Morgunblaðið - 11.10.2002, Síða 59

Morgunblaðið - 11.10.2002, Síða 59
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 11. OKTÓBER 2002 59 DAGBÓK SAGNTÆKNI hefur auðvit- að mikið breyst frá því Kels- ey skrifaði bók sína Vígreif vörn (Killing Defence) árið 1966. Á þeim tíma var svo- kölluð „Sviss convention“ vinsæl í slemmuleit. Hún felst í því að stökk í fjögur lauf á móti opnun á hálit er slemmutilboð með góðum trompstuðningi, 13–15 punktum og tiltölulega jafnri skiptingu. Suður gefur; allir á hættu. Norður ♠ 94 ♥ Á865 ♦ KD93 ♣KD7 Austur ♠ KG62 ♥ K7 ♦ 76 ♣109643 Vestur Norður Austur Suður – – – 1 hjarta Pass 4 lauf * Pass 6 hjörtu Pass Pass Pass Með fjórum laufum er norður ekki að lofa fyrir- stöðu í laufi, heldur eingöngu að sýna sterka hækkun í fjögur hjörtu og jafna skipt- ingu. Það dugir suðri til að skjóta á slemmu. Vestur spilar út spaða- þristi, fjórða hæsta. Já, Kels- ey notar 11-regluna gegn trompi líka, sem er kannski helsti galli bókarinnar. Ekki vegna þess að reglan sé út af fyrir sig slæm, heldur vegna þess að Kelsey er svolítill hentistefnumaður í notkun hennar. Stundum – þegar það passar – dregur hann óhikað þá ályktun að útspilið sé frá fjórlit, en þegir þunnu hljóði í dæmum þar sem komið er smátt út frá mannspili ÞRIÐJA. En nóg um það. Austur treystir því að makk- er sé ekki að spila undan ás og lætur gosann í fyrsta slaginn til að afla upplýsinga um drottninguna. Suður tek- ur slaginn með drottning- unni, spilar hjartadrottningu og svínar. Nú er austur inni. Hvað á hann að gera? Telja, segir Kelsey. Sagn- hafi á í mesta lagi sexlit í hjarta (makker fylgdi lit) og eftir útspilið er „sannað“ að hann hefur byrjað með ÁDx í spaða. Hann á því a.m.k. fjögur spil í láglitunum. Makker verður að eiga ás til að spilið tapist. Ef það er tíg- ulásinn getur sagnhafi aldrei komist hjá því að gefa þar slag. Öðru máli gegnir um laufásinn. Hugsanlega þarf að taka hann strax: Norður ♠ 94 ♥ Á865 ♦ KD93 ♣KD7 Vestur Austur ♠ 10873 ♠ KG62 ♥ 9 ♥ K7 ♦ 10842 ♦ 76 ♣ÁG52 ♣109643 Suður ♠ ÁD5 ♥ DG10432 ♦ ÁG5 ♣8 Með þessum einföldu taln- ingarrökum blasir við að spila laufi. BRIDS Umsjón Guðmundur Páll Arnarson 1. Rf3 g6 2. d4 Bg7 3. e4 d6 4. Bd3 e5 5. Bg5 Re7 6. c3 0–0 7. 0–0 h6 8. Be3 exd4 9. Bxd4 Rec6 10. Bxg7 Kxg7 11. Rbd2 Rd7 12. Rb3 b6 13. Rfd4 Bb7 14. He1 Rce5 15. Bf1 Rc5 16. Dc2 Df6 17. Had1 Hae8 18. Rxc5 bxc5 19. Rb5 He7 20. b4 Dh4 21. bxc5 dxc5 22. c4 f5 23. exf5 Hxf5 24. Db2 Kh7 25. He3 Hef7 26. f3 Staðan kom upp í Evrópukeppni tafl- félaga sem lauk fyrir skömmu í Grikk- landi. Mikhail Kras- enkov (2.662) hafði hvítt gegn Franz Hoezl (2.393). 26... Rxf3+! 27. gxf3 Dg5+ og hvítur gafst upp enda fátt til varnar eftir 28. Kf2 Bxf3. 4. umferð Mjólk- urskákmótsins hefst kl. 17.00 í dag á Hótel Selfossi. SKÁK Umsjón Helgi Áss Grétarsson Svartur á leik. STJÖRNUSPÁ eft ir Frances Drake VOG Afmælisbörn dagsins: Þú ert afslappaður, lífs- glaður og félagslyndur og nýtur þín best innan um annað fólk. Á komandi ári muntu þó leita meira inn á við. Hrútur (21. mars - 19. apríl)  Farðu varlega í allri samn- ingagerð í dag. Reyndu að ganga frá lausum endum áð- ur en þú byrjar á einhverju nýju. Naut (20. apríl - 20. maí)  