Morgunblaðið - 27.12.2002, Blaðsíða 24

Morgunblaðið - 27.12.2002, Blaðsíða 24
MINNINGAR 24 FÖSTUDAGUR 27. DESEMBER 2002 MORGUNBLAÐIÐ Ástkær eiginmaður minn, faðir, tengdafaðir, afi og langafi, HARALDUR SVEINSSON, Hlíðargötu 39, Sandgerði, verður jarðsunginn frá Safnaðarheimilinu Sandgerði í dag, föstudaginn 27. desember, kl. 14.00. Sigurbjörg Guðmundsdóttir, Guðmundur G. Haraldsson, Majbritt Haraldsson, Guðbjörg Haraldsdóttir, Skúli Guðmundsson, Sigrún H. Haraldsdóttir, Hjálmar Georgsson, Haraldur B. Haraldsson, Arna S. Árnadóttir, Helgi Haraldsson, Helga Sigurðardóttir, barnabörn og barnabarnabarn. Okkar ástkæri eiginmaður, faðir, tengdafaðir, sonur, tengdasonur og bróðir, JÓN GUNNAR ÞÓRMUNDSSON múrarameistari, Borgarholtsbraut 46, Kópavogi, sem lést þriðjudaginn 17. desember, verður jarðsunginn frá Kópavogskirkju mánudaginn 30. desember kl. 13.30. Jóhanna S. Hannesdóttir, Hannes Sigurbjörn Jónsson, Bergþóra Sigurjónsdóttir, Halldór Gunnar Jónsson, Auður M. Guðmundsdóttir, Heimir Snær Jónsson, Þórmundur Hjálmtýsson, Hólmfríður Jónsdóttir, Hannes Halldórsson, María Steinþórsdóttir og systkini hins látna. Okkar ástkæra, HINRIKA HALLDÓRSDÓTTIR, Miðvangi 143, Hafnarfirði, verður jarðsungin frá Víðistaðakirkju í dag, föstudaginn 27. desember, kl. 13.30. Blóm og kransar vinsamlega afþakkaðir, en þeim, sem vilja minnast hennar, er bent á hjálparstarf Rauða Kross Íslands. Sigurður Þórðarson, Sigríður Sigurðardóttir, Bjarni Þór Gunnlaugsson, Rannveig Sigurðardóttir, Björn Arnar Magnússon, Birgir Sigurðsson, Svava Dröfn Bragadóttir, Hinrika og Steinunn Bjarnadætur, Sigurður Darri og Salvör Svanhvít Björnsbörn, Sunna Dís Birgisdóttir. Móðir mín, tengdamóðir, amma og lang- amma, BJÖRG BENEDIKTSDÓTTIR, Barkarstíg 1, Akureyri, lést á Fjórðungssjúkrahúsinu á Akureyri mánu- daginn 23. desember. Elsa Lára Svavarsdóttir, Hannes Steingrímsson, Svavar Hannesson, Sigurlaug Adólfsdóttir, Steingrímur Hannesson, Erla Elísabet Sigurðardóttir, Sara, Adólf og Guðrún Margrét. Systir okkar og mágkona, RAGNHEIÐUR EIRÍKSDÓTTIR, Egilsseli, lést á Sjúkrahúsinu á Egilsstöðum miðvikudag- inn 18. desember. Útförin fer fram frá Egilsstaðakirkju laugar- daginn 28. desember kl. 14. Þeim, sem vilja minnast hennar, er bent á Sjúkrahúsið á Egilsstöðum. Sölvi Eiríksson, Þórey Eiríksdóttir, Björgheiður Eiríksdóttir, Sverrir Guðmundsson, Bryndís Eiríksdóttir, Rósa Eiríksdóttir, Davíð Guðmundsson og fjölskyldur. Ástríkur eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir og afi, BJARNI ÁSGRÍMUR JÓHANNSSON, Víðilundi, sem lést mánudaginn 16. desember, verður jarðsunginn frá Hofsósskirkju laugardaginn 28. desember kl. 14. Ingibjörg Jónsdóttir, Kristín Bjarnadóttir, Eiríkur Frímann Arnarsson, Jóhann Bjarnason, Laufey Guðmundsdóttir, Ragnheiður Bjarnadóttir, Halldór Hauksson, Jón Bjarnason, Bergþóra Ragnarsdóttir og barnabörn. ✝ Hinrika Hall-dórsdóttir fædd- ist á Ísafirði 6. maí 1942. Hún lést á Landspítalanum – Háskólasjúkrahúsi hinn 18. desember síðastliðinn. Foreldr- ar hennar voru hjón- in Halldór Ásgeirs- son frá Súðavík og Rannveig Svanhvít Benediktsdóttir frá Ísafirði. Systkin Hin- riku eru: Kristjana, Anna, Steinþór, Sig- ríður, d. 1984, hálf- systir Jóhanna og uppeldissystk- in eru Sigurborg og Halldór. Hinn 7. ágúst 1965 giftist Hin- rika eftirlifandi eiginmanni sín- um Sigurði Þórðarsyni. Börn þeirra eru: Sigríður, f. 1966, maki Bjarni Þór og eiga þau dæturnar Hinriku, f. 1991, og Steinunni, f. 1994; Rannveig, f. 1967, maki Björn Arnar og eiga þau börnin Sigurð Darra, f. 1996, og Salvöri Svanhvíti, f. 1998; Birgir, f. 1973, í sambúð með Svövu Dröfn og eiga þau dótturina Sunnu Dís, f. 2001. Hinrika lauk landsprófi frá Laug- arnesskóla 1958 og prófi frá Samvinnu- skólanum á Bifröst 1960. Starfaði hún við skrifstofu- störf, m.a. hjá