Morgunblaðið - 11.10.2002, Síða 26
ERLENT
26 FÖSTUDAGUR 11. OKTÓBER 2002 MORGUNBLAÐIÐ
ÁRMÚLA 21, 533 2020
HANDKLÆÐAOFNAR
Mikið úrval
handklæðaofna
á baðherbergið.
Stærðir frá 60-181 cm.
ÁFERÐ: HVÍT EÐA
KRÓMLITUÐ.
BRESKI Íhaldsflokkurinn verður að
horfa til framtíðar, hætta að lifa í for-
tíðinni og gera yfirbót vegna þeirra
„sárinda og reiði“ sem hann olli þegar
hann var í ríkisstjórn. Þetta var með-
al þess sem leiðtogi flokksins, Iain
Duncan Smith, sagði í ræðu á árs-
fundi flokksins í Bournemouth í gær.
Íhaldsmenn „verða að öðlast skiln-
ing á því hvernig lífið í Bretlandi er nú
á dögum, en ekki hvernig það var fyr-
ir tuttugu árum“, eigi flokkurinn að
ná að komast „hægt og sígandi“ aftur
til valda, sagði Duncan Smith enn-
fremur. Stuðningur við flokkinn er nú
minni en hann hefur verið í mörg ár,
og samkvæmt sumum skoðanakönn-
unum er fylgi flokksins álíka mikið og
fylgi Frjálslynda flokksins, hins hefð-
bunda „þriðja flokks“ í breskum
stjórnmálum.
Íhaldsflokkurinn sat að völdum í
Bretlandi mestan hluta síðustu aldar,
síðast frá 1979 til 1997, en tapaði stórt
fyrir Verkamannaflokknum í kosn-
ingum 1997 og 2001. Skoðanakannan-
ir benda til að flokkurinn hafi á sér
það orð að vera úr tengslum við raun-
veruleikann. Einkum er það ungt fólk
sem hefur þessa mynd af honum.
Formaður flokksins, Theresa May,
sagði við upphaf ársfundarins fyrr í
vikunni að Íhaldsflokkurinn væri orð-
inn „andstyggilegi flokkurinn“. Á
fundinum hefur verið lögð áhersla á
að flokkurinn einbeiti sér í auknum
mæli að félagsmálum; baráttu gegn
fátækt, hlutskipti kvenna sem sæta
ofbeldi, opinberri þjónustu.
Fréttaskýrandi AFP segir, að und-
ir slagorðinu „umhyggjusöm íhalds-
stefna“, sem hafi nýst George W.
Bush Bandaríkjaforseta vel, vilji
breskir íhaldsmenn nú sýna fram á að
þeir séu líka með hjartað á réttum
stað – nokkuð sem Margaret Thatch-
er, fyrrverandi leiðtoga þeirra, hafi
stundum virst skorta. Þingmaðurinn
David Willetts hafi skírskotað til vilja
flokksmanna til að losa sig við gamla
fordóma þegar hann lýsti yfir á árs-
fundinum: „Stríði íhaldsmanna gegn
einstæðum foreldrum er lokið.“
„Viljum muna það góða“
Duncan Smith sagði ennfremur í
ræðu sinni á ársfundinum: „Afrek
okkar á níunda áratugnum fólst í því
að færa fólki vald til að láta drauma
sína um aukna hagsæld rætast. Fólk
hafði það betra í fjárhagslegum skiln-
ingi en peningarnir eru ekki allt og að
öðru leyti versnuðu lífskjör þess…Við
viljum muna það sem [flokkurinn]
hefur látið gott af sér leiða, og það var
margt. En fyrir utan þennan sal
minnist fólk þeirra sárinda sem við
ollum og reiðinnar sem það fann ólga í
sér. Nú segi ég: Aldrei aftur. Við
megum aldrei aftur ganga að bresku
þjóðinni sem gefinni.“
„Fólk segir stundum að við stjórn-
málamenn séum ekki í tengslum við
raunveruleikann. Að við tökumst ekki
á við þau vandamál sem [fólkið sjálft]
þarf að takast á við dags daglega. Að
við eyðum meiri tíma í að halda ræður
en hlusta, en þó umfram allt að við
gefum loforð sem við vitum að við get-
um ekki staðið við.“
„Þetta eru orð fólks sem er orðið
þreytt á pólitík og þráir breytingar.
Og þetta er það sem við þurfum að
takast á við. Þetta er það sem ég þarf
að takast á við. Að hlusta á það sem
fólkið segir og láta síðan verkin tala.
