Morgunblaðið - 11.10.2002, Side 1

Morgunblaðið - 11.10.2002, Side 1
RANNSÓKNARLÖGREGLUMENN ganga skipulega til verks við leit að verksummerkjum við benzínstöð um 50 km vestur af Washington- borg, þar sem maður var skotinn til bana í fyrrakvöld. Lögregla greindi frá því í gærkvöld, að allt benti til þess að maðurinn hefði verið sjö- unda fórnarlamb raðmorðingja sem á síðustu dögum hefur valdið mikl- um óhug á svæðinu. Reuters Sjöunda morðið  Valdagráðugur/26 238. TBL. 90. ÁRG. FÖSTUDAGUR 11. OKTÓBER 2002 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS STOFNAÐ 1913 MORGUNBLAÐIÐ 11. OKTÓBER 2002 GEORGE W. Bush Bandaríkjafor- seti fagnaði því í gær að fulltrúadeild Bandaríkjaþings skyldi ákveða að veita honum heimild til að fara með hernaði gegn Írak. Sagði forsetinn að „dagar Íraks sem útlagaríkis“, sem setur sig upp á móti vilja alþjóðasam- félagsins, „séu brátt taldir“. „Fulltrúadeild þingsins hefur talað skýru máli til heimsins og til örygg- isráðs Sameinuðu þjóðanna: Mæta verður hinni vaxandi hættu sem staf- ar af Írak að fullu og öllu,“ sagði Bush í stuttu ávarpi í Hvíta húsinu í gærkvöld. Skömmu áður hafði fulltrúadeild þingsins samþykkt með 296 atkvæð- um gegn 133 ályktun sem veitir for- setanum heimild til að beita hervaldi til að uppræta meintar gereyðingar- vopnabirgðir Íraka. Flestir þeirra sem greiddu atkvæði á móti eru úr flokki demókrata. Áður hafði öld- ungadeild Bandaríkjaþings, þar sem sambærileg ályktun liggur fyrir til afgreiðslu, ákveðið með 75 atkvæð- um gegn 25 að takmarka umræðuna um hana við 30 tíma. Reiknað er með því að a.m.k. 60 þingmenn af 100, sem sæti eiga í öldungadeildinni, muni greiða ályktuninni atkvæði sitt. Þess er vænzt að lokaafgreiðsla hennar fari fram í dag. Bush hefur heitið því að grípa til sinna ráða til að svipta Saddam Hussein Íraksforseta aðgangi að gereyðingarvopnum, ef öryggisráð SÞ samþykkir ekki harðorða ályktun um framkvæmd vopnaeftirlits í Írak, þar sem skýrt yrði kveðið á um við- urlög hlíti stjórnvöld í Bagdad ekki skilyrðunum. „Atkvæðagreiðslan í dag sendir Íraksstjórn líka skýr skilaboð,“ sagði Bush. „Hún verður að afvopnast og hlíta öllum viðeigandi ályktunum SÞ, ellegar verður hún þvinguð til að hlíta þeim. Íraska stjórnin á einskis annars úrkosti. Það verða engar samningaviðræður. Dagar Íraks hagandi sér sem útlagaríki eru senn taldir,“ lýsti forsetinn yfir. „Ég hlakka til lokaatkvæða- greiðslunnar, sem brátt mun fara fram [í öldungadeildinni],“ tjáði Bush fréttamönnum í Roosevelt-herbergi Hvíta hússins. Fyrir atkvæðagreiðsl- una höfðu liðsmenn Bush sagzt von- ast til að samþykki beggja þingdeilda myndi hleypa auknum styrk í bar- áttu forsetans fyrir því að fá örygg- isráðið til að samþykkja nýja, harð- orða ályktun um Írak, en bæði Frakkar og Rússar, sem ásamt Bandaríkjamönnum, Bretum og Kín- verjum hafa neitunarvald í ráðinu, hafa verið tregir til að fallast á rök- semdir Bush. Ráðamenn í Írak ítrekuðu í gær að þeir væru ekki að vígbúast og sögðu að jafnvel án háþróaðra vopna gætu þeir kennt Bandaríkjunum ógleym- anlega lexíu vogi þau sér að gera árás á Írak. Árásir á flugvöllinn í Basra Bandarískar og brezkar herþotur gerðu árás á alþjóðaflugvöllinn í Basra í Suður-Írak í gær og er þetta þriðja slíka árásin á hálfum mánuði. Eyðilagðist radarkerfi vallarins í árásinni, eftir því sem bæði íraski og bandaríski herinn greindu frá. Í til- kynningu frá Bandaríkjaher voru árásirnar gerðar „sem