Morgunblaðið - 10.08.2002, Qupperneq 28
LISTIR
28 LAUGARDAGUR 10. ÁGÚST 2002 MORGUNBLAÐIÐ
KJARTAN Sigurjónsson er við org-
elið í Reykholtskirkju í dag, laugar-
dag, kl. 16 og lýkur þar með tónleika-
röð sem haldin hefur verið til styrktar
orgeli kirkjunnar. Kjartan er fyrrum
organisti í Reykholti en er nú organ-
isti við Digraneskirkju og formaður
Félags íslenskra organleikara.
Á efnisskránni eru verk eftir Bach,
Buxtehude, Pachelbel, Rheinberger,
Reger, Jón Ásgeirsson, Jón Þórarins-
son og Pál Ísólfsson. Orgel Reyk-
holtskirkju á uppruna sinn í Dóm-
kirkjunni í Reykjavík. Þangað var það
fengið árið 1934 í tíð Sigfúsar Ein-
arssonar og þjónaði kirkjunni fram til
ársins 1985 að það var selt Reykholts-
söfnuði. Á síðasta ári var það gert upp
í upprunalegu orgelverksmiðjunni,
Frobenius og Sønner í Kaupmanna-
höfn, og sett upp í kirkjunni snemma
á þessu ári.
Íslensk og erlend orgel-
verk í Reykholtskirkju
Kjartan Sigurjónsson við orgel Reykholtskirkju.
Á TÍUNDU tónleikum sumartón-
leikaraðar veitingahússins Jómfrúr-
innar við Lækjargötu á laugardag,
kl. 16, kemur fram tríó gítarleikar-
ans Björns Thoroddsen. Með Birni
leika Jón Rafnsson á kontrabassa og
Ingvi Rafn Ingvason á trommur.
Tríóið leikur nýja og gamla djass-
tónlist í bland við eigið efni.
Leikið verður til kl. 18, utandyra
ef veður leyfir, en annars inni á Jóm-
frúnni.
Tríó Björns
Thoroddsen
á Jómfrúnni
Á SKRIÐUKLAUSTRI verður í
dag, laugardag, opnuð sýning um
sögu útlaga, útilegumannasagnir,
lífskjör og byggðir fjallabúa með
áherslu á austfirskar heimildir. Yf-
irskrift sýningarinnar er Útlagar og
útilegumenn. Skyggnst er í smiðju
listamanna sem hafa notað þetta
þema í listsköpun sinni. Þá eru og til
sýnis ýmsir munir sem tengjast úti-
legumönnum, m.a. tágakarfa og
grýta Fjalla-Eyvindar ásamt öxi
þeirri er talin er hafa verið notuð við
síðustu aftöku á Austurlandi.
Sýningin er liður í þjóðfræðaverk-
efni sem Gunnarsstofnun stendur
fyrir með styrk frá Nýsköpunarsjóði
námsmanna og Menningarborgar-
sjóði. Dagný Bergþóra Indriðadóttir
þjóðfræðinemi hefur unnið að verk-
efninu í sumar og m.a. tekið saman
úrval af austfirskum útilegumanna-
sögum sem koma út á bók í tengslum
við opnun sýningarinnar.
Útilegumenn
á Skriðu-
klaustri
KLEZMER kvartett Hauks
Gröndal leikur á síðustu tónleik-
um tónleikaraðarinnar Sumar-
tónleika við Mývatn í Reykja-
hlíðarkirkju kl. 21 annað kvöld,
laugardagskvöld.
Kvartettinn skipa Haukur
Gröndal, klarinett, Nicholas
Kingo, harmonika, Helgi Svavar
Helgason, trommur og slagverk
og Peter Jörgensen, kontra-
bassi.
Kvartettinn leikur svokallaða
gyðingatónlist, sem á rætur sín-
ar í Austur-Evrópu með ívafi frá
sígaunatónlist og tyrkneskum
áhrifum. Þetta er þjóðleg tónlist
gyðinga sem notuð er við hátíð-
leg tækifæri og veisluhöld, s.s.
brúðkaup og fermingar.
Gyðingatónlist á Mývatni
auki sýnir nokkuð skondna stutt-
mynd. Verkin eru á meðal þess at-
hyglisverðasta á sýningunni, en hið
sama get ég ekki sagt um málverk
hans. Magnús og Ditta sýna tvö mál-
verk hvort. Margt er við þau að at-
huga, enda virðist metnaður Magn-
úsar og Dittu liggja frekar í þrívíðu
verkunum.
Handtöskur Dittu hafa fjóra spena
hver. Er Ditta þar í samskonar
vangaveltum og írska listakonan Do-
rothy Cross, en spenaverk hennar
eru oft notuð sem dæmi um femin-
isma í listum. Töskur Dittu eru vel
útfærðar, en umgjörðin, úr frauð-
plasti og bláum svampi, er illa hugs-
uð og dregur úr gæðum listaverks-
ins.
