Morgunblaðið - 10.08.2002, Side 19

Morgunblaðið - 10.08.2002, Side 19
LANDIÐ MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 10. ÁGÚST 2002 19 Við biðjum viðskiptavini okkar velvirðingar á lokun vegna óviðráðanlegra orsaka. Opnum aftur seinna í ágústmánuði á sama stað með nýjum og glæsilegum vörum sem nú þegar eru á leiðinni. e x ó Fákafen 9 - 108 Reykjavík Sími 568 2866 ÞAÐ verður að teljast harla óvenjulegt að þrír úr sömu fjöl- skyldunni verði golfmeistarar á sama móti. Það gerðist á meist- aramóti GHR, Golfklúbbs Hellu í Rangárvallasýslu, á dögunum. Óskar Pálsson varð klúbbmeistari karla, kona hans Katrín Björg Að- albjörnsdóttir varð klúbbmeistari kvenna og sonur þeirra Andri varð klúbbmeistari drengja. Óskar er reyndar formaður golfklúbbsins og Katrín er gjaldkeri. Þessa daga stendur Íslandsmótið í golfi einmitt yfir á Strandavelli milli Hellu og Hvolsvallar. En hverju þakka þau þennan góða árangur í golfi? „Það er skemmst frá því að segja að við höfum brennandi áhuga á golfi og erum við æfingar 3–4 tíma á dag á sumrin,“ segir Óskar, sem byrjaði í golfinu 1979. „Það var þannig að ég hafði spil- að fótbolta í mörg ár og varð fyrir því að skemma á mér hnéð. Þá flutti ég af fótboltavellinum á golf- völlinn og hef verið þar síðan. Lífið er golf hjá okkur og það er frá- bært fyrir fjölskyldur að stunda þessa íþrótt. Samveran á vellinum er góð, þar getum við spjallað og rætt málin meðan við hreyfum okkur og leikum spennandi leik. Reyndar voru mín fyrstu kynni af golfi þannig að ég var í sveit hjá ömmu og afa á Heylæk þegar ég var 11 ára. Þá komu menn í heim- sókn að sunnan og ég man að okk- ur fannst þeir voða skrítnir því þeir voru með golfsett og fóru út á tún að æfa sig. Þegar þeir voru farnir þá fann ég eina golfkúlu og amma segir mér að ég hafi tekið göngustafinn hans afa og farið að slá kúluna þangað til hún týndist.“ Katrín Björg fékk að kynnast því hvernig það er að vera gift golfara fyrstu árin í hjónabandinu. „Ég þoldi ekki golf og gat ekki hugsað mér að taka þátt í þessu því Óskar var alltaf að æfa sig þegar ég vildi hafa hann heima. En þegar ég var búin að eiga börnin þrjú fór ég að prófa og sé ekki eftir því. Ég komst að því að þetta er mun skemmtilegra en ég reiknaði með og stóri kosturinn er sá að öll fjöl- skyldan getur verið í þessu saman. Segja má að nú miðum við allt okk- ar líf við golfið, við miðum ferða- lög okkar við golfvelli og þegar við förum til útlanda þá förum við til að spila golf.“ Klofvega á kerrunni Andri var ekki hár í loftinu þeg- ar hann fór að stunda golfið. „Þeg- ar ég var tveggja ára fékk ég golf- kylfu sem pabbi lét sérsmíða handa mér og fór að æfa mig. Fyrst sat ég reyndar klofvega á kerrunni hans pabba þegar hann var að æfa. Ég var sko ekki farinn að ganga. En mamma segir að ég hafi farið fyrsta hringinn tveggja mánaða í vagninum mínum en ég man nú reyndar ekki eftir því.“ Andri er nýkominn úr golfævin- týri í Eyjum en þangað fór hann einsamall með félögum úr GR. Andra gekk svo vel þar að hann var fluttur upp um flokk til að hann gæti spilað með jafningjum, en hann lenti síðan í fjórða sæti á mótinu sem verður að teljast góður árangur því hann var að keppa við mun eldri stráka. Andri segir að eini gallinn við golfið sé að það rekist stundum á við fótboltann sem hann æfir líka af miklu kappi. Golfskáli í gamla barnaskólahúsinu Eins og áður segir er Óskar for- maður GHR og var því ekki úr vegi að spyrja hann um starf klúbbsins. „Strandarvöllur hefur verið í mik- illi uppbyggingu sl. tvö ár og ber að þakka sveitarfélögunum hér hve myndarlega þau komu að stofnun rekstrarfélags um golf- völlinn. Við festum kaup á gamla barnaskólahúsinu hér á Strönd og nú hefur húsið verið gert upp og við höfum opnað glæsilegan golf- skála með sal sem hefur stórkost- legasta útsýni á Suðurlandi. Hér er hægt að horfa á allan fjallahring- inn, Tindfjöll, Bláfjöll og auðvitað er sjálf Hekla í aðalhlutverki. Sal- urinn er byggður þannig að segja má að hægt sé að horfa 360 gráður úr honum. Hér hafa klúbbfélagar unnið gríðarmikið sjálfboðastarf, skilað yfir 2.000 vinnustundum.“ – En hvað er svo framundan hjá ykkur? „Það er fyrst og fremst áfram- haldandi uppbygging vallarins. Við ætlum að draga fram meiri „links“ eiginleika vallarins. Þessi völlur er svokallaður strandvöllur eins og vellirnir í Skotlandi sem eru frægustu vellir í heimi. Þá er verið að skipuleggja sumarbústað- alóðir fyrir fyrirtæki og starfs- mannafélög hér á svæðinu og síðar verða einnig skipulagðar lóðir fyr- ir einstaklinga sem við munum síð- an leigja út.“ – Nú er landsmótið haldið hér, er það ekki mikil átak ? „Já, landsmótið er sá golf- viðburður sem rís hæst á hverju sumri, nú koma hingað 150 bestu kylfingar af landinu og etja kappi saman. Það verður sjónvarpað frá mótinu á Sýn mótsdagana svo segja má að við verðum í eldlín- unni þessa daga og hápunkturinn verður svo þegar Íslandsmeist- arinn er krýndur á sunnudag. Und- irbúningurinn gekk vel og hér eru reglulega haldin sjálfboðaliða- kvöld. Þá koma félagarnir saman og vinna eina kvöldstund að marg- víslegum verkefnum,“ sagði Ósk- ar. Golfhjónin á Hvolsvelli voru þá einmitt nýkominn heim eftir slíkt vinnukvöld þar sem m.a. var unnið við að laga göngustíga. Lífið er golf hjá Óskari Pálssyni og fjölskyldu Morgunblaðið/Steinunn Ósk Golffjölskyldan áhugasama, Katrín Björg, Andri og Óskar, með verð- launagripina sem þau unnu til. Á skjöldinn eru skráðir klúbbmeistarar og sl. 23 ár hefur nafn Óskars verið letrað þar 20 sinnum. 20 sinnum klúbbmeist- ari hjá GHR á 23 árum Hvolsvöllur

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.