Morgunblaðið - 11.10.2002, Síða 14
FRÉTTIR
14 FÖSTUDAGUR 11. OKTÓBER 2002 MORGUNBLAÐIÐ
neytisþurrð og þá sérstaklega að
hann hafi brætt úr sér og fest (eng-
ine seizure), sem er í mótsögn við
niðurstöðu sérfræðinganna, sem
rannsökuðu hreyfilinn á vegum
RNF. Telja skýrsluhöfundar að
þessum möguleika hafi ekki verið
gefinn sá gaumur sem skyldi. Þótt
tilgáta F&T sé mjög ólíkleg að mati
FMS er ástæða til að hún sé könnuð
til hlítar. Jafnvel þó að hreyfillinn sé
ekki lengur í vörslu RNF er mikið af
gögnum fyrirliggjandi um hann og
skoðun hans. Auk þess má ræða við
þá sérfræðinga sem komu að því að
skoða hreyfilinn þegar rannsókn
RNF fór fram. Önnur atriði í nið-
urstöðum skýrsluhöfunda skipta
minna máli og virðast einkum sett
fram til að styðja framangreinda
meginniðurstöðu eða draga úr trú-
verðugleika rannsóknar RNF.
Ábending um að ekki hefði átt að
gefa út lofthæfiskírteini var af hálfu
FMS tekin föstum tökum í ljósi
þeirra staðreynda, sem fram komu í
ítarlegri rannsókn RNF í kjölfar
slyssins. Hins vegar liggur fyrir að
öll nauðsynleg gögn voru til staðar,
þegar lofthæfiskírteini flugvélarinn-
ar var gefið út. FMS var ekki stætt á
því að synja slíkri útgáfu nema með
því að véfengja þessi gögn með rök-
um, þegar þau voru lögð fram. Þessi
rök lágu ekki fyrir á þeim tíma enda
viðurkenna skýrsluhöfundar í kafla 6
í skýrslu sinni, að auðvelt sé að segja
eftir á að ekki hefði átt að gefa út
skírteinið. Jafnframt liggur fyrir, að
hefði útgáfu lofthæfiskírteinis verið
hafnað, hefði útgáfa þess frestast
þar til ný gagnaplata hefði fengist
frá framleiðanda hreyfilsins.
Eins og fram hefur komið voru
ekki til staðar þau gögn, sem hefðu
átt að liggja fyrir vegna útgáfu
lofthæfiskírteinis fyrir TF-GTI.
Flugmálastjórn var fyllilega stætt á
að synja útgáfu þessa lofthæfiskír-
teinis og hefur áður gert slíkt af
minna tilefni.
Athyglisvert er að í skýrslu F & T
er í engu vikið að því hvers vegna
flugvélin missti flugið og lenti í
spuna með þeim afleiðingum að hún
skall af miklu afli í sjónum í stað þess
að lenda á haffletinum í stjórnuðu
flugi. Þessari orsök þess að slysið
hafði eins alvarlegar afleiðingar og
raun ber vitni eru gerð mjög skýr
skil í skýrslu RNF. Því verður ekki
dregin önnur ályktun af skýrslu
F&T en þá, að þeir séu sammála
þeirri niðurstöðu, sem RNF hefur
komist að um þennan þátt slyssins.
Þá er í engu getið þeirrar staðreynd-
ar að flugmaðurinn braut flugreglur
þegar hann hóf blindflug í farþega-
flugi á eins hreyfils flugvél yfir
Hellisheiði. Að öðrum kosti hefði
hann orðið að lenda á Selfossflug-
velli.
Vísað er til athugasemda vegna
skrifa Rannsóknarnefndar flug-
slysa um ofangreint atriði. Rétt er
að benda á að flugrekandi TF-GTI
hafði áður notað flugvélina til blind-
flugs með borgandi farþega.
Tillögur Flugmálastjórnar.
Í ljósi þess sem að framan greinir
leggur Flugmálastjórn Íslands til að
tilgáta skýrsluhöfunda, Bernie For-
ward og Frank Taylor, um að hreyf-
ill flugvélarinnar hafi brætt úr sér og
fest, verði könnuð af sérfræðingum í
flugslysarannsóknum, sem ekki hafa
komið að rannsókn flugslyssins fram
til þessa. Sérstök áhersla verði lögð á
að í þeim hópi verði sérfræðingar
með þekkingu og reynslu af hreyfl-
um í þeim flokki, sem umræddur
hreyfill tilheyrir.