Sýndu þolinmæði í atvinnu- málum næstu mánuði. Farðu með gát og reyndu að ljúka öllum þeim verkefnum sem þú hefur tekið að þér. Tvíburar (21. maí - 20. júní)  Þú þarft að huga að þínum nánustu samböndum. Hlust- aðu á innsæi þitt og ræddu efasemdir þínar við þá sem hlut eiga að máli. Krabbi (21. júní - 22. júlí)  Mál, sem þú hélst að væru frágengin, koma upp á yfir- borðið að nýju. Það er óþægi- legt þegar hlutirnir koma aft- an að okkur en þú munt hafa þitt fram að þessu sinni. Ljón (23. júlí - 22. ágúst)  Gamall vinur þarf á þér að halda. Þú hefur alltaf lagt áherslu á tryggð við vini þína og nú færðu tækifæri til að sýna það í verki. Meyja (23. ágúst - 22. sept.)  Gamall vinnuveitandi gæti gert einhvers konar kröfu á þig. Ef þú heldur vel á spil- unum geturðu snúið aðstæð- um þér í hag. Vog (23. sept. - 22. okt.)  Þú þarft að takast á við lög- fræðileg mál sem hafa lengi legið í loftinu. Mundu að það getur borgað sig að gefa eftir strax í upphafi. Sporðdreki (23. okt. - 21. nóv.)  Næstu mánuðir henta vel til að ganga frá málum sem tengjast erfðum, trygging- um, skuldum og sköttum. Taktu þessi mál föstum tök- um þótt þau séu leiðinleg. Bogmaður (22. nóv. - 21. des.) Það ríkir ennþá nokkur óvissa vegna nýlegra breyt- inga í einkalífi þínu. Nú er rétti tíminn til að ganga frá lausum endum. Steingeit (22. des. - 19. janúar) Þú getur fundið lausnir á þeim vandamálum sem upp koma í vinnunni. Líttu á þau sem tækifæri til að koma hlutunum í betra horf. Vatnsberi (20. jan. - 18. febr.) Þú hefur fengið aukna ábyrgð og þarft því að endurmeta stöðuna. Gerðu sjálfum þér og öðrum grein fyrir því hvað þú ert tilbúinn til að taka á þig mikla ábyrgð. Fiskar (19. feb. - 20. mars) Þetta er góður tími til breyt- inga í einkalífinu og á heim- ilinu. Íhugaðu hvernig þú get- ur aukið stöðugleika í lífi þínu. Stjörnuspána á að lesa sem dægradvöl. Spár af þessu tagi eru ekki byggðar á traustum grunni vísindalegra staðreynda. Árnað heilla 90 ÁRA afmæli. Í dag,föstudaginn 11. októ- ber, er níræð Halldóra Her- mannsdóttir frá Siglufirði. Hún tekur á móti gestum á afmælisdaginn frá kl. 16–19 í Hlégarði, Mosfellsbæ. 90 ÁRA afmæli. Í dag,föstudaginn 11. októ- ber, er níræður Sigurður Vincenzo Demetz Franz- son, tenórsöngvari og söng- kennari, Fossagötu 8, Reykjavík. Sigurður er með móttöku fyrir vini sína, og samstarfsmenn um árin, í Tónlistarhúsinu Ými kl. 17– 19 á afmælisdaginn. LJÓÐABROT KONUNGSTIGN JESÚ Víst ertu, Jesú, kóngur klár, kóngur dýrðar um eilíf ár, kóngur englanna, kóngur vor, kóngur almættis tignarstór. Kóng minn, Jesú, ég kalla þig, kalla þú þræl þinn aftur mig. Herratign enga að heimsins sið held ég þar mega jafnast við. Jesú, þín kristni kýs þig nú, kóngur hennar einn heitir þú. Stjórn þín henni svo haldi við, að himneskum nái dýrðar frið. Hallgrímur Pétursson Hlutavelta Morgunblaðið/Kristinn Þessir duglegu krakkar söfnuðu kr. 6.525 til styrktar Rauða krossi Íslands. Þau eru Elínborg Kolbeinsdóttir, Kristófer Kolbeinsson og Íris Teresa Emilsdóttir. MORGUNBLAÐIÐ birtir tilkynningar um afmæli, brúðkaup, ættarmót og fleira lesendum sínum að kostnaðarlausu. Samþykki afmælisbarns þarf að fylgja afmælistilkynningum og/ eða nafn