Morgunblaðið - 10.08.2002, Síða 60

Morgunblaðið - 10.08.2002, Síða 60
MORGUNBLAÐIÐ, KRINGLUNNI 1, 103 REYKJAVÍK, SÍMI 569 1100, SÍMBRÉF 569 1181, PÓSTHÓLF 3040, ÁSKRIFT-AFGREIÐSLA 569 1122, NETFANG: RITSTJ@MBL.IS, AKUREYRI: KAUPVANGSSTRÆTI 1 LAUGARDAGUR 10. ÁGÚST 2002 VERÐ Í LAUSASÖLU 190 KR. MEÐ VSK. ÍSLENDINGUR á níræðisaldri slasaðist alvarlega í Búlgaríu í lok júlí sl. eftir að hafa hrasað á gang- stétt. Maðurinn lenti illa á bakinu og er talið að hann hafi hryggbrotnað og skaddast á mænu. Hann var flutt- ur á sjúkrahús í Búlgaríu og hefur síðan þá verið í dái og í öndunarvél. Maðurinn var í sumarleyfi þegar atvikið átti sér stað ásamt eiginkonu sinni, dóttur og dótturdóttur. Þær hafa verið hjá honum síðan slysið varð. Slasaðist alvar- lega í Búlgaríu LISTAVERKIN í geymslu Lista- safns Íslands í Fákafeni 9 virðast að mestu heil eftir brunann í húsinu á miðvikudag og eru skemmdirnar mun minni en menn óttuðust. Eirík- ur Þorláksson, forstöðumaður safns- ins, segir að svo virðist sem um lág- marksskemmdir sé að ræða sem hægt sé að bæta. Í gær voru öll viðkvæmustu verkin í geymslunni flutt á annan geymslu- stað, þar á meðal flest verka Ás- mundar Sveinssonar. Vonast er til að flutningunum ljúki í dag. „Við erum með fantagóða sveit af forvörðum, höfum fengið liðsinni frá Þjóðminja- safninu, Listasafni Íslands og Mork- inskinnu. Við höfum því verið vel mönnuð og hafa flutningar gengið vel,“ segir Eiríkur.  Listaverkin/10–11 Morgunblaðið/Þorkell Eiríkur Þorláksson skoðar ummerki eftir brunann. Sveit forvarða bjargar listaverkum ÍSLENSKIR ferðamenn urðu vitni að því þegar sprengja sprakk við skyndibitastað í miðbæ spænska bæjarins Torrevieja í gær. Talið er að aðskilnaðarsinnaðir Baskar hafi verið þar að verki. Engan sakaði í sprengingunni en miklar skemmdir urðu á húsi skyndibitastaðarins. Í nágrenni Torrevieja er stór sumar- húsabyggð þar sem margir Íslend- ingar dvelja yfir sumartímann. Arnar Þór Jónsson og Lísa Ósk- arsdóttir voru um 20 til 25 metra frá sprengingunni og sáu hana vel. „Þetta var góður hvellur,“ segir Arnar, en tekur þó fram að engin skelfing hafi gripið um sig. Hann segir að lögreglunni á Spáni hafi verið tilkynnt um sprengjuna áður en hún sprakk. Því hafi verið búið að rýma skyndibitastaðinn og girða svæðið af. „Við fylgdumst með því þegar lögreglan og sprengjuleitarhundur voru að leita að sprengjunni. Síðan allt í einu sprakk sprengjan, en hún var um fimm kíló af dínamíti,“ segir Arnar, en hann og unnusta hans stóðu á útimarkaði þegar þetta gerðist. Arnar segir að þegar sprengjan hafi sprungið hafi lög- reglumaður komið hlaupandi í átt að fólkinu sem var á útimarkaðnum og kallað: sprengja, sprengja! Við það hafi fólki greinilega brugðið og hlaupið í burtu. Síðan fylltist bær- inn af sjúkrabílum, slökkviliðsbílum og lögreglubílum. Arnar segir að hann og unnusta hans hafi séð þann kost vænstan að koma sér í burtu, en þau dvelja í sumarhúsi í grennd við Torrevieja. Arnar segir að í miðbæ Torrevieja sé mikið af versl- unum, markaður og veitingastaðir, og því sé miðbær- inn ávallt fullur af fólki. Hann segist þó ekki ætla að láta sprengjuna aftra sér frá því að fara aftur til Torrevieja. „Ætli maður haldi sig ekki bara frá lögreglustöðvum, því í næsta húsi við skyndibitastaðinn í Torrevieja var lögreglustöð,“ segir hann að síðustu. Íslendingar urðu vitni að sprengingu í Torrevieja Lögreglumaður kom hlaupandi og kallaði sprengja, sprengja Reuters BORIS Spassky, fyrrverandi heims- meistari í skák, var ekki orðmargur við fjölmiðla í gær er hann kom til landsins í tilefni af málþingi sem haldið er hér vegna þess að þrjátíu ár eru liðin frá einvígi aldarinnar, en svo var einvígi hans og Bobby Fischers nefnt. Það var háð hér á landi sumarið 1972 og vakti heims- athygli. Spassky sagðist vera sestur í helgan stein og vildi láta lítið fyrir sér fara.  