Morgunblaðið - 17.09.2002, Blaðsíða 13
AKUREYRI
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 17. SEPTEMBER 2002 13
Innritun stendur nú yfir í
síma 588-3730, eða í skólan-
um að Síðumúla
17. Fjölbreytt nám
fyrir alla aldurs-
flokka er í boði, bæði fyrir
byrjendur og þá sem kunna
eitthvað fyrir sér.
Innritun er dag-
lega kl. 14-17.
Sendum vandaðan
upplýsingabækling
INNRITUN DAGLEGA KL. 14-17
588-3730
HÆGT AÐ FÁ LEIGÐA
HEIMAGÍTARA
KR. 2500 Á ÖNN
www.clix.to/gitarskoli
AÐALFUNDUR kjördæmisráðs
Samfylkingarinnar í Norðaustur-
kjördæmi var haldinn á Hótel Reyni-
hlíð í Mývatnssveit um helgina. Þar
var m.a. ákveðið að fara flokksvals-
leið við val í tvö efstu sætin á lista
Samfylkingarinnar í kjördæminu í
komandi alþingiskosningum. Fé-
lagsmönnum gefst kostur á að greiða
frambjóðendum atkvæði í tvö efstu
sætin með póstkosningu og verður
niðurstaðan bindandi. Kjörnefnd
mun síðan raða öðrum frambjóðend-
um á listann.
Ný stjórn kjördæmisráðs mun á
allra næstu dögum ákveða dagsetn-
ingar vegna flokksvalsins og skipa
kjörstjórn samkvæmt tilnefningu
samfylkingarfélaganna í kjördæm-
inu. Um 60 fulltrúar sátu fundinn í
Mývatnssveit. Umræður voru fjör-
ugar um málefni fundarins og ein-
hugur mikill, eins og segir í frétta-
tilkynningu. Fráfarandi formaður
kjördæmisráðs er Örlygur Hnefill
Jónsson en nýr formaður var kjörinn
Hermann Óskarsson. Aðrir í stjórn
eru; Oddný Stella Snorradóttir
gjaldkeri, Ólafía Þórunn Stefáns-
dóttir, Tryggvi Jóhannsson og Þórir
Hákonarson.
Samfylkingin í
Norðausturkjördæmi
Félagsmenn
velja í tvö
efstu sæti
listans
stutta leikþætti um jafnréttismál
og verða þeir sem fyrir valinu
verða sýndir eftir áramót.
LEIKFÉLAG Akureyrar kynnti
gestum vetrardagskrá sína á
opnu húsi í Samkomuhúsinu um
helgina auk þess sem gestir
fengu að skoða húsakynni og
skoða búninga af ýmsu tagi.
Leiklistarnámskeið sem verða á
dagskrá nú í haust voru kynnt,
en slík námskeið nutu mikilla vin-
sælda á liðnu hausti.
Þá var gestum boðið að fylgjast
með æfingu á Hamlet, en frum-
sýning verður um aðra helgi, 27.
september.
Önnur verk í vetur eru Leynd-
armál rósanna, Venjulegt krafta-
verk og loks stendur yfir sam-
keppni um þessar mundir um
Morgunblaðið/Skapti Hallgrímsson
Trúðurinn Ananías skemmti á opnu húsi Leikfélags Akureyrar.
Gestum boðið
í leikhúsið