Reykjavík 4. október 2002
Þorgeir Pálsson flugmálastjóri
Reykjavík 7. október 2000
Morgunblaðið hefur undanfarið birt
meginniðurstöður tveggja breskra
sérfræðinga í flugslysarannsóknum
vegna flugslyssins í Skerjafirði, at-
hugasemdir Rannsóknarnefndar
flugslysa og athugasemdir flug-
málastjóra við skýrslu Bretanna og
nú síðast athugasemdir tveggja
feðra pilta sem fórust í umræddu
flugslysi, bæði við athugasemdir
Rannsóknarnefndar flugslysa og
flugmálastjóra. Öll meginsjónarmið
ættu því að vera komin fram í mál-
inu. Hér eftir mun Morgunblaðið
greina frá framvindu málsins í frétt-
um en greinargerðir og at-
hugasemdir aðila málsins verða birt-
ar í heild sinni á fréttavef
Morgunblaðsins.
JÓHANNA Sigurðardóttir, þing-
maður Samfylkingarinnar, mælti á
Alþingi í gær fyrir tillögu til þings-
ályktunar um skattfrelsi lágtekju-
fólks. Meðflutningsmenn hennar eru
Össur Skarphéðinsson og Kristján L.
Möller, þingmenn Samfylkingarinn-
ar. Tilgangur tillögunnar er að leitað
verði leiða til að afnema eða lækka
verulega skatta lífeyrisþega og launa-
fólks sem hafa tekjur undir lágmarks-
launum fyrir fulla dagvinnu.
Tillagan er svohljóðandi: „Alþingi
ályktar að fela fjármálaráðherra að
skipa nefnd sem hafi það verkefni að
kanna hvaða leiðir eru færar til að af-
nema eða lækka verulega tekjuskatt
lágtekjufólks og lífeyrisþega sem
hafa tekjur undir lágmarkslaunum. Í
því sambandi verði m.a. skoðaðir
möguleikar á endurgreiðslu skattsins
eða sérstökum frádrætti frá tekjum. Í
nefndinni verði m.a. fulltrúar aðila
vinnumarkaðarins og samtaka aldr-
aðra og öryrkja.“
Laun dugi fyrir nauðþurftum
Í greinargerð tillögunnar segir
m.a. að í nýjum upplýsingum frá rík-
isskattstjóra komi fram að sam-
kvæmt skattframtölum ársins 2002
séu tæplega 11 þúsund einstaklingar
og samskattaðir með tekjur á bilinu
781.579 kr. til 1.100.000 kr. í árstekjur
á árinu 2001, þ.e. frá skattleysismörk-
um að 92 þúsund kr. á mánuði. „Ljóst
er að langur vegur er frá því að þess-
ar tekjur dugi fyrir allra brýnustu
nauðþurftum, enda þarf fólkið með
lægstu launa- og lífeyristekjurnar
iðulega að leita sér fjárhagsaðstoðar
hjá sveitarfélögum eða matargjafa
hjá hjálparstofnunum.“
Í lok greinargerðarinnar segir að
öll rök mæli með því að þingsályktun-
artillagan verði samþykkt og reynt
verði að ná þjóðarsátt um leiðir sem
tryggi að ekki séu skattlögð laun sem
ekki dugi fyrir brýnustu nauðþurft-
um.
Skattar á lágtekju-
fólk verði afnumdir
LÚÐVÍK Bergvinsson, þing-
maður Samfylkingarinnar,
kvaddi sér hljóðs í upphafi
þingfundar á Alþingi í gær og
harmaði ummæli Halldórs
Blöndal, forseta Alþingis, um
Guðmund Sigurðsson, for-
stöðumann samkeppnissviðs
Samkeppnisstofnunar, í fyrra-
dag. Þá sagði Halldór úr ræðu-
stól að Guðmundur hefði farið
með rangt mál í fjölmiðlum og
þannig brugðist embættis-
skyldum sínum.
Lúðvík sagði, að það væri
mjög alvarlegt mál í öllum þjóð-
þingum þegar forsetar þjóð-
þinga létu frá sér fara ummæli
af slíkum toga. „Ég harma það
mjög að forseti þingsins skuli –
úr þessum ræðustól og sérstak-
lega þar sem hann er forseti
fyrir okkur öll – að hann skuli
láta slíkt frá sér fara,“ sagði
hann. Lúðvík sagði að ummæli
Halldórs hefðu einungis dregið
fram vanþekkingu hans sjálfs á
þessum málum, þ.e. þeim mál-
um sem hann hefði verið að tjá
sig um.
