Morgunblaðið - 10.08.2002, Blaðsíða 52

Morgunblaðið - 10.08.2002, Blaðsíða 52
DAGBÓK 52 LAUGARDAGUR 10. ÁGÚST 2002 MORGUNBLAÐIÐ MORGUNBLAÐIÐ, Kringlunni 1, 103 Reykjavík. SÍMAR: Skiptiborð: 569 1100. Auglýsingar: 569 1111. Áskriftir: 569 1122. SÍMBRÉF: Ritstjórn: 569 1329, fréttir 569 1181, íþróttir 569 1156, sérblöð 569 1222, auglýsingar 569 1110, skrifstofa 568 1811, gjaldkeri 569 1115. NETFANG: RIT- STJ@MBL.IS, / Áskriftargjald 2.100 kr. á mánuði innanlands. Í lausasölu 190 kr. eintakið. Skipin Reykjavíkurhöfn: Skógafoss kemur og fer í dag. Sergey Oci- pov og Admiral Chab- anenko koma í dag. Ak- ureyrin, Deutschland og Nuka Arctica fara í dag. Hafnarfjarðarhöfn: Málmey kom og fór í gær. Lómur fór í gær. Merike fer í dag. Mannamót Bólstaðarhlíð 43. Þriðjudaginn 20. ágúst kl. 8 verður farin skoð- unarferð um Vík og ná- grenni. Uppselt er í ferðina. Félag eldri borgara, Hafnarfirði, Hraunseli , Flatahrauni 3. Morgun- gangan kl. 10 frá Hraunseli, rúta frá Firðinum kl. 9:50. Fél- agsheimilið Hraunsel verður opnað aftur eftir sumarfrí mánudaginn 12. ágúst með félagsvist kl. 13.30. Orlofsferð að Hrafnagili við Eyja- fjörð19.–23. ágúst, munið að greiða gíró- seðlana sem fyrst. Or- lofsferð að Höfða- brekku 10.–13. sept. Skráning og upplýs- ingar í Hraunseli kl. 13–17. Félag eldri borgara, Reykjavík, Ásgarði, Glæsibæ. Kaffistofan opin virka daga frá kl. 10–13. Kaffi, blöðin og matur í hádegi. Félagið hefur opnað heimasíðu www.feb.is. Sunnudag- ur: Dansleikur kl. 20, Caprí-tríó leikur fyrir dansi. Mánudagur: Brids kl. 13. Miðvikudagur: Göngu- Hrólfar ganga frá Ás- garði kl. 10. Hringferð um Norðausturland 17.–24 ágúst, ath. ganga þarf frá farseðli fyrir 13. ágúst. Fundur verður með leiðsögu- manni 15. ágúst kl. 14. í Ásgarði, Glæsibæ. Nokkur sæti laus vegna forfalla. Þjórsárdalur, Veiðivötn Fjallabaksleið nyrðri, 27.–30. ágúst. Staðfestingargjald þarf að greiða fyrir 14. ágúst. Fyrirhugaðar eru ferðir til Portúgals 10. september í 3 vikur og til Tyrklands 30. september í 12 daga fyrir félagsmenn FEB, skráning er hafin tak- markaður fjöldi. Skrán- ing hafin á skrifstof- unni. Silfurlínan er opin á mánu- og mið- vikudögum kl. 10–12 í s. 588 2111. Skrifstofa fé- lagsins er flutt í Faxa- fen 12, s. 588 2111. Fé- lagsstarfið er áfram í Ásgarði, Glæsibæ. Upp- lýsingar á skrifstofu FEB. Norðurbrún 1 og Furu- gerði 1. Farið verður á Snæfellsnes 15. ágúst. Ekið verður að Helln- um og að Arnarstapa. Á Snjófelli verður súpa og brauð um hádegisbilið. Leiðsögumaður Tómas Einarsson. Lagt af stað frá Norðurbrún 1 kl. 8.30 og teknir farþegar í Furugerði. Upplýs- ingar í Norðurbrún, sími 568 6960 og Furu- gerði, sími 553 6040. Gerðuberg, félagsstarf. Þriðjudaginn 13. ágúst verður opnað að af- loknu sumarleyfi, fjöl- breytt sumardagskrá, vinnustofur opnar frá 9–16.30 m.a. perlu- saumur, umsjón Kristín Hjaltadóttir. Frá há- degi spilasalur opinn, kl. 13 boccia, umsjón Óla Stína. Veitingar í Kaffi Bergi. Gullsmári, Gullsmára 13. Opið alla virka daga