Morgunblaðið - 17.09.2002, Blaðsíða 36
36 ÞRIÐJUDAGUR 17. SEPTEMBER 2002 MORGUNBLAÐIÐ
ATVINNU-
AUGLÝSINGAR
I
I
ATVINNA ÓSKAST
Rafvirki
Er laus strax. Fjölbreytt reynsla. Margt
kemur til greina. Uppl. í síma 898 9070.
Sölumaður óskast
Vanur sölumaður óskast á rótgróna fast-
eignasölu. Áhugasamir sendi upplýsingar
um menntun og fyrri störf á box@mbl.is
merkt: „Sölumaður fasteigna“.
Kennari í eir- og
silfursmíði óskast
Hagaskóli óskar eftir kennara í eir- og silfur-
smíði í vali fyrir 9.-10. bekk. Kennt er 8 kennslu-
stundir á viku.
Upplýsingar veita skólastjóri og aðstoðarskóla-
stjóri í síma 535 6500. Umsóknir ber að senda
beint til skólans.
Laun skv. kjarasamningum Reykjavíkurborgar
við viðkomandi stéttarfélög.
Nánari upplýsingar um laus störf og grunn-
skóla Reykjavíkur er að finna á netinu undir
www.grunnskolar.is .
!
"#
$
!
%
&
! ) *
+
,-'
-
- #
)..
/
0
'
1
.
(
"
# $%
&
$
$
'$ (
.-
-'
- '
' R A Ð A U G L Ý S I N G A R
STYRKIR
Stjórn listamannalauna
Listamannalaun 2003
Hér með eru auglýst til umsóknar starfslaun
til handa listamönnum til úthlutunar árið 2003,
í samræmi við ákvæði laga nr. 35/1991 með
áorðnum breytingum.
Starfslaunin eru veitt úr fjórum sjóðum þ.e.:
1. Launasjóði rithöfunda.
2. Launasjóði myndlistarmanna.
3. Tónskáldasjóði.
4. Listasjóði.
Umsóknir einstaklinga, ásamt fylgigögnum,
skulu hafa borist Stjórn listamannalauna,
menntamálaráðuneytinu, Sölvhólsgötu 4,
150 Reykjavík, á þar til gerðum eyðublöðum
fyrir kl. 16:00 föstudaginn 15. nóvember 2002.
Umsóknir skulu auðkenndar „Starfslaun lista-
manna 2003“ og tilgreindur sá sjóður sem sótt
er um laun til. Umsóknareyðublöð fást hjá
menntamálaráðuneytinu.
Heimilt er að veita starfslaun úr Listasjóði til
stuðnings leikhópum, enda verði þeim varið
til greiðslu starfslauna til einstakra leikhús-
listamanna. Umsóknir leikhópa til Listasjóðs
fyrir einstaka leikhúslistamenn, ásamt fylgi-
gögnum, skulu berast Stjórn listamannalauna,
menntamálaráðuneytinu, Sölvhólsgötu 4,
150 Reykjavík, á þar til gerðum eyðublöðum
fyrir kl. 16.00 föstudaginn 15. nóvember 2002.
Umsóknir skulu auðkenndar „Starfslaun lista-
manna 2003 - leikhópar“. Umsóknareyðublöð
fást hjá menntamálaráðuneytinu.
Ath. Hafi umsækjandi áður hlotið starfslaun
verður umsókn hans því aðeins tekin til um-
fjöllunar að hann hafi skilað Stjórn listamanna-
launa skýrslu um störf sín í samræmi við
ákvæði 4. gr. laga um listamannalaun nr. 35/
1991 með áorðnum breytingum.
Vakin er athygli á að hægt er að ná í umsóknar-
eyðublöð á heimasíðu Stjórnar listamanna-
launa. Veffangið er: http://www.mmedia.is/
listlaun .
Umsóknarfrestur rennur út föstudaginn 15.
nóvember nk.
Stjórn listamannalauna,
13. september 2002.