Morgunblaðið - 10.08.2002, Síða 42

Morgunblaðið - 10.08.2002, Síða 42
MINNINGAR 42 LAUGARDAGUR 10. ÁGÚST 2002 MORGUNBLAÐIÐ ✝ Ólöf Bjarnadóttirfæddist í Böðvars- holti í Staðarsveit á Snæfellsnesi 2. okt. 1915. Hún lést á Hjúkrunarheimilinu Lundi á Hellu 31. júlí síðastliðinn. Foreldr- ar hennar voru Bjarni Nikulásson bóndi í Böðvarsholti, f. 20. sept. 1881, d. 5. júní 1967, og Bjarnveig Vigfúsdóttir, f. 3. okt. 1889, d. 18. júlí 1956. Systkini Ólafar eru: Drengur, f. 1906, lést nýfæddur, Karl Nikódemus, f. 1908, d. 1991, Böðvar, f. 1911 d. 1986, Sólveig, f. 1913, d. 1993, Guð- jón Ottó, f. 1917, Vigfús Þráinn, f. 1921, d. 1995, og Gunnar, f. 1922. Fósturbróðir þeirra er Friðrik Lindberg, f. 1931. Hinn 27. okt 1951 giftist Ólöf Jóni Egilssyni bónda á Selalæk, f. 31. júlí 1908, d. 23. júní 1992. Börn þeirra eru: 1) Bjarni, f. 1952, bóndi á Selalæk, kvæntur Kristínu Bragadóttur f. 1959. Börn þeirra eru: Bragi, Ólöf, í sambúð með Hernan Gabriel S. Sarmiento, Unnur Lilja og Valdís. 2) Bjarn- veig, f. 1954, bóndi í Vesturholtum, gift Ármanni Ólafssyni, f. 1948. Börn þeirra eru: Birkir, í sambúð með Brynju Rúnarsdóttur. Þeirra börn eru Bjarnveig Björk og Bergrún Anna. Fyrir átti Brynja börnin Guðmund Gunnar og Gló- dísi. Guðjón, Jón Ólafur, í sambúð með Brynju Hjörleifsdóttur. Arnar og Helgi. 3) Bára, f. 1955, banka- starfsmaður á Hellu, gift Árna Þór Guðmundssyni, f. 1952. Börn þeirra eru: Ólöf, í sambúð með Jóni Ragnari Örlygssyni, Elísabet, í sambúð með Halldóri Geir Jens- syni, og Guðmundur. 4) Þórir, f. 1957, bóndi á Selalæk, kvæntur Guðnýju Sigurðardóttur, f. 1964. Börn þeirra eru: Þráinn, Sesselía og Birta Sólveig. 5) Viðar, f. 1958, trésmiður á Hvolsvelli, kvæntur Jónu Árnadóttur, f. 1960. Börn þeirra eru: Sævald og Jón. Fyrir átti Jóna dótturina Árnýju Láru. Stjúpbörn Ólafar, þ.e. börn Jóns og fyrri konu hans Helgu Skúladóttur frá Keldum, f. 22.nóv. 1902, d. 28. jan. 1947 eru: 1) Skúli, f. 1938, bóndi á Selalæk, í sambúð með Aðalheiði Finn- bogadóttur, f. 1936. 2) Þuríður Eygló, f. 1939, starfsstúlka á Heilsugæslu á Sauð- árkróki, gift Braga Haraldssyni, f. 1942. Börn þeirra eru: Helgi, kvæntur Elínborgu Guðna- dóttur. Synir þeirra eru Arnar Steinn og Helgi Tómas. Jón Egill, kvæntur Heiðrúnu Hauksdóttur, og Alda, gift Gunnlaugi Einari Briem. 3) Egill, f. 1942, verkstjóri í Vestmannaeyjum, kvæntur Helenu Weihe, f. 1949. Börn þeirra eru: Guðjón, í sambúð með Rósu Hlín Óskarsdóttur. Dætur þeirra eru Ís- old Egla og óskírð stúlka. Perla Björk, í sambúð með Sigurði Frey Magnússyni, fyrir átti hann soninn Dag Frey. Jón, í sambúð með Mar- gréti Pálsdóttur, eiga þau óskírðan son, Egill, d. 1978, Aldís Helga og Eygló. 4) Helgi Svanberg, f. 1943, d. 1993, bóndi í Lambhaga, kvænt- ur Ásgerði Sjöfn Guðmundsdóttur, f. 1948. Börn þeirra eru: Helga Dagrún, í sambúð með Steini Más- syni. Dætur þeirra eru Ingibjörg Jónína og Helga Þóra. Jón Þór, í sambúð með Emelíu Þorsteinsdótt- ur. Sonur þeirra er Helgi Svan- berg. Guðmundur Ómar, í sambúð með Margréti Hörpu Guðsteins- dóttur, Gunnar Ásberg, Hafdís Þórunn og Björgvin Reynir. 