Morgunblaðið - 11.10.2002, Qupperneq 18
HÖFUÐBORGARSVÆÐIÐ
18 FÖSTUDAGUR 11. OKTÓBER 2002 MORGUNBLAÐIÐ
ings er þar verið að styrkja grjót-
garð á grandanum.
Gert er ráð fyrir að verkinu
verði lokið í desember á þessu ári.
Alls verður bætt í um 160 metra
langan kafla í þessum áfanga en
FRAMKVÆMDIR standa yfir á
Kotagranda á Seltjarnarnesi
þessa dagana en að sögn Hauks
Kristjánssonar bæjartæknifræð-
að sögn Hauks er möguleiki á að
haldið verði áfram á næsta ári fá-
ist til þess fjárveitingar.
Vinnuslóði, sem er í fjörunni,
verður síðan fjarlægður að lokn-
um framkvæmdunum.
Bætt í sjóvörn á Kotagranda
Seltjarnarnes
Morgunblaðið/Árni Sæberg
ODDVITI minnihlutans í Bessa-
staðahreppi gagnrýnir tillögu
meirihlutans um gatnagerðargjöld
og segir þau allt of há miðað við það
sem gengur og gerist í sveitar-
félögunum í kring. Hann segir að
verði tillagan að veruleika muni
það hamla því að ungt fólk flytjist í
hreppinn.
Sigurður Magnússon, oddviti
Álftaneshreyfingarinnar, segir að
snörp umræða hafi verið um tillög-
una á fundi hreppsnefndar í gær en
hún gerir ráð fyrir að gatnagerð-
argjöld fyrir íbúð í fjölbýlishúsi
verði rúmlega 920 þúsund krónur.
„Þá vantar landverð inn í þetta og
það getur losað hálfa til eina millj-
ón króna.“
Hann bendir á til samanburðar
að gatnagerðargjöld í Vatnsenda-
landi, sem sé næsta uppbygging-
arland Kópavogsbæjar, séu mun
lægri. „Þar er gatnagerðargjaldið
337 þúsund krónur og yfirtökuverð
vegna lóðarinnar er um 431 þús-
und. Þarna getur munað næstum
því milljón á því hvað ungt fólk þarf
að greiða til að koma sér af stað.“
Tillögu meirihlutans um gjöldin
var, að sögn Sigurðar, frestað á
fundinum í gær þar sem hann kom
fram með bókun um þá skoðun
sína að samræma ætti gjaldskrána
því sem gerist í nágrannasveitar-
félögunum. „Nú var ég ekki að
leggja til að við greiðum niður
landverðið en munurinn á gatna-
gerðargjöldunum er of mikill,“
segir hann.
Í greinargerð með bókun Sig-
urðar segir að tillögurnar séu
„gjörsamlega úr takt við yfirlýsta
stefnu meirihlutans að byggja
ódýrar íbúðir í fjölbýlishúsum fyrir
ungt fólk í hreppnum“. Þá lýsir
hann sig ennfremur mótfallinn því
að greitt verði sérstakt gatnagerð-
argjald vegna einbýlishúsa með
tvíbýlisaðstöðu á meðan skortur sé
á smáum íbúðum í Bessastaða-
hreppi.
Gatnagerðargjöld gagnrýnd
Hamlar því að ungt
fólk flytjist í hreppinn
Bessastaðahreppur
JÓHANN Kristinsson er upptek-
inn maður um þessar mundir. Það
eru fáir aðrir sem jafnmikið mæð-
ir á í sambandi við landsleik Ís-
lands og Skotlands í undankeppni
EM í knattspyrnu sem fram fer á
Laugardalsvelli á laugardag enda
er hann þar vallarstjóri og hefur
í mörg horn að líta fyrir leikinn.
„Þetta eru tuttugu tímar á sól-
arhring þessa dagana,“ segir
hann þegar hann gefur sér stund-
arkorn frá undirbúningnum til að
spjalla við blaðamann. „En það er
alltaf mikill léttir þegar miðasala
er búin því það auðveldar okkur
störfin. Nú er bara að hleypa
fólki inn.“
Hann segir sérstaklega gaman
að vera vallarstjóri þegar margt
fólk er væntanlegt á völlinn. „Það
er að mörgu að hyggja en það er
alltaf gaman að takast á við
vandamálin og leysa úr þeim,“
segir Jóhann keikur.
