Morgunblaðið - 11.10.2002, Side 58
DAGBÓK
58 FÖSTUDAGUR 11. OKTÓBER 2002 MORGUNBLAÐIÐ
MORGUNBLAÐIÐ, Kringlunni 1, 103 Reykjavík. SÍMAR: Skiptiborð: 569 1100. Auglýsingar:
569 1111. Áskriftir: 569 1122. SÍMBRÉF: Ritstjórn: 569 1329, fréttir 569 1181, íþróttir 569 1156,
sérblöð 569 1222, auglýsingar 569 1110, skrifstofa 568 1811, gjaldkeri 569 1115. NETFANG: RIT-
STJ@MBL.IS, / Áskriftargjald 2.100 kr. á mánuði innanlands. Í lausasölu 190 kr. eintakið.
Skipin
Reykjavíkurhöfn: Nuka
Arctica kemur og fer í
dag, Apostol Andrey,
Cec Fighter og Vík-
ingur koma í dag.
Vædderen, Örfirisey og
Sighvatur Bjarnason
fara í dag.
Mannamót
Árskógar 4. Kl. 13–16.30
opin smíða- og handa-
vinnustofan, kl. 13.30
bingó, kl. 10–16 púttvöll-
urinn. Sviðaveisla í dag.
Danskennsla byrjar 15.
okt.
Bólstaðarhlíð 43. Kl. 8–
16 hárgreiðsla, kl. 8.30–
12.30 böðun, kl. 9–16
handavinna, kl. 9–17
fótaaðgerð, kl. 13–16
spilað. Félagsvist kl.
13.30. Haustfagnaður
verður fimmtud. 17. okt.
Hlaðborð, salurinn opn-
aður kl. 16.30. Dag-
skráin hefst með borð-
haldi kl. 17.
Strætókórinn syngur
undir stjórn Guðmundar
Ómars Óskarssonar,
Ragnar Leví og félagar
leika fyrir dansi. Happ-
drætti, skráning á skrif-
stofu fyrir kl. 12 mið-
vikud. 16. okt.
Eldri borgarar í Mos-
fellsbæ, Kjalarnesi og
Kjós. Félagsstarfið opið
mánu- og fimmtudaga.
Mánud.: Kl. 16 leikfimi.
Fimmtud.: Kl. 13 tré-
skurður, kl. 14 bókasafn-
ið, kl. 15–16 bókaspjall,
kl. 17–19 æfing kórs
eldri borgara í Damos.
Laugard.: Kl. 10–12 bók-
band, línudans kl. 11.
Námskeið í postulíns-
málun byrjar 18. nóv.
Uppl. og skráningar:
Svanhildur s. 586 8014
e.h.
Félagsstarf aldraðra
Garðabæ. Fimmtud. 17.
okt. leikhúsferð – Veisl-
an í Þjóðleikhúsinu kl.
20.
Skráning hafin. Nám-
skeið í skyndihjálp fyrir
eldri borgara í 2 daga,
18. og 21. okt., og seinna
námskeiðið 25. og 28.
okt. Skráning í s.
820 8571 kl. 14–15 virka
daga.
Eldri borgarar Garða-
bæ og Bessastaða-
hreppi, kl. 14–17 föstu-
dagssamvera haldin í
dag (Harmónikuball)
ásamt kirkjunni, í safn-
aðarheimilinu Kirkju-
hvoli. Dansað, sungið,
gamanmál, vöfflukaffi.
Félagsstarfið, Dalbraut
18–20. Kl. 9–12 aðstoð
við böðun, kl. 9–16.45 op-
in handavinnustofan,
hárgreiðslustofan opin
kl. 9–16.45 alla daga
nema mánudaga.
Félagsstarfið Dalbraut
27. Kl. 8–16 opin handa-
vinnustofan, kl. 9–12
applikering, kl. 10–13
opin verslunin.
Félagsstarfið Furugerði
1. Kl. 9 aðstoð við böðun,
smíðar og útskurður, kl.
10 leikfimi. Kl. 14 verða
lyfjafræðingur og hjúkr-
unarfræðingur á staðn-
um með fræðslu- og
kynningarfund. Allir vel-
komnir. Kaffi og með-
læti eftir fundinn.