Með mikilvægustu/6 Morgunblaðið/Sverrir Spassky kominn FORSVARSMENN hóps birgja sem eiga tugmilljóna kröfur á þrotabú Íslenskrar útivistar ehf. (Nanoq) hafa ákveðið að stefna stjórnarmönnum Íslenskrar úti- vistar fyrir dóm, í þeim tilgangi að láta reyna á ábyrgð þeirra. Jafn- framt hafa þeir í undirbúningi í samráði við lögmann að óska eftir rannsókn á því hvort skilasvik hafi átt sér stað. ,,Við ræddum við lögmann sem er að taka málið að sér og það var samþykkt á fundinum að stefna stjórnarmönnum Íslenskrar úti- vistar, sem sátu í stjórn þegar fé- lagið var lýst gjaldþrota. Jafn- framt var samþykkt að leita allra leiða með lögmanni til þess að upplýsa málið enn frekar, einkum varðandi skilasvik sem við viljum meina að Sparisjóður Reykjavíkur og nágrennis hafi tekið þátt í með framkvæmdastjóranum. Þau felast í því að þeir eru með veð í sjóð- streyminu og heimila greiðslu til þess að fá vörur í staðinn,“ segir Guðmundur Ágúst Pétursson, framkvæmdastjóri G.Á. Péturs- sonar. Væntir þess að formleg beiðni um ákæru verði lögð fram Guðmundur segir tugi birgja standa saman að þessum aðgerð- um. ,,Það er mjög sterk samstaða á meðal birgja,“ segir hann. ,,Þessi fyrirtæki standa saman í aðgerð- um sínum gegn bankanum og Kaupþingi, sem núna rekur Nanoq og menn þurfa ekki annað en að reka inn nefið þar til að sjá að það er allt galtómt,“ sagði hann. ,,Við förum í þá vinnu á mánu- daginn að vinna greinargerðina með lögmanninum, bæði hvað varðar stjórnarmennina og þessi skilasvik og í framhaldi af því vænti ég þess að við sendum inn formlega beiðni um ákæru,“ segir Guðmundur. Rekstrarfélag nær samkomulagi við skiptastjóra Skiptastjóri þrotabús Íslenskrar útivistar hf. (Nanoq) og Rekstrar- félag Nanoq ehf. hafa komist að samkomulagi um að kaupverð óveðsettra lausafjármuna og verð- mæta sem féllu undir kaupsamn- ing þessara aðila 19. júlí sl. skuli vera 24 milljónir kr., að því er fram kemur í fréttatilkynningu skiptastjóra þrotabúsins í gær. Endanlegt kaupverð þeirra verðmæta sem kaupsamningur að- ila tekur til, veðsettra og óveð- settra, er því 299 milljónir kr. og hefur sú fjárhæð verið greidd að fullu, að því er segir í tilkynning- unni. Birgjar ákveða aðgerðir vegna gjaldþrots Nanoq Málsókn og vilja rann- saka meint skilasvik JARÐSKJÁLFTAHRINA stóð yfir í gær við Fagradalsfjall á Reykjanesi og var stærsti skjálftinn sem mældist 2,8 á Richter og mældist hann klukk- an 22:18 í gærkvöldi. Stutt hrina var á milli klukkan 16:30 og 17 í gær og var stærsti skjálftinn þá 1,2 á Richter. Að sögn Ragnars Stefánssonar, forstöðumanns jarðeðlissviðs Veður- stofunnar, koma jarðskjálftahrinur nokkuð oft á þessum slóðum en skjálftarnir nú eru með þeim mestu sem hafa komið síðasta áratuginn. Árið 1973 hafi hins vegar orðið þarna stærri skjálftar, þeir stærstu um 5 á Richter. Ragnar sagði ekkert sérstakt benda til þess að neitt meira muni gerast á svæðinu en áfram verði fylgst með þróun mála. Það sé al- gengt að hrinur á Reykjanesskagan- um standi í nokkrar klukkustundir og stundum upp í sólarhring, en eins og sakir standa sé ekkert sem bendi til þess að stór skjálfti fylgi í kjölfar skjálftans í gærkvöldi. Hrina jarðskjálfta á Reykjanesi Stærsti skjálftinn 2,8 á Richter

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.