Annað verk sem tengja má femin-
ískri list (ef maður vill) er eftir Þuríði
Kristjánsdóttur en hún breytir skáp
gallerísins í fataskáp fyrir kvenkyns
ofurhetju. Á veggjum gallerísins má
einnig sjá ljósmyndir af hetjunni
skera hangiket og huga að barni
sínu. Kennimerki hetjunnar er staf-
urinn „æ“, sem ég les einnig sem
sársaukahróp. Hann undirstrikar
ímynd kvenhetjunnar sem ber merk-
ið á fötum sínum og sinnir hlutverki
sínu sem bjargvættur heims og
heimilis.
Skúlptúrar Tinnu Kvaran eru úr
mjúku efni en sýna hluti sem annars
eru í hörðu efni. Aðferðin minnir
nokkuð á skúlptúra Claes Oldenburg
á sjöunda áratugnum, en formfræði-
leg nálgun hennar er af öðrum toga.
Skúlptúrarnir, sem forma hús og
tröppur, eru byggðir á bæði fern-
ingsformi og þríhyrningsformi. Sæk-
ir listakonan því jafnt í strangflatar-
list og popplist.
Þótt fimmmenningarnir vinni
sjálfstæð listaverk framsetja þau
verkin eins og sameiginlega innsetn-
ingu frá listhópi frekar en samsýn-
ingu á aðskildum verkum fimm lista-
manna. Galleríið er þétthlaðið og öllu
ægir saman, litum, formum og hug-
myndum. Gefur það einstaklings-
framlagi þeirra minna vægi en skap-
ar þess í stað samstæða sýningu.
Engar upplýsingar eru um lista-
mennina aðrar en nöfn þeirra. Þykir
mér það miður þar sem listamenn-
irnir eru að mestu ókunnir í íslensku
myndlistarlífi.
ar á veggina. Í textunum deilir hann
á trúverðugleika fjölmiðlanna, sem
hann svo undirstrikar með stuttri
sjónvarpsmynd af dreng í kúreka-
leik. Myndina tók listamaðurinn upp
á svart-hvíta 8 mm filmu og lítur hún
út fyrir að vera frá árum þöglu
myndanna. Hann nær því ágætlega
að koma ádeilu sinni til skila.
Magnús Helgason sýnir einnig
tvær stuttmyndir. Þær eru hluti af
rýmisskúlptúrum sem listamaðurinn
hefur smíðað. Á efri hæðinni, í horni
gallerísins, er ílangt rör eða skúlptúr
sem sýningargestir horfa inn í til að
sjá stutta leirbrúðumynd fyrir full-
orðna. Á neðri hæðinni hefur Magn-
ús með einföldum hætti breytt kvik-
myndavél í rýmisskúlptúr sem að
ÍSLENDINGAR hafa lengi sótt
listnám til Hollands og hafa margir
þeirra numið við listaháskólann AKI
í borginni Enschede, en hann er einn
framsæknasti myndlistarskóli þar í
landi.
Í Gallerí Skugga stendur nú yfir
sýningin „Jæja já“, samsýning fimm
ungra listamanna sem ýmist eru ný-
lega útskrifaðir frá AKI eða eru á
síðasta skólaári. Þau eru þessi: Arn-
þrúður Dagsdóttir (Ditta), Magnús
Helgason, Steinþór Karlsson, Tinna
Kvaran og Þuríður Kristjánsdóttir.
Verk Steinþórs Karlssonar,
„Where the weatherman controls the
quality of life“ (Þar sem veðurfræð-
ingurinn stjórnar lífsins gæðum), er í
bakherbergi gallerísins. Það eru ljós-
myndir af atburðum daglegs lífs,
ásamt textum sem listamaðurinn rit-
Kraðak
af list
MYNDLIST
Gallerí Skuggi
Sýningin er opin alla daga nema mánu-
daga frá kl. 13–17. Henni lýkur 18.
ágúst.
BLÖNDUÐ TÆKNI
ARNÞRÚÐUR DAGSDÓTTIR (DITTA),
MAGNÚS HELGASON, STEINÞÓR KARLS-
SON, TINNA KVARAN OG ÞURÍÐUR KRIST-
JÁNSDÓTTIR
Frá sýningunni „Jæja já“ í Gallerí Skugga.
Jón B. K. Ransu
Sjóminjasafn Íslands,
Hafnarfirði
Sýningu á gömlum og nýjum smíð-
isgripum, úr tré og málmi, eftir ís-
lenska handverksmenn.
Sýningin er opin alla daga frá kl.
13–17.
Skaftfell, Seyðisfirði
Sýningu Georgs Guðna og Peters
Frie lýkur laugardaginn í dag og
sýningarnar ,,El-Grillo í stríði og
friði“ og ,,170 x hringinn“ sem báðar
eru til húsa í gamla barnaskólahús-
inu, lýkur á morgun, sunnudag.
Sýningum lýkur
Norska húsið, Stykkishólmi Dýr-
finna Torfadóttir opnar sýningu á
skartgripum sínum og lágmyndum.
