Morgunblaðið - 11.10.2002, Page 52
MINNINGAR
52 FÖSTUDAGUR 11. OKTÓBER 2002 MORGUNBLAÐIÐ
STÓRMEISTARINN Helgi Ólafs-
son er efstur Íslendinganna á Mjólk-
urskákmótinu eftir tvær umferðir.
Hann sigraði
tékkneska stór-
meistarann Tom-
as Oral (2.546) í
annarri umferð
með hvítu. Eins
og í fyrstu um-
ferð sýndi Helgi
mikið öryggi og
aukin tafl-
mennska að und-
anförnu virðist hafa haft mjög góð
áhrif á hann. Oral hefur teflt mikið
hér á landi að undanförnu. Hann sigr-
aði m.a. á minningarmótinu um Dan
Hansson og lagði Stefán Kristjánsson
í einvígi þeirra. Hinn íslenski stór-
meistarinn á mótinu, Hannes Hlífar
Stefánsson, lét tapið í fyrstu umferð
engin áhrif á sig hafa og sigraði Stef-
án Kristjánsson sem hafði unnið Hra-
cek eftirminnilega í fyrstu umferð.
Bragi Þorfinnsson lenti hins vegar í
erfiðleikum gegn Sokolov og tapaði.
Úrslit annarrar umferðar:
Hannes Hlífar - Stefán Kristjánss. 1-0
McShane - Hracek ½-½
Sokolov - Bragi Þorfinnss. 1-0
Helgi Ólafsson - Oral 1-0
Nikolic - Tregubov 1-0
Þeir Nikolic og Sokolov eru efstir á
mótinu með 2 vinninga en Helgi
Ólafsson og McShane eru í 3.-4. sæti
með 1½ vinning.
Í áskorendaflokki urðu úrslit þessi:
Guðmundur Kjartanss. - Flovin Naes 0-1
Ágúst S. Karlss. - Þorsteinn Þorsteinss. ½-½
Sigurður P. Steindórss. - Votava 0-1
Lenka Ptacnikova - Jón V. Gunnarss. 0-1
Páll Þórarinss. - Pedersen ½-½
Frammistaða Sigurðar Páls Stein-
dórssonar gegn tékkneska stórmeist-
aranum Jan Votova (2.518) vakti
verðskuldaða athygli. Stórmeistarinn
hafði svart og Sigurður Páll hélt jöfnu
tafli lengi vel. Hann virtist ætla að
innsigla jafnteflið þegar honum tókst
að skipta upp í endatafl með mislitum
biskupum, en málið reyndist ekki al-
veg eins einfalt og ætla mátti í fyrstu.
Votova gat skapað sér frípeð sitt á
hvorum vængnum og of langt var á
milli þeirra til þess að Sigurður Páll
næði að stöðva þau bæði.
Fyrsta konan í fyrstu
deild Íslandsmótsins?
Nýlega hafði Morgunblaðið eftir
einum heimildarmanni sínum þau tíð-
indi að kona hefði í fyrsta skipti nú í ár
teflt í fyrstu deild Íslandsmóts skák-
félaga. Ekki hafði heimildarmaðurinn
alls kostar rétt fyrir sér hvað þetta
varðaði. En hver var þá fyrsta konan
sem tefldi meðal karlmannanna í
efstu deild Íslandsmótsins? Í fyrra
tefldu þær Lenka Ptacnikova og Guð-
fríður Lilja Grétarsdóttir fyrir Tafl-
félagið Helli og Cathy Rogers hafði
áður teflt með Taflfélagi Garðabæjar.
Hún var fyrsta erlenda konan til að
tefla í keppninni. Hins vegar tefldi
Guðlaug Þorsteinsdóttir löngu áður
en þessar konur í deildinni. Þetta rifj-
aði skákmaður nýlega upp á Skák-
horninu. Sá hafði tapað skák fyrir
Guðlaugu í fyrstu deild 1986. Guðlaug
tefldi þá fyrir Taflfélag Kópavogs.
Regina Pokorna, sem tefldi með
karlameisturunum sjö í liði Hróksins í
ár er svo velkomin viðbót við þennan
lista.
Áttunda mótið í Bikarsyrpu
Halló! á sunnudag
Taflfélagið Hellir, Halló! og ICC
standa sameiginlega af 10 móta röð á
skákþjóninum ICC sem kallast Bik-
arsyrpa Halló! á ICC. Áttunda mótið
fer fram sunnudagskvöldið 13. októ-
ber, en það síðasta verður haldið 24.
nóvember og verður það jafnframt Ís-
landsmótið í netskák. Vegleg verð-
laun eru í boði.
Þeir sem hafa teflt í einhverju af sjö
fyrstu mótunum þurfa ekki að skrá
sig, heldur er nægilegt að mæta fyrir
kl. 20 á ICC. Aðrir þurfa að skrá sig á
www.hellir.is.
Tefldar verða níu umferðir. Um-
hugsunartími er fjórar mínútur á
skák auk þess sem tvær sekúndur
bætast við fyrir hvern leik.