kl. 9–17 hádegismatur, kaffi og heimabakað meðlæti. Félag eldri borgara Kópavogi. Púttað verð- ur á Listatúni í dag, laugardag, kl. 10.30 Mætum öll og reynum með okkur. Gönguklúbbur Hana- nú. Morgunganga kl. 10 frá Gjábakka í Kópa- vogi laugardagsmorgna. Krummakaffi kl. 9. All- ir velkomnir. Félag fráskilinna og einstæðra. Fundur í kvöld kl. 21 í Konnakoti Hverfisgötu 105. Nýir félagar velkomnir. Munið gönguna mánu- og fimmtudaga. Gigtarfélagið. Leikfimi alla daga vikunnar. Létt leikfimi, bakleik- fimi karla, vefjagigt- arhópar, jóga, vatns- þjálfun. Einn ókeypis prufutími fyrir þá sem vilja. Uppl. á skrifstofu GÍ, s. 530 3600. Stuðningsfundir fyrr- verandi reykingafólks. Fólk sem sótt hefur námskeið gegn reyk- ingum í Heilsustofnun NLFÍ í Hveragerði, fundur í Gerðubergi á þriðjud. kl. 17.30. GA-fundir spilafíkla, kl. 18.15 á mánudögum í Seltjarnarneskirkju (kjallara), kl. 20.30 á fimmtudögum í fræðsludeild SÁÁ, Síðu- múla 3–5 og í Kirkju Óháða safnaðarins við Háteigsveg á laug- ardögum kl. 10.30. Samtök þolenda kyn- ferðislegs ofbeldis, fundir mánudaga kl. 20 að Sólvallagötu 12. Stuðst er við 12 spora kerfi AA-samtakanna. Kattholt. Flóamarkaður í Kattholti, Stangarhyl 2, er opinn þriðjud. og fimmtud. frá kl. 14–17. Leið 10 og 110 ganga að Kattholti. Rangæingar. Athugið sumarferð sem átti að fara laugardaginn 10. ágúst fellur niður. Minningarkort Minningarkort, Félags eldri borgara, Selfossi, eru afgreidd á skrifstof- unni, Grænumörk 5, miðvikudaga kl. 13–15. Einnig hjá Guðmundi Geir í Grænumörk 5, sími 482-1134, og versl- unni Íris í Miðgarði. Slysavarnafélagið Landsbjörg, Stangarhyl 1, 110 Reykjavík. S. 570 5900. Fax: 570 5901. Netfang: slysavarna- felagid@landsbjorg.is Minningarkort Rauða kross Íslands eru seld í sölubúðum kvenna- deildar RRKÍ á sjúkra- húsum og á skrifstofu Reykjavíkurdeildar, Fákafeni 11, s. 568- 8188. Minningarkort Hvíta- bandsins fást í Kirkju- húsinu, Laugavegi 31, s. 562-1581 og hjá Kristínu Gísladóttur, s. 551-7193 og Elínu Snorradóttur, s. 561- 5622. Minningarkort Sjúkra- liðafélags Íslands eru send frá skrifstofunni, Grensásvegi 16, Reykjavík. Opið virka daga kl. 9–17. S. 553- 9494. Minningarkort Vina- félags Sjúkrahúss Reykjavíkur eru af- greidd í síma 525-1000 gegn heimsendingu gíróseðils. Minningarkort Breið- firðingafélagsins eru til sölu hjá Sveini Sigur- jónssyni, s. 555-0383 eða 899-1161. Minningarkort Kven- félagsins Hringsins í Hafnarfirði. Minning- arsjóður í vörslu kven- félagsins Hringsins í Hafnarfirði. Minningarkortin fást nú í Lyfjum og heilsu, verslunarmiðstöðinni Firði í Hafnarfirði. Kortið kostar 500 kr. Minningarkort Kven- félagsins Seltjarnar eru afgreidd á bæjar- skrifstofu Seltjarn- arness hjá Ingibjörgu. Minningarkort Kven- félags Háteigssóknar. Kvenfélagskonur selja minningarkort, þeir sem hafa áhuga á að kaupa minningarkort vinsamlegast hringi í síma 552-4994 eða síma 553-6697, minning- arkortin fást líka í Há- teigskirkju við Háteigs- veg. Minningarkort Kven- félags