Dýrfinna lærði fag sitt á Akureyri
og í Valdres í Noregi og lauk meist-
araprófi í gullsmíði árið 1983. Hún
er jafnframt sjóntækjafræðingur og
sjónfræðingur og hefur veitt þjón-
ustu á því sviði samhliða skart-
gripagerð. Hún opnaði vinnustofu á
Akranesi sl. sumar og rekur versl-
un á Ísafirði. Þar er m.a. boðið upp
á handunna skartgripi. Dýrfinna
hefur tekið þátt í fjölda sýninga,
bæði einkasýninga og samsýninga,
og hlotið margvísleg verðlaun og
viðurkenningar, m.a. hlaut hún 1.
verðlaun fyrir tískuskartgrip ársins
árin 1997, 1998 og 1999. Norska
húsið er opið alla daga frá kl. 11–17
og stendur sýningin til 1. septem-
ber.
Lóuhreiður, Laugavegi 61 Vilborg
Eggertsdóttir myndlistarkona opn-
ar einkasýningu á verkum sínum kl.
12. Þetta er þriðja einkasýning Vil-
borgar. Þar sýnir hún verk unnin í
vatnslit og olíu.
Sýningin mun standa til 10. sept-
ember.
Kaffitár, Gallerí sautján, Lauga-
vegi 91 Laufey Margrét Pálsdóttir
sýnir „rósir“, málverk á bólstraðan
striga, út september.
Í DAG
Sjá einnig Staður og stund á mbl.is
LILJA Hjaltadóttir fiðlukennari
stendur fyrir tónlistarbúðum fyrir
börn og unglinga í Skálholti og hefj-
ast þær í dag, laugardag og stendur
til 25. ágúst. Lilja hefur verið með
námskeið, mest fyrir sína suzuki-
nemendur, á hverju ári í Skálholti
síðastliðin 10 ár. Nú hefur hún fært
út kvíarnar og námskeiðið er lengra
og fleirum boðið að slást í hópinn.
Námskeiðið skarast þannig að
yngstu börnin byrja, síðan bætast
við næstu stig (þannig að yngri börn-
in heyra alltaf í þeim sem eru komin
aðeins lengra,) og síðasti partur
námskeiðsins er fyrir tónlistarnem-
endur frá 6. stigi og upp á háskóla-
stig. Þar hefur hún fengið til liðs við
sig Auði Hafsteinsdóttur og Sigur-
björn Bernharðsson fiðluleikara til
að kenna með sér. Auk þeirra kenna
á námskeiðinu Helga Steinunn torfa-
dóttir, Örnólfur Kristjánsson og
Kristinn Örn Kristinsson.
Foreldrar dvelja með yngri börn-
unum en eldri börnin koma án for-
eldra.
Auður
Hafsteinsdóttir
Sigurbjörn
Bernharðsson
Tónlistarbúðir í Skálholti
verk eftir Bach og Boëllmann, þrjú
þeirra leikur hún einnig á tónleik-
unum annað kvöld. Það eru Pre-
lúdía og fúga í Es-dúr, forspil og
eftirspil sálma sem ganga undir
nafninu Orgelmessan; sálmforleik-
urinn An Wasserflüssen Babylon
Bach og Maríubæn og Tokkata,
tveir síðari kaflar Gotnesku svít-
unnar op. 25 eftir franska 19. ald-
ar tónskáldið Léon Boëllmann.
Kaflarnir eru fjórir og leikur hún
þá alla annað kvöld. Fyrri kafl-
arnir standa undir heitinu að vera
gotneskir í stíl en hinir síðari
dæmigerðir fyrir franska orgel-
tónlist frá síðari hluta 19. aldar.
Síðari hluti efnisskrár Susan
annað kvöld er franskur og hefst á
einni fyrstu frönsku orgelsin-
fóníunni, Grande Pièce Symphoni-
SUSAN Landale er gestur Sumar-
tónleikaraðarinnar Sumarkvöld
við orgelið í Hallgrímskirkju á
sunnudagskvöld kl. 20 og leikur
jafnframt á hádegistónleikum í
dag kl. 12. Susan er meðal fremstu
organista Frakklands, þar hefur
hún starfað um langt árabil, en
hún er Skoti að uppruna. Eftir að
hún vann alþjóðlega orgelkeppni
sem kennd er við St. Albans hefur
hún verið eftirsóttur orgelleikari
víða um heim. Hún hefur m.a.
komið fram með mörgun hljóm-
sveitum og á tónlistarhátíðum, auk
þess sem hún er eftirsótt í dóm-
nefndir.
Þetta er í annað sinn sem hún
kemur fram á vegum tónleikarað-
arinnar, fyrst árið 1999. Á hádeg-
istónleikunum leikur hún fjögur
que op. 17 eftir César Franck.
Hann skrifaði verkið 1863 eftir
hvatningu frá Franz Liszt. Annað
franska verkið er Minuetto eftir
Eugene Gigout. Hann var prófess-
or í orgelleik við Tónlistarháskól-
ann í París og sérstaklega fyrir
orgel til notkunar í kirkjunni.
Minuetto er eitt tíu verka úr
þekktasta safni hans Dix Pièces
(Tíu verk) og síðasta verkið er
Suite Gothique op. 25.
Morgunblaðið/Sverrir
Susan Landale organisti.
Susan Landale gest-
ur Hallgrímskirkju
♦ ♦ ♦
♦ ♦ ♦