Og þegar ég segi láta verkin tala á ég
ekki við að ég muni bara segja:
Treystið mér.“
„Þurfum að öðlast skiln-
ing á lífi nútímafólks“
Formaður breska Íhaldsflokksins
gagnrýnir flokkinn fyrir að hafa
valdið sárindum og reiði
Bournemouth. AP, AFP.
Washington og nágrenni eftir
hryðjuverkin 11. september í fyrra.
Flestir raðmorðingjar ráðast á
ákveðna tegund fórnarlamba –
t.a.m. konur, homma eða vændis-
konur – á ákveðnum stöðum, svo
sem hraðbrautum, börum eða stöð-
um þar sem ungir elskendur eiga
ástarfundi. Leyniskyttan á Wash-
ington-svæðinu velur hins vegar
fórnarlömb sín af handahófi. Hann
hefur skotið á blökkumann, hvítan
mann, Indverja og mann frá Róm-
önsku Ameríku, og fórnarlömbin
eru á aldrinum 13–72 ára. Hann hef-
ur ekki neitt persónulegt samband
við fórnarlömbin, virðist ekki
þekkja þau, og skýtur þau úr fjar-
lægð.
Morðinginn skaut aldraðan mann
á götu í Washington að kvöldlagi en
hin morðin voru öll framin að degi til
og hann hefur aðeins unnið illvirkin
á virkum dögum. Hann framdi morð
á miðvikudegi, fimmtudegi og föstu-
degi, gerði hlé á drápunum yfir
helgina og beitti síðan byssunni aft-
ur laust eftir klukkan átta á mánu-
dagsmorgni.
Þjálfaður í hernum?
Skotfimi mannsins og færni hans
í að flýja á svipstundu án þess að til
hans sjáist hefur vakið grunsemdir
um að hann hafi verið þjálfaður í
hernum eða lögreglunni. Hann not-
ar .223 kalíbera byssu sem er sögð
hraðvirk og mjög nákvæm þegar
skotið er af 500 metra færi.
„Vopnið sem hann valdi bendir til
valdþorsta,“ sagði Robert Ressler,
afbrotafræðingur og fyrrverandi
persónuleikagreinir hjá FBI. „Þetta
er borgaraleg gerð af M-16-herriffli.
Hún er eftirsótt meðal manna sem
eru með byssudellu og líklegir til að
sækjast eftir herþjálfun, með henni
fá þeir útrás fyrir löngunina í valdið
sem þeir sækjast eftir.“
Leyniskyttan virðist líta á drápin
sem íþrótt. „Hann hegðar sér eins
ER leyniskyttan veiðimaður sem
hefur gengið af göflunum? Geð-
klofasjúklingur sem telur sig vera í
beinu sambandi við Guð? Skytta úr
hernum sem hefur hafið skæru-
hernað í bandarískum borgum gegn
samlöndum sínum? Hryðjuverka-
maður? Og er leyniskyttan ein að
verki?
Þótt bandarískir lögreglumenn
og afbrotafræðingar hafi ærna
reynslu af rannsóknum á raðmorð-
um virðast þeir standa ráðþrota
frammi fyrir drápum leyniskytt-
unnar í Washington-borg og ná-
grenni hennar síðustu daga. Hefur
hann orðið sex manns að bana, sært
tvo lífshættulega og valdið miklum
óhug meðal íbúanna.
Fáar vísbendingar hafa komið
fram í málinu. Morðinginn skildi þó
eftir handskrifuð skilaboð til lög-
reglunnar á Tarot-spili um 150
metra frá inngangi skóla í Maryland
þar sem hann særði þrettán ára
dreng lífshættulega á mánudag.
„Ég greini persónuleika glæpa-
manna, en ég er enginn spámaður,“
sagði Clint Van Zandt, afbrotasál-
fræðingur og fyrrverandi embætt-
ismaður bandarísku alríkislögregl-
unnar, FBI. „Hann er viljafastur,
einbeittur, tiltölulega greindur mið-
að við grimma morðingja. Hann er
siðblindur og kærir sig kollóttan um
þjáninguna og skelfinguna sem
hann veldur.“
Notar aðeins eina byssukúlu
Lögreglan hefur fengið um 1.600
„trúverðugar“ ábendingar en mjög
fáar áþreifanlegar vísbendingar í
málinu. Sérfræðingar hafa reynt að
draga upp mynd af persónuleika
morðingjans, sem hefur aðeins not-
að eina byssukúlu á hvert fórnar-
lamb og alltaf getað flúið sporlaust
án þess að nokkur hafi séð til hans,
þótt morðin hafi verið framin á þétt-
býlum svæðum og yfirvöld hafi ver-
ið með mikinn öryggisviðbúnað í
og veiðimaður,“ sagði Reid Meloy,
réttarsálfræðingur sem greindi per-
sónuleika Timothy J. McVeigh, sem
myrti 168 manns í sprengjutilræði í
Oklahoma-borg árið 1995. „Þess
vegna er þetta svo skelfilegt.“
Morðin virðast hafa verið þaul-
skipulögð og ummerki á grasi við
skólann í Maryland, þar sem dreng-
urinn var skotinn í brjóstið á mánu-
dag, benda til þess að morðinginn
hafi lagst þar niður og beðið eftir
fórnarlambinu. Sú staðreynd að
honum hefur alltaf tekist að flýja, án
þess að til hans sjáist, þykir benda
til þess að einhver hafi aðstoðað
hann, til að mynda beðið eftir hon-
um í bíl og hjálpað honum að flýja.
