Morgunblaðið - 10.08.2002, Side 40
MINNINGAR
40 LAUGARDAGUR 10. ÁGÚST 2002 MORGUNBLAÐIÐ
✝ Vilborg Jóns-dóttir fæddist í
Norðurkoti á Kjal-
arnesi 27. febrúar
1907. Hún lést á
Sjúkrahúsi Akra-
ness 2. ágúst síðast-
liðinn. Foreldrar
hennar voru Jón
Jónsson frá Miðfelli
í Hvalfirði, f. 14.
nóvember 1882, d.
4. júlí 1961, og Sig-
ríður Andersdóttir,
f. 9. september 1880
í Reykjavík, d. 30.
september 1958.
Systkini Vilborgar voru níu:
Lilja, f. 7. júní 1903, Þórður
Gunnar, f. 27. ágúst 1905, Er-
lendur Helgi, f. 16. júlí 1908, Jón
Þórir, f. 5. nóvember 1910,
Bjarni, f. 28. mars 1916, Laufey
Sigurrós, f. 12. ágúst 1916, And-
ers Gunnþór, f. 2. febrúar 1919,
Gústaf Adólf, f. 28. ágúst 1920,
og Níels Helgi, f. 23. maí 1921.
Vilborg átti einnig eina hálfsyst-
ur, Þóru, f. 1. nóvember 1907.
Vilborg kynntist Eggerti Jón-
asi Guðmundssyni í Sandgerði
árið 1930. Hann var þar á vertíð
en hún í vist. Fluttu þau til Ólafs-
grímur Ómar, f. 5. september
1961. Sambýliskona Guðrún Al-
freðsdóttir. 3) Sigurjón Val-
mundur, f. 2. oktober 1939, maki
Hildur Jónsdóttir. Börn þeirra
eru: Ingibjörg Magnea, f. 21.
september 1963, Sigurjón, f. 27.
maí 1966, og Eggert Vilberg, f.
24. maí 1969. 4) Þórunn Adda, f.
4. desember 1942, maki Bjarni
Karlsson, d. 10. janúar 1991.
Börn þeirra eru: Anna Ástveig, f.
23. desember 1967, Arnar, f. 12.
júní 1970, Bragi, f. 9. júní 1974,
og Bjarni Freyr, f. 9. júní 1974.
5) Jón Eggertsson, f. 12. maí
1945, maki Margrét Vigfúsdóttir.
Börn þeirra eru: Kristjana Elísa-
bet, f. 4. júlí 1968, Vilborg, f. 17.
apríl 1972, og Jón Þór, f. 12. des-
ember 1979. 6) Hilmar, f. 23.
september 1946, maki Sigfríður
Fanný Stefnisdóttir. Börn þeirra
eru: Vignir Methúsalem, f. 20.
júní 1966, og Eggert Jónas, f. 10.
september 1968. 7) Gústaf Frið-
rik, f. 22. nóvember 1953, sam-
býliskona Helga Tómasdóttir.
Barn þeirra er Jón Hilmar, f. 17.
nóvember 1983. Synir Gústafs
eru Guðbjörn, f. 4. desember
1973, og Bjarki, f. 28. október
1976. Dóttir Helgu er Hulda
Hrönn, f. 19. júní 1975. Barna-
barnabörn eru orðin 29 talsins
og eitt barnabarnabarnabarn.
Útför Vilborgar fer fram frá
Ólafsvíkurkirkju í dag og hefst
athöfnin klukkan 14.
víkur 1931 og bjuggu
þar alla tíð síðan.
Fyrst í Friðarhöfn
með foreldrum Egg-
erts, þá í Ásbjörns-
húsi sem þau keyptu
árið 1942 og bjuggu
þar til 1959 er þau
festu kaup á Braut-
arholti 1. Þar bjuggu
þau þar til þau fluttu
á Dvalarheimilið Jað-
ar árið 1990. Vilborg
og Eggerts giftust 1.
júlí 1946. Foreldrar
hans voru Guðmund-
ur Eggertsson, f. 12.
