Morgunblaðið - 10.08.2002, Síða 22
ERLENT
22 LAUGARDAGUR 10. ÁGÚST 2002 MORGUNBLAÐIÐ
POUL Nyrup Rasmussen, leiðtogi
flokks danskra jafnaðarmanna og
fyrrverandi forsætisráðherra, reynir
nú að endurnýja forystuna en and-
stæðingar hans í flokknum saka
hann um ofstopafullar aðferðir, að
sögn Jyllandsposten. Ljóst þykir að
gamlir stuðningsmenn Svends Au-
kens, sem Nyrup velti úr formanns-
stóli fyrir nær áratug, séu reiðubúnir
í nýja valdabaráttu.
Nyrup segist staðráðinn í að verða
forsætisráðherraefni flokksins á ný í
næstu þingkosningum. Hann krafð-
ist þess á fundi framkvæmdastjórn-
ar flokksins í vikunni að mannaskipti
yrðu í forystuliðinu. Vill hann að
Lotte Bundsgaard, sem er fyrrver-
andi ráðherra, og Kim Mortensen,
skólastjóri í Esbjerg, verði nýir
varaformenn. Stjórnin neitaði að
samþykkja tillöguna og Bent Han-
sen, annar núverandi varaformanna,
sagðist ætla að halda áfram ef hann
fengi til þess stuðning.
Talið er að Mogens Lykketoft,
sem gegnt hefur valdamiklu embætti
þingflokksformanns og er fyrrver-
andi ráðherra, muni á næstunni
segja af sér og eru þá Frank Jensen,
liðsmaður Aukens, og Henrik Sass
úr hópi Nyrup-manna reiðubúnir að
berjast um embættið. Margir spá því
að flokkurinn klofni ef Sass hreppir
ekki stöðuna.
Danskir
jafnaðarmenn
Valdabar-
átta hafin
LÖGREGLUMENN í Bandaríkj-
unum og nokkrum Evrópuríkjum
hafa handtekið tuttugu manns
fyrir að beita börn kynferðislegu
ofbeldi og dreifingu barnakláms.
Þá var 45 börnum á aldrinum
tveggja til fjórtán ára bjargað úr
klóm barnaníðinganna. Sumir
hinna handteknu eru foreldrar
barnanna sem beitt voru ofbeld-
inu, en fólkið er grunað um að
hafa dreift barnaklámmyndum
sín á milli á Netinu.
Meðal hinna grunuðu eru tíu
Bandaríkjamenn og tíu Evrópu-
menn frá Belgíu, Danmörku,
Englandi, Hollandi, Sviss og
Þýskalandi. Danska lögreglan hóf
rannsóknina fyrir um tíu mánuð-
um, eftir að hún handtók þarlend-
an mann fyrir að misnota níu ára
gamla dóttur sína og dreifa mynd-
um af henni á Netinu. Þegar lög-
reglunni varð ljóst að maðurinn
var meðlimur í alþjóðlegum
barnaklámhring bað hún banda-
rísk yfirvöld um aðstoð.
Tugum fórnarlamba bjarg-
að úr klóm barnaníðinga
Washington. AFP.
ÞRÍR biðu bana og um 25 særðust
snemma í gærmorgun þegar þrír
menn köstuðu handsprengjum að
spítalakapellu í bænum Taxila, ekki
langt frá Islamabad, höfuðborg Pak-
istans. Einn árásarmannanna féll
einnig en talið er öruggt að þeir hafi
verið íslamskir öfgatrúarmenn.
Sjúkrahúsið sem um ræðir er rekið
af biskupakirkjunni en þetta er önn-
ur árásin í þessari viku í Pakistan
sem beinist að kristnum eða vest-
rænum skotmörkum.
Árásin átti sér stað rétt fyrir kl.
átta að pakistönskum tíma, eða rétt
fyrir tvö í fyrrinótt að ísl. tíma. Voru
fórnarlömbin öll pakistanskir ríkis-
borgarar, hjúkrunarkonur sem
störfuðu á sjúkrahúsinu í Taxila.
