Morgunblaðið - 10.08.2002, Page 50
50 LAUGARDAGUR 10. ÁGÚST 2002 MORGUNBLAÐIÐ
!"
"
#
$
"
%
! BRÉF
TIL BLAÐSINS
Kringlunni 1 103 Reykjavík Sími 569 1100
Símbréf 569 1329 Netfang bref@mbl.is
Allt efni sem birtist í Morgunblaðinu og Lesbók er varðveitt í upplýsinga-
safni þess. Morgunblaðið áskilur sér rétt t i l að ráðstafa efninu þaðan, hvort
sem er með endurbirtingu eða á annan hátt. Þeir sem afhenda blaðinu efni
ti l birtingar teljast samþykkja þetta, ef ekki fylgir fyrirvari hér að lútandi.
ALLIR þættir sköpunarinnar, frá
hugmynd til endanlegrar útkomu,
felur í sér þrjú stig: upphaf, miðju
og endi. Upphafið ber með sér
mikla orku, hraða og spennu. Miðj-
an kemur á eftir og spennan minnk-
ar og hægist á hraðanum, nú byrjar
hin raunverulega vinna: að taka eitt
skref í einu. Endirinn er svo þegar
takmarkinu hefur verið náð, sigur
og endir.
Oft er það þannig með persónu-
legan þroska að hann fer ekki upp
úr upphafsstiginu, eins og algengt
er eftir eitt helgarnámskeið. Þátt-
takendur finna fyrir spennu byrj-
unarinnar en hvað um næstu tvö
stig, miðjuna og endinn (ef slíkt er í
raun til í sambandi við persónuleg-
an þroska). Ég man eftir að hafa
áttað mig á þessu fyrir mörgum ár-
um, að mesti þroskinn átti sér stað
á milli helgarnámskeiða sem ég
sótti. Það sem gerist oft hjá fólki
sem leitar persónulegs þroska, heil-
unar og ummyndunar er að það er
ekkert áframhald, engin miðja og
enginn endir. Aðeins röð ótengdra
byrjana. Fólk upplifir atvik en enga
þróun.
Þetta er mjög algengt á Íslandi,
þar sem virtir kennarar í þessum
efnum koma til Íslands annað slagið
og halda námskeið en eru svo ekki
til staðar þegar nemendurnir þyrftu
að halda áfram.
Leiðbeinandi,
heilari og miðill
Fyrir u.þ.b. ári varð gagnger
breyting á starfsháttum mínum.
Flestir nýju viðskiptavina minna
voru fólk sem vildi vinna sem
heilarar eða meðferðaraðilar. Eða
fólk sem var að vinna við slíkt en
vantaði að þróa starf sitt. Í dag er
slíkur hópur um 75% af þeim sem
ég sinni.
Þetta hefur, þar til nýlega, haft í
för með sér vissar áhyggjur: hvern-
ig get ég hjálpað þessu fólki að
verða það sjálft í þeirra einstöku
vinnu? Ég hef mikla persónulega
þekkingu og reynslu af minni eigin
leið til persónulegs þroska og sjálfs-
vitundar í starfi, sem mig langaði að
deila með fleirum, vitandi að þau
vantaði þetta til þess að geta sjálf
starfað með fólki á sinn hátt.
Loksins kom það til mín að gera
námskeið sem felur í sér áframhald-
andi nám í persónulegum þroska og
á sama tíma að vera menntun sem
miðar að því að þróa heilun eða
meðferðir hverskonar sem þátttak-
endur eru að vinna við eða vilja
vinna við í framtíðinni. Þessi þjálfun
og nám í persónulegum þroska nær
yfir sálfræðileg og andleg svið og er
hannað með það í huga að menntun
í persónulegum þroska verði í gegn-
um lærdóm og persónulega reynslu.
Það tók mig 10 ár að safna efni úr
ýmsum áttum til að fylla þetta eins
árs langa nám. Von mín og tilgang-
ur með þessu námi er að hjálpa
þátttakendum að finna sína eigin
einstöku leið í heilun og að hjálpa
fólki að stíga skrefin til fulls í það
starf sem það fæddist til.
Aftur að upphafsspurningunni:
Er raunveruleg þörf á námi í per-
sónulegum þroska?
Mitt svar er: ef ekki nauðsynlegt
þá allavega mjög hjálplegt fyrir
persónulega og atvinnulega þróun.
Námið fer fram á ensku og kall-
ast „Að verða maður sjálfur“ eða
„Coming into your own!“ og hefst í
september.
GITTE LASSEN
leiðbeinandi, heilari og miðill,
Tjarnarmýri 39, Seltjarnarnesi.
Er þörf á
námi í persónu-
legum þroska?
Frá Gitte Lassen:
NÚ NÝLEGA var viðtal við borg-
arstjórann í sjónvarpinu þar sem
fjallað var um kvikmyndasafn.
Blessaður borgarstjórinn kvartaði
yfir því að það losnaði ekki svo hús
hér í borginni að ekki kæmu upp
hugmyndir um einhverja opinbera
starfsemi sem gæti verið í þessum
byggingum. Í áratugi hefir verið
talað um að byggja tónlistarhús
fyrir opinbert fé. Stjórnarmenn í
Tónlistarfélaginu komu upp prýði-
legu tónlistarhúsi hér í borginni
fyrir mörgum árum, en það er
Austurbæjarbíó sem nú er búið að
leggja niður sem slíkt. Bíóhúsið
hefir verið notað öðrum þræði
gegnum tíðina og hefir ekki annað
heyrst en það hafi virkað vel sem
slíkt, auk þess sem þetta er hin
myndarlegasta bygging. Nú er það
svo að tónleikasalir virka ekki allt-
af sem skyldi, en salurinn þarna við
Snorrabrautina er sagður virka vel.
Aðstaða fyrir flytjendur er að vísu
ófullkomin, þarna fyrir aftan er
garður sem ekki er mikið notaður
en þar er vel hugsanlegt að gera
þjónustuhús og jafnvel koma fyrir
bílastæðum á fleiri en einni hæð.
Áætlað er að nýtt tónlistarhús á
hafnarsvæðinu muni kosta 5 millj-
arða, sem er að miklu leyti óþörf
fjárfesting fyrir okkur skattgreið-
endur. Við eigum nefnilega rúma
tvo milljarða í menningarsjóði
SPRON en þeim peningum væri
vel varið til að gera upp þessa
gömlu menningarmiðstöð. A.m.k.
er vitað hvernig salurinn virkar.
GESTUR GUNNARSSON,
tæknifræðingur
Flókagötu 8, Reykjavík
Tónlistarhús
Frá Gesti Gunnarssyni: