Morgunblaðið - 10.08.2002, Side 51
BRÉF TIL BLAÐSINS
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 10. ÁGÚST 2002 51
Munið 1.000 kr.
Nýbýlavegi 12, Kópavogi,
sími 554 4433.
slána
Laugavegi 24 - www.topstudio.net
Pantanir í síma 552 0624
Barnamyndatökur
Tilboð í ágústTilboð í
Raðhús - Víkurhverfi
Vönduð og vel skipulögð 190 fm raðhús á einni hæð í Víkurhverfi,
Grafarvogi. 4 svefnherbergi. Bílskúr. Tvö af raðhúsunum eru með
tvöfaldan bílskúr. Byggingaraðili er Hrauntún ehf.
Upplýsingar í símum 896 1606 og 557 7060.
ÞESSI frómu orð lét sextug vin-
kona mín falla þegar við ræddum
samkynhneigð og baráttu samkyn-
hneigðra fyrir rétti sínum. Ég á
marga samkynhneigða vini sem
standa sig með stakri prýði í lífinu
og er jafnvel afburðarfólk á sínu
sviði. Engin orð geta tjáð hversu
stolt ég er af þessum vinum mín-
um.
Mikið hefur áunnist í baráttu
samkynhneigðra fyrir réttindum
sínum, en betur má ef duga skal:
Um daginn röltu vinur minn og
sambýlismaður hans niður á Hag-
stofu Íslands og hugðust þeir skrá
sig í sambúð þar sem það væri hag-
kvæmara upp á námslán o.fl. Þegar
til kom var það ekki hægt en var
þeim í staðinn bent á að gifta sig
(staðfesta samvist) hjá sýslumanni.
Það er frekar fáránlegt að samkyn-
hneigðir megi gifta sig en ekki skrá
sig í sambúð! Ég veit bara að þegar
ég byrjaði með mínum karli létum
við fyrst skrá okkur í sambúð og
giftum okkur svo tveimur árum
seinna. Ég er ansi hrædd um að
það hefðu runnið tvær grímur á
mína ef Dísa á Hagstofu Íslands
hefði tilkynnt mér að ég þyrfti að
giftast honum Sigga mínum undir
eins til þess að fá þau réttindi sem
skráðri sambúð fylgja. Fólk í
skráðri sambúð fær full námslán en
námsmaður í óskráðri sambúð fær
lægri námslán af því að hann er í
svokölluðu leigulausu húsnæði, eins
og hann byggi enn í foreldrahúsum.
Þeim þykir vænst hvor um annan
í öllum heiminum. Þurfa þeir að
fara að fiffa einhvern leigusamning,
að annar leigi hjá hinum, til að sitja
við sama borð og gagnkynhneigð
pör!?! Hvar er réttlætið í þessu?
Einhvers staðar stendur að allir
menn séu skapaðir jafnir. Því vil ég
spyrja íslensk stjórnvöld hvað það
er við orðið „jafnir“ sem þeir ekki
skilja.
Í dag halda samkynhneigðir
„Gay Pride“ í fjórða skipti á Íslandi
en þessi hátíðarhöld hafa verið
haldin víða um heim síðan 1969.
„Gay Pride“-hátíðin minnir vissu-
lega á réttindabaráttu samkyn-
hneigðra en er fyrst og fremst há-
tíð þar sem fjölbreytni mannlífsins
er í hávegum höfð.
Ég vil að lokum hvetja alla vini
og vandamenn samkynhneigðra
sem og aðra landsmenn að sýna
samhug með því að mæta í glæsi-
lega skrúðgöngu sem leggur af
stað kl. 15 frá Hlemmi og taka þátt
í skemmtilegum hátíðarhöldum þar
á eftir á Ingólfstorgi. Kæru sam-
kynhneigðu vinir: Til hamingju
með daginn!
FRIÐRIKA KRISTÍN
STEFÁNSDÓTTIR
Hagamel 32, 107 Reykjavík
„Það er margt
verra en að vera
samkynhneigður“
Frá Friðriku Kristínu
Stefánsdóttur:
MIKIÐ ánægjuefni er það fyrir
alla, sem ganga um strandgötu við
austanverðan Skerjafjörð, að fá nú
að sjá geirfuglinn eftir listakonuna
Ólöfu Nordal endurreistan. Stytta
þessi af fuglinum
lenti í íshröngli í
vetur, losnaði þá
af undirstöðun-
um, laskaðist og
þurfti lagfæring-
ar við. Nú hefur
styttan verið
reist upp að nýju.
Listaverk þetta
sómir sér mjög
vel þarna í fjör-
unni og er að
verða yndi okkar Skerfirðinga líkt
og hafmeyjan er uppáhald Dana.
Ég óttast aðeins að sagan endur-
taki sig með íshrönglið, vegna þess
hve lágt styttan stendur. Gætu ekki
bæjaryfirvöld byggt þarna upp
myndarlegt sker, þannig að fuglinn
standi upp úr sjó á stórflóði. Myndi
það gera ásýnd fuglsins veglegri.
Nú hefur verið reistur mikill
grjótgarður meðfram þessari
strönd Skerjafjarðar. Hlífir grjótið
ágangi sjávar á bakkana og gerir
strandvegarstæðið öruggara. Hins
vegar hamlar garðurinn fólki að
hafa greiðan aðgang að fjörunni.
Fjöruganga hefur verið eftirsókn-
arverð meðal unglinga í nærliggj-
andi hverfum. Skoðun lífríkis fjör-
unnar er mjög fræðandi fyrir
æskufólk, og er miður, að þessi
grjótgarðsbygging hefur komið í
veg fyrir þann menntunarmátt.
Væri nú ekki vel til fallið að byggja
góðar steintröppur um garðinn,
sem lægju til dæmis að gömlu Shell
vörinni, þannig að auðvelt væri fyr-
ir fólk að komast þar í fjöru af bíla-
stæðinu?
Búið er að leggja nýja braut fyrir
framlengingu þá, sem gerð var á
suðurenda N-S flugbrautar. Þang-
að hafa verið fluttir bekkir frá fyrra
stæði þeirra við gamla brautar-
endann. Bekkir þessir standa nú á
miklu berangri og æfingagrindur,
sem áður voru við bekkina, hafa
glatast í flutningunum. Mikil bót
væri á, ef gert væri skjól við bekk-
ina fyrir norðanáttinni. Áður uxu
rósarunnar á sambærilegum án-
ingastað fyrir breytingar. Svipaða
runna væri gott að endurvekja á
nýja staðnum. Víðar mætti koma
upp bekkjum á þessari leið, því
langt er á milli hvílustaða. Vel
mættu vera bekkir í skjóli sunnan
við blikkið hjá gömlu Skeljungs-
stöðinni. Einnig er tilvalið bekkj-
arstæði hjá bílastæðinu við gömlu
flugbátasteinbryggjuna.
Nú hefur Shellbryggjan verið
fjarlægð að mestu. Stubbur var
samt skilinn eftir fyrir ári, þegar
bryggjusporðurinn var rifinn. Ekk-
ert hefur síðan verið gert við þenn-
an bút. Strákar fara út á bryggjuna
til veiða og leiks. Bryggjugólfið er
þarna víða brotið og vantar í það
margar fjalir. Er stórhættulegt að
ganga þar fram vegna gata og
lausra planka, og reyndar mildi, að
ekki hafa hlotist slys af. Gangurinn
út á bryggjuna hefur einnig verið
gerður torsóttur með því að brjóta
endann af tréverkinu. Hver er ætl-
un borgarinnar með þennan stubb?
Væri ekki þörf á því að gera
bryggjuna mannhelda, ef hún á að
standa, og hafa ekki þessa slysa-
gildru í þjóðbraut.
Að lokum vil ég geta þess, að við
strandbrautina eru nokkur umferð-
arskilti. Eru merkjaspjöld þeirra
sett rétt í mannhæð á staurana.
Þannig geta hjólreiðamenn og fleiri
vegfarendur auðveldlega rekið höf-
uð í skiltin. Þyrfti endilega að
hækka spjöldin á stöngunum.
STURLA FRIÐRIKSSON,
Skildingatanga 2, 101 Reykjavík.
Þankar um
göngubrautina
við Skerjafjörð
Frá Sturlu Friðrikssyni:
Sturla
Friðriksson
ÞAÐ rekur heldur betur á fjörur
skákáhugamanna í dag þegar þeir
Boris Spassky, Lothar Schmid og
Guðmundur G. Þórarinsson halda
fyrirlestra á málþingi sem verður
haldið í Þjóðmenningarhúsinu við
Hverfisgötu. Umfjöllunarefnið verð-
ur að sjálfsögðu heimsmeistaraein-
vígi þeirra Fischers og Spasskys í
Reykjavík 1972. Málþingið hefst
klukkan 13.30 og eru allir velkomnir.
Átökin í kringum einvígið teygðu
sig langt út fyrir skákborðið, enda má
segja að það hafi endurspeglað einn
helsta átakapunkt heimsmálanna á
þessum tíma, baráttu austurs og
vesturs, eða kalda stríðið milli risa-
veldanna. Utanríkisráðherra Banda-
ríkjanna blandaði sér í einvígismálin
og mörg furðuleg mál komu upp. Dul-
arfullir Sovétmenn á fremsta bekk í
Laugardalshöll með „einhvers konar
sjónauka“ vöktu athygli. Sovétmaður
fannst í felum á gólfi bíls frá sovéska
sendiráðinu og svo mætti lengi telja.
Eitt af því sem fékk mesta athygli var
ásökun Sovétmanna um það að
Bandaríkjamenn notuðu einhverja
dularfulla tækni á sviðinu til að draga
úr getu heimsmeistarans, Spasskys.
Mikil rannsókn fór fram og að lokum
sást dularfullur aðskotahlutur á rönt-
genmynd af stólsetu Spassky. Stóll-
inn var tekinn sundur í smæstu ein-
ingar, m.a. undir eftirliti rannsóknar-
lögreglu, en einungis fannst galli í
viðnum sem hafði verið fyllt í með
viðarfyllingu. Menn höfðu ekki skýr-
ingu á hvers vegna hún kom fram á
röntgenmynd. Myndatakan var end-
urtekin, en þá brá svo við að ekkert
sást! Orsakaði þetta mikið uppnám.
