Morgunblaðið - 17.09.2002, Blaðsíða 48
48 ÞRIÐJUDAGUR 17. SEPTEMBER 2002 MORGUNBLAÐIÐ
Fyrir 1250 punkta
færðu bíómiða.
Sýnd kl. 8 og 10.15. B.i. 12 ára.
Kvikmyndir.is
Roger Ebert
DV
Kvikmyndir.com
1/2
SK.RadioX
Sýnd kl. 6. Ísl tal.
SK Radíó X
Sýnd kl. 6 og 8. Sýnd kl. 10. B.i. 12.
1/2
HI.Mbl
HK DV
Kvikmyndir.com
SK.RadioX. i
Sýnd kl. 5.45, 8 og 10.15. B.i. 12.
-Kvikmynd eftir-
Baltasar Kormák
Tímamótaverk í
íslenskri
kvikmyndasögu
HJ Mbl
Gunnar og Herdís
leiða
eftirminnilegan
leikarahóp sem á
þátt í að gera
Hafið að einni
bestu íslensku
kvikmyndinni
1/2 HK DV
Rás 2
Sýnd kl. 5.40, 8 og 10.30. B.i. 16. Sýnd kl. 5.45, 8 og 10.30. B. i. 12.
MBL
1/2
Kvikmyndir.is
Sýnd kl. 5 og 7. Vit 426
Hetja framtíðarinnar er mætt í
frábærri grínmynd!ÞriðjudagsTilboð kr. 400
Sýnd kl. 4, 6, 8 og 10. Vit 432
Sýnd kl. 9. Vit 427
Mathew Perry (Friends) og Elizabeth Hurley fara á
kostum í þessari sprenghlægilegu gamanmynd sem
kemur verulega á óvart.
Það eina sem getur
leitt þau saman er
HEFND
Sýnd kl. 4. Ísl tal. Vit 429
Líf þitt mun
aldrei verða eins!
Kvikmyndir.is
Roger Ebert
DV
Kvikmyndir.com
1/2
SK.RadioX
Sýnd kl. 5.50, 8 og 10.10. Vit 435
1/2
Kvikmyndir.is
Kvikmyndir.is
„Litla bláa geimveran Stitcher
skemmtilegasta persónan sem komið
hefur úr smiðju Disney.“ „Frábær
skemmtun fyrir börn og fullorðna.“
„Stitcher ekkert venjulegt Disneykrútt!“
ÞÞ Fréttablaðið
ÞriðjudagsTilboð kr. 400
MBL
PAUL McCARTNEY ætlar að gefa út Bítlalag sem hef-
ur nú rykfallið í geymslu í 35 ár. Um er að ræða lagið
„Carnival of Light“, 14 mínútna hljóðverk sem var fyrsta
meiriháttar tilraun Bítlanna við þess lags list, en helst er
hægt að líkja því við hið óræða „Revolution 9“ eftir John
Lennon sem er að finna á Hvítu plötunni.
Verkið var samið af McCartney er Bítlarnir voru að
taka upp tímamótaverk sitt Sgt. Pepper’s Lonely Hearts
Club Band árið 1967. Lagið er eðlilega innblásið af sýru-
legnu andrúmslofti þeirra daga og hefur McCartney oft-
ar en ekki vísað í þetta verk sem sönnun þess að fleiri
Bítlar en Lennon hafi verið „flippaðir“.
McCartney hyggst nota verkið sem bakgrunnstónlist
fyrir „ljósmynda-kvikmynd“ sem hann er að vinna og
notast hann þar við ljósmyndir eftir Lindu heitna
McCartney. Um er að ræða um 4.000 mynda safn sem
Linda tók af Bítlunum á árunum 1967–1970. Flestar
þeirra hafa aldrei komið fyrir sjónir fólks áður.
„Carnival of Light“ er að mestu ósungið, en heyra má í
kirkjuorgeli, manni að skola munninn með vatni og einn-
ig heyrist í Lennon þar sem hann öskrar „Barcelona“.
Lagið á að hafa verið spilað einu sinni á framsækinni
listahátíð sem haldin var í Lundúnum í janúar 1967.
McCartney hugðist setja lagið á einn Anthology-safn-
diskanna en George Harrison vildi það ekki, sagði það of
„súrt“.
„Ljósahátíðin“ lít-
ur loks dagsins ljós
Óútgefið Bítlalag / Óútgefnar Bítlamyndir
Paul McCartney er súrari en margur heldur.
Myndin er tekin árið 1967, eða þar um bil.
SJÓNVARPSÞÆTTIRNIR um geð-
lækninn Frasier komust á spjöld
bandarískrar sjónvarpssögu um
helgina þegar þeir fengu þrenn
Emmy-verðlaun á sérstakri auka-
verðlaunaathöfn, kenndri við þessi
nafntoguðu sjónvarpsþáttaverð-
laun, sem helguð var þeim er starfa
bak við tjöldin.