5) Svanborg, f. 1945, húsfreyja á Bjólu, gift Sæmundi Birgi Ágústs- syni: Börn þeirra eru: Ingveldur, gift Guðmundi Smára Ólafssyni. Dætur þeirra eru Svanborg María og Lilja Björk. Ágúst, Jón, í sam- búð með Guðrúnu Láru Sveins- dóttur, Ólöf og Helga. Útför Ólafar fer fram frá Keldnakirkju í dag og hefst at- höfnin klukkan 13.30. Í dag er kvödd hinstu kveðju frá Keldnakirkju stjúpmóðir mín, Ólöf Bjarnadóttir, húsmóðir á Selalæk á Rangárvöllum. Hugur minn reikar aftur til 5. maí 1951, ég sit úti á hlaði á æsku- heimili mínu, Selalæk, og er eitt- hvað að rísla mér. Ég sé að faðir minn kemur og með honum er ein- hver ókunn kona. Er hún hafði heilsað fór hann að benda henni á fjöllin og segja henni heiti þeirra, eins og hann gerði svo oft við þá, sem að garði bar á Selalæk. Konan var falleg og vel klædd, enda var hér komin saumakona, ráðin til að sauma sparifatnað og fleira á okkur systkinin. Pabbi hafði keypt efni í sparifötin; fallegt köflótt efni í kjóla á okkur systurnar og brúnteinótt efni í jakkaföt á bræðurna. Konan, sem hér um ræðir, var Ólöf Bjarnadóttir frá Böðvarsholti í Staðarsveit á Snæfellsnesi. Hún dvaldi í þetta skipti í þrjár vikur á Selalæk, en þær vikur urðu örlaga- ríkar. Í huga mínum var þetta nota- legur tími, konan var barngóð með afbrigðum og tók mig fljótt að sér og sóttist ég eftir félagsskap henn- ar. Man ég sérstaklega eftir greiðslutímunum á morgnana inni í stofu hjá henni, þar sem hún svaf og var með saumavélina. Alltaf er hún heyrði í mér fyrir utan stofudyrnar á morgnana kallaði hún á mig, greiddi hár mitt og talaði við mig, sagði mér af æskuheimili sínu og fólkinu fyrir vestan. En þessar þrjár vikur voru fljótar að líða, saumaverkefnunum var lokið og fal- legi kjóllinn minn hékk tilbúinn inni í skáp. Ólöf kvaddi, en hvíslaði að mér að hún kæmi aftur, ég vissi ekki þá, hvað það þýddi, en um haustið giftu þau sig faðir minn og hún. Það hefðu margar konur hikað við að taka að sér svona þungt heimili eins og Ólöf gerði. Faðir minn hafði misst fyrri konu sína, Helgu Skúladóttur, í janúar 1947 frá fimm ungum börnum og hafði síðan fengið ýmsar konur á heimilið til hjálpar til lengri eða skemmri dvalar, m.a. móðurömmu mína, Svanborgu Lýðsdóttur frá Keldum, sem mér var minnisstæðust. Í fleiri ár hafði auk þess verið hjálparhella á heimilinu afasystir mín, Guðríður Jónsdóttir frá Stokkalæk (f. á Stokkalæk 9. sept. 1875, d. á Sela- læk 1. maí 1959), en hún hafði fót- brotnað og aldrei náð sér eftir það og lá oft rúmföst. Móðir Ólafar, Bjarnveig Vigfúsdóttir, hafði haft orð á því að Ólöf tæki mikið að sér, en bætt við: „Það kemur sér, að þú hefur gaman af börnum.