Morgunblaðið - 06.12.2002, Page 76
MORGUNBLAÐIÐ, KRINGLUNNI 1, 103 REYKJAVÍK, SÍMI 569 1100, SÍMBRÉF 569 1181, PÓSTHÓLF 3040,
ÁSKRIFT-AFGREIÐSLA 569 1122, NETFANG: RITSTJ@MBL.IS, AKUREYRI: KAUPVANGSSTRÆTI 1 FÖSTUDAGUR 6. DESEMBER 2002 VERÐ Í LAUSASÖLU 190 KR. MEÐ VSK.
SAMKVÆMT leiðréttum tölum Hagstofu
Íslands um hag fiskveiða á síðasta ári nam
hreinn hagnaður fiskveiða um 9,1 milljarði
króna sem er
um 12% af
tekjum, sam-
kvæmt árs-
greiðsluaðferð
og 6% ávöxtun
stofnfjár. Í
leiðréttu yfir-
liti kemur fram
að hreinn
hagnaður sem hlutfall af tekjum er mestur
hjá frystitogurum eða 17,4% af tekjum en
tekjur frystitogara námu alls um 23,7 millj-
örðum á síðasta ári. Í yfirlitinu sem birtist á
föstudag fyrir viku vantaði um 2,8 milljarða
króna í launalið fiskiskipaflotans, undir liðn-
um önnur laun. Leiðréttingin veldur mestri
breytingu á launalið báta undir 10 tonnum,
breytist úr 498 milljónum króna í 1.354 millj-
ónir króna. Það veldur því að hreinn hagn-
aður smábáta sem hlutfall af tekjum breyt-
ist úr 23,5% í 13,2%.
Frystitog-
ararnir hag-
kvæmastir
Frystitogarar/14
8
9, &' 0 9, : &' 0 9, : %'' 0 0,
5 >:
N
? @ 5+
VERKTAKAFYRIRTÆKIN E.
Pihl&Søn og Ístak eru í sam-
starfi við breska fyrirtækið
Balfour Beatty Major Projects
um tilboð í aðrennslisgöng Kára-
hnjúkavirkjunar. Marjorie Hoop-
er, upplýsingafulltrúi Balfour
Beatty, staðfesti þetta í samtali
við Morgunblaðið í gær. Páll Sig-
urjónsson, forstjóri Ístaks, vildi
ekkert tjá sig um málið, sagði
það skýrast í dag hvaða fyrirtæki
skiluðu inn tilboðum hjá Lands-
virkjun.
Breska fyrirtækið var eitt
þeirra sem valin voru til þátttöku
í útboði á stíflu virkjunarinnar og
aðrennslisgöngum. Í einum verk-
takahópanna sem hugðust bjóða í
göngin hafa tvö fyrirtæki hætt
við, Skanska og nú franska fyr-
irtækið Vinci, og eftir stóðu E.
Pihl&Søn og Ístak. Tveir verk-
takahópar til viðbótar fengu út-
boðsgögn, annars vegar ítalska
fyrirtækið Impregilo S.p.A. og
taki. Upplýsingafulltrúi Skanska,
Peter Gimbe, sagði við Morgun-
blaðið í gær að útboðsgögn vegna
Kárahnjúkavirkjunar hefðu verið
vandlega skoðuð og málið metið
frá öllum hliðum. Að lokinni
þeirri vinnu hefði áhættan verið
metin það mikil við verkefnið að
ekki hefði verið talin ástæða til
að vera með í tilboðsgerðinni.
Gimbe vildi ekki fara nánar út í
það hvaða áhættuþættir hefðu
ráðið mestu þar um. Hann sagði
að almennt í útboðum sem þess-
um þyrfti fyrirtækið að taka tillit
til tæknimála, fjármála, umhverf-
ismála og siðferðilegra þátta.
Kai Krüger Henriksen, einn
forstjóra Veidekke, vildi í samtali
við Morgunblaðið ekki upplýsa
um ástæðu þess að fyrirtækið
hætti þátttöku í hópnum með
Skanska, Pihl&Søn og Ístaki.
Það væri í virðingarskyni við þau
fyrirtæki sem eftir stæðu í hópn-
um.
hins vegar Íslenskir aðalverktak-
ar og þýska fyrirtækið Hochtief,
sem þar til á miðvikudag voru í
hópi með NCC International AS.
Búist er við að fyrrnefndir verk-
takahópar bjóði einnig í stíflu-
gerðina en í þeim verkþætti kom
AF-Gruppen til liðs við Ístak og
E. Pihl&Søn í stað Skanska og
Veidekke.
Áhættan of mikil
að mati Skanska
Líkt og hjá NCC International
réð áhættan við gerð Kára-
hnjúkavirkjunar einnig töluverðu
um að sænska verktakafyrirtæk-
ið Skanska AS hætti við að gera
tilboð í stíflu og aðrennslisgöng
virkjunarinnar, en tilboð verða
opnuð í dag í stjórnstöð Lands-
virkjunar við Bústaðaveg. Tals-
maður Veidekke ASA í Noregi
vill ekki gefa upp ástæður þess
að fyrirtækið hætti við tilboð í
stífluna ásamt Pihl&Søn og Ís-
Franska fyrirtækið Vinci býður ekki í aðrennslisgöng
Kárahnjúkavirkjunar en tilboð verða opnuð í dag
Bretar í samstarfi við
Ístak og Pihl&Søn
BAUGUR ID, dótturfélag Baugs Group hf.,
hefur keypt 20% hlutafjár í fasteignafélag-
inu Stoðum hf. af Kaupþingi banka hf. og á
eftir kaupin samanlagt 44,25% hlutafjár
Stoða. Þá hefur fyrirtækið gert samning til
tveggja ára við Kaupþing um kauprétt á
21,4% hlutabréfa í Stoðum sem eru í eigu
Kaupþings. Áform Baugs eru að selja þau
bréf sem kaupréttur er á til innlendra eða
erlendra fjárfesta.