„Ég harma það líka ef það er
þannig að hæstvirtur forseti
þingsins er að gera í skjóli emb-
ættisins einhverja aðför að til-
teknum fyrirtækjum í þessu
landi og tilteknum stofnunum.“
Halldór Blöndal svaraði ekki
gagnrýni Lúðvíks, en grein eft-
ir Halldór um málið birtist í
blaðinu í dag á bls. 40.
Harmar
ummæli
forseta
Alþingis
Lúðvík Bergvinsson
JÓN Kristjánsson heilbrigðisráð-
herra upplýsti á Alþingi í gær að til
skoðunar hefðu verið í ráðuneytinu
hugmyndir um frekari uppbyggingu
barna- og unglingageðdeildar Land-
spítalans (BUGL) við Dalbraut í
Reykjavík. Auk þess sem hugmynd-
ir væru um að efla göngudeildarúr-
ræði, fyrir börn og unglinga, fram-
haldsmeðferð og eftirfylgni. „Þá vil
ég einnig vinna að eflingu slíkrar
þjónustu á landsbyggðinni,“ sagði
Jón Kristjánsson.
Ásta R. Jóhannesdóttir, þingmað-
ur Samfylkingarinnar, vakti máls á
geðheilbrigðismálum í upphafi þing-
fundar í gær, en þá var alþjóðageð-
heilbrigðisdagurinn, sem haldinn
var undir kjörorðunum: „Áhrif áfalla
og ofbeldis á börn og unglinga“.
Ásta sagði að víða væri unnið
mjög gott starf á sviði geðheilbrigð-
ismála. Þrátt fyrir það mætti ým-
islegt betur fara. „Til dæmis bíða 60
til 70 börn eftir þjónustu á barna- og
unglingageðdeild og alvarlegar upp-
lýsingar undanfarna daga um sálar-
angist og geðheilsu fjölda barna sem
þola einelti kalla á stóraukna geð-
heilbrigðis- og sálfræðiþjónustu fyr-
ir börn.“ Ásta benti á að geðsjúk-
dómur væri meðal algengustu
sjúkdóma á Íslandi og að nærri
mætti geta að fjórði hver Íslending-
ur greindist með geðraskanir ein-
hvern tíma á lífsleiðinni. „Löng bið
er eftir meðferð og endurhæfingu
geðsjúkra og nokkurra mánaða bið
er eftir tíma hjá geðlæknum sam-
kvæmt upplýsingum frá Geðhjálp.
Heimilislausir alvarlegir geðsjúkir á
höfuðborgarsvæðinu fylla nokkra
tugi og þá vantar tilfinnanlega þjón-
ustu.“ Ásta sagði ennfremur að lítil
tengsl heilbrigðisþjónustunnar við
fangelsin væru áhyggjuefni. „Fang-
ar með geðræn vandamál og fíkni-
efnavanda fá ekki þjónustu og dæmi
eru um að geðsjúkir séu settir í
fangelsi fyri að stela mat fyrir smá-
peninga.“
Umræðan opnari en áður
Jón Kristjánsson sagði m.a. að því
bæri að fagna að umræður um geð-
heilbrigðismál væru nú miklu opnari
en áður. „Og það er almennt ekki
talin skömm að því að leita sér með-
ferðar ef veikindi ber að höndum,“
sagði hann. Ráðherra ítrekaði að
hann hefði í starfi sínu lagt áherslu á
að efla þjónustu við geðsjúka, ekki
hvað síst börn og unglinga í þeim
hópi. „Öflugasta þjónustan við þann
hóp er á barna- og unglingageðdeild
Landspítalans. Þar komu 1.704 ein-
staklingar á göngudeild frá janúar
til ágúst 2001 en á sama tímabili á
þessu ári hafa 1.746 börn og ung-
lingar fengið þjónustu á göndudeild-
inni. Sömu sögu er að segja af dag-
deildarþjónustunni. Þar fjölgaði
þjónustuþegum úr 789 í janúar til
ágúst 2001 í 1.143 á sama tímabili í
ár. Þessi árangur hefur náðst með
endurskipulagningu starfseminnar.“
Ráðherra bætti því þó við að þótt
margt hefði áunnist í málefnum
barna og unglinga á þessu sviði
væru verkefnin enn næg.