Afbrotafræðingarnir eru á einu
máli um að morðinginn sé geðsjúk-
ur, og skilaboðin á Tarot-spilinu,
sem hann skildi eftir, renna stoðum
undir það. „Kæri lögreglumaður, ég
er Guð,“ stóð á Tarot-spilinu, sem
var svokallað dauðaspil.
Sérfræðingar telja að skilaboðin
bendi til þess að morðinginn sækist
eftir virðingu. „Morðingjar sem
skilja eftir slík skilaboð eru yfirleitt
ónytjungar sem sækjast eftir at-
hygli,“ sagði Robert Ressler, af-
brotafræðingur og fyrrverandi per-
sónuleikarýnir hjá FBI. „Þetta er
nokkurs konar einkennismerki sem
á að veita þeim viðurkenningu, þeir
eru að segja: Ég er maðurinn sem
þið leitið að.“
Finnst hann vera mikilvægur
Sérfræðingarnir segja skilaboð
morðingjans benda til þess að hann
sé að sækjast eftir valdi með því að
ákveða hverjir lifi eða deyi og og
vilji sýna mátt sinn. „Þau gefa okk-
ur mikla innsýn í atferli morðingj-
ans, hugarástand hans,“ sagði Alan
Fox, prófessor í afbrotafræði við
Northeastern University. „Þessum
manni finnst hann vera mjög mik-
ilvægur. Drápin færa honum þá til-
finningu að hann sé guðleg vera, að
það sé hann sem ráði. Þetta er lík-
lega venjulegur maður sem telur sig
ekki fá þá virðingu sem hann verð-
skuldi. Hann fær hana með byss-
unni.“
Fox telur að sú staðreynd að
morðinginn notaði orðið „lögreglu-
maður“ („policeman“) fremur en
eitthvert slanguryrði í ávarpinu
renna frekari stoðum undir það að
hann sækist fyrst og fremst eftir
virðingu. „Hann sýnir lögreglunni
virðingu vegna þess að hann þráir
hana sjálfur.“
Réttarsálfræðingurinn Brent
Turvey segir að sú staðreynd að
morðinginn skildi eftir skilaboð
bendi til þess að hann sé ekki skytta
úr hernum. „Aðal góðrar skyttu í
hernum er þolinmæði,“ sagði hann.
„Hann bíður eftir góðu tækifæri til
að skjóta og fer í burtu. Hann hefur
enga þörf fyrir að skilja eftir um-
merki.“
Turvey telur að skilaboðin á Tar-
ot-spilinu séu svar morðingjans við
ummælum embættismanna sem
hafa talað um hann með fyrirlitn-
ingu. „Sérfræðingar lögreglunnar
segja allir: Hann telur sig vera Guð,
en hann er það ekki – hann er öm-
urlegur ónytjungur og heigull.
Hann skilur þess vegna eftir spil
með áletruninni: Ég er Guð.“
Algengt er að raðmorðingjar finni
hjá sér æ meiri hvöt til að hafa sam-
band við lögregluna með einhverj-
um hætti og afbrotafræðingarnir
telja líklegt að sú hvöt verði að lok-
um til þess að hann finnist.
Valdagráðugur og
sækist eftir virðingu
AP
Lögreglumenn að störfum við bensínstöð í Manassas í Virginíu þar
sem leyniskytta varð manni að bana í fyrradag.
Afbrotafræðingar reyna að
átta sig á persónuleika
leyniskyttunnar í Washington
Washington. Los Angeles Times, The Washington Post.
’ Hann er siðblindur og kærir
sig kollóttan um
þjáninguna og
skelfinguna sem
hann veldur. ‘