Morgunblaðið - 10.08.2002, Side 23
ERLENT
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 10. ÁGÚST 2002 23
ÖFLUG sprenging varð í húsa-
kynnum einkarekins byggingafyr-
irtækis í borginni Jalalabad í hér-
aðinu Nangarhar í Afganistan um
hádegisbilið í gær að þarlendum
tíma. Varð hún að minnsta kosti 10
manns að bana auk þess sem tugir
manna slösuðust, að sögn embætt-
ismanna á staðnum. Tugir húsa í
grenndinni skemmdust, sum þeirra
í 500 metra fjarlægð. Yfirmaður
varnarmála á staðnum, Hazrat Ali,
taldi í fyrstu að um bílsprengju
hefði verið að ræða og hefði hún átt
að eyðileggja lón vatnsorkuvers í
grenndinni. En aðstoðarhéraðs-
stjóri í Nangarhar-héraði, Mo-
hammed Assef Qasi Zada, sagði að
hugsanleg skýring væri að spreng-
ing hefði orðið í sprengiefni sem
geymt hefði verið í húsinu.
„Þetta var gríðarlega mikil
sprenging,“ sagði Ali. „Tala látinna
á sennilega eftir að hækka vegna
þess að fólk gæti dáið á sjúkrahús-
inu.“ Hann sagði að þrír starfs-
menn samtakanna, sem reka bygg-
ingafyrirtækið, hefðu verið færðir
til yfirheyrslu vegna atburðarins
en útskýrði málið ekki frekar.
Lón vatnsorkuversins Darunta
er í um 200 metra fjarlægð frá hús-
inu sem var sprengt og urðu
nokkrar skemmdir á tækjabúnaði
lónsins, einnig á raforkulínum í
hverfinu og við háskóla borgarinn-
ar.
Vangaveltur um tilræði hófust
þegar í stað í gær en undanfarnar
vikur hefur verið mikið um tilræði í
Afganistan. Öryggissveitir stjórn-
valda eru því í viðbragðsstöðu
vegna ótta við hryðjuverk af hálfu
talíbana eða liðsmanna al-Qaeda-
samtakanna.
Tilræði eða slys í Jalalabad?
Kabúl. AP, AFP.
VAGNAR farþegalestar sem fór
út af sporinu við Taichung-stöð í
Taívan í gær liggja eins og hrá-
viði við stöðina. Enginn fórst í
slysinu en þrír slösuðust; engir
farþegar voru um borð. Stöðin er
um 150 kílómetra frá höfuðborg-
inni Taipei.
Orsök slyssins voru þau að
vörubíll rakst á brú undir járn-
brautarteinunum og skemmdi
hana.
AP
Járnbrautarslys í Taívan