Morgunblaðið - 11.10.2002, Qupperneq 31
LISTIR
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 11. OKTÓBER 2002 31
ÞAÐ er rétt að Süssmayr njóti
sannmælis, sem meðhöfundur
Sálumessunnar eftir Mozart, því
kaflarnir nr. 5, Sanct-
us, nr. 6, Benedictus,
sérlega falleg tónsmíð,
sem voru mjög vel
sungnir af einsöngvur-
unum, og nr. 7, Agnus
Dei, eru alfarið eftir
Süssmayr, svo og allur
seinni hlutinn af hinu
ægifagra Lacrimosa,
ásamt því aðhafa full-
gert alla aðra kafla
verksins nema tvo þá
fyrstu, Introitus og
Kyrie, svo að ekki er
nema sanngjarnt að
nefna Süssmayr sem
meðhöfund þessa sér-
stæða verks.
Tónleikarnir hófust á sinfóníu
nr. 25, K 183 eftir Mozart, en
þessa skemmtilegu sinfóníu samdi
Mozart sautján ára. Flutningurinn
var ekki hnökralaus en líflegur,
undir stjórn Bernharðs Wilkinson-
ar.
Aðalverk tónleikanna var Sálu-
messan eftir Mozart og Süssmayr,
einstætt verk og ótrúlega sam-
stætt að allri gerð. Inngangurinn
og tvöfalda fúgan yfir texta Kyrie
eleison og Christe eleisons eru
meistaraverk, en í fúgunni slær
Mozart saman þessum textum,
sem í flestum tilfellum eru að-
greindir í þrjá kafla; Kyrie-
Christe-Kyrie.
Einsöngvararnir stóðu sig með-
prýði, en Hulda Björk og Sesselja,
sem sungu mjög fallega þegar
þeim gaf að syngja einum, höfðu
ekki í fullu tré við Gunnar og Tóm-
as í samsöngsatriðunum. Þar nutu
þeir reynslu sinnar og var söngur
þeirra glæsilega mótaður, þó
stundum í hrjúfara lagi, einkum
hjá Tómasi. Kórinn var í heild
mjög góður, sérstaklega í tvöföldu
fúgunni Kyrie og einnig er hún var
aftur sungin í niðurlagi verksins.
Eins fyrr segir var Benedictus
kaflinn mjög fallega sunginn af
einsöngvurunum og í Tuba mirum,
sem Tómas opnaði með glæsibrag,
áttu þau öll sínar strófur fallega
mótaðar og einnig í
samsöngskaflanum
Recordare var tölu-
verð reisn yfir söng
þeirra, þó Gunnar og
Tómas væru helst til
hljómfrekir gagnvart
Huldu Björk og Sess-
elju. Kórinn átti góða
spretti, sérstaklega í
hinu áhrifamikla upp-
hafi Lacrimosa, sem
rís tignarlega upp á
tvístrikaða og eru
þessir átta taktar
sennilega eitt það
áhrifaríkasta, sem
ritað hefur verið fyrir
kór og hljómsveit.
Stjórnandinn Bernharður Wilk-
inson stýrði sínu liði af myndug-
leik og var Sálumessan eftir þá
Mozart og Süssmayr í heild mjög
vel flutt, tempóin vel valin, heild-
arsvipur verksins mjög jafn og
auðheyrt, að vel hafði verið æft.
Hljómsveitin undir forustu Guð-
nýjar Guðmundsdóttur lék mjög
vel, þó finna megi að því, að pák-
urnar voru allt of hljómfrekar á
köflum, en svo virðist sem stjórn-
andinn hafi viljað leggja áherslu á
dauðavá verksins með þungum
gný pákunnar, sem kom sérstak-
lega fram í niðurlagstónum verks-
ins.
TÓNLIST
Háskólabíó
Flutt var sinfónía nr. 25 K. 183, eftir Moz-
art og Sálumessa K. 626 eftir Mozart og
Süssmayr.