Langholtssóknar fást í Langholtskirkju s. 520-1300 og í blóma- búðinni Holtablóminu, Langholtsvegi 126. Gíróþjónusta er í kirkj- unni. Minningarkort Kven- félags Langholtssóknar fást í Langholtskirkju sími 520 1300 og í blómabúðinni Holta- blóminu, Langholtsvegi 126. Gíróþjónusta er í kirkjunni. Minningarkort Kven- félags Neskirkju fást hjá kirkjuverði Nes- kirkju, í Úlfarsfelli, Hagamel 67 og í Kirkjuhúsinu v/ Kirkjutorg. Minningarkort Kven- félagsins Hringsins í Hafnarfirði fást í blómabúðinni Burkna, hjá Sjöfn s. 555 0104 og hjá Ernu s. 565 0152 (gíróþjónusta). Í dag er laugardagur 10. ágúst, 222. dagur ársins 2002. Orð dagsins: Eða sér þú ekki myrkrið og vatna- flauminn, sem hylur þig? (Job. 22, 11.) K r o s s g á t a LÁRÉTT: 1 svínakjöt, 4 beiskur, 7 rússnesk, 8 holu, 9 hátt- ur, 11 verkfæri, 13 syrgi, 14 leikinn, 15 demba, 17 kvísl, 20 ílát, 22 hugleys- ingi, 23 skrifað, 24 gras- geiri, 25 drykkjurútar. LÓÐRÉTT: 1 sjaldgæf, 2 skynfærin, 3 galdur, 4 korntegund, 5 stoðar, 6 á litinn, 10 ham- ingja, 12 liðin tíð, 13 ill- gjörn, 15 lagardýr, 16 rotin, 18 dáin, 19 gróði, 20 námsgrein, 21 dyggur. LAUSN SÍÐUSTU KROSSGÁTU: Lárétt: 1 gáfnaljós, 8 skæði, 9 tóman, 10 tól, 11 arana, 13 aurar, 15 stáss, 18 ágæta, 21 Týr, 22 tjara, 23 Lilla, 24 gauragang. Lóðrétt: 2 áræða, 3 neita, 4 litla, 5 ósmár, 6 Esja, 7 snýr, 12 nes, 14 ugg, 15 sótt, 16 ábata, 17 staur, 18 árleg, 19 ætlun, 20 agar. Víkverji skrifar... VÍKVERJI er hræddur. Víkverjiskilur ekki. Víkverja hefur, eins og aðra borgarbúa, nefnilega sett hljóðan undanfarna daga, vegna hinn- ar miklu ofbeldisöldu sem riðið hefur yfir höfuðborgarsvæðið. Barsmíðar (sem nálgast limlestingar), byssuveif- ingar, innbrot o.s.frv. Hvað er eigin- lega á seyði? Við Reykvíkingar stær- um okkur af því að búa í borg en ekki bæ en er ekki óþarfi að apa eftir öðr- um ósiðina sem oft fylgja slíkum byggðarkjörnum? Í huga Víkverja hefur Reykjavík alltaf verið lítill, notalegur staður, þar sem hægt er að vera öruggur hvar sem er. En nú viðurkennir hann, með ugg í brjósti, að tvær grímur eru runnar á hann. Víkverji veit sem er að ofbeldi og óáran hefur fylgt mannkyninu frá örófi alda. En það er ekki þar með sagt að þá sé í lagi að snúa sér undan. Víkverji veit einnig að það þarf meira til en þéttskipaðar vaktir lögreglu- þjóna og auglýsingapésa til að koma svona málum í viðunandi horf. Hug- arfarsbreytingu alls samfélagsins þarf til, hvorki meira né minna, og þær breytingar gerast hægt. En þær geta sannarlega orðið. Hugsum þetta mál því vel – það er allra hagur. Í DAG munu hommar, lesbíur, tví-kynhneigðir og velunnarar þeirra ganga fylktu liði niður Laugaveginn til að fagna Hinsegin dögum. Þetta er í fjórða skipti sem þessi hátíð er hald- in og er útlit fyrir að í ár verði hún veglegri en nokkru sinni fyrr. Vík- verji ætlar, eins og á síðasta ári, í þessa göngu og vonandi nær hann að draga nokkra samkynhneigða vini sína með. Að vísu er Víkverji dagsins gagn- kynhneigður en á þessum degi skiptir slíkt ekki nokkru