Morgunblaðið - 10.08.2002, Qupperneq 47

Morgunblaðið - 10.08.2002, Qupperneq 47
KIRKJUSTARF MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 10. ÁGÚST 2002 47 LAUGARDAGUR Hallgrímskirkja. Hádegistónleikar kl. 12. Susan Landale frá Frakklandi leikur á org- elið. Boðunarkirkjan, Hlíðarsmára 9, Kópa- vogi. Samkoma í dag kl. 11–12.30. Lof- gjörð, barnasaga, prédikun og biblíu- fræðsla þar sem ákveðið efni er tekið fyrir, spurt og svarað. Á laugardögum starfa barna- og unglingadeildir. Létt hressing eftir samkomuna. Allir hjartanlega vel- komnir. Biblíufræðsla alla virka daga kl. 10, 13 og 22 á FM 105,5. Hvítasunnukirkjunni á Akureyri. Brauðsbrotning kl. 20, G. Rúnar Guðna- son prédikar. GUÐMUNDUR Sigurðsson tekur við starfi organista í Bústaðakirkju við guðsþjónustu á sunnudaginn kl. 11. Guðmundur er Reykvíkingur og lauk námi í píanóleik og tónfræði frá Tónmenntaskóla Reykjavíkur árið 1987. Hann lauk kantorsprófi frá Tónskóla Þjóðkirkjunnar árið 1996 og burtfararprófi í orgelleik frá saman skóla árið 1998 jafnhliða því sem hann sótti orgeltíma hjá prófessor Mark A. Anderson í Princeton í Bandaríkjunum. Hann hélt síðan vestur um haf og var við nám Westminster Choir Col- lege í Princeton í New Jersey þar sem Mark A. Anderson var aðal- kennari hans. Nú í vor lauk hann mastersprófi í orgelleik frá skól- anum með besta vitnisburði. Guðmundur tekur við metn- aðarfullu starfi í Bústaðakirkju og hefur þar yfirumsjón með öllu tón- listarstarfi kirkjunnar, sem er bæði fjölbreytt og öflugt, en þar eru starfandi sjö kórar og hljómsveitir. Kirkjukór Bústaðakirkju mun syngja við messuna á sunnudaginn ásamt einsöngvurum úr kórnum. Að messu lokinni býður sóknar- nefnd kirkjunnar í kirkjukaffi í safnaðarheimilinu. Sóknarbörn og velunnarar kirkj- unnar er hvött til þátttöku og fagna saman góðum starfsmanni Bústaða- kirkju. Pálmi Matthíasson. Kvöldstund í Hjallakirkju Á SUNNUDAGSKVÖLD kl. 20 verður kvöldguðsþjónusta í Hjalla- kirkju, Kópavogi. Þetta er fyrsta kvöldstundin í kirkjunni í sumar en næstu tvo sunnudaga verða guðs- þjónustur á þessum sama tíma. Stundunum er ætlað að veita fólki tækifæri til íhugunar og kyrrðar á fallegum sumarkvöldum. Félagar úr kór kirkjunnar leiða safnaðarsönginn og Jón Ól. Sig- urðsson situr við orgelið. Allir eru hjartanlega velkomnir. Kvöldguðsþjónusta í Seljakirkju KVÖLDGUÐSÞJÓNUSTA verður í Seljakirkju sunnudagskvöldið 11. ágúst kl. 20. Sr. Bolli Pétur Bollason þjónar fyrir altari og Þorvaldur Hall- dórsson mun sjá um að leiða fólk í söng. AA-félagar eru sérstaklega boðn- ir velkomnir og einn þeirra mun segja sögu sína. Altarisganga verður í messunni og þess gætt að drykkurinn í lífsins bikar sé með öllu óáfengur. Fermingarskóli Fríkirkjunnar í Reykjavík EN EINS og undanfarin ár býður Fríkirkjan í Reykjavík ungmennum upp á fermingarfræðsluna í ágúst, áður en skólar byrja að hausti. Við hefjum fræðsluna með guðsþjón- ustu kl. 11 sunnudaginn 11. ágúst. Eftir guðsþjónustuna munum við hitta fermingarbörnin og fara yfir dagskrá fermingarskólans. Ferm- ingarbörnin mæta síðan daglega kl. 9.30 í safnaðarheimili kirkjunnar. Við reiknum með að kennslustund dagsins ljúki rétt fyrir kl. 13. Ásamt fræðslu förum við í heimsóknir á nokkra staði. Helstu kostir Fermingarskóla Fríkirkjunnar eru: 1. Samþjöppuð kennsla – minna rask yfir veturinn. 2. Fermingardagur að eigin vali. 3. Kennslugjöld eru engin! Svar safnaðarins við dreifingu safnaðarfólks Fermingarskólinn er starfræktur þannig að síðustu dagana fyrir skólabyrjun grunnskólanna koma nemendur daglega til safn- aðarheimilisins og njóta þar fræðslu. Yfir veturinn koma þau til kirkju ákveðinn fjölda sunnu- og helgidaga. Einnig er farið í sólarhrings fermingarferðalag. Þeim sem ekki geta nýtt sér sam- þjappaða kennslu í ágúst, býðst annar möguleiki, sem tengdur er guðsþjónustum sunnudagsins. Fjölskyldan getur sjálf valið hvaða dag barnið fermist Við bjóðum fermingarbarninu og fjölskyldu þess að velja sér ferm- ingardag, innan ákveðinna marka þó. Með þessu er ætlunin að stuðla að því að fermingin fái veglegri sess meðal fjölskyldunnar. Hægt er að bjóða ættingjum og vinum til fermingar og gjarnan til veisluboðs