Atkvöld Hellis á
mánudagskvöld
Taflfélagið Hellir heldur atkvöld
mánudaginn 14. október og hefst
mótið kl. 20. Fyrst verða tefldar 3
hraðskákir þar sem hvor keppandi
hefur 5 mínútur til að ljúka skákinni
og síðan þrjár atskákir með tuttugu
mínútna umhugsun. Sigurvegarinn
fær verðlaun, mat fyrir tvo frá Dom-
inos pizzum. Þá verður annar kepp-
andi dreginn út af handahófi, sem
einnig fær máltíð fyrir tvo hjá Dom-
inos pizzum. Þar eiga allir jafna
möguleika, án tillits til árangurs á
mótinu.
Þátttökugjald er kr. 300 fyrir fé-
lagsmenn (kr. 200 fyrir 15 ára og
yngri) og kr. 500 fyrir aðra (kr. 300
fyrir 15 ára og yngri). Allir velkomnir.
Helgi sigraði Tomas Oral
SKÁK
Selfoss
MJÓLKURSKÁKMÓTIÐ
8.-16. október 2002
Daði Örn Jónsson
Helgi Ólafsson
Elsku Benadikt
minn.
Ég er svo þakklát að hafa fengið að
kynnast þér og vera hluti af lífi þínu.
Þrátt fyrir erfið veikindi þín varstu
svo duglegur. Þú bræddir hjörtu
okkar allra. Ég hlakkaði til á hverju
kvöldi að koma og hitta þig á spít-
alanum. Við eyddum kvöldunum í að
hlusta saman á Stubbana og að leika
okkur með uppáhalds dótið þitt,
hringluna og boltann þinn. Og það
sem fékk mig til að gleyma öllu voru
BENADIKT ÞÓR
HELGASON
✝ Benadikt ÞórHelgason fædd-
ist á Landspítalan-
um við Hringbraut
12. maí 2000. Hann
lést á barnadeild
Landspítalans 3.
október síðastliðinn
og var útför hans
gerð frá Hafnar-
fjarðarkirkju 10.
október.
brosin þín, þau voru
yndisleg.
Ég sendi þér kæra kveðju,
nú komin er lífsins nótt.
Þig umvefji blessun og bænir,
ég bið að þú sofir rótt.
Þó svíði sorg mitt hjarta
þá sælt er að vita af því
þú laus ert úr veikinda viðjum,
þín veröld er björt á ný.
Ég þakka þau ár sem ég átti,
þá auðnu að hafa þig hér.
Og það er svo margs að
minnast,
svo margt sem um hug minn fer.
Þó þú sért horfin úr heimi,
ég hitti þig ekki um hríð.
Þín minning er ljós sem lifir
og lýsir um ókomna tíð.
(Þórunn Sig.)
Ég mun aldrei gleyma þér. Engl-
arnir gæta þín núna.
Elsku Debbie, Helgi, Steven og
Nicholas og aðrir aðstandendur.
Megi Guð vera með ykkur í þessari
miklu sorg.
Sigríður (Sigga).
Það verður tómlegt á spítalanum
án þín, kæri Benadikt, þú varst eins-
konar litli bróðir minn en nú ertu far-
inn.
Þegar mamma og pabbi sögðu mér
að nú værirðu orðinn svo veikur að
þú værir alveg að fara að deyja, þá
þurfti ég að hugsa mig aðeins um, og
sagði þeim svo að ég ætlaði að finna
upp lyf handa þér svo að þú myndir
ekki deyja, því að börn eiga ekki að
deyja, en ég er farinn að skilja þetta
núna.
Það var alltaf fyrsta hugsun mín
þegar ég lagðist inn á barnadeildina
að fá að vita hvernig þér liði, sama
hversu veikur ég var, ef ég komst
ekki til þín sjálfur þá urðu mamma og
pabbi bara að spyrja fyrir mig, og ég
var aldrei rólegur fyrr en ég var bú-
inn að sjá þig fyrst á morgnana, helst
áður en ég byrjaði á morgunmatnum
en ég skildi aldrei af hverju þú fékkst
ekki alvöru mat, þó að þú værir kom-
inn með tennur, mig langaði nefni-
lega svo að borða með þér frammi í
borðkrók.
Ég á eftir að sakna þess að hjálpa
þér við allt mögulegt, sérstaklega að
baða þig, það fannst mér „frábært“.
En eins og ég sagði, þá verður
tómlegt án þín og við munum öll
sakna þín, en ég veit að núna loksins
líður þér vel, án þess að vera með nál-
ar og slöngur út um allt og endalaus-
ar aðgerðir.
Við hugsum til þín, litli vinur minn.
Torfi Lárus.
Erfiðri göngu er lokið fyrir litla
angann hann Benadikt Þór. Vissu-
lega var tilvera hans bundin sjúkra-
húsinu þar sem hann var í stöðugu
eftirliti og endalausum uppskurðum
en enga að síður átti hann sína góðu
daga þar sem allt virtist ætla að fara
á besta veg. Og litlu sigrarnir voru
sannanlega stórir. Margoft þegar ég
kom í heimsókn leið honum vel og
brosti Benadikt þá glaður og sprikl-
aði fótunum sem mest hann mátti.