Flytjendur voru Söngsveitin Filharmonía
og Selkórinn og einsöngvararnir Hulda
Björk Garðarsdóttir, Sesselja Kristjáns-
dóttir, Gunnar Guðbjörnsson, Tómas Tóm-
asson og Sinfóníuhljómsveit Íslands,
undir stjórn Bernharðs Wilkinsonar.
Fimmtudagurinn 10. október, 2002.
SINFÓNÍUTÓNLEIKAR
Mozart og
Süssmayr
Jón Ásgeirsson
Bernharður
Wilkinson
FYRSTA Listaflétta haustsins á vegum list-
ráðs Langholtskirkju verður í húsakynnum
kirkjunnar á morgun, laugardag, og hefst kl.
17. Listafléttunum var hleypt af stokkunum
síðastliðinn vetur og var þessari nýlundu í lista-
lífi borgarinnar afar vel tekið, að sögn Ólafs
Ragnarssonar, sem á sæti í listráðinu.
Sú sem nú fer fram er hin fjórða í röðinni.
Eins og á fyrri Listafléttum verður nú ýmsum
greinum lista fléttað saman, í þetta sinn af mjög
ólíkum toga: orgelbarokki fimm meistara frá
fjórum löndum, íslenskum listdansi, austur-
lenskri matargerðarlist og íslenskri bjórgerð-
arlist.
Tónlistin hefur alltaf verið grunnstef hverrar
Listafléttu og verður áfram. Í fléttunni á morg-
un leikur Hörður Áskelsson verk eftir ýmis
tónskáld barokk tímans, hinn franska Lois
Couperin (1671-1703), Nicolas d’Grigny (1671-
1703) sem einnig var franskur, Spánverjann Jo-
hannis Cabanilles (1644-1712), Dominico Zipoli
(1688-1726) sem var ítalskur og loks barokkris-
ann sjálfan, hinn þýska Johann Sebastian
Bach.
Verkin eru valin með tilliti til þess að Íslenski
dansflokkurinn tekur þátt í fléttunni, en þrjú
verkanna eru í dansformi, ein Chaconna og
tvær Passacagliur, en þetta voru hátíðlegir
dansar á barokktímanum.
Frumfluttur dans
Verk d’Grigny er samið um hinn forna, lat-
neska „hymna“ eða sálm Veni, creator Spiritus,
Kom skapari heilagi andi, og munu þeir nafnar
Jón Stefánsson organisti og séra Jón Helgi
Þórarinsson, sóknarprestur í Langholtskirkju,
syngja nokkur vers „hymnans“ forna milli kafla
í verkinu.
Hápunktur tónleikanna verður samspil org-
els og listdansara, en Peter Andersen, dansari,
hefur samið ballett við Passacagliu Bachs sem
frumfluttur verður á Listafléttunni. Verkið
nefnir hann Steeple eða klukknaturn og vísar
það til þess að þetta er kirkjulegt verk. Fjórir
dansarar úr Íslenska dansflokknum dansa í
verkinu, Katrín Ágústa Johnson, Katrín Ingva-
dóttir, Guðmundur Helgason og Guðmundur
Elías Knudsen.
„Eftir tónleika og ballett í kirkjunni verður
gengið í safnaðarheimilið þar sem Oddsteinn
Gíslason matreiðslumeistari mun, ásamt fylgd-
arliði frá Nings sælkeraveitingahúsinu, kynna
sushi matargerðarlistina frá Japan. Einnig
gefst gestum kostur á að smakka á nokkrum
sushi réttum og kynnast bjórgerðarlist ís-
lenskra víkinga í boði Vífilfells,“ segir Ólafur.
Í listráði Langholtskirkju eiga sæti Björn
Th. Árnason, Einar Már Guðmundsson, Hafliði
Arngrímsson, Sr. Jón Helgi Þórarinsson, Jón
Stefánsson, Katrín Hall, Ólafur Ragnarsson,
Ólöf Erla Bjarnadóttir, Ragnar Davíðsson og
Þorlákur Kristinsson.
