Morgunblaðið - 10.08.2002, Blaðsíða 21
VIÐSKIPTI/ATHAFNALÍF
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 10. ÁGÚST 2002 21
sem enginn má missa af
Upplýsingar og pantanir
í síma 894 7664
www.himbriminn.is
info@himbriminn.is
ÚTSÝNIS-, FRÆÐSLU-
OG GÖNGUFERÐIR
ÆVINTÝRA-
HAUSTLITAFERÐIR
HAGNAÐUR Hraðfrystihússins –
Gunnvarar hf. nam 474 milljónum
króna á fyrstu sex mánuðum ársins
en tap á rekstrinum á sama tíma í
fyrra nam 178 milljónum króna.
Mestu munar um gengishagnað
sem nam 306 milljónum króna, en
árið áður var 491 milljóna króna
gengistap. Þá voru fjármagnsliðir
jákvæðir um 217 milljónir en voru
neikvæðir um 493 milljónir á fyrri
helmingi árs 2001. Rekstrartekjur
námu tæplega 1,8 milljörðum
króna samanborið við um 1,4 millj-
arða á síðasta ári.
Framlegð svipuð og í fyrra
Rekstrargjöld voru í fyrra 938
milljónir en námu nú ríflega 1,2
milljörðum króna. Hagnaður fyrir
afskriftir og fjármagnsgjöld nam
því um 540 milljónum miðað við
tæplega 419 milljónir króna í fyrra.
Framlegðin, sem er hlutfall rekstr-
arhagnaðar (fyrir afskriftir og fjár-
magnsliði) af rekstrartekjum,
breyttist hins vegar lítið. Framlegð
var 30,5% á fyrri helmingi ársins
samanborið við 30,9% 2001, og hef-
ur því minnkað óverulega. Heildar-
eignir námu 5,3 milljörðum króna
en skuldir tæpum 3,8 milljörðum.
Eigið fé nam um 1,6 milljörðum
króna og arðsemi eigin fjár nam
84,79%. Hluthafar fengu greiddan
út 79 milljóna króna arð vegna árs-
ins 2001. Eiginfjárhlutfall var
29,35% miðað við rúm 16% á síð-
asta ári. Framkvæmdastjóri Hrað-
frystihússins – Gunnvarar hf., Ein-
ar Valur Kristjánsson, kveðst
ánægður með afkomuna og segir
stjórnendur „þokkalega bjartsýna“
á að árið verði félaginu hagstætt.
Hraðfrystihúsið – Gunnvör hf.
með 474 milljónir í hagnað
SAMHERJI hf. hefur ákveðið að
loka saltfiskverkun þeirri sem fyr-
irtækið hefur rekið í Dalvíkurbyggð í
lok september næstkomandi. Aðal-
steinn Helgason, framkvæmdastjóri
landvinnslu fyrirtækisins, segir
ástæðuna þá að þorskkvóti Sam-
herja verði skertur um 1.000 tonn á
næsta fiskveiðiári og því hafi orðið að
grípa til einhverra aðgerða. Þar sem
hagkvæmara sé að loka saltfiskverk-
uninni en að draga úr annarri land-
vinnslu hafi þetta orðið niðurstaðan.
Spurður um uppsagnir í tengslum
við þessa breytingu segir Aðalsteinn
að tíu menn vinni við saltfiskverk-
unina. Þeim hafi verið sagt upp
störfum, en jafnframt boðin störf
annars staðar í fyrirtækinu, annað-
hvort í Dalvíkurbyggð eða á Akur-
eyri.
Saltfiskverkun Samherja er á Ár-
skógssandi sem er hluti af Dalvík-
urbyggð og áður en Samherji og
BGB-Snæfell sameinuðust var salt-
fiskvinnslan hluti síðarnefnda fyrir-
tækisins. Aðspurður segir Aðal-
steinn þetta einu saltfiskverkun
Samherja, en ekki sé óhugsandi að
fyrirtækið hefji saltfiskverkun á ný
ef aðstæður breytist.
Samherji
hættir
saltfisk-
vinnslu
Brúðargjafalistar
Mörkinni 3, s: 588 0640
Opið mánudag-föstudags 11-18.
Lokað á laugardögum í sumar
Hnífapör og matarstell frá
Viltu léttast
um 1-4 kíló á viku
Símar 557 5446 og 892 1739
Þumalína
flutt á Skólavörðustíg 41
s. 551 2136