Raja Mumtaz Ahmed, sem stýrir
rannsókn á tilræðinu, sagði hins veg-
ar öruggt að markmið árásarmann-
anna hefði verið að bana kristnu fólki
eða Vesturlandabúum í því skyni að
lýsa reiði vegna stuðnings stjórn-
valda Pakistans við baráttu Banda-
ríkjamanna gegn hryðjuverkum.
Vitni sögðu þrjá menn vopnaða
skammbyssum og handsprengjum
hafa beðið við útgang kirkjukapell-
unnar en morgunbæn hafði staðið yf-
ir innandyra. „Við sáum þessa menn
nálgast kirkjuna [...] og þegar þeir
sáu okkur konurnar koma út köst-
uðu þeir handsprengjunum í átt að
okkur,“ sagði Slomy Cissel, 28 ára
gömul pakistönsk stúlka sem er
kristinnar trúar. Hún sagði árásar-
mennina hafa verið unga og vel
klædda.
Árásarmennirnir munu hafa læst
öryggisverði inni áður en þeir réðust
að kapellugestunum. Rúður í nálæg-
um byggingum brotnuðu þegar
handsprengjurnar sprungu og þær
skildu einnig eftir tvær stórar holur í
jörðina. Embættismenn sögðu einn
árásarmannanna hafa beðið bana
þegar sprengjubrot kastaðist í átt til
hans og stakkst á kaf í hjarta hans.
Önnur árásin í
þessari viku
Þetta er áttunda árásin gegn
kristnum eða vestrænum skotmörk-
um í Pakistan frá því að Pervez Mus-
harraf, forseti Pakistans, ákvað að
fylkja liði með Bandaríkjunum í bar-
áttunni gegn hryðjuverkum. Síðast-
liðinn mánudag réðust grímuklædd-
ir byssumenn á kristinn skóla fyrir
börn erlendra starfsmanna ýmissa
hjálparstofnana í útjaðri höfuðborg-
arinnar Islamabad og myrtu þeir þar
sex Pakistana.
„Það er ljóst að hryðjuverkamenn
beina nú sjónum sínum að kristnu
fólki í Pakistan,“ sagði S.K. Tressler,
ráðherra minnihlutamála í ríkis-
stjórn Pakistan, í gær. „Þetta eru
ekki mannlegar verur heldur villi-
menn,“ sagði Nisar Memon upplýs-
ingamálaráðherra hins vegar um þá
sem báru ábyrgð á tilræðinu í gær.
Þrír féllu og tugir særðust
í sprengjutilræði í Pakistan
Árásir á kristið fólk og Vestur-
landabúa færast í aukana
Reuters
Nokkrar pakistanskar konur í mikilli geðshræringu eftir árásina í Tax-
ila í gær. Búið er að herða öryggisvörslu um allar byggingar kristinna í
Islamabad, höfuðborg Pakistans, eftir árásirnar tvær í þessari viku.
Taxila. AFP, AP.
NORÐMENN hyggjast ekki verða
við beiðni um að bandarískum rík-
isborgurum verði veitt friðhelgi í
Noregi gagnvart málarekstri fyrir
Alþjóðlega sakamáladómstólnum
sem tók til starfa í Haag í Hollandi
1. júlí sl. „Þetta getum við ekki sam-
þykkt,“ sagði Jan Petersen, utan-
ríkisráðherra Noregs, í gær um ósk
Bandaríkjastjórnar þess efnis að
norsk stjórnvöld framseldu ekki
bandaríska ríkisborgara til Haag.
Stjórn George W. Bush Banda-
ríkjaforseta er alfarið á móti saka-
máladómstólnum sem tók til starfa
nýverið í kjölfar þess að tilskilinn
fjöldi aðildarríkja Sameinuðu þjóð-
anna staðfesti stofnsáttmála hans.
Óttast Bandaríkjamenn að dóm-
stólnum verði beitt gegn þeim í póli-
tískum tilgangi.
Var hart deilt á vettvangi Örygg-
isráðs SÞ fyrr í sumar þegar
Bandaríkin hótuðu að koma í veg
fyrir að umboð alþjóðlegra lög-
reglusveita sem starfa í Bosníu yrði
framlengt. Vildu Bandaríkin, sem
leggja til drjúgan hluta þess
mannafla og fjármagns sem notað
er til friðargæslu, fá skilyrðislausa
og varanlega friðhelgi fyrir her-
menn sína.