Kunnir krakkar úr hverfinu
á næstu Listafléttu
Ólafur minnir á að Langholtskirkja hafi um
árabil verið öflug miðstöð tónlistarflutnings
undir stjórn Jóns Stefánssonar og hlutverk list-
ráðsins sé fyrst og fremst að auka fjölbreytnina
og tengja kirkjuna fleiri greinum menningar og
lista. „Áður hefur myndlistinni verið gert hátt
undir höfði með sýningu á verkum listamann-
anna Kristjáns Davíðssonar og Ásgerðar Búa-
dóttur. Þá má nefna sýningu íslenskra leirlist-
armanna á handunnum kaffibollum sem
tengdist flutningi á Kaffikantötu Bachs og
kynningu á margvíslegum tegundum kaffis.
Ennfremur var á liðnum vetri boðið upp á svo-
nefnda Miðjarðarhafsfléttu en þá var kynnt
ljóðlist, danslist og matargerðarlist frá löndum
við Miðjarðarhaf. Þá höfum við ekki gleymt
orðsins list og meðal rithöfunda sem tekið hafa
þátt í Listafléttunni má nefna Thor Vilhjálms-
son og Einar Má Guðmundsson,“ segir Ólafur.
Næsta Listaflétta verður 7. desember en hún
er jafnframt sú fimmta sem haldin er á fimm-
tugasta afmælisári Langholtssafnaðar, árinu
2002.
Í það sinn er yfirskriftin: Krakkarnir úr
hverfinu. „Það hefur ræst vel úr þeim krökkum
úr Langholtshverfi sem koma þá fram, en það
eru söngvararnir Bubbi Morthens og Kristinn
Sigmundsson og rithöfundarnir Einar Már
Guðmundsson og Steinunn Sigurðardóttir,“
segir Ólafur.
Aðgangseyrir á Listafléttuna á morgun er
1.500 krónur, en kr. 1.000 fyrir eldri borgara og
skólafólk.
Morgunblaðið/Jim Smart
Íslenski dansflokkurinn tekur þátt í Listafléttunni að þessu sinni.
Fjölbreytt og
fjölþjóðleg flétta
EFNT verður til af-
mælishátíðar Páls Ís-
ólfssonar í Hólmaröst
á Stokkseyri á morg-
un en Páll var fædd-
ur 12. október 1893.
Verður hans minnst í
máli, myndum og
auðvitað tónum.
Liður í dagskránni
er erindi Bjarka
Sveinbjörnssonar tón-
listarfræðings þar
sem hann mun kynna
hugmyndir um tón-
minjasafn á Stokks-
eyri. Þingsályktun-
artillaga liggur nú
fyrir Alþingi um
stofnun safnsins og kveðst Bjarki
vongóður um að hún verði að lög-
um fyrir vorið. Að málinu koma
hraðfrystihúsið Hólmaröst, félag-
ið Músík og saga, atvinnuþróun-
arsjóður Suðurlands og menning-
artengdir aðilar á svæðinu en
hugmyndin snýst um að koma
safninu á fót í 1.200 fermetra
húsnæði sem er í eigu Hólm-
arastar.
„Þetta er kjörið húsnæði fyrir
safn af þessu tagi. Við getum
fengið þessa stóru sali á þrjátíu
milljónir króna, sem er bara brot
af byggingarkostnaði nýs húss á
Stokkseyri, að ekki sé talað um
Reykjavík,“ segir Bjarki.
En hvað á að vera í Tón-
minjasafni Íslands?