ágúst 1872 í Lómakoti í Fróð-
árhreppi, d. 30. júlí 1952, og Sig-
urlín Rósborg Friðriksdóttir f.
20. október 1866, d. 7. ágúst
1946. Börn Eggerts og Vilborgar
eru: 1) Sigríður Elín, f. 3. maí
1933, maki Margeir Vagnsson, d.
25. nóvember 2000. Börn þeirra
eru: Eggert Hafsteinn, f. 3. júlí
1958, Sólveig, f. 8. febrúar 1961,
og Vilberg, f. 5. júlí 1967. 2) Sig-
urdór Steinar, f. 10. desember
1937, maki Guðrún Sigríður Guð-
mundsdóttir, d. 8. október 1997.
Börn þeirra eru: Guðmundur
Ágúst, f. 9 ágúst 1960, og Arn-
Belgvettlingar, sjóvettlingar, út-
prjónaðir sparivettlingar, lopa-
sokkar, hosur og leistar. Amma,
langamma og langalangamma, 95
ára gömul, sá til þess að börn,
tengdabörn, barnabörn, tengda-
barnabörn, barnabarnabörn og
barnabarnabarnabarn ættu nóg af
lopavettlingum og lopasokkum af
ýmsu tagi og væri þar með hlýtt á
höndum og fótum við öll tækifæri.
Allt fram á sinn síðasta dag var
amma með eitthvað á prjónunum,
ef hún var ekki að prjóna nýja
sokka og vettlinga, gerði hún við
gamla og slitna, rakti upp og prjón-
aði við. Nýlega fengum við send-
ingu af fallega mynstruðum vett-
lingum, sparivettlingum, sem
héðan í frá verða spari-sparivett-
lingar.
Við systkinin komum ekki oft í
Brautarholtið til ömmu og afa þeg-
ar við vorum lítil. Þegar við það
gerðum var amma alltaf eitthvað
að sýsla í eldhúsinu, klædd Hag-
kaupsslopp með mikið og sítt hárið
greitt í fléttur sem náðu niður að
mitti, fléttunum vafði hún svo upp
undir skuplu sem hún bar jafnan
við heimilisstörf. Í eldhúsinu sínu
eldaði hún ofan í heila hersingu,
ásamt því að baka til hversdags-
brúks jólakökur, marmarakökur,
heimsins bestu kleinur og flatkök-
ur. Á meðan var afi kannski að
dytta að húsinu eða vinna í garð-
inum, en garðurinn þeirra var með
fallegri görðum í Ólafsvík. Innan-
dyra var allt í röð og reglu, snyrti-
mennskan í fyrirrúmi. Í kjallaran-
um hjá ömmu og afa höfðu
bílstjórar sérleyfisbíla Helga Pét-
urssonar gistiaðstöðu og voru alltaf
velkomnir í kaffi og kræsingar hjá
ömmu. Amma sagði sjálf að allir
bílstjórar Sérleyfisins hefðu sofið
hjá henni og þótt það gott, a.m.k.
ætti hún vísa fría ferð í bæinn með
Sérleyfinu allt til æviloka. Síðasta
rútuferð ömmu, Ólafsvík-Reykja-
vík-Ólafsvík, var rétt fyrir 95 ára
afmælið hennar.
Heldur rólegra var hjá ömmu
eftir að hún fluttist úr Brautarholt-
inu, sérstaklega eftir að afi féll frá.