Hafa Fraiser-þættirnir nú sam-
tals fengið 30 Emmy-verðlaun frá
því þeir hófu göngu sína árið 1994
og hafa engir sjónvarpsþættir feng-
ið jafn mörg verðlaun. Gamla metið
átti The Mary Tyler Moore Show,
sem fékk 29 Emmy-verðlaun á ár-
unum 1970-1977.
Fraiser-þættirnir geta enn bætt
við sig blómum á þessu ári því bæði
Kelsey Grammer og David Hyde
Pierce, sem leika aðalhlutverkin í
þáttunum, eru tilefndir til leik-
araverðlauna sem verða veitt á að-
alhátíð Emmy-verðlaunanna síðar í
þessum mánuði.
Sjónvarpsþættirnir Útfar-
arstofan, eða Six Feet Under, hlutu
fimm verðlaun á hátíðinni í gær en
þættirnir voru tilnefndir til 23
Emmy-verðlauna í júlí. The
Osbournes fengu í gær verðlaun
sem besti „raunveruleika-
skemmtiþátturinn“.
Frasier
á spjöld
sögunnar
Reuters
Frasier er orðinn sá farsælasti í sögu Emmy-verðlaunanna.
MARIE Fredriksson, söngvari
sænsku hljómsveitarinnar Roxette,
er með heilaæxli. Eru læknar að
ráða ráðum sínum hvernig best sé
að meðhöndla æxlið.
Fredriksson var flutt á sjúkrahús
í síðustu viku eftir að það leið yfir
hana á heimili hennar í Stokkhólmi
og hún rak höfuðið í vask. Við
rannsókn á Karolinska-sjúkrahús-
inu fannst lítið æxli í hnakkanum.
Umboðsmaður Fredriksen segir að
ekki liggi fyrir hvað veikindi söng-
konunnar séu alvarleg.
Fredriksson og Per Gessle, sem
mynda Roxette, nutu mikilla vin-
sælda fyrir nokkrum árum fyrir
lög á borð við „Joyride“ og „The
Look“. Þau höfðu áformað að gefa
út nýja smáskífu 14. október og
halda í hljómleikaferð um Evrópu í
kjölfarið.
Söngkona
Roxette með
heilaæxli
SKOSKA myndin The Magdalene
Sisters eftir leikstjórann og leik-
arann Peter Mullan hlaut helstu
verðlaun kvikmyndahátíðarinnar í
Toronto í Kanada sem lauk á
sunnudaginn. Yfir 300 kvikmyndir,
þar af tvær íslenskar, kepptu um
þessi verðlaun.
Mullan hlaut svokölluð Discov-
ery-verðlaun fyrir mynd sína en
þau eru ætluð leikstjórum sem
hafa fram að færa sína fyrstu eða
aðra mynd. Efni myndarinnar er
umdeilt en hún segir frá hrotta-
fenginni misnotkun sem á að hafa
átt sér stað á sjöunda áratugnum á
þremur ungum stúlkum á írskri
stofnun sem rekin var af kaþólsku
kirkjunni. Myndin hlaut á dögun-
um Gullna ljónið á kvikmyndahá-
tíðinni í Feneyjum en hún hefur
verið harðlega gagnrýnd af Páfa-
garði og kaþólsk kirkjuyfirvöld
annars staðar í heiminum, þ.m.t. í
Bandaríkjunum hafa fordæmt
hana fyrir að sverta orðspor kirkj-
unnar.
Nýsjálenska kvikmyndin Whale
Rider, sem fjallar um stúlku af
kynþætti maóra, fékk áhorfenda-
verðlaunin. Myndir sem hlotið
Sigur umdeildra mynda frá
Skotlandi og Nýja-Sjálandi
Reuters
David Cronenberg bjóst ekki við
að hann myndi falla í kramið hjá
löndum sínum frekar en fyrri
daginn – en annað kom á daginn.
hafa þessi verðlaun, þar á meðal
Amélie, Crouching Tiger, Hidden
Dragon og American Beauty, hafa
í kjölfarið fengið góða aðsókn í
Norður-Ameríku og sumar unnið
til til Óskarsverðlauna.
Whale Rider fékk góðar viðtök-
ur áhorfenda á sýningum í Tor-
onto.
Mynd Davids Cronenbergs,
Spider, var valin besta kanadíska
mynd hátíðarinnar og kom mörg-
um á óvart því opnunarmyndin
Ararat eftir Atom Egoyan hafði
verið talin sigurstranglegust.
Heimamaðurinn Cronenberg, sem
á að baki myndir á borði við
Crash, Dead Ringers og Video-
drome, var enda hlessa yfir sigr-
inum, en hann hefur aldrei unnið
til verðlauna á hátíðinni áður.
Hann sagðist vonast til þess að
það hefði í för með sér að fleiri
sæju myndina: „Það þarf eitthvað
svona til þegar ögrandi myndir og
öðruvísi eru annars vegar. Spider,
sem ekki er Spiderman þarf á allri
hjálp að halda.“
Íslensku kvikmyndirnar Hafið
og Fálkar voru frumsýndar á há-
tíðinni.
Kvikmyndahátíðinni í Toronto lokið