Heildsversluninni Ágúst Ármann og Sparisjóði Hafnarfjarðar. Útför Hinriku verður gerð frá Víðistaðakirkju í Hafnarfirði í dag og hefst útförin klukkan 13.30. Ekki veit ég hvernig við eigum að halda áfram án þín nema sú trú mín rætist að þú munir alltaf vaka yfir okkur og halda áfram að vera hluti af hinu daglega lífi okkar. Ekki leið sá dagur að við töluðum ekki oft saman í síma, kíktum í kaffi hvor til annarrar eða borðuðum kvöldmat saman. Í raun vorum við þeirrar meiningar og gerðum oft grín að því, að ég hefði aldrei farið að heiman þó ég gisti annars staðar. Hvergi leið mér betur en hjá þér og það sama má segja um dætur mínar Hinriku og Steinunni sem alltaf áttu góðan og ljúfan samastað á Mið- vanginum hjá þér og pabba. Nafna þín vissi nú ekkert betra en að fá frí frá látunum heima hjá sér, gista hjá þér, hafa það rólegt, spjalla við þig og bardúsa sitt af hverju með þér. Þegar ég hugsa til baka til upp- vaxtaráranna þá finnst mér mest um vert hvernig þú náðir alltaf að stýra okkur án þess að við vissum af því. Þú hlustaðir alltaf á allt sem okkur datt í hug, studdir okkur af heilum hug og náðir alltaf einhvern veginn að beina okkur á réttu braut- ina þó leynt færir þú að því. Alltaf vorum við systkinin viss um að hug- myndin og ákvörðunin hefði verið okkar þó hún hefði litið allt öðruvísi út í upphafi leiks. Við hlógum oft að þessu og máli mínu til stuðnings nefndi ég að þú hefðir náð að setja mig í Mondy-kjól þegar ég fermdist, Aigner-dragt þegar ég varð stúdent og Lauru Ashley-kjól þegar ég gift- ist. Sannleikurinn er nefnilega sá að ég var hippaklædd öll þessi ár og var þessi klæðnaður því síst í mín- um anda en … Ekki er hægt að rifja upp upp- vaxtarárin án þess að minnast þeirra reglna sem giltu á heimilinu. Enginn fékk að fara út úr húsinu nema að búa um rúmið og borða morgunmat. Allir þurftu að vera komnir heim kl. 7 og borða kvöld- mat. Við matarborðið var síðan farið yfir atburði liðins dags og málin rædd. Þetta voru alltaf bestu stund- ir dagsins. Á fimmtudagskvöldum var þrifið og var það alltaf frátekið enda höfðu sumir vina minna á þeim árum á orði hvort ástæðan væri sú að við héldum jólin um hverja helgi. Mamma bjó okkur fallegt og nota- legt heimili sem hún lagði mikla rækt við. Hún hafði alltaf auga fyrir fallegum hlutum og kenndi okkur að njóta þeirra. Á sumrin vann hún í garðinum, hlúði að honum og var hún nú síðast í haust að skipuleggja flutning trjáa, frágang á beðum og annað sem henni þótti að betur mætti fara. Þegar ég fór að „heiman“ til náms erlendis var mamma margar vikur að undirbúa brottförina. Það voru keypt handklæði, þvottapokar, viskustykki og rúmföt svo eitthvað sé nefnt og í allt var handsaumað SS. Síðan var pakkað niður og var ég með það mikinn farangur á end- anum að það hefði borgað sig að taka mömmu og pabba með mér út til að bera töskurnar heldur en að borga fyrir aukakílóin sem voru 180 talsins. En svona vildi mamma hafa þetta, enginn fór tómhentur frá henni. Á námsárunum kom mamma oft út að heimsækja mig og áttum við þar margar góðar stundir. Þegar við fluttum heim tók mamma okkur opnum örmum. Ekki taldi hún það eftir sér að minnka við sig vinnu til að geta gætt stelpnanna minna á meðan ég fór að vinna. Síð- an þá hafa þær eindregið óskað þess og sóst eftir að fá að vera í sem mestum samvistum við ömmu og afa og tel ég að sú ósk þeirra segi meir en mörg orð. Mamma var mikill bókaormur og leið ekki sá dagur að ekki væru lesnar nokkrar blaðsíður í góðri bók. Oft skiptumst við á bókum og eyddum miklum tíma í að ræða þær fram og til baka. Þeirra stunda verður sárt saknað. Þó mamma hafi stundum miklað hluti fyrir sér, gekk hún ákveðin til verks og aldrei var neitt skilið eftir hálfklárað. Allt sem hún tók sér fyr- ir hendur var snilldarlega leyst, sama hvort