Hann lék sér líka við spegilinn í rúm-
inu þar sem hann sá sjálfan sig eða
hringlaði marglita leikfanginu sem
ákafast þar til hann varð þreyttur og
fékk sér lúr. Allt sem í mannlegu
valdi stóð var gert til að létta honum
lífið og gera honum mögulegt að lifa
við fötlun sína. Benadikt var dugleg-
ur drengur sem gerði allt sem hann
gat, þrátt fyrir mikil veikindi, til að
tjá sig og upplifa heiminn. Hann var
einstakt barn og hetja í orðsins
fyllstu merkingu. En lífið er erfitt og
jafnvel hetjurnar gráta.
Vorsins barn, þú verður kvatt með tárum
og vinahendur hlúa að þínum beð.
Ég veit að margir sitja nú í sárum
og sakna þess að geta ei fylgst þér með.
Við biðjum Guð að blessa minning þína
og breyta sorgarmyrkri í ljósan dag
og láta kærleiksröðul skæran skína
og skreyta jörð við lífs þíns sólarlag.
(Guðm. Guðm.)
Blessuð sé minning Benadikts
Þórs.
Hellen Linda Drake.
Elsku Benadikt.
Okkur systurnar langar að minn-
ast þín með nokkrum línum, elsku
litli frændi.
Við munum svo vel eftir fyrst þeg-
ar við komum í heimsókn til þín og
fengum að halda á þér. Okkur fannst
þú svo brothættur, og það var eins og
þú fyndir það, því að þú tókst í fing-
urna á okkur og kreistir þá. Því
gleymum við aldrei.
Styrkur þinn kom alltaf betur og
betur í ljós. Það leikur enginn vafi á
að þú varst sterkur strákur, Bena-
dikt. Eins og til dæmis á eins árs af-
mælisdaginn þinn varstu með
lungnabólgu, en ekki varstu að
kvarta.
Það geislaði svo af þér, og brosið
þitt fallega og innilega bræddi alla.
Án orða kenndirðu svo mörgum
margt. Við munum segja Benjamín
litla bróðir okkar mikið um þig. Hann
talar oft um þig og minnir okkur á að
núna sé Benadikt frændi okkar eng-
ill.
Við trúum því að núna gerir þú allt
það sem þú gast ekki gert hérna í
þessu lífi. Við sjáum þig fyrir okkur
hlaupandi um, hlæjandi og brosandi
þínu breiða brosi.
Benadikt hefði ekki getað verið
heppnari með fjöskyldu, ást þeirra
og umhyggja er ólýsanleg. Litli
strákurinn ykkar mun lifa í hjörtum
okkar allra.
Elsku Debbie, Helgi, Steven,
Nicholas, Gulla og Doreen amma. Við
sendum ykkur innilegar samúðar-
kveðjur og biðjum Guð að styrkja
ykkur í sorginni.
Sigrún Fjeldsted og
Linda Guðrún.
Elsku Benadikt, núna ertu kominn
með vængi og getur flogið um allt og
ert orðinn lítill engill í guðsríki, það
er svo gott að þú þarft ekki lengur að
finna til, mér fannst þú alltaf svo dug-
legur, einhvern tímann þegar ég fer
til guðs og fæ vængi þá getum við hist
og flogið saman um allt. Mamma mín
og pabbi vilja senda mömmu þinni og
pabba, bræðrum og ömmu innilegar
samúðarkveðjur. Kveðja, þinn vinur,
Björn Húni.
Bridsfélag Hafnarfjarðar
Mánudaginn 30. sept. var spilað
fyrsta kvöld af þremur í þriggja
kvölda barómeter hjá Bridgefélagi
Hafnarfjarðar. Mjög góð mæting
var en 19 pör spiluðu á 10 borðum.
Meðalskor 270.
Friðþjófur Einarss. – Guðbrandur Sig. 333
Guðlaugur Bessas. – Björn Friðriksss. 308
Kristinn M. Stefánss. – Friðrik Steingr.304
Jón P. Sigurjónsson – Trausti Valsson 302
Mánudaginn 7. okt var spilað
annað kvöldið í þriggja kvölda
barómeter-tvímenningi hjá Bridge-
félagi Hafnarfjarðar.
Meðalskor 315
Sigfús Þórðarson – Erla Sigurjónsd. 367
Guðlaugur Bessas. – Björn Friðrikss. 363
Jón P. Sigurjónss. – Sigurður Sigurj. 357
Hafþór Kristjánss. – Hulda Hjálmarsd.
356
Staðan eftir 2. kvöld:
Guðlaugur Bessas. – Björn Friðrikss. 635
Sigfús Þórðarson – Erla Sigurjónsd. 616
Jón Páll Sigurjónsson – Trausti Valss 612
Kristinn M. Stefánss. – Friðrik Steingr.600
Næsta mánudagskvöld verður
spilað þriðja kvöldið í þriggja
kvölda barómeter. Spilað er á nýj-
um spilastað á mánudögum kl.
19.30, í Flatahrauni 3.
BRIDS
Umsjón Arnór G.
Ragnarsson