Morgunblaðið - 11.10.2002, Blaðsíða 17
FRÉTTIR
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 11. OKTÓBER 2002 17
Skrefi framar
Sokkar, sokkabuxur, undirföt.
Sokkabuxur
með gegnsæjum
aðhaldsbuxum
og tám
ÍÞRÓTTA- OG ólympíusamband Ís-
lands hefur fengið minnispening
um vestur-íslenska íshokkíliðið
Fálkana að gjöf vegna stuðnings
sambandsins við alþjóðlegt íshokkí-
mót í Kanada, sem var tileinkað
Fálkunum.
Alþjóðlegt íshokkímót fyrir 17
ára og yngri fór fram í Manitoba
um liðin áramót og var það til-
einkað fyrstu Ólympíumeisturunum
í greininni. Fálkarnir fengu fyrstu
gullverðlaunin, en þeir kepptu fyrir
hönd Kanada árið 1920. Allir leik-
menn liðsins utan einn voru af ann-
arri kynslóð Íslendinga í Winnipeg
og þegar óskað var eftir stuðningi
ÍSÍ við mótið um áramótin sendi
sambandið stóran bikar til keppn-
innar. Sem þakklætisvott fyrir það
gáfu mótshaldarar ÍSÍ innrammaða
verðlaunapeninga, gull, silfur og
brons, og sérstakan minnispening
um Fálkana. Eiður Guðnason sendi-
herra, aðalræðismaður í Winnipeg,
afhenti Ellert B. Schram, forseta
ÍSÍ, gjöfina fyrir hönd mótshaldara.
Morgunblaðið/Golli
Eiður Guðnason sendiherra, aðalræðismaður í Winnipeg, afhenti
Ellert B. Schram, forseta ÍSÍ, gjöfina í gær.
ÍSÍ fær minnispening
um Fálkana