það var handavinna, eldamennska, bakstur, nám, vinna eða eitthvað af hinum daglegum störfum. Mamma gat alltaf gert gott og grín að öllu, sama hvað gekk á. Dug- legust var hún að gera grín að sjálfri sér. Sá eiginleiki hennar kom berlega í ljós í hennar stuttu og erf- iðu veikindum. Ekki veit ég hvað pabbi, við systkinin, tengdabörn og ömmubörn gerum án þín, en elsku mamma og mín kærasta vinkona, ég er viss um að einn engill hefur bæst í hópinn hjá Guði og þú hafir orðið fyrir val- inu fyrst svo þú gætir undirbúið komu okkar hinna. Þín verður óendanlega sárt sakn- að. Þín dóttir Sigríður. Það eru skrýtin örlög að sitja hér við jólaundirbúning og skrifa minn- ingargrein um móður mína. Hún var mikið jólabarn og ekki var slegið slöku við fyrr en allt var fullkomið bæði að innan og utan. Mér er það minnisstætt og finnst það lýsa hvernig manneskja hún var að ekki var hægt að halda neina veislu eða annan fögnuð nema allt væri þrifið hátt og lágt. Þegar kom að því að ég fermdist fór mamma í haminn sinn og allt var þrifið. Ekki hafði fermingarbarnið fullan skiln- ing á þessu og þegar allt var rifið úr skápum til að þrífa og viðra var mér víst spurn hvort ég ætti að fermast í skápum. Eftir að ég komst til ára og hef ef til vill öðlast meiri skilning á lífinu finnst mér hægt að heimfæra þetta upp á lífsgildi hennar. Það sem er innra, það sem undir bjó, og ekki síður bakhlið allra mála skipti hana ekki síður máli en það sem ytra var. Mamma var mikil vinur vina sinna og ekki síst okkar barna henn- ar og var hún mjög næm á líðan annarra og mátti ekkert aumt sjá. Það var mömmu mjög mikilvægt að allir væru sáttir og vinir. Mjög gott var að ræða málin við hana því hún var greind og raunsæ. Einnig gat hún séð skoplegu hliðina. Segja má að ekkert stórvægilegt hafi gerst í lífi okkar nema hafa rætt það fyrst við mömmu. Hún lék stórt hlutverk í lífi okkar, barna hennar. Nú er mamma komin til guðs og engla og er ég sannfærð um að hann muni fela henni hlutverk þar sem kostir hennar og gæska muni njóta sín. Það eina sem ég get gert er að gæta engla hennar hér. Mun ég af fremsta megni reyna að vera börn- um mínum eins góð móðir og hún var, – ég mun eflaust ekki leggja eins mikla áherslu á skápana en það veit hún líka best. Megi guð geyma þig og hvíl þú í friði. Rannveig Sigurðardóttir. Elskuleg tengdamóðir mín og vin- ur er látin. Ég á erfitt með að sjá hvernig við getum verið án Hinnu. Ég kynntist Hinnu fyrst þegar ég kom inn á heimili hennar fyrir 20 ár- um. Kvíði og örlítil feimni við að hitta foreldra kærustunnar hvarf eins og dögg fyrir sólu, um leið og ég hitti Hinnu og Sigga. Ég hafði það á til- finninguni að við Hinna hefðum allt- af þekkst, en slík var útgeislunin frá henni að manni leið alltaf vel í návist hennar. Mér var strax tekið sem einum af fjölskyldunni. Ég hafði þá þegar á tilfinningu að ég væri eitt af börnunum hennar, því að ef eitthvað var keypt eða gert fyrir krakkana var gert hið sama fyrir mig. Það er erfitt að lýsa Hinnu í fáum orðum, slíkum kostum var hún gædd. Hennar líf snerist fyrst og fremst um fjölskylduna, heimilið sem hún bjó þeim og ömmubörn- unum. Hinna var elskuð og dáð af öllum þeim börnum sem komust í kynni við hana, hún kom fram við þau af mikilli þolinmæði og sem jafningja. Dætur mínar, þær Hinrika og Stein- unn, nutu þess að vera sem mest í návist hennar. Ég tel mig mikinn gæfumann að hafa fengið að kynnast og umgang- ast Hinnu og þakka ég henni þau ár sem við áttum saman. Guð styrki Sigga, Siggu, Rann- veigu, Birgi og ömmubörnin í þeirra miklu sorg. Þinn vinur og tengdasonur, Bjarni Þór Gunnlaugsson. HINRIKA HALL- DÓRSDÓTTIR  Fleiri minningargreinar um Hin- riku Halldórsdóttur bíða birtingar og munu birtast í blaðinu næstu daga.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.