Búnir að semja við
Ísraela og Rúmena
Bráðabirgðasamkomulag náðist á
endanum á vettvangi Öryggisráðs-
ins og fól það í sér að dómstóllinn
muni ekki geta ákært, eða rannsak-
að, ríkisborgara þeirra ríkja sem
ekki standa að samningnum, nema
með samþykki Öryggisráðsins.
Í kjölfarið fór Bandaríkjastjórn
fram á það við ýmis ríki, þ. á m.
Noreg, að þau veittu bandarískum
ríkisborgurum friðhelgi fyrir sitt
leyti. Aðeins tvö ríki, Ísrael og
Rúmenía, hafa tekið jákvætt í
beiðnina og sagði Petersen í gær að
hann teldi andstöðu Bandaríkja-
manna byggða á litlum rökum.
Ýmsir skilmálar í stofnsáttmála
dómstólsins tryggðu að ekki væri
hægt að misnota hann í pólitískum
tilgangi.
Hafna
beiðni um
friðhelgi
Ósló. AFP.
MAKIKO Tanaka, fyrrverandi utan-
ríkisráðherra Japans, sagði af sér
þingmennsku í gær en sjö vikur eru
liðnar síðan henni
var vikið úr
Frjálslynda
demókrata-
flokknum, sem
fer með stjórnar-
taumana í Japan,
vegna ásakana
um spillingu.
Engar ákærur
hafa þó verið
lagðar fram á
hendur Tanaka og sjálf hefur hún
neitað öllum ásökunum.
Tanaka varð utanríkisráðherra
Japans, fyrst kvenna, þegar Junich-
iro Koizumi varð forsætisráðherra í
apríl 2001. Naut hún mikilla vin-
sælda í starfi og margir töldu hugs-
anlegt, að síðar meir yrði hún for-
sætisráðherra.
Naut mikilla vinsælda
Tanaka lenti hins vegar snemma
upp á kant við embættismenn í utan-
ríkisráðuneytinu og í janúar á þessu
ári gafst Koizumi upp á stöðugum
fréttum af samstarfsörðugleikum
Tanaka og hinna valdamiklu emb-
ættismanna. Vék Koizumi henni úr
embætti þrátt fyrir að fáir ráðherrar
ríkisstjórnarinnar nytu meiri vin-
sælda.
Tanaka, sem er 58 ára gömul, var
síðan vikið úr stjórnarflokknum í
júní vegna ásakana um að hún hefði
notað opinbert fé til að greiða laun
einkastarfsfólks hennar. Hún skýrði
þinginu frá málsatvikum fyrir tveim-
ur vikum en skoðanakönnun, sem
birt var fyrr í þessari viku, sýndi að
90% aðspurðra töldu skýringarnar
ekki hafa verið fullnægjandi.
Tanaka er dóttir Kakuei Tanaka,
fyrrverandi forsætisráðherra Jap-
ans. Hún var fyrst kjörin á þing árið
1993 sem óháður þingmaður en gekk
fljótlega í flokk föður síns, Frjáls-
lynda demókrataflokkinn. Frami
hennar var hraður og var hún orðin
ráðherra í ríkisstjórn Japans eftir
aðeins eins árs þingsetu.
Segir af
sér þing-
mennsku
Tokyo. AFP.
Makiko
Tanaka
LEITARMENN nota neðansjávar-
sjónauka við stöðuvatn nálægt So-
ham í austurhluta Englands við leit
að tveimur stúlkum sem saknað
hefur verið frá því á sunnudag.
Mikil leit hefur staðið yfir frá því að
þær Jessica Chapman og Holly
Wells hurfu frá heimilum sínum, en
hún hefur engan árangur borið.
Lögregla segir nú margt benda til
þess að stúlkunum hafi verið rænt
og að ræningjarnir hafi jafnvel not-
að Netið til að tæla þær til sín. Tals-
maður lögreglunnar sagði í gær að
menn væru enn tiltölulega bjart-
sýnir á að stúlkurnar væru enn á
lífi. Ólíklegt er talið að þær hafi
strokið að heiman.
AP
Breskra stúlkna enn saknað
♦ ♦ ♦