„Það eru hugmyndir um að
setja þar upp sýningu, þar sem
ferðast er um íslenska tónlist-
arsögu frá upphafi. Þarna yrði
líka aðstaða til kennslu, fyr-
irlestra og kynninga af ýmsu tagi
og væntanlega tvær fræðimanna-
íbúðir. Safnið myndi einnig rúma
gott bókasafn og hlustunar-
aðstöðu, svo fátt eitt sé nefnt. Í
stuttu máli sagt eiga lærðir og
leikir að geta sótt þangað allan
fróðleik um íslenska tónlist, í for-
tíð og nútíð. Fá svör við öllum
sínum spurningum,“ segir Bjarki
og leggur áherslu á að netið eigi
að vera snar þáttur í starfsem-
inni.
Líka fyrir
dægurtónlist
Hann tekur einnig skýrt fram
að safnið eigi ekki að vera hér-
aðssafn, heldur safn allra lands-
manna. „Þarna verður hægt að
finna upplýsingar um tónlistarlíf
í öllum héruðum landsins og von-
umst við til að eiga gott samstarf
við sveitarfélögin þar um.“
Ekki er bara verið að tala um
klassíska tónlist, því „dæg-
urtónlistin verður þarna líka.
Enda er hún ekki síður hluti af
menningunni“.
Það er ekki tilviljun að Tón-
minjasafnið er kynnt á afmæl-
isdegi Páls Ísólfssonar en fjöl-
skylda hans hefur þegar gefið
safninu fjölda muna úr eigu Páls,
sem búið er að setja upp og verða
frá og með morgundeginum að-
gengilegir almenningi í Stofu
Páls Ísólfssonar í Hólmaröst. Ber
Bjarki lof á framtakið og vonar
að fleiri komi í kjölfarið.
Að sögn Bjarka er það ekki að-
eins húsnæðið sem laðar safnið
að Stokkseyri því margir ást-
sælir menn sem tengdust tónlist-
inni traustum böndum á liðinni
öld áttu rætur í þessu umhverfi,
Stokkseyri og Eyrarbakka. Nefn-
ir hann, auk Páls, Sigfús Ein-
arsson, Ragnar í Smára, Friðrik
Bjarnason og Hallgrím Helgason
í því samhengi. „Það fer því vel á
því að strandverðirnir, eins og
íbúar þessa svæðis eru oft kall-
aðir, stingi sér til sunds og bjargi
tónlistargyðjunum frá háska á
hafsbotni.“
Dagskrá hátíðarinnar
Dagskráin á morgun hefst kl. 9
árdegis þegar fánar verða dregn-
ir að húni við Hundaþúfuna og
fleiri staði á Stokkseyri.
Kl. 14 verður Stofa Páls Ísólfs-
sonar opnuð í Hólmaröst. Þar
verða einnig opnaðar mál-
verkasýningar Elfars Guðna
Þórðarsonar og Gunnars Gests-
sonar, auk þess sem leirlistakon-
urnar Katrín Ósk Þorgeirsdóttir
og Þórdís Þórðardóttir opna
vinnustofu. Þá verður Myndlist-
arfélag Árnessýslu með opið hús.
Sýningarnar verða einnig opn-
ar á sunnudag milli kl. 14 og 18.
Kl. 16 hefjast tónleikar í Hólm-
aröst. Fram koma Karlakórinn
Þrestir undir stjórn Jóns Kristins
Cortez og Sigrún Hjálmtýsdóttir
sópransöngkona og Anna Guðný
Guðmundsdóttir píanóleikari.
Að tónleikunum loknum mun
Bjarki flytja erindi sitt en dag-
skránni lýkur svo með því að
Guðni Ágústsson landbún-
aðarráðherra afhjúpar listaverk-
ið, Brennið þið vitar, eftir Elfar
Guðna Þórðarson. Verkið er mál-
að á vegg og ljós tákna vita við
strandlengjuna, alls ríflega eitt
hundrað talsins. Verður kveikt á
þeim einum af öðrum undir lagi
Páls Ísólfssonar, Brennið þið vit-
ar.
Afmælishátíð Páls Ísólfssonar haldin á Stokkseyri
Bjarki
Sveinbjörnsson
Páll
Ísólfsson
Hugmyndir um
tónminjasafn kynntar