Einnig áttu alvarlegri atburðir sér
stað. Þannig bárust hótanir erlendis
frá um það, að Laugardagshöllin yrði
sprengd í loft upp. Eftir það fylgdist
Útlendingaeftirlitið með komu ferða-
manna til landsins og sprengjusér-
fræðingur var til taks það sem eftir
var einvígisins.
En baráttan á borðinu var ekki síð-
ur hörð. Margir eiga sér uppáhalds-
skák frá einvíginu og sjötta skákin í
einvíginu er oft nefnd í því sambandi,
þó langt sé frá að allir séu sammála
um það val. Þegar skákin hófst var
spennan í hámarki og staðan jöfn
2½–2½.
Hvítt: Bobby Fischer
Svart: Boris Spassky
Drottningarbragð
1. c4 e6 2. Rf3 d5 3. d4 Rf6 4. Rc3
Be7 5. Bg5 0–0 6. e3 h6 7. Bh4 b6
Tartakover-afbrigðið, eitt aðalvopn
Spasskys á þessum árum.
8. cxd5 Rxd5 9. Bxe7 Dxe7 10.
Rxd5 exd5 11. Hc1 Be6 12. Da4 c5
13. Da3 Hc8 14. Bb5! a6 15. dxc5
bxc5 16. 0–0 Ha7
Geller, aðstoðarmaður Spasskys,
mælti á þessum tíma með 16. ...Db7,
eftir ófarir í skák við Furman tveim-
ur árum fyrr. Það vakti mikla athygli,
að Spassky þekkti ekki þá skák.
Margir töldu þetta merki um slæman
undirbúning fyrir einvígið, en hvern-
ig gat Spassky reiknað með að þurfa
að tefla þessa byrjun gegn „kóngs-
peðsmanni“?
Það verður fróðlegt að heyra skýr-
ingar Spasskys á þessu á málþinginu
í dag!
17. Be2 –
Sjá stöðumynd I.
17. ...Rd7
Þessi leikur var nýjung í einvíginu
og hefur ekki sést síðan, svo vitað sé.
Í fyrrnefndri skák, Furman-Gell-
er, varð framhaldið 17. ...a5 18. Hc3
Rd7 19. Hfc1 He8 20. Bb5 Bg4 21.
Rd2 d4 22. exd4 cxd4 23. Dxe7 Hxe7
24. Hc8+ Kh7 25. Rb3 Re5 26. Hd8
Hac7 27. Hxc7 Hxc7 28. f4 Bd7 29.
fxe5 Bxb5 30. Rxd4 Hc1+ 31. Kf2
Hd1 32. Hd6 og svartur gafst upp.
18. Rd4! Df8?!
Timman taldi 18. ...Rf6 19. Rb3
Rd7 gefa betri möguleika fyrir svart.
19. Rxe6! fxe6 20. e4! –
Sjá stöðumynd II.
20. ...d4?
Það hlýtur að vera mjög slæmt að
gefa eftir c4-reitinn á þennan hátt.
20. ...Rf6 21. exd5 exd5 22. Bf3 er ef
til vill ekki gott fyrir svart, en gefur
kannski einhverja von um björgun.
Í framhaldi skákarinnar getur
svartur lítið annað gert en að bíða
dauðans. Spassky lenti undir í einvíg-
inu með þessu tapi í uppáhaldsbyrj-
uninni sinni. Það hlýtur að hafa átt
stóran þátt að hann tapaði heims-
meistaratitlinum.
21. f4 De7 22. e5 Hb8 23. Bc4 Kh8
24. Dh3 Rf8 25. b3 a5 26. f5 exf5 27.
Hxf5 Rh7 28. Hcf1 Dd8 29. Dg3 He7
30. h4 Hbb7 31. e6! Hbc7 32. De5
De8 33. a4 Dd8 34. H1f2 De8 35.
H2f3 Dd8 36. Bd3 De8 37. De4 Rf6
Auðvitað ekki 37. ...Hxe6 38. Hf8+
Rxf8 39. Hxf8+ Dxf8 40. Dh7+ mát.
Sjá stöðumynd III.
38. Hxf6! –
Einfalt og afgerandi. Fischer nýt-
ur ávaxtanna af markvissri tafl-
mennsku.
38. – gxf6 39. Hxf6 Kg8 40. Bc4
Kh8 41. Df4
og svartur gafst upp, því að hann
er algjörlega varnarlaus, eftir t.d. 41.
– Kg8 42. Dxh6, ásamt 43. Hg6+
o.s.frv. (42. – Hg7 43. e7+).
Aðskotahlutir og
sprengjuhótanir
Daði Örn Jónsson
Bragi Kristjánsson
SKÁK
Þjóðmenningarhúsið
MÁLÞING UM HEIMSMEISTARAEINVÍGIÐ
1972
10. ágúst 2002
Stöðumynd I.
Stöðumynd II.
Stöðumynd III.