Þjónusta í
fangelsum efld
Fleiri þingmenn kvöddu sér
hljóðs í þessari umræðu, sem fram
fór undir liðnum: athugasemdir um
störf þingsins. Rannveig Guðmunds-
dóttir, þingmaður Samfylkingarinn-
ar, sagði m.a. að búa þyrfti geðfötl-
uðum sem bestan aðbúnað í
þjóðfélaginu og Þuríður Backman,
þingmaður Vinstrihreyfingarinnar –
græns framboðs, vakti athygli á því
að sífellt fleiri börn greindust með
ofvirkni. Á þeim málum þyrfti að
taka innan heilbrigðiskerfisins.
Guðjón A. Kristjánsson, þingmað-
ur Frjálslynda flokksins, sagði að
niðurskurður í heilbrigðiskerfinu
bitnaði oft mjög illa á þeim sem
þjáðust af langvinnum geðrænum
sjúkdómum og Ásta Möller, þing-
maður Sjálfstæðisflokksins, sagði að
ríkisstjórnin hefði á undanförnum
árum lagt áherslu á að bæta aðbún-
að geðfatlaðra en margt væri enn
ógert. Þá minnti Þórunn Sveinbjarn-
ardóttir, þingmaður Samfylkingar-
innar, m.a. á að öflug fræðsla um
geðsjúkdóma stuðlaði að minni for-
dómum. Ásta R. Jóhannesdóttir,
sagði svo m.a. að síðustu að aðstand-
endur geðsjúkra væru mjög oft af-
skiptir, því þyrfti að sinna betur fé-
lagslega þættinum í þessu máli.
Jón Kristjánsson, tók að lokum
aftur til máls í þessari umræðu og
sagði m.a. að það þyrfti að efla þjón-
ustu í fangelsum fyrir geðsjúka og
koma á sérstakri lokaðri meðferð-
ardeild. „Ég hef undanfarið, varð-
andi þau alvarlegu mál sem upp hafa
komið, rætt við fjölda sérfræðinga
og leikmanna um stöðu mála og þær
leiðir sem færar eru til að auka þjón-
ustu við alvarlega geðsjúka einstak-
linga. Það þyrfti að efla þjónustu í
fangelsum og koma upp sérstakri
lokaðri meðferðardeild og síðan að
efla þjónustu við þá sem eru úti í
samfélaginu með sérhæfðum starfs-
kröftum til að sinna þeim málum.“
Alþjóðageðheilbrigðisdagsins var minnst á Alþingi í gær
Hugmyndir um eflingu
BUGL eru til skoðunar
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Alþingismennirnir Jóhann Ársælsson, Drífa Hjartardóttir, Árni Steinar
Jóhannsson og Sigríður Ingvarsdóttir fylgjast með umræðum í þingsal.
FJÓRIR þingmenn, með Guðjón A.
Kristjánsson, þingmann Frjálslynda
flokksins, í broddi fylkingar hafa lagt
fram á Alþingi frumvarp til breyt-
inga á áfengislögum sem miðar að
því að heimila framleiðslu á léttu víni
úr innlendum berjum, ávöxtum eða
jurtum til eigin neyslu.
„Tilgangur frumvarpsins er að
gera þeim sem vilja og getu hafa til
kleift að framleiða létt vín úr inn-
lendum ávöxtum og jurtum og að
þeir megi bera það fram án þess að
slíkur heimilisiðnaður teljist lög-
brot,“ segir í greinargerð með frum-
varpinu. Þar segir að flutningsmenn
telji að rétt sé að lagfæra áfengislög-
in þannig að framleiðsla léttvíns með
tilgreindum hráefnum verði leyfð.
„Með því aukna frelsi sem hér er lagt
til gæti innan fárra ára orðið til
þekking við gerð matarvína sem
kynni síðar að verða séríslensk fram-
leiðslu- og verslunarvara, t.d. vín úr
hreinni náttúruafurð eins og íslensk-
um berjum.“
Meðflutningsmenn Guðjóns eru
Drífa Hjartardóttir, þingmaður
Sjálfstæðisflokksins, Þuríður Back-
man, þingmaður Vinstrihreyfingar-
innar–græns framboðs, og Guðrún
Ögmundsdóttir, þingmaður Sam-
fylkingarinnar.
Framleiðsla léttra vína úr inn-
lendum berjum verði leyfð