Félagsstarfið Hæð-
argarði 31. Kl. 9–12 böð-
un, kl. 9–16.30 opin
vinnustofa, myndlist, kl.
9.30 gönguhópurinn
Gönuhlaup leggur af
stað, kaffi á eftir, kl. 14
brids og spilamennska,
hárgreiðslustofan opin
kl. 9–14.
Félagsstarfið, Löngu-
hlíð 3. Kl. 8 böðun, kl. 10
hársnyrting, kl. 10–12
verslunin opin, kl. 11
leikfimi, kl. 13. „Opið
hús“, spilað á spil.
Félag eldri borgara í
Kópavogi. Félagsvist
spiluð í Fannborg 8
(Gjábakka) kl. 20.30. Fé-
lagar úr Akranesfélag-
inu koma í heimsókn í
Lionshúsið, Auðbrekku
25–27, laugard. 26. okt.
Kvöldverður og
skemmtiatriði. Veislu-
stjóri sr. Gunnar Sig-
urjónsson, Ásgeir Jó-
hannesson segir frá,
Vinabandið, happdrætti,
dans o.fl. Húsið opnað
kl. 19. Skráning á þátt-
tökulista sem eru í fé-
lagsheimilunum.
Félag eldri borgara
Hafnarfirði, Hraunseli,
Flatahrauni 3. Tréút-
skurður kl 13, brids kl.
13.30, púttað á Hrafn-
istuvelli kl. 14–16. Rúta í
Borgarleikhúsið á morg-
un að sjá Kryddlegin
hjörtu, fer kl. 19. Á
morgun morgungangan
kl. 10.
Félag eldri borgara,
Reykjavík, Ásgarði
Glæsibæ. Kaffistofan er
lokuð vegna breytinga í
Glæsibæ. Föstud.: Fé-
lagsvist kl. 13.30.
Sunnud.: Dansleikur kl.
20 Caprí-tríó leikur fyrir
dansi. Silfurlínan er opin
á mánu- og mið-
vikudögum kl. 10–12.
Skrifstofa félagsins er
flutt að Faxafeni 12, s.
588 2111. Félagsstarfið
er áfram í Ásgarði
Glæsibæ. Félagið hefur
opnað heimasíðu,
www.feb.is. Upplýsingar
á skrifstofu FEB.
Félag eldri borgara
Suðurnesjum. Leik-
húsferð í Borgarleik-
húsið 31. okt. að sjá Með
vífið í lúkunum. Skrán-
ing fyrir 14. okt. Nánar í
auglýsingum. Árlegur
haustfagnað verður í
Glaðheimum, Vogum,
laugard. 12. okt kl. 15.
Gerðuberg, félagsstarf,
kl. 9–16.30 vinnustofur
opnar, m.a. kortagerð og
servéttumyndir, kl. 9.30
sund og leikfimiæfingar
í Breiðholtslaug, kl. 10
boccia, frá hádegi spila-
salur opinn, kl. 13 bók-
band, kl. 14 kóræfing.
Veitingar í Kaffi Berg.
Allar upplýsingar um
starfsemina á staðnum
og í síma 575 7720.
Gjábakki, Fannborg 8.
Kl. 9.30 málm- og silf-
ursmíði, kl. 9.15 ramma-
vefnaður, kl. 13 bók-
band.
Gullsmári, Gullsmára
13. Kl. 9 glerlistahópur,
kl. 14. bingó.
Hraunbær 105. Kl. 9
handavinna, útskurður,
fótaaðgerð og hár-
greiðsla. Kl. 14 kemur
Benedikt Davíðsson, for-
maður Landsambands
eldri borgara, í heim-
sókn og ræðir stöðu
launamála og hvaða
kröfur sambandið gerir
til stjórnmálaflokkanna
fyrir næstu kosningar.
Kaffiveitingar. Allir vel-
komnir.
Hvassaleiti 56–58. Kl. 9
böðun, kl. 10 mæðra-
morgunn. Fótaaðgerð,
hársnyrting.