“ En á Ólöfu var ekkert hik og þaðan af síður á pabba. Hann hafði auk þess dreymt á þessum tíma fallegt og gróskumikið tré fyrir utan gluggann sinn og taldi það enn frek- ari sönnun á því gæfuspori, sem hann var að stíga. Miklir annatímar fóru nú í hönd á Selalæk. Á fáum árum eignaðist Ólöf fimm börn með eins til tveggja ára millibili, sem kröfðust athygli hennar og orku, auk þess að hugsa um stjúpbörnin fimm, sem sum hver voru reyndar farin að hjálpa mikið til, og rúmliggjandi gamal- menni. En eftir því sem börnin uxu úr grasi var sívaxandi uppbygging á Selalæk, bæði hvað varðaði hús og ræktun, störfin gengu vel og búið stækkaði. En við getum ímyndað okkur, hve annirnar voru miklar hjá húsmóður á stórheimili á sjötta og sjöunda áratugnum, pabbi var mik- ið í félagsmálastörfum, gestakomur tíðar í sambandi við þau og hann oft að heiman. Á þessum árum tíðk- aðist varla að kaupa eitt né neitt tilbúið, hvorki í fæði né klæðnaði. Oft var Ólöf við verk fram eftir nóttu, þegar aðrir voru gengnir til náða, tími til lestrar og hvíldar var lítill, en hún hélt brosi sínu, létt- lyndi og glaðværð. Samskipti við aðra voru henni auðveld, hún var heil í því sem hún gerði, vönduð í eðli sínu og hafði hið góða að leið- arljósi og annt var henni um, að ekki væri kastað höndum til hlut- anna. Á æskuheimili Ólafar, Böðvars- holti, eru fjöllin fyrir ofan bæinn og sjórinn ekki langt undan; á fyrstu árum sínum á Selalæk talaði hún stundum um, hve fjöllin væru fjarri á Rangárvöllum, hún þráði að hafa þau nær, en er stundir liðu festi hún djúpar rætur á Selalæk. Einstöku sinnum tók hún í orgelið, spilaði sálma eftir nótum eða dægurlög eft- ir eyranu og söng stundum með, tónlistin var henni í blóð borin; á yngri árum hafði hún tekið í að spila fyrir dansi í heimahéraði sínu. Í tímans rás fluttu börnin að heiman eitt af öðru og festu ráð sitt uns pabbi og Ólöf voru tvö eftir í stóra gamla steinhúsinu, sem byggt var árið 1908 og jafngamalt pabba. En nú tók nýtt hlutverk við hjá Ólöfu, það var ömmuhlutverkið, gerði hún engan greinarmun á börnum stjúpbarnanna og sinna eigin barna frekar en hún hafði gert áður fyrr við sín eigin börn og stjúpbörn, og öll kölluðu þau hana ömmu. Gerði hún sem hún gat til að halda góðu sambandi við þau og glöð var hún, þegar hún hafði búið til eitthvað, sem kom að notum, svo sem peysur, sokkar, vettlingar og heklaðir dúkar. Ég hygg að mörg þeirra kannist við þann leik hennar, þegar hún sagði: „Eigum við að mæla, hvort okkar er stærra?“ Síð- an var bökum snúið saman, meðan foreldri barnsins úrskurðaði það. Þetta varð tilefni hláturs og gleði, því að oft beið hún þar lægri hlut. Nú við ævilok eru barnabörnin 37 og barnabarnabörnin 11. Pabbi átti við heilsubrest að stríða upp úr sextugu og mátti ekki vinna erfiðisvinnu eftir það. Hlýtur það að hafa verið erfitt fyrir þau bæði, jafn kapp- og áhugasamur, sem hann var. En búskap var haldið áfram með hjálp barnanna fram á árið 1976, er þrír af bræðrunum tóku við búskap á Selalæk. Skúli með fjárbú, en Bjarni og Þórir hófu