Morgunblaðið - 27.12.2002, Qupperneq 8

Morgunblaðið - 27.12.2002, Qupperneq 8
FRÉTTIR 8 FÖSTUDAGUR 27. DESEMBER 2002 MORGUNBLAÐIÐ Vetrarstarf Fuglaverndarfélagsins Málsvari íslenskra fugla VETRARSTARFFuglaverndar-félagsins er hafið og þar er gróskumikið starf á ferðinni. Áhuga- menn um fugla eru í ýmiss konar stússi myrku mán- uðina þótt margir af fugl- um landsins yfirgefi það á haustin, t.d. er nú á dag- skrá jólatalning fugla. Jó- hann Óli Hilmarsson er formaður Fuglaverndar- félagsins. – Fyrir hvað stendur Fuglaverndarfélag Ís- lands? „Ég held að þessu sé best svarað með því að vitna í lög félagsins, þar stendur í 2. grein: „Til- gangur félagsins er vernd- un fugla og búsvæða þeirra, sérstaklega tegunda sem eru í útrýmingarhættu á Íslandi.“ Í 4. grein stendur síðan: „Til- gangi sínum mun félagið ná: 1) með því að vekja áhuga lands- manna fyrir fuglalífi landsins með fræðslustarfsemi, 2) með því að vinna með innlendum og erlend- um fugla- og náttúruverndarsam- tökum sem hafa svipuð markmið og Fuglaverndarfélag Íslands, 3) með því að aðstoða og standa að rannsóknum á fuglum og bú- svæðum þeirra og 4) með því að koma fram gagnvart stjórnvöld- um landsins og öðrum aðilum í þeim málum, sem lúta að mark- miðum félagsins.“ – Hvað eru félagar marg- ir … og hvernig geta menn skráð sig? „Félagar eru nú hátt í 500. Það er markmið okkar að fjórfalda þá tölu á næstu árum. Það háir okk- ur nokkuð að hafa ekki getað ráð- ið starfsmann til að halda utan um starfsemina en nær allt starf er unnið í sjálfboðavinnu. Hægt er að skrá sig á heimasíðunni fuglavernd.is og með tölvupósti í fuglavernd@fuglavernd.is.“ – Segðu okkur frá vetrardag- skrá félagsins? „Við stöndum fyrir fræðslu- fundum, rabbfundum, fuglaskoð- unarferðum, garðfuglatalningu, gefum út fréttabréf, jólakort, er- um aðilar að fuglatímaritinu Blika og fleira. Félagið verður fertugt á næsta ári og þá stendur til að gefa út veglegt afmælisrit. Það er best að fylgjast með dag- skránni á heimasíðunni okkar.“ – Myndirðu segja að félagið væri öflugt og frjótt? „Félagið er virkt í hinni eilífu baráttu fyrir fugla- og búsvæða- vernd. Við vorum sennilega fyrst til að vekja athygli á endurheimt votlendis. Við höfum líka tekið virkan þátt í baráttunni fyrir vernd Mývatns, Eyjabakka, Þjórsárvera og nú síðast Austur- lands. Það er þó ekki svo að skilja að félagið sé almennt á móti virkjunum, eins og oft er haldið fram. Við mótmæltum t.d. ekki Sultartanga- og Búðarhálsvirkj- un, eða minni útgáfu Vatnsfellsvirkjunar. Ég reikna heldur ekki með andstöðu gegn Núps- eða Urriðafoss- virkjun í Þjórsá. Ógnir við mikilvægar fugla- byggðir í Þjórsárverum og við Mývatn, ásamt hinni gífurlegu óafturkræfu eyðileggingu sem fylgir Kárahnjúkavirkjun, er það sem við leggjumst gegn. Þjóð- garður á NA-hálendinu, án virkjunar, mundi skapa jafnmörg og mikilvægari störf til langs tíma litið heldur en virkjun og álver, sem við álítum órétt- lætanlega skammtímalausn. Félagið er aðili að Alþjóða- fuglaverndarsamtökunum Bird- Life International og tökum við þátt í starfi samtakanna, sem hafa innan sinna vébanda yfir 2,6 milljónir félaga frjálsra félaga- samtaka í 103 löndum. Auk þess störfum við náið með öðrum inn- lendum og erlendum systursam- tökum, eins og Náttúruverndar- samtökunum og Landvernd.