Korpúlfarnir, eldri
borgarar í Grafarvogi.
Fimmtud.: Kl. 10, aðra
hverja viku púttað á
Korpúlfsstöðum, hina
vikuna keila í Keilu í
Mjódd. Vatnsleikfimi í
Grafarvogslaug á
þriðjud. kl. 9.45 og
föstud. kl. 9.30. Uppl. í s.
5454 500 Þráinn.
Norðurbrún 1. Kl. 9–13
tréskurður, kl. 9–17,
hárgreiðsla kl. 10–11
boccia.
Vesturgata 7. Kl. 9–16
fótaaðgerðir og hár-
greiðsla, kl. 9.15–14.30
alm. handavinna, kl. 10–
11 kántrýdans, kl. 11–12
stepp, kl. 13.30 sungið
við flygilinn, kl. 14–15 fé-
lagsráðgjafi á staðnum,
kl. 14 tískusýning,
dömufatnaður, dansað
við lagaval Sigvalda,
veislukaffi. Kennsla í
þrívíddarmyndum á
miðvikud. kl. 9.15–12,
skráning í s. 562 7077.
Kennsla í postulíns-
málun byrjar þriðjud.
22.okt.
Vitatorg. Kl. 8.45 smíði,
kl. 9 hárgreiðsla og
myndlist, kl. 9.30 bók-
band og morgunstund,
kl. 10 fótaaðgerðir og
leikfimi, kl. 12.30 leir-
mótun, kl. 13.30 bingó.
Vitatorg. Kl. 8.45 smíði,
kl. 9 hárgreiðsla og
myndlist, kl. 9.30 bók-
band og morgunstund,
kl. 10 fótaaðgerðir og
leikfimi, kl. 12.30 leir-
mótun, kl. 13.30 bingó.
Haustfagnaður kl. 18.
Matur, gleði, glens og
gaman, allir velkomnir.
Félagsmiðstöðin opin
fyrir alla aldurshópa.
Bridsdeild FEBK Gjá-
bakka. Brids kl. 13.15 í
dag.
Hana-nú, Kópavogi.
Laugardagsgangan á
morgun. Lagt af stað frá
Gjábakka, Fannborg 8,
kl. 10.
Gott fólk, gott rölt.
Gengið frá Gullsmára
13, kl. 10 á laugardögum.
Hitt húsið býður ungum
foreldrum með börnin
sín á laugard. kl. 15–17 á
Geysi, Kakóbar, Að-
alstræti 2. Opið hús og
kaffi á könnunni, djús,
leikföng og dýnur fyrir
börnin.
Kristniboðsfélag karla,
kaffisala verður í
Kristniboðssalnum,
Háaleitisbraut 58–60, 3.
hæð, sunnudaginn 13.
okt. kl. 14–18.
Í dag er föstudagur 11. október,
284. dagur ársins 2002. Orð dagsins:
Vakið, standið stöðugir í trúnni, ver-
ið karlmannlegir og styrkir. Allt sé
hjá yður í kærleika gjört. Náðin
Drottins Jesú sé með yður.
(Kor. 16, 13–14. 23.)
1
7
11
15
22
24
12
14
3
9
20
10
4
8
21
23
25
13
17
5
18
6
19
2
16
K r o s s g á t a
LÁRÉTT:
1 hvetja, 4 sívalnings, 7
guð, 8 rör, 9 fæði, 11
skrifa, 13 vendi, 14 undr-
ast, 15 ári, 17 gagnsær,
20 málmur, 22 hakan, 23
ósætti, 24 valdi tjóni, 25
hjarar.
LÓÐRÉTT:
1 stendur við, 2 skrölt, 3
tóma, 4 hörfi, 5 vesöldin,
6 harma, 10 nam, 12
skyldmenni, 13 duft, 15
rými, 16 matbúa, 18 heit-
ir, 19 tölur, 20 á höfði, 21
vítt.
LAUSN SÍÐUSTU KROSSGÁTU:
Lárétt: 1 tækifærið, 8 kolin, 9 launa, 10 aka, 11 lagað, 13
rænir, 15 hross, 18 sagan, 21 kát, 22 síðla, 23 afurð, 24
hroðalegt.