félagsbúskap með blandaðan bú- stofn. Hafa þeir allir byggt sér myndarleg hús á jörðinni spölkorn frá gamla íbúðarhúsinu. Pabbi lést eftir erfið veikindi og sjúkrahúslegu 23. júní 1992. Eftir það bjó Ólöf ein, var það á seinni ár- um stundum erfitt fyrir hana því að hún var mikil félagsvera. Í fyrra- sumar flutti hún inn á Dvalarheim- ilið Lund á Hellu, en áður hafði hún verið þar í dagvistun, þegar hún taldi sig hafa tíma til þess. Hún var létt í spori sem ung stúlka og bar aldurinn vel, enda að mestu heilsu- hraust og til marks um það, þá kom ég að henni vera að slá með garð- sláttuvél í garðinum hjá sér haustið 2000, þá 85 ára að aldri. Fyrir um það bil mánuði veiktist Ólöf og við tók tvísýn barátta, sem lauk með sigri dauðans að morgni 31. júlí sl. á Hjúkrunarheimilinu á Lundi á afmælisdegi föður míns. Góð kona er gengin, blessuð sé minning hennar. Svanborg Jónsdóttir. Elsku Ólöf. Takk fyrir allt. Líklega hefur þig ekki grunað að þú ættir eftir að búa 50 ár á Sela- læk, þegar þú komst austur á vor- dögum 1951, til að sauma á börnin. En lífið er ótrúlegt á stundum og betri konu gat hann pabbi ekki fengið til að hugsa um bú og börn. Að auki var þar gömul kona, föð- ursystir pabba, sem þurfti mikla umönnun og var rúmföst síðustu ár- in. Svo það var strax mikið að starfa en það var komið líf í bæinn. Ég spurði þig eitt sinn löngu síðar hvort það hefði ekki verið erfitt að taka að sér svona mörg börn og sum komin á erfiðan aldur. Þú sagð- ir: „Nei, mér fannst það ekki erfitt.“ Þú varst fyrst og fremst kona mannsins þíns og móðir barnanna þinna og hans og það get ég sagt með sanni að þú varst jafnmikil móðir eldri og yngri barnanna. Þegar ég lít til baka kemur ótal margt upp í hugann, alltaf nóg að starfa, börnin komu eitt af öðru og allt var búið til heima, föt og fæði. Löngum sast þú við saumavélina en það lék allt í höndunum á þér og þegar komin var ró á kvöldin voru prjónarnir teknir fram. Ég man þegar ég fór í skóla eitt haust, þá spurði ég þig: Hvernig verður þetta í vetur? og þú sagðir: „Ja, nú fer ég fyrst að vinna.“ Auðvitað var þetta grín hjá þér. Þú hafðir alltaf mjög gaman af börnum og það kom fyrir að börn voru hjá þér vegna veikinda eða því um líks. Sem og ég bað þig fyrir okkar dreng, Helga, þegar ég þurfti að fara á spítala. Sá stutti vildi ekki þýðast alla en var alveg sérlega hændur að þér, þú sagðir að þú hefðir haft hann á gólfinu hjá þér er þú varst að strjúka yfir gólfið. Þegar við töluðumst við í síma spurðir þú ævinlega hvernig litlu elskurnar hefðu það, en það eru litlu tvíburarnir sem eru þriggja ára núna. Frændræknin var þér mjög ofarlega í huga og fylgdistu mjög vel með frændfólki þínu, þótt flest af því byggi langt í burtu. Skal ekki á neinn hallað þótt ég segi að þið Sólveig systir þín hafið verið mjög nánar og man ég sem krakki, hvað þið voruð duglegar að skrifast á, og alltaf var gaman þegar bréf kom með fallegri skrift