“ – Nú er framundan svokölluð vetrartalning fugla, segðu okkur eitthvað frá henni … „Vetrartalningin eða jólataln- ingin eins og hún er oft kölluð, er framkvæmd víða á norðurhveli í svartasta skammdeginu. Hún er nú haldin í 50. sinn. Það var Finn- ur Guðmundsson sem ýtti henni úr vör og hefur Náttúrufræði- stofnun séð um skipulagið alla tíð. Á annað hundrað fuglaáhuga- menn um land allt taka þátt, flestir telja á strandsvæðum, mest er venjulega af fuglum við sjávarsíðuna á veturna, en all- margir telja einnig á svæðum inn til landsins.“ – Hversu mikilvægar eru þess- ar talningar? „Þær eru mjög mikilvægar til þess að fylgjast með stofnsveifl- um hjá þeim fuglum sem hafa hér vetrardvöl. Það er t.d. hægt að grípa til ráðstafana ef fækkun verður í stofni. Menn urðu t.d. varir við að svartbaki var farið að fækka verulega í vetrartalningum og var hann í framhaldi af því settur á válista. Einnig fyrir þá sem eru að rannsaka ákveðna staði, t.d. í kringum mat á umhverfisáhrif- um eða við skipulags- vinnu. Það eru oftast sömu menn sem telja á sömu svæðunum ár eftir ár. Þeir eru orðnir vel þjálfaðir og því er samanburður raunhæfur milli ára. Það er helst að veður geti haft áhrif á niðurstöðurnar. Helsti ljóður á framkvæmd taln- inganna er, hversu illa gengur að vinna úr gögnunum og koma þeim út, það angrar bæði talning- armenn og þá sem þurfa að nota talningargögnin. Jóhann Óli Hilmarsson  Jóhann Óli Hilmarsson er fæddur í Reykjavík 1954, en býr nú á Stokkseyri. Hefur starfað um árabil sem sjálfstæður fugla- fræðingur og fuglaljósmyndari og hefur m.a. ritað og mynd- skreytt bókina Íslenskur fugla- vísir. Hann hefur verið formaður Fuglaverndarfélags Íslands frá árið 1998, setið í stjórn þess frá 1987 og verið félagi frá 1971. Jó- hann á eina dóttur, Oddnýju Össu. Mikilvægar til að fylgjast með stofn- stærðum YFIRRÉTTUR í Hollandi hefur fallist á að framselja íslenskan karlmann til landsins en hann er grunaður um aðild að smygli á fimm kílóum af amfetamíni og 150 grömmum af kókaíni til landsins. Lögreglan í Reykjavík lagði hald á fíkniefnin við húsleit í jan- úar en þetta er mesta magn am- fetamíns sem lögregla á Íslandi hefur lagt hald á. Styrkleiki efnis- ins var auk þess svo mikill að talið er að drýgja hefði mátt efnið þre- falt ef ekki fjórfalt. Miðað við það má gera ráð fyrir að götuverðmæti amfetamínsins hafi verið hátt í 20 milljónir króna. Þrír karlmenn og kona voru handtekin í tengslum við rannsókn málsins hér á landi. Einn þeirra gekkst við því að hafa átt fíkniefn- in og fengið þau send frá mann- inum sem þá var búsettur í Þýska- landi. Hann sagðist áður hafa tekið við fíkniefnum frá honum, m.a. einu kílói af amfetamíni og 300 grömmum af kókaíni og ótil- greindu magni af e-töflum. Handtekinn á hóteli í Amsterdam Farið var fram á framsal á manninum á grundvelli þessa máls og tveggja annarra fíkniefnamála sem maðurinn tengist. Eldri málin tvö snúast bæði um innflutning á kókaíni, m.a. frá Mexíkó en í þeirri sendingu voru tæplega 700 grömm af