Lóðrétt: 2 ærleg, 3 iðnað, 4 ætlar, 5 Iðunn, 6 skál, 7
maur, 12 als, 14 æpa, 15 hæsi, 16 orður, 17 skarð, 18
stall, 19 grugg, 20 næði.
Víkverji skrifar...
VÍKVERJI ætlaði ekki að trúasínum eigin augum þegar hann
sá í Nóatúni fjölbreytt úrval af er-
lendum kjötvörum. Dádýr, lynghæn-
ur, fasanar – Víkverja er til efs að
kjöt af þessum skepnum hafi áður
sézt í íslenzkum verzlunum. Kórón-
an á kjötúrvalinu í Nóatúni er þó al-
vöru ítölsk Parmaskinka og ítölsk
hrápylsa, sem líka fæst í kjötborðinu
þar á bæ þessa dagana.
Hingað til hefur innflutningur á
slíkum vörum verið bannaður af
„dýraheilbrigðisástæðum“ en ein-
hverra hluta vegna hefur nú komið
gat í reglugerðarmúrinn sem vernd-
ar að sögn íslenzkan búfénað fyrir
lasleika og eigendur hans í raun fyrir
erlendri samkeppni. Víkverji þarf
því í bili ekki að sætta sig við ís-
lenzku eftirlíkinguna af Parma-
skinku, sem er sennilega fremur
ættuð frá Borgarnesi eða Selfossi en
frá Parma. Ítalska skinkan er reynd-
ar mjög dýr, en það er sú íslenzka
líka.
Aukinheldur býður Nóatún nú
upp á ferskan túnfisk og sverðfisk,
sem er skemmtileg tilbreyting frá
hvunndagslegri fiskum. Því miður er
erfitt að hrópa ferfalt húrra fyrir
Nóatúni á prenti en það myndi Vík-
verji gera ef hann gæti. Vonandi
verður framhald á innflutningnum.
x x x
KVENSKÓR með oddmjóum(eða kannski öllu heldur odd-
hvössum) tám eru aftur komnir í
tízku. Þegar Víkverji var táningur
fyrir margt löngu urðu skór með
svipuðu lagi móðins (eftir langt „fót-
laga“ tímabil) og vinkonur Víkverja
tróðu sér í þá af beztu getu. Aldrei
var gripið til þess ráðs að höggva af
hæla og tær eins og stjúpsystur
Öskubusku gerðu til að reyna að
komast í glerskóinn, en ekki var
þetta þægilegt skótau.
Víkverji man að læknar og sjúkra-
þjálfarar skrifuðu lærðar blaða-
greinar gegn þessum skófatnaði og
bentu á að fyrir óharðnaðar og ekki
fullvaxnar unglingsstúlkur gæti það
að ganga í támjóum skóm haft í för
með sér að tærnar afmynduðust og
beygluðust. Þannig fengi fólk
skólaga fætur af því að ganga ekki í
fótlaga skóm. Víkverji er ekki frá því
að merki þessa megi enn sjá á tám
sumra þeirra, sem fylgdu tízkunni
hvað fastast á þessum árum.
x x x
NÚ BER hins vegar ekkert ágagnrýni heilbrigðisstéttanna
á támjóu skóna. Víkverji veltir því
fyrir sér hvernig standi á því, en
grunar að skýringin sé sú að í þetta
sinn hafi skóframleiðendur áttað sig
á vandanum og að mjóa táin á tízku-
skónum sé innantóm – skórnir séu
hafðir umtalsvert lengri en fótlaga
skór í sama númeri væru, til þess að
beygla ekki tærnar á eigandanum.
Sá galli er reyndar á gjöf Njarðar
að kvenfólk, sem gengur í oddhvössu
skónum, getur virzt harla stórfætt
þegar t.d. skór nr. 38 eru á lengd við
nr. 43, en ýmsu er nú fórnandi fyrir
að tolla í tízkunni. Það er a.m.k.
skárra að sýnast stórfættur en að
vera sífellt sárfættur og sitja
kannski þar að auki uppi með beygl-
aðar tær. Ekki hefur Víkverji haft
orð á þessu að fyrrabragði við sér ná-
komna eigendur skófatnaðar af áð-
urnefndu tagi, enda er áreiðanlega
ekkert gott að láta sparka í sig með
oddhvössu tízkuskónum.