Sólveigar. Eftir að um tók að hægjast vannstu mikið með Kvenfélaginu Unni og hafðir mjög gaman af. Músíkin var til staðar og sem ung stúlka lærðir þú á orgel og spilaðir stundum á nikku á böllum fyrir vestan. Er þú varst fyrst hér um vorið hætti ég ekki fyrr en þú varst búin að kenna mér að spila lagið „Vertu sæll“ eftir eyranu og síðan hefur þetta lag alltaf minnt mig á þetta tímabil. Ljóðagerðin fór hljóðlega hjá þér en þú gast búið til alveg frábærar vísur og var það aðallega á efri ár- um að það slapp út. Þær eru ófáar lopapeysurnar sem þú hefur prjónað á niðjana, útprjón- aðar, heilar og hnepptar – lista- smíði. Einnig eyddirðu mörgum stundum í garðinum á sumrin. Pabba varstu stoð og stytta eftir að heilsu hans tók að hraka og gat hann því verið lengur heima en ella. Vertu yfir og allt um kring með eilífri blessun þinni. Sitji Guðs englar saman í hring sænginni yfir minni. (Sig. Jónsson.) Elsku Ólöf mín, takk fyrir allt saman, megi Guð og allir englarnir varðveita þig. Þín Eygló. Það var þungbúinn himinn en hlýr andvari morguninn 31. júlí sl. er við Eygló vorum að sýsla í garð- inum, að Birkihlíð 11, þegar síminn hringdi og okkur barst sú harma- fregn að Ólöf Bjarnadóttir, hús- freyja frá Selalæk, væri dáin. Henn- ar kall var komið, lífshlaupi lokið og eilífðin tekin við. Hennar ferð hin- um megin var hafin. Ósjálfrátt dýpkar andardrátturinn í lotningu. Aldrei er maður viðbúinn þegar ná- komnir kveðja þrátt fyrir að vita lögmál lífsins. Á stundu sem þessari koma minningarnar upp í hugann hver af annarri að hafa fengið að kynnast jafnheilsteyptri konu sem Ólöf frá Selalæk var, telst til for- réttinda hvað þá að eiga hana að sem tengdamóður. Frá fyrstu kynn- um var tekið á móti mér og mínum með útbreiddan faðm er komið var í heimsókn á Selalæk og gestrisnin slík að allir voru jafnharðan felldir inn í heimilislífið. Matur og drykkur framborinn frá morgni til kvölds af miklum myndarskap og virðuleik sem Ólöfu var einni lagið. Það duld- ist ekki að reglusemi og háttvísi ein- kenndi hennar persónuleika. Þá má ekki gleyma þeim einstaka kærleika og ræktarsemi sem hún sýndi börn- um okkar og barnabörnum. Fyrir það vil ég þakka Ólöfu sérstaklega. Ólöf var sérstaklega sterk kona og bjó yfir miklum sálarstyrk, það fann ég vel er hún annaðist eiginmann sinn Jón Egilsson síðustu æviár hans. Hún var konan með „lampann“, kærleikslampann. Þeim kærleika veit ég líka að hún miðlaði ríkulega til fjölmargra á sinni lífsgöngu, bæði sér nákominna og vanda- lausra. Ólöf hafði yndi af músík spilaði m.a. á orgel og söng gjarnan með. Á stundum tókum við lagið saman þegar ég kom í heimsókn til hennar á Selalæk og gamansemin og glettnin var ekki langt undan á góð- um stundum. Er við hjónin heimsóttum Ólöfu á sjúkrahúsið á Selfossi nú fyrir nokkrum dögum var ljóst að lífs- kraftur hennar hafði minnkað mjög. En þrátt fyrir það gátum við spjall- að saman nokkur augnablik um