Morgunblaðið - 27.12.2002, Blaðsíða 16

Morgunblaðið - 27.12.2002, Blaðsíða 16
LISTIR 16 FÖSTUDAGUR 27. DESEMBER 2002 MORGUNBLAÐIÐ JÓNAS Guðmundsson tenór og Magnús Ragnarsson organisti efna til tónleika í Langholtskirkju kl. 12 á morgun, laugardag. Flutt verður blanda af orgelverkum og söng- lögum eftir Gunnar Reyni Sveins- son, Sigvalda Kaldalóns, Stradella, Setchell, Tegnér, Bach, Gounod og César Franck. Þeir Jónas og Magnús eru báðir við framhaldsnám á sínu sviði og þekkjast vel. Á tónleikunum munu þeir leika jólatónlist auk þess að gefa sýnishorn af því sem þeir eru að glíma við í náminu. „Jónas er hörkutenór og mun hann syngja sína háu tóna í nokkrum verkanna. Ég ætla að flytja nokkur viðamikil orgelverk. Þannig ætlum við að reyna að „monta“ okkur dálítið,“ segir Magnús og hlær ásamt Jón- asi. Efnisskráin samanstendur af orgelverkum og sönglögum á víxl. Magnús segist leitast við að sýna ákveðna breidd í orgelflutn- ingnum, þó svo að barokktónlistin henti best fyrir orgelið í Lang- holtskirkjunni. „Við munum byrja á að flytja íslensk verk. Ég mun flytja Jesú mín morgunstjarna á orgelið og Jónas mun syngja Ave Maríu Kaldalóns. Við höldum okk- ur við jólastemmninguna framan af en færum við okkur yfir í stærri og viðameiri verk eftir því sem á líður á tónleikana.“ Magnús stundar framhaldsnám við kirkjutónlistardeild Tónlistar- háskólans í Gautaborg og hefur tekið að sér ýmis verkefni sam- hliða náminu. Hann stýrði m.a. flutningi á Messu fyrir einsöngv- ara og kór eftir Jakob Jan Ryba, en verkið hafði ekki verið flutt í Svíþjóð fyrr og vakti mikla athylgi. „Námið er mjög fjölbreytt og þarf maður að öðlast kunnáttu á nokk- uð mörgum sviðum. Ég hef þó að- allega lagt áherslu á orgeleinleik, kór- og hljómsveitarstjórn.“ Jónas leggur stund á söngnám hjá Wagnersöngvaranum Reiner Goldberg við Hanns Eisler- tónlistarháskólann í Berlín. Hann hefur komið fram sem einsöngvari á fjölmörgum tónleikum, bæði er- lendis og hér á landi. Í sumar söng hann t.a.m. atriði úr Rigoletto á Open Air-tónleikum í Berlín og var veitt viðurkenning Berliner Salon sem einn af efnilegri söngnem- endum borgarinnar. Nú fyrir jólin söng hann svo íslensk jólalög á jólatónleikum á vegum Berliner Salon í Berliner Dom. Tónleikarnir á morgun verða þeir fyrstu sem þeir Magnús og Jónas halda saman opinberlega. „Við höfum reyndar oftsinnis sungið saman í kór, og einhverju sinni bjargaði Magnús mér fyrir horn með því að leika undir hjá mér á masterclass-námskeiði eftir að ég hringdi í hann með dags fyr- irvara,“ segir Jónas og bætir því við að hugmyndin um að halda saman tónleika hafi komið upp hjá þeim Magnúsi í gegnum þau sam- skipti og önnur sem þeir hafa átt á námstímanum. „Þetta verður skemmtileg blanda af klassískum kirkjutónsmíðum og jólalögum. Við ákváðum að halda tónleikana milli jóla og nýárs og gefa fólki kosti á að bregða sér á klukkutíma langa hádegistónleika milli jóla- boðanna,“ segir Jónas að lokum. Háir og djúpir tónar í Lang- holtskirkju Morgunblaðið/Golli Magnús Ragnarsson og Jónas Guðmundsson. SÝNINGAR í Þjóðmenningar- húsi eru opnar um hátíðarnar frá 11–17 dagana 27., 28., 29. og 30. desember. Ókeypis er á sýningar á sunnudögum. Sýningar í húsinu er: Hand- ritin – sýning Árnastofnunar, Íslandsmynd í mótun – áfang- ar í kortagerð, Skáld mánaðar- ins í Bókasal er sr. Einar Sig- urðsson í Eydölum, sá sem samdi m.a. Nóttin var sú ágæt ein. Landnám og Vínlandsferðir, Þjóðfundarbókin frá 1851, Sýningar í fundarstofum um Jón Sigurðsson, Hannes Haf- stein ráðherra, tónlist og leik- list eru opnar á sunnudögum. Opnunar- tími Þjóð- menningar- hússins Sólarljóð og vitr- anir annarlegra heima er fræðirit eftir Hermann Pálsson, fyrrver- andi prófessor í Edinborg. Her- mann hafði búið bók þessa til út- gáfu þegar hann lést í ágúst síðast- liðnum. Í bók sinni fjallar Hermann um Sól- arljóð í ljósi annarra fornrita, bæði rita í bundnu máli og lausu, frumsaminna og þýddra, veraldlegra og kristinna. Sólarljóð eru kveðskapur sem ortur var á Íslandi í kaþólskum sið. Útgefandi er Hof og Bókaforlagið Bjartur annast dreifingu. Fræðirit Hermann Pálsson

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.