Morgunblaðið - 06.12.2002, Page 8
FRÉTTIR
8 FÖSTUDAGUR 6. DESEMBER 2002 MORGUNBLAÐIÐ
Það fer ekkert á milli mála að hún hefur orðið ó, og það framhjá hr. Davíð. Þú átt ekkert í
þessu skoffíni.
Samtök um kvennaathvarf 20 ára
Öruggt skjól,
ráðgjöf og við-
töl í boði
SAMTÖK umkvennaathvarf erututtugu ára um
þessar mundir og þar hef-
ur mikið og gott starf ver-
ið innt af hendi af ósér-
hlífnum einstaklingum.
Nánar tiltekið; Samtökin
urðu tuttugu ára fyrr á
árinu, eða í júní, en í dag
eru nákvæmlega tuttugu
ár síðan Kvennaathvarfið
sjálft var opnað.
Formaður Samtaka um
kvennaathvarf er Elín
Sigurðardóttir og svaraði
hún nokkrum spurningum
Morgunblaðsins í tilefni
þessa afmælisdags.
– Að hvers frumkvæði
voru Samtök um kvenna-
athvarf stofnuð og hver
var aðdragandi þess?
„Frumkvæðið áttu konur úr
ýmsum kvennahreyfingum, svo
og konur sem höfðu orðið fyrir
heimilisofbeldi sjálfar eða kynnst
áhrifum þess í gegnum störf sín.
Þetta var árið 1982 og um það
leyti var umræðan um heimilis-
ofbeldi að opnast. Kvennaathvörf
höfðu verið opnuð á Norðurlönd-
unum og þetta var einn liður í því
að bæta stöðu kvenna.
Markmiðið var, og er, að reka
annars vegar athvarf fyrir konur
sem verða fyrir andlegu og/eða
líkamlegu ofbeldi og hins vegar
fyrir konur sem hafa orðið fyrir
nauðgun. Samtök um kvennaat-
hvarf voru stofnuð 2. júní 1982 og
hinn 6. desember sama ár var
fyrsta kvennaathvarfið opnað á
Íslandi. Norðlenskar konur opn-
uðu síðan kvennaathvarf á Akur-
eyri 1984 en það var aðeins starf-
rækt í eitt ár enda kom í ljós að
konur utan af landi kjósa frekar
að leita sér hjálpar utan eigin
heimabyggðar. Hins vegar að-
stoðum við konur utan af landi við
að koma til okkar, ef þörf er á.“
– Hverju hefur Kvennaathvarf-
ið og Samtök um kvennaathvarf
breytt á tuttugu árum?
„Tilkoma Kvennaathvarfsins
hefur þýtt að nú eiga konur alltaf
kost á öruggu skjóli ef þær þurfa
að flýja heimilisofbeldi. Óbein
áhrif eru þó kannski ekki minni,
því umræðan opnaðist og nú ger-
um við okkur betur grein fyrir því
að ofbeldi þarf ekki að vera lík-
amlegt til þess að vera óbærilegt,
hið andlega ofbeldi er ekki síður
erfitt og það er líka miklu lúmsk-
ara. Starfsfólk Kvennaathvarfs-
ins er í auknum mæli að aðstoða
konur við að takast á við andlegt
ofbeldi og gera þeim grein fyrir
ýmsum birtingarmyndum þess.“
– Er ástandið betra í dag, tutt-
ugu árum seinna, en þegar Sam-
tök um kvennaathvarf settu á
stofn Kvennaathvarfið?
„Ástandið er öðru vísi í dag.
Það fléttast fleiri þættir inn í mál-
ið og aukin vímuefna-
neysla hefur haft mikil
áhrif. Það góða er hins
vegar að ef konur vilja
losna úr viðjum heim-
ilisofbeldis er miklu
meiri og fjölbreyttari
aðstoð og stuðning að fá en áður
var og við sjáum mjög mörg
dæmi þess að konum hefur tekist
að breyta lífi sínu og barna sinna
til hins betra.“
– Í hverju er þjónusta Kvenna-
athvarfsins helst fólgin?
„Auk þess að reka athvarf fyrir
konur þegar þær þurfa að yfir-
gefa heimili sín, er rekin viðtals-
þjónusta sem gefur konum kost á
að vinna sig út út heimilisofbeld-
inu án þess að fara burt af heim-
ilinu. Við erum líka með neyðar-
síma sem svarað er í allan
sólarhringinn. Kvennaathvarfið
stendur líka fyrir ýmiss konar
fræðslu um heimilisofbeldi og
tekur þátt í forvarnarstarfi eftir
því sem hægt er. Einnig erum við
með Opið hús fyrir konur sem
hafa leitað til okkar. Við höfum
safnað saman miklum upplýsing-
um alveg frá opnun athvarfsins
sem við gerum skil í ársskýrsl-
unum okkar. Það má taka fram að
ársskýrslurnar, auk alls konar
upplýsinga og fróðleiks, er að
finna á heimasíðunni okkar sem
er www.kvennaathvarf.is.“
– Fjölgar þeim konum stöðugt
sem leita til ykkar vegna ofbeldis
af ýmsum toga?
„Konum sem koma til dvalar
fjölgar ekki en mjög mikil aukn-
ing er í viðtölum og það er eina
breytingin sem við sjáum í starf-
seminni.“
– Hvers vegna heldurðu að það
sé?
„Því er erfitt að svara en kann
að stafa af auknum úrræðum fyr-
ir konur. Hins vegar er ekki
minna af líkamlegu ofbeldi nú en
verið hefur, en andlegt ofbeldi
hefur orðið sýnilegra og auðveld-
ara er fyrir konur að vinna gegn
því án þess að fara af heimilinu.
Við leggjum einmitt mikla
áherslu á það í allri okkar fræðslu
og umfjöllun að andlegt ofbeldi er
ekki síður ofbeldi en líkamlegt of-
beldi.“
– Er virkilega ekkert hægt að
gera … situr þjóðfélagið uppi
með stöðugt heimilisofbeldi?
„Því miður virðist
það vera. Það eina sem
við getum gert er að
halda áfram að miðla
fræðslu og halda úti
umfjöllun. Hjálpa kon-
um að opna sig og
þekkja teiknin snemma í sam-
bandinu.“
– Á hvaða hátt ætlið þið að
halda upp á tuttugu árin?
„Við munum fyrst og fremst
minnast tímamótanna með veg-
legri ársskýrslu sem kemur út
eftir áramótin og næsti aðalfund-
ur verður nokkurs konar hátíð-
arfundur.“
Elín Sigurðardóttir
Elín Sigurðardóttir er fædd í
Reykjavík 31. ágúst 1967. Hún
starfar sem prentsmiður hér í
borg og er einnig formaður Sam-
taka um kvennaathvarf. Hún á
tvö börn, Hávarr 9 ára og Berg-
ljótu 7 ára.
… nú eiga
konur alltaf
kost á öruggu
skjóli