líð- andi stund. Hún sagði sér líða vel og bað að heilsa öllum. Er við fórum veifaði Ólöf báðum höndum í kveðjuskyni. Vissulega fundum við að þetta gæti verið okkar síðasta heimsókn til Ólafar sem og varð raunin. Selalækjarheimilinu á ég mikið að þakka og ekki verður skilið við þessa grein án þess að í hugann komi minningin um tengdaföður minn Jón Egilsson, bónda og hrepp- stjóra, er lést fyrir rétt um tíu ár- um, svo samrýnd voru þau Ólöf og Jón. Þau hjón voru sannarlega sveitarhöfðingjar sem ævinlega var gott að leita til og sækja heilræði til. Þeirra saga er samofin og á margan hátt einstök sakir þeirrar lífsbar- áttu sem lífið krafðist af þeim á sín- um tíma og þeirra mannkosta sem leiddi þau og börnin þeirra tíu til farsældar. Það vita þeir sem til þekkja að væri efni í heila bók. Nú hafa þau sameinast á ný á eilífð- arbraut. Ég vænti þess að hið merka ævistarf Ólafar á Selalæk eigi eftir að koma fram á öðrum vettvangi. Fyrst og síðast vil ég þakka þér, Ólöf mín, fyrir allt sem þú varst mér og minni fjölskyldu, frá þér stafaði ætíð birtu og yl. Öll- um börnum Ólafar og fjölskyldum þeirra votta ég mína dýpstu samúð. Megi bænin gefa ykkur styrk á erf- iðri stund. Blessuð sé minning Ólaf- ar Bjarnadóttur. Hvíl í Guðs friði. Bragi Haraldsson. Þegar ég fæddist varst þú við- stödd til að bjóða mig velkomna í þennan heim. Í dag er ég að kveðja þig og biðja þér Guðs blessunar í nýrri veröld, sem ennþá er mér óþekkt. Ólöf Bjarnadóttir frá Böðvars- holti í Staðarsveit var þar fædd og uppalin ásamt sex systkinum hjá foreldrum sínum, þeim Bjarnveigu K. Vigfúsdóttur og Bjarna Nikulás- syni. Áður eru látin Karl, Böðvar, Sólveig og Þráinn, eftirlifandi eru Guðjón, Gunnar og uppeldisbróðir- inn Friðrik. Þegar skrifuð eru minningarorð leitar hugurinn til liðins tíma. Við flettum upp í þessu flókna fyrirbæri sem mannshugurinn er og rifjum upp minningar af ýmsum toga. Minningar tengjast gjarna bæði ljúfum stundum og sárum og þá er oft að sama persóna kemur sterkt fram, því hún er kannski samofin ævi manns frá fæðingu, hefur glaðst með manni á hamingjustundum og hlúð að manni í sorg, ætíð verið ná- læg, jafnvel þó í fjarlægð væri, og það hefur verið svo óendanlega dýr- mætt að eiga hana að. Sem lítil telpa kallaði ég þig alltaf Lóu frænku. Mamma sagði ævinlega Lóa systir. Það gerðu bræður þínir líka. Við höfum átt samleið alla mína ævi og í mínum huga allt frá barn- æsku og kannski sérstaklega þá hefur þú verið mér sem önnur móð- ir. Þeir sem þekkja okkur vita or- sakir þess, en við bundumst óvana- lega sterkum böndum í gegnum systurkærleika ykkar mömmu í hennar fjarlægð við mig. Fyrir utan Bjarnveigu ömmu varst þú sú sem ég setti þá allt mitt traust á og víst var að þú hefðir ekki getað hugsað betur um mig þó ég hefði verið þín eigin dóttir. Í okkar oft löngu síma- samtölum síðari ár komumst við að ÓLÖF BJARNADÓTTIR

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.