Morgunblaðið - 10.08.2002, Page 12
HÖFUÐBORGARSVÆÐIÐ
12 LAUGARDAGUR 10. ÁGÚST 2002 MORGUNBLAÐIÐ
CARL A. Bergmann, úrsmiður á
Laugavegi 55, hefur starfrækt
verslun sína á þremur stöðum í
Reykjavík í rúma hálfa öld. Sína
fyrstu úrsmíðaverslun opnaði
hann á Njálsgötu árið 1949 í „lítilli
skonsu“, eins og hann segir sjálfur
frá, en þar var hann með verslun
fram til ársins 1963 þegar hann
flutti á Skólavörðustíg 27 þar sem
hann rak verslun næstu 27 árin á
eftir.
Aðspurður segist hann uphaf-
lega hafa fengið áhuga á úrsmíði
þegar hann var unglingur og tókst
að gera við vekjaraklukku sem
móðuramma hans á Ljósvallagöt-
unni átti. Í framhaldinu var ákveð-
ið að reyna að koma drengnum í
læri og hóf Carl nám í Iðnskól-
anum í Reykjavík árið 1942 og
lauk sveinsprófi 1946. Að loknu
námi hélt hann til Danmerkur þar
sem hann vann hjá frænda sínum í
stuttan tíma en sneri að því búnu
til Íslands og opnaði eigin úr-
smíðaverslun sem hann hefur rek-
ið síðan. Að sögn Carls hefur mikið
breyst í verslunarrekstrinum frá
því hann opnaði sína fyrstu búð.
„Það var svo mikið að gera í úr-
smíði á þessum árum að það tók
kannski vikutíma að fá hreinsað
úr,“ segir hann um upphafsárin á
Njálsgötunni.
Carl hreinsaði fjölmörg úr á dag
á þessum árum en nefnir að í dag
komi eitt og eitt úr sem þurfi að
hreinsa og mest sé um að fólk
þurfi að láta skipta um rafhlöður.
Fyrstu kúnnarnir í versluninni
voru starfsmenn Ölgerðarinnar en
verslunin á Njálsgötu var í næsta
nágrenni við hana. Mest var um
úraviðgerðir en einnig voru seld
úr.
„Ég man að sá fyrsti sem bauð
mér úr til sölu var Vilhelm heitinn
Norðfjörð sem var að flytja inn
Alpina-úr.“
Salan var lítil í fyrstu og úr-
unum úthlutað á milli verslana.
„Þegar þau komu var nánast
biðröð eftir þeim og fólk þurfti að
skrifa sig á biðlista eftir úrunum,“
bendir hann á.
Börn og barnabörn fastakúnna
koma við í versluninni
Salan jókst smátt og smátt á
Njálsgötunni og Carl fór að svipast
um eftir nýju verslunarplássi. Árið
1963 opnaði hann verslunina á
Skólavörðustígnum og tók yfir
reksturinn hjá Óskari Gíslasyni
gullsmið.
„Það var þó nokkuð stökk. Þar
var náttúrulega mikið af gullvöru
sem hafði verið seld þar.“
Carl lagði áfram höfuðáherslu á
sölu úra og úraviðgerðir en seldi
einnig gullsmíðavörur. Á Lauga-
veginn flutti hann árið 1990 þegar
húsið á Skólavörðustíg var selt.
Aðspurður segist hann ekki hafa
haldið upp á neina sérstaka muni
sem hafi fylgt honum á milli versl-
ana. Í fyrsta lagi hafi verslunin á
Njálsgötu verið lítil og ekkert sem
hann gat tekið með sér þaðan. Með
nýrri verslun fylgdu nýjar innrétt-
ingar og þannig hafi bæði útlit
verslunarinnar breyst mikið líkt
og vörurnar sem þar eru seldar.
Kúnnahópurinn hefur þó vaxið
jafnt og þétt í gegnum árin og
sumir kúnnanna hafa fylgt honum
alla hans tíð í verslunarrekstri.