Að græða á
annarra eymd
MAKALAUST er hversu
fólk getur verið siðlaust og
gerir lítið með boð og bönn
ef peningar eru annars veg-
ar. Á forsíðu Fréttablaðs-
ins fyrir stuttu var litmynd
af forsætisráðherra efst til
hægri og áberandi bjóraug-
lýsing, einnig í lit, neðst til
hægri, svohljóðandi: Beck’s
– lykillinn að góðu kvöldi.
Með ólæsilegum stöfum
stóð efst 0,3% alc.
Hvaða heilvita manni
dettur annað í hug en að
hér sé verið að auglýsa bjór
– áfengan bjór, þ.e. áfengi?
Veit ritstjóri blaðsins
ekki að bannað er með lög-
um að auglýsa áfengi á Ís-
landi?
Eða hvernig stendur á að
blaðið skipar sér á bekk
með óprúttnum lögbrjótum
sem er nokk sama um allt
nema peninga?
Hafa aðstandendur
blaðsins hugleitt að auglýs-
ingar af þessu tagi hitta
verst ómálga fólk, börn,
unglinga og þá sem eiga við
drykkjuvanda að stríða?
Allir vita hversu áfengis-
bölið er útbreitt og mikil
mæða. Allir vita að bjór er
áfengi, að bjór kveikir
neista sem getur orðið að
óslökkvandi báli, mörgum
til mikillar bölvunar.
Auglýsendur eins og
Fréttablaðið og margir
fleiri, eins og sjónvarps-
stöðvarnar, gefa greinilega
ekki hætishót fyrir það.
Sala og gróði ganga fyrir
öllu. Selja skal sem flestum,
sem mest, lokka sem flesta
til fylgilags, kosta hvað það
vill. Að fara gegn lögum er
mörgum augljóslega ekk-
ert tiltökumál ef peningar
fást í aðra hönd.
Það var ótrúleg ósvífni
að þessi aulýsing var á svo
áberandi stað í föstudags-
blaðinu. Mér finnst blaðið
hafa sett niður og lít það
ekki sömu augum og fyrr.
Aðstandendum auglýsinga
af þessu tagi, þeim sem
hagnast á eymd annarra, er
sennilega alveg sama um
það.
E.G.Ó.
Góð þjónusta
ÉG vil koma á framfæri
þakklæti mínu fyrir góða
þjónustu hjá Bíll.is uppi á
Höfða. Þar er veitt alveg
sérstaklega góð þjónusta
og þurfti ég ekki að hugsa
fyrir neinu, þar var gengið
frá öllu fyrir mig. Vil ég
sérstaklega þakka Hilmari
fyrir.
Matthildur.
Tapað/fundið
Hlaupahjól
í óskilum
HLAUPAHJÓL fannst ná-
lægt Áskirkju seinnipart-
inn í september. Upplýs-
ingar í síma 896-9315.
Hálsmen í óskilum
HÁLSMEN úr silfri fannst
fyrir utan Hreyfingu í
Faxafeni fimmtudaginn 3.
okt. Upplýsingar í síma
567-2154 eða 897-6419.
Dýrahald
Draumur er týndur
DRAUMUR týndist frá
Eyrarholti 2 í Hafnarfirði.
Hann er fimm mánaða
fress, gulhvítur, með bláa ól
og gult spjald. Hann er
blíður og kelinn. Þeir sem
hafa orðið hans varir hafi
samband í síma 555-3742.
Fundarlaun.
Kettlingur óskast
ÓSKA eftir læðu gefins,
helst svartri eða einlitri.
Eldri en þriggja mánaða
kemur ekki til greina. Upp-
lýsingar í síma 868-3105 og
587-2474.
VELVAKANDI
Svarað í síma 569 1100 frá 10-12 og 13-15.
Netfang velvakandi@mbl.is
Morgunblaðið/Kristinn