einasta máli. Það sem skiptir máli er sú sameiginlega yfirlýsing sam- sem gagnkyn- hneigðra að fordómar gagnvart fyrr- töldum hópi séu með öllu ólíðanlegir. Til allrar hamingju fer hópur sá sem leggur þessu málefni lið sitt stækk- andi með hverju ári. Er það því ein- læg von Víkverja að sá miðaldahugs- unarháttur sem alltof oft er í heiðri hafður sé hverfandi en það er þó eins með þetta og ofbeldisbölið að breyt- ingar á hugarfari gerast hægt. Það sorglegasta við þetta, og það á við um fordóma almennt, er að sárasti brodd- urinn er hið smáa: homma- og lesb- íuskrýtlur sem flestir telja saklausar en eru fordómunum styrk stoð og í raun réttri viðhalda þeim. Líka er sagt að fordómarnir grasseri oft við „eldhúsborðið“, hjá hinni svokölluðu kjarnafjölskyldu sem hefur frá örófi alda verið eitt helsta festi samfélags- ins. Hinsegin dagar eru afar jákvætt framtak og vekja vonandi sem flesta til umhugsunar um þessi mál. „Ekki gagnrýna það sem þú skilur ekki,“ kvað Dylan og það er full ástæða til að velta þeim fleygu orðum fyrir sér í dag. x x x AÐ LOKUM vill Víkverji drepa áviðburð sem haldinn verður í haust – í fjórða skipti – líkt og Hinseg- in dagar. Hér er hann að tala um dæg- urtónlistarhátíðina Airwaves sem vaxið hefur að umfangi með hverju árinu. Þessi hátíð er nú orðin afar mikilvægt afl í framgangi íslenskrar dægurtónlistar en dæmum um gott gengi hennar á erlendri grundu fjölg- ar sífellt. Reykjavíkurborg styrkir nú í fyrsta sinni þessa hátíð sem verður vonandi öðrum aðilum innan hins op- inbera til eftirbreytni. Fjárstreymi til listgreina eins og kvikmynda og „sí- gildrar“ tónlistar hefur nefnilega hingað til verið í mun betri farvegi en hvað „poppið“ varðar. Brjóstagjafar- ofstæki NÚORÐIÐ draga fáir í efa mikilvægi þess að konur næri börn sín á brjósta- mjólk fyrstu mánuðina. Er það vel. Þá eru einnig flestir eru sammála um að það sé falleg sjón að sjá konu gefa barni sínu brjóst, það er orðið ímynd ástar og tengsla milli móður og barns. Nýlega var rætt við hjúkrunarfræðing í spjall- þætti einhverrar útvarps- stöðvarinnar um gildi brjóstagjafar, en viðtalið var í tilefni svokallaðar brjóstagjafaviku sem nú stendur yfir eða er nýliðin. Þetta var greinilega vel menntuð kona sem vissi hvað hún var að tala um. Ég missti af upphafi þáttarins, en eitt og annað í þessu við- tali – sem og í annarri um- ræðu um brjóstagjöf – snerti mig ónotalega. Því get ég ekki látið hjá líða að taka upp hanskann fyrir þær konur sem af einhverj- um ástæðum hafa ekki get- að haft börn sín á brjósti. Ég vil leyfa mér að halda því fram og fullyrða að tvö uppkomin börn mín hafi hvorki verið verri til heils- unnar, ofnæmisgjarnari né heimskari en mörg þau börn sem eingöngu hafa fengið brjóstamjólk fyrstu mánuð- ina, eins og mátti skilja á fyrrgreindum útvarpsþætti. Nema síður sé. Börnin mín fengu pela með þurrmjólk og hafa alla sína ævi verið heilsuhraust og vel gerð til orðs og æðis, þrátt fyrir skort á móðurmjólk. Bless- að barnalán! Ég hef fylgst með