„Hingað hafa jafnvel komið börn
og barnabörn sumra,“ segir hann.
Meðal þeirra sem heimsótt hafa
Carl í verslunina um árabil eru
starfsmenn Rafveitunnar gömlu
sem sumir hverjir léku með honum
í Fram í fótbolta á árum áður. Carl
lék með meistaraflokki Fram í
knattspyrnu á árunum 1949–1956,
aðallega í stöðu útherja.
„Það eru ekki bara Framarar
sem versla við mig. Það er þó
nokkuð af KR-ingum, Vals-
mönnum og Víkingum sem versla
hér,“ segir hann.
Gaman að selja tískuúr
Meðal þess sem breyst hefur á
þeim 53 árum, sem liðin eru síðan
hann hóf rekstur, er verslunar-
mynstur kúnnans.
„Kollegar mínir hafa verið að
gagnrýna mig fyrir að ég er með
tvo stóla frammi í verslun hjá mér.
Þangað koma ýmsir menn og
spjalla við mig og setjast og
kannski tefja mann,“ segir hann
og hlær við.
„Mér finnst það í raun allt í lagi.
Maður liggur ekki yfir þessu eins
og maður gerði. Maður hleypur í
rafhlöðuísetningar, þótt inn á milli
séu stærri viðgerðir sem maður
þarf að gefa sér tíma í.“
Í dag er algengt að gert sé við á
meðan beðið er og kúnnarnir
stoppa stutt við, einkum þeir sem
yngri eru, að sögn Carls.
Úrvalið í versluninni hefur einn-
ig tekið stakkaskiptum og það er
löngu liðin tíð að menn skrifi sig
fyrir úri eins og Njálsgötunni forð-
um.
„Maður verður oft hissa, miðað
við úrvalið sem maður á, þegar
fólk þarf að leita annað,“ segir
hann og hlær.
Alpina-úrin, sem Carl seldi í
verslun sinni á Njálsgötunni, eru
horfin úr hillunum og í staðinn eru
seld tískuúr, Storm, DKNY og
fleiri tegundir.
„Það er gaman að sýna þau og
selja af því að þau eru svolítið
öðruvísi,“ segir hann og finnst
engin eftisjá í gömlu úrunum sem
oft héldust nær óbreytt svo árum
skiptir, að eigin sögn. Þar fyrir ut-
an selur hann einnig hefðbundin
hágæðaúr eins og gengur og ger-
ist.
Carl verður 76 ára á þessu ári og
segir óvíst hvað verði um versl-
unina. Húseignin er nú til sölu og
segist Carl jafnvel vera að íhuga
að flytja verslunina enn einu sinni.
„Ég er ekkert til í að hætta og
meðan heilsan er í lagi sér maður
til.“ Meðan á spjallinu stendur
koma þýskir ferðamenn inn í versl-
unina og skoða úrvalið. Ferða-
mennirnir kaupa ekkert en líst vel
á úrvalið.
„Þeir hlaupa nú ekkert í þetta
Þjóðverjarnir,“ segir Carl og skell-
ir upp úr.
Carl A. Bergmann hefur starfrækt úrsmíðaverslun í rúma hálfa öld
Vill ekki hætta
á meðan heils-
an er í lagi
Morgunblaðið/Sverrir
Carl A. Bergmann úrsmiður í verslun sinni á Laugavegi. Minna er um
það núorðið, að sögn Carls, að fólk láti hreinsa úr sín og meira um að
viðskiptavinir láti skipta um rafhlöður á meðan beðið er.
Miðborgin
FRAMKVÆMDIR standa nú yfir
við gerð nýs hringtorgs við Suður-
landsveg og Breiðholtsbraut við
Rauðavatn.
Að sögn Jóhanns J. Bergmann,
deildarstjóra hjá Vegagerðinni, hóf-
ust framkvæmdir í byrjun júlí og
hafa þær fram að þessu haft lítil
áhrif á umferð um svæðið. Á næstu
vikum má þó gera ráð fyrir einhverj-
um töfum á umferð, að hans sögn, á
meðan verið er að færa til gatnamót-
in. Ráðgert er að framkvæmdum við
hringtorgið ljúki 15. september nk.