Þegar við heimsóttum hana þá í
Ólafsvík var notalegt að sitja og
spjalla við hana um heima og
geima, heyra sögur frá því í gamla
daga og skoða myndir, bæði í al-
búmum og upp um alla veggi og í
hverri hillu. Herbergið hennar var
þéttskipað myndum af börnunum
hennar, börnum þeirra og fjöl-
skyldum auk eldri fjölskyldu-
mynda. Fór þá ekki hjá því að sum-
ar myndir væru settar í öndvegi
eftir mikilvægi og tilefni mynda-
töku. Eggert Vilberg, sem eitt sinn
kleif Mont Blanc, var þó stoltari af
því að hafa náð upp á sjónvarpið
hennar ömmu í útskriftarbúningn-
um sínum frá háskóla í Bandaríkj-
unum.
Á seinni árum þegar amma fór
að koma oftar í bæinn og gista hjá
foreldrum okkar, kynntumst við
henni enn betur. Til Reykjavíkur
þótti henni jafnan gott að koma,
enda sagðist hún fyrst of fremst
vera Reykvíkingur, því næst Kjal-
nesingur, en hún talaði sjaldnast
um að vera frá Ólafsvík þó hún hafi
búið þar í rúm sjötíu ár. Þegar aðr-
ir fóru til Ólafsvíkur til að fá kraft
úr Snæfellsjökli, sagðist amma
fara til Reykjavíkur að fá sér
hreint loft. Oftast kom hún til
Reykjavíkur með Sérleyfinu, frá
Ólafsvík, og sóttum við hana á Um-
ferðarmiðstöðina. Venjulega beið
hún hin rólegasta í rútunni þar til
hinn almenni farþegi var kominn
út. Þá sveiflaði hún sér lipurlega út
á ganginn þaðan sem við fylgdum
henni. Bæjarferðirnar voru nú ekki
farnar út af neinum óþarfa, tilefnið
gat verið ferming, skírn, afmæli,
heimsókn til augnlæknis eða það
sem var allra mikilvægast – klipp-
ing, hárgreiðsla og lagning hjá hár-
greiðslukonunni hennar í Vestur-
bænum.
Flatkökurnar hennar ömmu
voru í miklu uppáhaldi hjá okkur
og í þessum bæjarferðum bakaði
hún staflana af flatkökum í eldhús-
inu hjá mömmu sem á skömmum
tíma hurfu ofan í fjölskyldumeð-
limi. Uppskriftin: fjölskylduleynd-
armál!
Amma Villa hafði ákveðnar skoð-
anir á öllum hlutum, ekki síst þeim
sem sneru að barnauppeldi, heim-
ilisstörfum og handavinnu, enda
fagmanneskja á þeim sviðum. Þá
hafði amma sínar skoðanir á hvern-
ig bæri að klæða sig, sérstaklega
kvenfólk, og lá ekki á þeim frekar
en öðrum. Þegar Sigurjón kynnti
Ástu sína í fyrsta sinn fyrir ömmu,
var Ásta í gallabuxum sem skálm-
arnar höfðu verið klipptar af þann-
ig að úr urðu stuttbuxur með
trosnuðum skálmendum. Þegar
amma kvaddi þau benti hún Ástu
vinsamlega en þó ákveðið á að
falda nú stuttbuxurnar áður en hún
léti sjá sig í þeim aftur.
Amma hélt mikið upp á íslenska
þjóðbúninginn. Hún klæddist jafn-
an upphlutnum sínum við hátíðleg
tækifæri og þótti ánægjulegt að sjá
aðra gera slíkt hið sama. Þegar
amma varð 90 ára var haldin stór-
veisla í Reykjavík og harmonikku-
leikari fenginn til að halda uppi
fjörinu. Amma var allra kvenna
virðulegust á dansgólfinu í upp-
hlutnum sínum, dansaði létt á fæti
polka, vals og ræl. Í 95 ára afmæl-
isveislunni sinni í vetur skartaði
hún hins vegar nýjum kjól sem
Ingibjörg keypti á hana fyrir hönd
okkar systkinanna, en Ingibjörg
var lagin við að finna kjóla og
blússur sem ömmu líkaði. Hug-
myndaflugið hjá okkur bræðrunum
takmarkaðist hins vegar við sjerrí-
flösku, sem jafnan var vel þegin, þó
amma þættist nú sjálf ekki hafa
mikinn áhuga á innihaldinu, nema
helst fyrir herbergisfélaga sinn,
gesti og gangandi.