Stoðir eiga atvinnuhúsnæði á höfuðborg-
arsvæðinu. Í árshlutauppgjöri félagsins frá
miðju ári kemur fram að bókfært verð fast-
eigna félagsins sé tæpir 20 milljarðar króna.
Húsnæðið er samtals um 160 þúsund fer-
metrar að flatarmáli í 51 húseign. Baugur er
stærsti einstaki leigutakinn hjá Stoðum en
félagið leigir samtals um 27% af heildarhús-
eignum Stoða, mælt í flatarmáli. Næst þar á
eftir koma Flugleiðahótel ehf., sem leigja
um 19% af húseignum Stoða.
Baugur kaupir 20%
hlut í Stoðum hf.
Bókfært verð
fasteigna tæpir
20 milljarðar
Baugur kaupir/16
MARÍA Á. Einarsdóttir
bókhaldari á alls 1.220
fingurbjargir úr öllum
heimshornum. Hún
byrjaði að safna fing-
urbjörgum fyrir 16 ár-
um og skráir þær allar
vandlega en engar tvær
eru eins. Í safni Maríu
er m.a. hekluð fing-
urbjörg, fingurbjörg úr
marsipani og fingurbjargir sem hún hefur
sjálf búið til.
Söfnunargleði Maríu eru annars lítil tak-
mörk sett því hún safnar líka þjóðbún-
ingadúkkum, á frímerkjasafn og einnig
vísi að kveikjarasafni.
María Á.
Einarsdóttir
Á 1.220
fingurbjargir
Safnar/B6
„ÉG þekkti Kristin nú ekkert,
þannig lagað,“ segir Bubbi
Morthens inntur eftir kynnum
sínum af
Kristni Sig-
mundssyni
í Voga-
hverfinu,
en þeir
koma fram
á Lista-
fléttu í
Langholts-
kirkju á
morgun. Fléttan ber yfir-
skriftina Krakkarnir í hverf-
inu. Þar koma fram fjölmargir
listamenn sem eiga það sam-
eiginlegt að hafa alist upp í
Vogahverfinu þegar það var
nýjasta hverfið í borginni.
Ingibjörg Sólrún Gísladóttir
borgarstjóri kynnir dag-
skrána. Ekki er ljóst hvort
þeir Kristinn og Bubbi taka
lagið saman, en af því gæti þó
orðið.
MINNSTU munaði að blikkklæðning á þaki Vest-
urbæjarlaugarinnar fyki út í buskann í heilu lagi í
rokinu sem setti mikið mark sitt á borgarlífið í gær.
Fyrir snarræði björgunarsveitamanna tókst að
fergja það í tæka tíð, en það stóð tæpt því klæðn-
ingin hafði þá þegar rúllast upp eins og lok á sard-
ínudós og hékk á bláþræði þegar tókst að festa
hana. Töluvert tjón varð á þakinu og verður
kvennaklefinn lokaður í dag, föstudag, vegna við-
gerða. Verður konum boðið upp á aðstöðu í gufu-
klefa og útiskýli fram yfir helgi. Þrátt fyrir
skemmdir raskast starfsemi laugarinnar lítið en þó
verður ekki unnt að hafa skólasund í dag. Búist er
við að allt verði komið í eðlilegt horf á mánudaginn.
Veðrið hafði sín áhrif á flug og lá mestallt innan-
landsflug niðri og röskun varð á millilandaflugi.
Tvær Flugleiðavélar, frá Frankfurt og Glasgow,
gátu ekki lent á Keflavíkurvelli vegna veðurs og
var snúið frá þangað til veður lægði.
Björgunarsveitarmenn höfðu í nógu að snúast og
þá var Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins kallað út
fimm sinnum vegna vatnsleka.
15 stiga hiti á Sauðanesvita
Vindstyrkurinn í Reykjavík var dottinn niður í 13
m/sek í gærkvöldi kl. 21 með 10 stiga hita, en þó
var veðrið á Akureyri enn betra; 13 stiga hiti og 10
m/sek. Líklega hefur þó hvergi verið hlýrra en á
Skjaldþingsstöðum og Sauðanesvita, en þar var 15
stiga hiti á báðum stöðum kl. 21.
Morgunblaðið/Júlíus
Smiðir og björgunarsveitarmenn unnu hörðum höndum að því að festa niður þakplötur á Sundlaug Vesturbæjar.
Sundlaugarþakinu
bjargað á síðustu stundu
Þakplötur losnuðu/6
Bubbi, Krist-
inn og hinir
krakkarnir
úr hverfinu
Það voru bara svo/32
Kristinn Sigmunds-
son með vænan fisk.
♦ ♦ ♦
♦ ♦ ♦