Morgunblaðið - 11.10.2002, Blaðsíða 56
56 FÖSTUDAGUR 11. OKTÓBER 2002 MORGUNBLAÐIÐ
!
" #$
% !
BRÉF
TIL BLAÐSINS
Kringlunni 1 103 Reykjavík Sími 569 1100
Símbréf 569 1329 Netfang bref@mbl.is
Allt efni sem birtist í Morgunblaðinu og Lesbók er varðveitt í upplýsinga-
safni þess. Morgunblaðið áskilur sér rétt t i l að ráðstafa efninu þaðan, hvort
sem er með endurbirtingu eða á annan hátt. Þeir sem afhenda blaðinu efni
ti l birtingar teljast samþykkja þetta, ef ekki fylgir fyrirvari hér að lútandi.
ÖLDUM saman þegar þessi þjóð átti
varla neitt, engan mat eða húsaskjól,
enga framtíð, ekkert sjálfstæði, eilífa
kúgun og smán,
handritin uppét-
in, sögurnar farn-
ar að endurtaka
sig og sálmagaul-
ið hana lifandi að
drepa, – þá átti
þessi þjóð eitt og
aðeins eitt – hún
átti land, ljósið
sem læddist upp-
yfir fjallsbrúnina,
slæðuna í fossinum, faldinn á öld-
unni, skuggann í hamraveggnum, fíf-
una í mýrinni, mosató í grænum
skóg, hvíslið í golunni og dálitla lautu
(jafnvel til að deyja í) og þegar
eymdin og bágindin höfðu svæft okk-
ur var landið það eina sem var nógu
sterkt til að vekja okkur aftur og aft-
ur, – og þess vegna á þetta land
heima í blóði okkar, beinum, frumum
og innyflum og ef það á að eyðileggja
það er verið að svæfa okkur svefni
svo löngum að það er alveg á huldu
hvort við vöknum aftur. Og svo gæti
farið að þá ættum við ekki neitt með
neinum og fyndist við einhvernveg-
inn alltaf sofandi þótt við vissum
ekki betur en við værum vakandi.
ELÍSABET JÖKULSDÓTTIR,
rithöfundur.
Aðeins eitt land
Frá Elísabetu Jökulsdóttur:
Elísabet
Jökulsdóttir
FYRIR síðustu sveitarstjórnar-
kosningar var töluverð umræða um
framboð eldri borgara og Félag
eldri borgara í
Reykjavík lét
gera skoðana-
könnun fyrir
þær kosningar
og var um það
bil helmingur
þeirra, sem
spurðir voru,
meðmæltur sér-
framboði. Þrátt
fyrir þessa nið-
urstöðu var
ákveðið að hugsa ekki um framboð
í sveitarstjórnarkosningum, því að-
albaráttumál eldri borgara snúa að
ríkisstjórn og Alþingi og því eðli-
legra að fara í sérframboð í næstu
Alþingiskosningum, sem verða í
vor.
Nú hefur Aþingi verðið sett og
nýtt fjárlagafrumvarp lagt fram og
verður fróðlegt að sjá og heyra
hvað stjórnarherrarnir bjóða okk-
ur þar. Eins og menn muna lagði
heilbrigðismálaráherra fram tillög-
ur sl. vor um úrbætur í hjúkrunar-
og heilsugæslumálum aldraðra á
næstu fimm árum, en strax á eftir
kom frá fjármálaráðneyti að ekki
væri búið að tryggja peninga í
þetta verkefni og væri það því
marklaust plagg. Verður fróðlegt
að sjá í fjárlagafrumvarpinu hvort
lagt verður fé í þetta verkefni og
mörg önnur sem talað er um að
lagfæra. Eftir fyrstu fréttum
markar fjárlagafrumvarpið engin
tímamót fyrir aldraða, þar sem allt
er óbreytt nema hækkanir á því
sem sagt er fylgja verðlagsþróun.
Þó svo að forystumenn eldri
borgara séu þolinmóðir eru nú
þegar byrjaðar þreifingar fyrir
sérframboði í vor og má geta þess
að á félagsfundi, sem haldinn var
21. sept. í Félagi eldri borgara í
Kópavogi, var gerð könnun um
sérframboð og varð niðurstaðan sú
að 55% fundarmanna vildu standa
að sérframboði. Einnig hafa borist
fréttir af því að á fimmta hundrað
eldri sjómanna í Reykjavík hvetji
til sérframboðs eldri borgara.
Hvers vegna er þessi hreyfing
að fara af stað? Því er auðsvarað:
Eldri borgarar eru orðnir þreyttir,
nánast uppgefnir, á að hlusta á lof-
orð, sem eru svikin jafnóðum.
Við erum þreytt á að horfa upp á
stanslausa lengingu biðlista eftir
hjúkrunar- og sjúkrarými og ekk-
ert nema svikin loforð eins og til-
lögurnar frá í sumar, engir pen-
ingar til.
Við erum þreytt á að þurfa að
búa við hækkanir á læknis- og
lyfjakostnaði.
Við erum þreytt á að þurfa að
búa við þessar miklu skerðingar á
greiðslum Almannatrygginga, en
með þessu kerfi er alltaf verið að
fjölga fátæklingum í hópi aldraðra
og öryrkja.
Við erum þreytt á að þurfa að
búa við að skattleysismörk fylgja
ekki launa- eða verðlagsþróun og
þannig er alltaf seilst lengra og
lengra niður í vasa eldri borgara
og öryrkja í skattheimtunni.
Við erum þreytt á að þurfa að
búa við óréttláta skattheimtu af líf-
eyrissjóðslaunum.
Við erum þreytt á að horfa upp á
stórfelldar skattalækkanir hjá fyr-
irtækjum, sem sýna milljóna og
milljarða króna hagnað í dag, en
engar lagfæringar okkur til handa.
Við erum þreytt á að horfa upp á
bruðl stjórnvalda og ráðamanna í
gælu- og snobbverkefni sín.
Við erum þreytt á að hlusta á
fagurgala í landsfundasamþykktum
stjórnmálaflokkanna, sem enginn
þingmaður eða ráðherra hefur síð-
an kjark til að flytja inn á Alþingi.
Þessi atriði og mörg önnur eru
ástæða þess að eldri borgarar eru
að íhuga sérframboð og skyldi eng-
an undra.
KARL GÚSTAF
ÁSGRÍMSSON,
form. Félags eldri borgara í
Kópavogi.
Framboð
eldri borgara
Frá Karli Gústafi Ásgrímssyni:
Karl Gústaf
Ásgrímsson