á eftir, en ekki eingöngu til veisl- unnar, eins og víða er nú komið. Fermingarathöfnin fær þannig meira vægi í hugum flestra. Kennslugjöld eru engin Það fylgja því óþægindi og kostn- aður fyrir flesta að stunda ferming- arfræðsluna utan heimahverfis. Til að koma til móts við það, eru ekki innheimt nein kennslugjöld og svo- kölluð kyrtlaleiga er engin. Jafnaldrar mjög velkomnir Eigi fermingarbarnið góðan vin, vinkonu, frænda eða frænku, sem einnig á að fermast, er sá hinn sami einnig velkominn. Vilji börnin fermast saman þá gerist það á þeim degi, sem fjölskyldurnar koma sér saman um og í samráði við safn- aðarprest. Allar nánari upplýsingar er hægt að nálgast á skrifstofu safnaðarins. Sr. Hjörtur Magni Jóhannsson Hreiðar Örn Zoëga Stefánsson Nýr organisti í Bústaðakirkju Morgunblaðið/Jim Smart Bústaðakirkja. FRÉTTIR Safnaðarstarf PASTAVÉL PIPAR OG SALT Klapparstíg 44  Sími 562 3614 Verð 5.500 Rússnesk skip í heimsókn RÚSSNESKI tundurspillirinn Admi- ral Chabanenko og birgðaskipið Ser- gey Ocipov eru væntanleg í flota- heimsókn til Íslands 10.–14. ágúst nk. í boði utanríkisráðuneytisins. Tund- urspillirinn mun leggja að við Mið- bakkann en birgðaskipið mun liggja við akkeri á ytri höfninni. Áætlaður komutími skipanna er um kl. 19:30 laugardaginn 10. ágúst. Skipin til- heyra Norðurflota rússneska sjóhers- ins. Admiral Chabanenko er 8.000 tonn að stærð og áhafnarmeðlimir 434. Sergey Ocipov er 22.000 tonn að stærð og eru áhafnarmeðlimir 124. Yfirmaður herskipanna er Victor G. Dobroskochenko vísiaðmíráll sem er næstráðandi rússneska Norðurflot- ans. Í fjarveru Halldórs Ásgrímssonar utanríkisráðherra mun Guðni Ágústsson landbúnaðarráðherra bjóða áhafnirnar velkomnar á sunnu- dag kl. 14. Forseti Íslands heimsækir vísiaðmírál og áhafnir skipanna kl. 15.30. Heiðursskotum, 21 talsins, verður skotið við komu forseta sam- kvæmt alþjóðlegri siðavenju. Einnig verður skotið 19 heiðursskotum við komu sendiherra Rússlands á Íslandi um borð kl. 13. Á meðan á heimsókn stendur hittir vísiaðmírállinn einnig fulltrúa utanríkisráðuneytisins, full- trúa Reykjavíkurborgar og yfirmenn bandaríska varnarliðsins á Keflavík- urflugvelli, segir í frétt frá utanrík- isráðuneytinu. Áhafnirnar munu standa fyrir hljóðfæraleik og dönsum á Ingólfs- torgi mánudaginn 12. ágúst kl. 17 og efnt hefur verið til blakleiks á milli Ís- landsmeistara Íþróttafélags stúdenta og sjóliðanna sama dag kl. 18 í íþróttahúsinu Austurbergi. Þá munu áhafnirnar etja kappi við bandaríska hermenn í knattspyrnu í Keflavík á þriðjudeginum. Áhöfnunum verður ennfremur gefinn kostur á að skoða sig um á Þingvöllum, Gullfossi og Geysi. Admiral Chabanenko verður almenningi til sýnis á meðan á heim- sókn stendur sem hér segir: Sunnudaginn 11. ágúst frá kl. 10– 12. Mánudaginn 12. ágúst frá kl. 10– 12 og 15–17. Þriðjudaginn 13. ágúst frá kl. 10–12 og 15–17. ♦ ♦ ♦ Reykjavíkurborg Ekki eitrað fyrir kanínum ÓMAR Dabney, meindýraeyðir hjá Reykjavíkurborg, segir ekkert hæft í þeim sögusögnum að verið sé að eitra fyrir kanínum í Reykjavík; hvorki í Öskjuhlíðinni né annars staðar. „Af hálfu Reykjavíkurborgar er ekkert átak í gangi gegn kanínum,“ segir hann. „Sögusagnir um að svo sé eiga því ekki við rök að styðjast.“ Hann segist líka efast um að aðrir standi í slíku átaki gegn kanínum því það yrði varla gert án þess að haft yrði samráð við Reykjavíkurborg. Aðspurður segir Ómar að talsvert sé af kanínum í Öskjuhlíðinni. Það sjái hann m.a. á veturna, þegar mikið sé af kanínusporum í snjónum. Einstaka sinnum fái Reykjavíkurborg kvartan- ir vegna kanínanna, en þá fari stund- um starfsmenn á vegum borgarinnar og veiði þær í háf eða á annan hátt. Síðan séu þær aflífaðar. Meðgöngulínan slit- og spangarolía Þumalína, Lyf og Heilsa, Lyfja, Heilsuhúsið www.brimborg.is– Njóttu lífsins A B X / S ÍA Sjáðu mig Það er erfitt að skilgreina stíl en þú þekkir hann þegar þú sérð hann. Yfir Citroën er einhver óútskýranlegur sjarmi. Heillandi útgeislun sem fyllir eigendur Citroën lotningu og stolti. Brimborg kynnir nýjan og svalan Citroën C3. Sjáðu! Verð frá 1.389.000 kr. Citroën C3 Opið í dag kl. 13–17.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.