brjóstagjöf nokkurra mæðra, stundum hefur hún gengið vel og stundum illa. Mér er minnisstætt eitt til- vik þar sem brjóstaslagur- inn stóð í sex mánuði. Móðir og barn voru bæði úttauguð og horað og sífrandi barnið hékk linnulaust á brjóstinu en var samt aldrei ánægt. Ekkert fannst að barninu, en móðirin – sem var við það að fara á taugum – var hvött til að „gefast ekki upp“. Hún bjó að því að hafa áð- ur haft barn á brjósti með góðum árangri, og því „gafst hún ekki upp“ í þetta skiptið. Barnið fékk því ekk- ert nema brjóstamjólk fyrstu fimm eða sex mánuð- ina. Hins vegar brá svo við að um leið og hún fór að gefa barninu fastari fæðu með brjóstagjöfinni eftir þessa skyldumánuði, þá gjör- breyttist barnið og það dafnaði sem aldrei fyrr. Það læddist að mér sá grunur að kannski hefði átt að prófa að gefa barninu einhvers konar ábót með brjóstinu, en það kom víst aldrei til greina þar sem móðirin mjólkaði ágæt- lega að sögn fagfólks. Það er skoðun mín að um- ræðan um brjóstagjafir sé að verða mjög einstreng- ingsleg. Það er vafalaust jafnynd- islegt að geta gefið barni sínu brjóst og það getur ver- ið sárt að geta það ekki. Konum, sem ekki mjólka börnum sínum, eru jafnvel gerðar upp einhverjar ann- arlegar hvatir, svo sem leti, hræðsla við að aflaga brjóst- in eða að þær telji brjósta- gjöf of bindandi. Sjaldnast á þetta við rök að styðjast. Þegar mæður þyrftu frekar á andlegum stuðn- ingi að halda og skilningi yf- ir því að geta ekki gefið brjóst, dynur á þeim lestur- inn um gildi brjóstagjafar og áróðurinn jaðrar við trú- arofstæki. Brjóstagjöf er yndisleg fyrir móður og barn ef allt gengur vel og bæði eru ánægð, en hún getur snúist upp í andhverfu sína ef illa gengur. Þá situr eftir móð- irin með sektarkennd sem hún vinnur sig kannski aldr- ei út úr og upplifir sig sem annars eða þriðja flokks móður. Ef eitthvað er kynd- ir heilbrigðisstéttin undir þeirri tilfinningu. Lánsöm móðir. Tapað/fundið Rétt hjól -rangt númer Á ÞRIÐJUDAG var lýst eftir hjóli í velvakanda. Fyr- ir mistök birtist rangt núm- er með auglýsingunni. Hjól- ið er af gerðinni Bronco High-Road, með brettum, bögglabera og höggdeyfi og var tekið fyrir utan mynd- bandaleiguna Heimamynd þriðjudaginn 16. júlí sl. Þeir sem hafa upplýsingar um hjólið hringi í 898 9689. Dýrahald Tvær sætar og mjúkar TVEIR tveggja mánaða kettlingar, svartar og hvítar kassavanar læður, óska eftir góðu heimili. Upplýsingar í síma 551 7333 eða 860 7735. Kátar kanínur ÞRÍR kanínuungar fást gef- ins á góð heimili. Tveir þeirra eru brúnir og einn svartur. Áhugasamir hafi samband í síma 695 2610. Kettlingur í óskilum STEINGRÁR, húsvanur kettlingur með hvíta fætur og bringu, u.þ.b. fjögurra mán., fannst á bílastæði við verslun Nóatúns í Vestur- bænum. Eigandi hafi sam- band í 552 1124 eða 862 5110. VELVAKANDI Svarað í síma 569 1100 frá 10-12 og 13-15. Netfang velvakandi@mbl.is 1 7 11 15 22 24 12 14 3 9 20 10 4 8 21 23 25 13 17 5 18 6 19 2 16
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.