ábyrgðarmanns og símanúmer. Fólk getur hringt í síma 569-1100, sent í bréfsíma 569-1329, eða sent á netfangið ritstj @mbl.is. Einnig er hægt að skrifa: Árnað heilla, Morgunblaðinu, Kringlunni 1, 103 Reykjavík Með morgunkaffinu Út með það, Karen. Eitt- hvað hef ég sagt sem þér líkar ekki. Garðatorgi, sími 565 6550 Nýkomið Gallajakkar, gallabuxur og bolir Nýjar vörur Peysur, blússur, buxur og bolir Meyjarnar, Austurveri, Háaleitisbraut 68, sími 553 3305. FRÉTTIR NÝLEGA flutti verslunin Í hús- inu í Kringluna og er hún á neðri hæð hússins gegnt kaffihúsinu Kaffitári. Eigandi verslunarinnar er Helga Lísa Þórðardóttir. Verslunin er með m.a.: postulín frá Kahla í Þýskalandi, glervöru frá Leonardo, kubbaljós og blómavasa frá Frakklandi og hnífapör frá Þýskalandi og Bret- landi. Þá er í versluninni hægt að fá leigða ýmsa hluti sem notaðir eru til að skreyta þegar halda á veislu, m.a. stóra kertastjaka, vasa og kökudiska, segir í frétta- tilkynningu. Verslunin Í húsinu flytur Í LOK ársins munu farþegar strætisvagna Strætó bs. geta fengið nákvæmar upplýsingar um ferðir vagnanna og hvaða leið heppilegast sé að fara til þess að ná á áfangastað á sem skemmstum tíma. Strætó og TrackWell Soft- ware skrifuðu nýverið undir samning er miðar að því að þróa upplýsingakerfi Strætó sem mun hafa í för með sér umtalsverðar nýjungar fyrir farþega vagn- anna. Nýja upplýsingakerfið er hluti af framtíðarsýn Strætó og til þess að tryggja sem flestum greiðan aðgang að kerfinu verð- ur stuðst við nýjustu hugbún- aðar- og fjarskiptatækni. Þetta þýðir að til að byrja með verða upplýsingarnar aðgengilegar á Netinu en þegar fram líða stundir verða þær einnig að- gengilegar með fjarskiptabúnaði á borð við farsíma og í rauntíma, segir í fráttatilkynningu. Ís- lenska vefstofan mun hanna nýtt útlit á heimasíðu Strætó og ann- ast uppsetningu á vefumsjónar- tæki fyrirtækisins. Fyrirtækið Sjá ehf. hefur séð um undirbún- ing, greiningu og útboð verkefn- isins og mun hafa yfirumsjón með verkefninu. Nýtt upplýsingakerfi fyrir farþega Strætó HÓLAMANNAFÉLAGIÐ var stofnað 1904 og hefur starfað með mislöngum hléum síðan. Félagið var endurvakið 7. september sl. í tengslum við setningu Hólaskóla og var eitt af verkefnum á 120 ára af- mæli hans. Í undirbúningsnefnd sátu Guðrún Helgadóttir, Bjarni Maronsson og Erla Bil Bjarnar- dóttir. Í nýjum samþykktum félags- ins segir að félagið skuli „efla tengsl skólans og velunnara hans, tengsl hollvina innbyrðis og vera farvegur fyrir velvilja og stuðning hollvina við uppbyggingu Hóla- skóla, skólastarfið og markmið þess.“ Á endurvakningarfundinum var Pétur Bjarnason Akureyri kosinn formaður og Erla Bil Bjarnardóttir Garðabæ og Helga Thoroddsen A- Húnavatnssýslu í stjórn. Varamenn voru kosnir Álfhildur Ólafsdóttir Reykjavík og Brynjar Skúlason Eyjafjarðarsveit. Hólamannafélagið hefur komið sér upp heimasíðu, http://www.hol- ar.is/holamannafelag, og þar geta áhugasamir skráð sig sem hollvini Hólaskóla með því að hafa samband við Pétur Bjarnason eða Sólrúnu Harðardóttur. Jafnframt er hægt að ganga í félagið með því að hringja í síma Hólaskóla. Hólamannafélag- ið endurvakið

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.