kókaíni. Þar sem maðurinn hef- ur bæði íslenskan og þýskan rík- isborgararétt féllust þýsk stjórn- völd ekki á að framselja hann. Eftir að maðurinn fór yfir landa- mærin til Hollands tókst að hand- taka hann á hóteli í Amsterdam og segir Ásgeir Karlsson, yfirmaður fíkniefnadeildar lögreglunnar í Reykjavík, að sú aðgerð hafi tekist afar vel vegna góðrar samvinnu lögreglunnar í Reykjavík, alþjóða- deildar ríkislögreglustjóra og lög- reglunnar í Amsterdam. Maðurinn neitaði að fara sjálfviljugur til Ís- lands en nú hefur undir- og yf- irréttur fallist á framsalið. Búast má við að maðurinn verði fluttur til landsins á næstu dögum eða vikum. Þrír karlmenn og kona voru handtekin á Íslandi í tengslum við rannsókn málsins og voru þau úr- skurðuð í gæsluvarðhald að kröfu lögreglunnar. Mistök í reglugerð Eftir að fólkið var handtekið kom í ljós að vegna mistaka við gerð nýrrar reglugerðar var ekki merkt við að bannað væri að nota amfetamín sem ávana- eða fíkni- efni. Á þessum forsendum var mann- inum sem viðurkenndi að hafa tek- ið við fíkniefnunum hér á landi sleppt úr gæsluvarðhaldi. Þessum mistökum var kippt í liðinn þegar heilbrigðisráðherra gaf út nýja reglugerð 27. mars sl. Grunaður um aðild að umfangsmiklu fíkniefnasmygli Hollenskir dómstólar hafa fallist á framsal TUTTUGU sveitarfélög fá allt að 80% tekna sinna frá jöfnunarsjóði sveitarfélaga og 59 sveitarfélög fá 50–80% tekna úr sjóðnum. Alls nema framlög úr sjóðnum meira en helmingi tekna hjá 79 sveit- arfélögum. Þetta kemur fram í máli Hermanns Sæmundssonar, ráðuneytisstjóra í félagsmála- ráðuneytinu, í Sveitarstjórnar- málum. Hermann var einn af þeim sem unnu með nefnd sem félagsmála- ráðherra skipaði í upphafi síðasta árs til að endurskoða lög um tekjustofna sveitarfélaga. Í greininni í Sveitarstjórnar- málum kemur fram að nefndin hafi staðið frammi fyrir tveimur kostum, að gera róttækar breyt- ingar á á starfsemi jöfnunarsjóðs sveitarfélaga eða laga núverandi kerfi að breyttum forsendum og varð síðari kosturinn fyrir valinu. Í máli Hermanns kemur og fram að jöfnunarkerfi íslenskra sveit- arfélaga gegni almennt minna hlutverki en jöfnunarkerfi á hin- um Norðurlöndunum og þá sé heldur ekki gengið eins langt í jöfnun á milli sveitarfélaga hér og þar. Tugir sveitarfélaga með helming tekna úr jöfnunarsjóði STEFNT er að því að Byrgið, kristi- legt líknarfélag, sem veitir endur- hæfingarmeðferð fyrir vímuefna- neytendur, flytji starfsemi sína úr yfirgefinni ratsjárstöð varnarliðsins í Rockville, að Brjánsstöðum í Skeiðahreppi innan 6 mánaða. Ekki hefur verið gengið frá húsnæðis- kaupunum, en Guðmundur Jónsson, forstöðumaður Byrgisins, segir nokkuð öruggt að Byrgið flytjist að Brjánsstöðum, skammt frá Selfossi. Húsin voru reist fyrir hótelstarf- semi og er rými á 2 þúsund fermetr- um, í alls sjö misstórum húsum og segir Guðmundur húsakostinn henta vel undir starfsemi Byrgisins. Þar er gert ráð fyrir plássi fyrir 80 manns í eftirmeðferð og er ástand húsanna gott. Andvirði Brjánsstaða er um 150 milljónir króna samkvæmt sölu- skrá og greiðir ríkið þá upphæð. Byrgið að Brjánsstöðum

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.