svar við fjand- samlegum aðgerðum af hálfu Íraka gegn flugvélum bandamanna á flug- bannssvæðinu“. Fulltrúadeild Bandaríkjaþings veitir Bandaríkjaforseta heimild til hernaðar Bush segir daga Íraks sem „útlagaríkis“ senn talda Washington, Bagdad. AFP, AP. KRÖFTUG sprenging varð í um- dæmisstjórnarbyggingu í tsjetsj- nesku héraðshöfuðborginni Grosní í gærkvöld, er fjöldi lögreglumanna var þar saman kominn á fundi. Að minnsta kosti 13 menn létu lífið í sprengingunni og 12 særðust, en ótt- azt var að fleiri lægju látnir í rúst- unum. Rússnesk fréttastofa fullyrti að 25 lögreglumenn að minnsta kosti hefðu farizt. Ruslan Avtayev, almannavarna- málaráðherra í Rússlandshollri stjórn Tsjetsjníu, sagði að líklegast hefði þetta verið sprengjutilræði, en yfirvöld vildu þó enn ekki útiloka að gasleki hefði valdið sprengingunni. Rússneska fréttastofan ITAR- Tass hafði eftir ónafngreindum heimildarmönnum í höfuðstöðvum rússneska hersins í Grosní að dauðs- föllin í sprengingunni hefðu verið að minnsta kosti 25 og eftir því sem vettvangur væri betur kannaður kæmu æ fleiri lík í ljós. Sprenging banar lög- reglumönn- um í Grosní Rostov við Don-fljót. AP. VLADÍMÍR Kramník, heimsmeistari í skák, fór með glæsilegan sigur af hólmi á þriðjudag í þriðju skákinni við Deep Fritz, öflugustu skák- tölvu í heimi. Virðist svo sem hann hafi fundið veikan blett á Fritz með því að hafa snemma upp- skipti á drottningum. Fór hann einnig þannig að í fyrstu tveimur skákunum en þeir Fritz skildu jafnir í fyrstu skákinni en Kramník vann aðra skákina. Í gær var síðan fjórða skákin tefld og þótt þar hefði einnig tiltölulega snemma komið til drottningarskipta lyktaði henni með jafntefli eft- ir 41 leik. Staðan er því 3-1 Kramnik í vil. Kramník, sem var með svart í þriðju skákinni, sigraði hinn þýskættaða Fritz í 51. leik en alls verða skákirnar átta. Kramník þarf nú einn vinn- ing til að ná jafntefli og vinna sér inn andvirði um 70 milljóna króna og sigri hann í þessu einvígi manns og vélar fær hann 87 milljónir að launum. Tapi hann fyrir tölvunni fær hann rúmlega 52 millj. kr. í sárabætur. Einvígið fer fram í Bahrain. Fritz er ekkert lamb að leika sér við, getur velt fyrir sér 3,5 milljónum leikja á sekúndu og tekur langt fram ofurtölvunni Deep Blue, sem Garrí Kasparov tefldi við í New York 1997. Þá sigraði tölvan. Fritz náði góðri stöðu strax í upphafi þriðju skákarinnar þótt hann beitti hinni hvössu skosku byrjun en sérfræðingar segja, að tölvurnar eigi fremur erfitt með skilja byrjanir af því tagi. Kramník endurtók þá leikinn úr fyrstu tveimur skákunum og ruglaði Fritz í ríminu með því að skipta upp á drottningum. Í framhaldinu yfirspil- aði hann Fritz með glæsilegri taflmennsku. Í drottningalausu miðtaflinu kom upp mjög nið- urnjörvuð peðastaða, sem Kramník átti ekki í neinum vandræðum með að leysa upp í rólegheit- um. Samkvæmt nýjum reglum um einvígi manns og tölvu fékk Kramník að kynna sér taflmennsku tölvunnar, styrk hennar og veikleika, í tvær vik- ur fyrir viðureignina. Hefur hann augljóslega áttað sig á því, að uppskipti á drottningum snemma í taflinu koma henni illa enda segja sér- fræðingar, að það dragi úr möguleikunum á mjög flóknum stöðum en sérfræðingar segja, að þær séu eftirlæti góðrar skáktölvu. Manama. AP. Vladímír Kramník leikur fyrsta leikinn í fjórðu skákinni við „Deep Fritz“ í gær. Fritz frýs við uppskipti á drottningum

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.