Að sögn Jóhanns verður verkið
unnið í áföngum en í fyrstu verður
umferð um Breiðholtsbraut færð inn
á kafla sem búið er að malbika til
hliðar að austanverðu á meðan unnið
verður í hringtorginu að vestan-
verðu. Þegar því er lokið verður um-
ferð um hringveginn færð yfir á
kafla sem þá verður lokið við að mal-
bika og hafist handa við að vinna í
núverandi hringvegi og kantinum
næst Rauðavatni.
Morgunblaðið/Brynjar Gauti
Nýtt hringtorg við Suðurlandsveg og Breiðholtsbraut.
Unnið að gerð
nýs hringtorgs
Rauðavatn
UNDANFARNA þrjá áratugi hefur
SÍBS, Samband íslenskra berklasjúk-
linga, verið með skrifstofur sínar á
Suðurgötu 8 og 10 í Reykjavík.
Í gær var skrifstofunum lokað og
um helgina flytur SÍBS starfsemi
sína í Síðumúla 6 og opnar að nýju á
þriðjudag.
Að sögn Péturs Bjarnasonar, fram-
kvæmdastjóra SÍBS, er verið að
ganga frá húsnæðinu í Síðumúla og
hefur undirbúningur vegna flutning-
anna gengið samkvæmt áætlun, að
hans sögn.
Það er Saxhóll ehf. sem kaupir Suð-
urgötu 10 og einstaklingur sem kaup-
ir Suðurgötu 8 og er heildarsöluverð á
bilinu 60–70 milljónir, að sögn Péturs.
SÍBS flutti starfsemi sína í húsin á
Suðurgötu í maí árið 1973 en áður
hafði SÍBS verið með skrifstofur á
Bræðraborgarstíg 9 og happdrættis-
umboð í Austurstræti 6. Með flutn-
ingnum á Suðurgötu komst starfsem-
in í fyrsta sinn undir eitt þak.
Í húsnæðinu í Síðumúla verða auk
skrifstofu SÍBS, aðalumboðs happ-
drættis SÍBS og Reykjavíkurdeildar
SÍBS, Landssamtök hjartasjúklinga,
en innan þeirra vébanda er Neistinn,
félag hjartveikra barna, Samtök
lungnasjúklinga og Astma- og of-
næmisfélagið.
Að sögn Péturs verður aðstaðan
mjög góð og hentugri að því leyti að
hún er öll í einni byggingu á tveimur
hæðum. Allt félagsstarf verður á jarð-
hæð þar sem aðgengi er gott, að hans
sögn.
Pétur segir að það hafi staðið til að
flytja starfsemina um nokkra hríð,
m.a. vegna aðgengis innanhúss og
þrengsla og vegna skorts á bílastæð-
um í grennd og aðgengis að húsinu.
SÍBS flytur starfsemi sína frá Suðurgötu um helgina
Skrifstofan opnuð
aftur í Síðumúla
SÍBS hefur haft aðsetur á Suðurgötu 8 og 10 frá 1973. Með flutningnum
þangað var starfsemin í fyrsta sinn færð á einn stað.
Miðborgin
NÓG verður um að vera á Árbæjar-
safni um helgina. Í dag verða
tónleikar á Lækjargötu 4, Árbæjar-
safni, þar sem Hrafn Ásgeirsson leik-
ur á saxafón og Davíð Þór Jónsson á
píanó. Tónleikarnir hefjast kl. 14.
Á sunnudag verða rifjuð upp gömul
vinnubrögð við vinnslu mjólkur.
Heimilisfólkið í Árbæ dregur fram
strokka, byttur og skyrsíur og breytir
mjólk í mat. Þá verður messa kl.
13.30.
Tónleikar í dag kl. 14
Árbær
Árbæjarsafn