Girðingin girt
af með gámum
Eins og fram kom í Morg-
unblaðinu í gær hafa aldrei fyrr
komið jafnmargir útlendingar til
landsins vegna knattspyrnuleiks
og er ljóst að ekki fá allir miða á
leikinn sem vilja. „Við erum að
byrja á því að klæða af suðurend-
ann á vellinum með gámum þann-
ig að það sé ekki hægt að hanga
á girðingunni,“ segir Jóhann og
útskýrir að þannig verði gámur
við gám við girðinguna til að
girða hana af.
Þá er mikill viðbúnaður vegna
þeirrar fjölmiðlaumfjöllunar sem
verður um leikinn. „Það er hér 60
manna hópur frá þýsku sjón-
varpsstöðinni ARD sem ætlar að
sjónvarpa leiknum til Þýskalands
og það er heilmikil vinna í kring-
um það, sérstaklega við að gera
öryggisráðstafanir út af raf-
magni. Þjóðverjarnir koma með
mikinn tækjabúnað og þurfa
aukarafmagn umfram það sem er
hjá okkur í venjulegri útsend-
ingu.“ Þannig þurfa tækniatriðin
að vera vel yfirfarin. „Þjóðverj-
arnir eru mjög nákvæmir og vilja
hafa allt sitt á hreinu,“ segir
hann.
Að auki er von á 70 manns frá
öðrum erlendum fjölmiðlum fyrir
utan þá íslensku en von er á fleiri
íslenskum fjölmiðlamönnum en
venjulega vegna mikilvægis leiks-
ins. „Við erum með blaða-
mannaaðstöðu fyrir 60 manns og
þurfum að tvöfalda það þannig að
stór hluti fær aðstöðu í almennum
sætum.“
Láta ekki pilsin
slá sig út af laginu
Stuðningsmönnum skoska liðs-
ins verður síðan ætlaður sér-
stakur staður á áhorfendabekkj-
unum eða þrjú til fjögur hólf í
norðurenda nýju stúkunnar. Og
Jóhann segist hafa frétt af því að
karlmenn í stuttum, köflóttum
pilsum hafi sést hér og þar um
borgina síðustu daga. „Við tökum
ekki upp þennan sið en hann er
skemmtilegur. Og það verður leit-
að á Skotunum þótt þeir verði í
pilsum upp á að þeir séu ekki
með vín. Við verðum með miklar
öryggisráðstafanir vegna áfengis
en meðferð þess er alveg bönnuð
á vellinum. Þannig að það er mik-
il leit og tilstand í kringum það.“
Hann segir þannig að starfs-
menn vallarins muni ekki láta
pilsin slá sig út af laginu. Og hver
veit nema hulunni verði svipt af
einu best varðveitta þjóðarleynd-
armáli Skotanna í leiðinni.
Allt að verða klárt fyrir leik Íslendinga og Skota í undankeppni EM á laugardag
„Leitað á Skot-
unum þótt þeir
verði í pilsum“
Laugardalur
Morgunblaðið/Kristinn
Jóhann Kristinsson og fólk hans undirbúa sig af kappi fyrir leikinn á laugardag. Völlurinn verður troðfullur.
TENNISFÉLAG Kópavogs (TFK)
hefur sent inn fyrirspurn til bæjaryf-
irvalda um hvort heimilað verði að
byggja nýja þriggja valla tennishöll í
grennd við Sporthúsið. Bæjarráð hef-
ur ekki tekið afstöðu til málsins.
Í greinargerð frá Tennissambandi
Íslands, sem fylgdi erindinu, segir að
öll tennisfélög landsins hafi haft að-
stöðu í Tennishöllinni í Kópavogi frá
árinu 1995 en hún hafi verið eina
tennishúsið á Íslandi. Nýlega hafi
nafni hallarinnar verið breytt í Sport-
húsið og við það hafi starfsemin
breyst verulega og framboð af tenn-
isvöllum minnkað um 75–80 prósent.
Segir að mikil þörf sé fyrir aukna
inniaðstöðu vegna þessa og að rekstr-
argrundvöllur sé fyrir slíkri starf-
semi, sé tennisíþróttin styrkt af sveit-
arfélögum á sama hátt og aðrar
íþróttagreinar. Stjórn sambandsins
óttist að ef ekkert verði gert fljótlega í
húsnæðismálum geti það haft mjög
slæmar afleiðingar fyrir tennisíþrótt-
ina og iðkendum gæti fækkað.
Vilja reisa
nýja tenn-
ishöll
Kópavogur