Amma var mjög ern og ekkert
hægt að spila með hana þó reynt
væri. Var hún með öll sín mál á
hreinu og sá sjálf um að fylgja
þeim eftir. Ef henni þóttu hlutirnir
ekki vera á þann hátt sem henni
sýndist réttastur, hringdi hún á
viðkomandi skrifstofu eða stofnun
og fékk leiðréttingu sinna mála.
Eftir að hún varð ekkja hátt á ní-
ræðisaldri fékk hún tilkynningu frá
skattstofunni um að gert yrði lög-
tak hjá henni greiddi hún ekki hið
snarasta tekjuskatt. Amma, sem
alltaf stóð í skilum og hafði aldrei
skuldað neinum neitt, kunni þessu
illa og þótti nú einkennilegt að eiga
að borga tekjuskatt í fyrsta sinn á
ævinni búandi á dvalarheimili fyrir
aldraða. Amma hringdi á skattstof-
una, bað um skattstjórann og eng-
an annan, þakkaði honum bréfið og
benti góðlátlega á að hún ætti nú
eina sæng og prjónana sína og gæti
svo sem vel komið á skattstofuna
með hvoru tveggja, búið um sig á
ganginum og prjónað upp í skatt-
gjöldin. Skattstjórinn brást skjótt
við og dró að sjálfsögðu til baka all-
ar skattkröfur.
Amma var ágæt til heilsunnar,
sjónin að vísu orðin léleg og mag-
inn stundum að stríða henni. Hún
mætti á alla helstu fjölskylduvið-
burði, kom með okkur og foreldr-
um okkar í sumarbústaðaferðir og
tók þar þátt í leikjum, glensi og
gríni með okkur. Í fyrrasumar var
hún allra manna hressust í stór-
fjölskylduútilegu á Arnarstapa,
þrátt fyrir lærbrot nokkrum mán-
uðum fyrr, og naut þess að vera
með börnum, barnabörnum og
barnabarnabörnum.
Amma fylgdist jafnan vel með
fréttum innanlands sem utan. Um
daginn, þegar hún var sárkvalin á
leið á skurðstofu í aðgerð, hafði
hún fréttir um vaktaálag lækna í
huga þegar hún spurði skurðlækn-
inn, ákveðin og svolítið hvöss: Ertu
ekki vel sofinn, góði?
Ömmu okkar, langömmu og
langalangömmu þökkum við góðar
samverustundir, óteljandi sokka og
vettlinga, leyniuppskriftina góðu
og kveðjum hana eins og svo oft áð-
ur: Amma, vertu nú þæg.
Eggert Vilberg, Sigurjón
og Ingibjörg Valmundar-
börn og fjölskyldur.
VILBORG
JÓNSDÓTTIR
!
"#
$"
% %&% % %&"
!
' ( )*())
+,-
+.
"#
$ %&
'
( ) $
%&
)
*
/
0 ( 1
# /
,#
,/
/
2 /
).
,/
, 1+"
+
,
&
-
$
)
0 $
(,
&34%
+.5 "
65&
. "
7) " 86#9 8
1." , ,
5 +.5
+,-:
.
/
# $ ,15&,
,15&,
,15&,
+ (
2 , "
( )
0 )( 12&1
;+
+.5
0
1
&
/
'
2
$
3
4&
"
+
)
+, )
2 +
)
# $ +
)
"
2)
-
$
)
&
)' 26*<
=7)' *())'
$5! 1>,
$&?3
+.5 "
+ "=@
,!,#
#+A =@
;+ 0
=@
B +
.
%&"