
ur á hundruðum milljóna króna.
Gólfið í versluninni Saumalist, sem
er fyrir ofan lager Teppalands þar
sem eldurinn kviknaði, er ónýtt og
er ljóst að ráðast þarf í miklar end-
urbætur á húsinu. Segja Geir og
Þórhallur að ráðist verði í uppbygg-
ingu eins fljótt og kostur er. Segjast
þeir telja að flest fyrirtækin í hús-
inu myndu vilja halda rekstrinum
þar áfram, en alls voru rúmlega 10
fyrirtæki rekin í Fákafeni 9 og ann-
að eins í Fákafeni 11.
Eggert Gunnarsson og Ragnheið-
ur Valdimarsdóttir, eigendur
Saumalistar sem er beint fyrir ofan
lager Teppalands, voru að skoða
ummerki eftir eldinn í gær. Hafa
þau rekið búðina í þessu húsi í 14
ár, eða allt frá því húsið var byggt
árið 1988. „Við erum bara lömuð,
við vitum ekkert,“ sagði Eggert að-
spurður um hvort þau hygðust
halda rekstri áfram í húsinu. Þau
eru tryggð fyrir tjóni af völdum
brunans en hafa ekki rekstrarstöðv-
unartryggingu, að hans sögn. Ragn-
heiður var að afgreiða í búðinni þeg-
ar eldurinn kviknaði og segir að hún
hafi átt fótum sínum fjör að launa.
Skyndilega hafi komið sprenging og
allt hafi leikið á reiðiskjálfi í versl-
uninni.
Ingi Þór Jakobsson, eigandi hús-
gagnaverslunarinnar Exó, segist
staðráðinn í að opna verslunina eftir
hálfan mánuð eða svo en fyrirtækið
sé ágætlega tryggt. Við erum að fá
mikið af nýjum vörum og munum
opna aftur,“ sagði Ingi Þór.
Skafti Harðarson segir ljóst að
rekstur Teppalands muni halda
áfram þrátt fyrir brunann, en
Teppaland hefur verið í Fákafeni 9
frá því að nýir eigendur tóku við því
1997. Fyrirtækið sé með mjög góð-
ar tryggingar, þar á meðal rekstrar-
stöðvunartryggingu, og alltaf hafi
verið gætt vel að tryggingamálum
þess. Engan bilbug sé að finna á
eigendum fyrirtækisins, þetta sé
auðvitað mikið áfall en ekki sé
ástæða til þess að leggja árar í bát.
Skafti segir að ef í ljós komi að ekki
hafi orðið varanlegar skemmdir á
burðarvirki hússins reikni hann
með því að geta opnað eftir viku til
tíu daga. „Í dag erum við vel starf-
hæfir til minniháttar afgreiðslu og
móttöku pantana,“ sagði Skafti, en
Teppaland rekur einnig verslun í
Keflavík.
Geirarður Geirarðsson, deildar-
stjóri tjónadeildar hjá Sjóvá-Al-
mennum, og Erlendur Fjeldsted,
hjá Tryggingamiðstöðinni hf., segja
að þau fyrirtæki sem voru með
tryggingu á annað borð hafi flest
bæði verið með lausafjár- og rekstr-
arstöðvunartryggingu. Í tilfellum
eins og þessum sé sjálfsábyrgð
tryggingartaka nánast engin, í
rekstrarstöðvunartryggingu geti
hún verið allt að 1%.
Þegar slökkvistarfi lauk náði
vatnið mönnum í hné. Reyk- og
vatnsskemmdir urðu einnig í lager-
húsnæði í húseigninni Fákafeni 11
sem er við hlið Fákafens 9.
Eigendur stefna að því að ráðast í uppbyggingu í Fákafeni 9 eins fljótt og kostur er
2–3 fyrir-
tækjanna án
tryggingar
Morgunblaðið/Jim Smart
Fundur var haldinn í gær með eigendum fyrirtækja í húsinu, slökkviliði, tryggingarfélögum og lögreglu.
„ÞAÐ er mjög skrýtin tilfinning að
fara inn í brennandi hús og vita ekki
hvað bíður manns og auðvitað flýg-
ur margt í gegnum hugann. Maður
hugsar fyrst og fremst um að fara
sér ekki að voða og taka hvert skref
af öryggi, þá kemst maður í gegnum
þetta,“ segir Ari Jóhannes Hauksson
reykkafari, sem var einn þeirra
fyrstu sem fór inn í brennandi húsið
í Fákafeni á miðvikudag.
Hann segir að þeir hafi gengið
niður innkeyrsluna í kjallarann, sem
var eina leiðin, og það eina sem þeir
hafi vitað væri að bílskúrshurð væri
fallin. „Við sáum að hurðin hékk í
vírum og að eldur geisaði fyrir inn-
an. Við slökktum þann eld sem við
sáum og fórum og náðum í klippur
til að klippa hurðina niður. Það er
mikil óvissa að fara inn í brennandi
hús um hvert næsta skref leiðir okk-
ur, við reynum að fikra okkur
lengra inn, en reynum að taka ekki
mikla áhættu,“ segir Ari.
Fljótlega byrjuðu reykkafararnir
að dæla froðu til að reyna að vinna á
eldinum sem þeir vissu þó ekki hvar
væri. „Froðan gerir aðstæðurnar
erfiðari en einungis reykurinn.
Froðan umlykur okkur alla og við
sjáum akkúrat ekki neitt og heyrum
ekkert því froðan dempar svo hljóð-
ið. Aðstæður voru vægast sagt
magnþrungnar,“ segir Ari.
Hann segir að hitinn hafi ekki ver-
ið aðalvandamálið, heldur hversu lít-
ið skyggni var og mikið af dóti í vegi
fyrir þeim.
Gott að menn séu
aðeins hræddir
„Að auki var það áhyggjuefni hjá
okkur að loftið myndi hrynja niður. Í
eitt sinn var ákveðið að reyna að
sækja sem lengst inn. Við fórum
fjórir inn saman og þegar við vorum
komnir að dyrunum þar sem lista-
verkin voru geymd, urðum við varir
við mikið brak og bresti og dynk.
Ákveðinn ótti greip um sig og við
ákváðum að hörfa strax því við viss-
um ekki hvort þetta var loftið eða
eitthvað annað. Það voru engir séns-
ar teknir og eftir þetta fórum við
ekki meira inn og farið var að grafa
holurnar,“ segir Ari.
„Það getur verið gríðarlega
óþægilegt að fara svona inn, menn
eru þjálfaðir í þessu en auðvitað
geta menn orðið hræddir, annað
væri óeðlilegt. Það er bara gott ef
menn eru aðeins hræddir, þá fara
þeir varlegar,“ segir Ari.
Aðspurður hversu mikinn hita
reykkafarabúningar þola, segir
hann að það sé ekki gott að búning-
urinn þoli of mikinn hita. „Ef við er-
um í búningi sem þolir mjög mikinn
hita förum við lengra og lengra inn
og leggjum okkur í meiri hættu. Við
viljum finna aðeins fyrir hitanum.
Hjálmurinn byrjar að bráðna við 2–
300° C og er það orðinn allt of mikill
hiti, við viljum ekki sækja inn í svo
mikinn hita.“
„Maður hugsar fyrst
og fremst um að fara
sér ekki að voða“
Morgunblaðið/Júlíus
Ari Jóhannes Hauksson var einn
af fyrstu reykköfurunum sem
fóru inn í brennandi bygginguna
á miðvikudag.