Morgunblaðið - 27.12.2002, Blaðsíða 37
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 27. DESEMBER 2002 37
Frábær grínmynd fyrir alla fjölskylduna
sem kemur öllum í jólaskap
Jólamyndin 2002
Kvimyndir.is
RadíóX
Sýnd kl. 1.40, 3.40, 5.50, 8 og 10.10. Sýnd kl. 8. Vit 485. Sýnd kl. 10. B.i. 16. Vit 487
AKUREYRI ÁLFABAKKI AKUREYRI
Y F I R 6 0 . 0 0 0 G E S T I R
ÁLFABAKKI AKUREYRI KEFLAVÍK
KEFLAVÍK
ÁLFABAKKI
Sýnd kl. 8 og 10.30.
Sýnd kl. 2, 4, 6, 8 og 10.10. Sýnd kl. 6, 8 og 10. Sýnd kl. 4.15, 6, 8 og 10. Vit 494 Sýnd kl. 2, 4, 6 og 8 ísl. tali. / Sýnd kl. 2, 3 og 5 ísl. tali. Sýnd kl. 7, 9 og 11 ensku tali. / Sýnd kl. 2, 4 og 6 ísl. tali.
EINNIG SÝND Í LÚXUS VIP Í ÁLFABAKKA KL. 6, 8 og 10.10. B. I. 16. VIT 495.
Sýnd kl. 2.
E I N N I G M E Ð Í S L E N S K U T A L I
ÁLFABAKKI KRINGLAN AK/KEFÁLFABAKKI AKUREYRI KEFLAVÍK
Stórkostlegt ævintýri
frá Disney byggt á hinu
sígilda og geysivinsælu
ævintýri um Gull Eyjuna
eftir Robert Louis
Stevenson
l i i
f i i
í il i i l
i i ll j
f i i
Vit 498
Sýnd kl. 6 og 9.15 með ensku tali. Sýnd kl. 2, 4 og 8 með íslensku tali. Sýnd kl. 6 og 9.15. Enskt tal. Sýnd kl. 2. Enskt tal
Missið ekki af mynd ársins á Íslandi
8 Eddu verðlaun
Sýnd með enskum texta kl. 17:45 til áramóta
Entar undir stjórn Trjáskeggs. Í
myndarlok eru engu að síður blikur á
lofti, stríðinu um hringana er fjarri
því að ljúka.
Ævintýrin verða tæpast tilkomu-
meiri á tjaldinu en Hringadróttins-
saga. Jackson er sem fyrr trúr rit-
verkinu og fylgir því eftir í smá-
atriðum og leysir hvern vandann af
öðrum með eftirminnilegum glæsi-
brag. Þannig gerir hann Gollrið, þetta
lævísa sambland af óskapnaði og
manni, á meistaralegan hátt með
tölvugrafík, talsettri af svipaðri snilld
af leikaranum Andy Serkis. Útkoman
er ófélegur, tvístígandi geðklofi sem
er í aðra röndina illvígur og öfund-
sjúkur skratti, rekinn áfram af
vonsku og fláræði en velviljaður og
hjálpfús vættur í hina, fús til að hjálpa
Fróða og góðu öflunum að ná yfirráð-
um í Miðheimi. Hann er einn sterkasti
og eftirminnilegasti karakter mynd-
arinnar, svo áhrifaríkur og eðlilegur
að allri gerð að ég bjóst við honum
skakklappandi inní ljósgeislann útúr
regnbarðri skammdegisnóttinni er ég
ók heim af sýningunni!
Þá er aðdáunarvert hversu sterk-
um tökum Jackson nær á rómantík-
inni, ástinni og hetjubragnum í tiltölu-
lega örstuttum rómantískum atriðum
þriggja tíma langrar myndar – sem
hefði gjarnan mátt vera klukkutíma
lengri! Þar nýtur leikstjórinn fullting-
is ótrúlega sterkrar útgeislunar
Mortensens sem stendur uppi sem
klassísk kvikmyndahetja af stærðar-
gráðu Errols Flynns, Johns Waynes
og þeirra valmenna allra. McKellen er
óborganlegur sem jákvæði póllinn í
átökunum og gamli, góði Lee er ámóta
máttugur sem handbendi Saurons
myrkrahöfðingja. Þá verður að geta
Brads Dourif sem með smávegis förð-
un er með ófélegri persónum kvik-
myndasögunnar. Sem fyrr segir er
tæknivinna óaðfinnanleg, tónlistin og
kvikmyndatakan í sama gæðaflokki og
vafalaust fær Tveggja turna tal slatta
af tilnefningum til Óskarsverðlauna en
úr því hún gekk framhjá Föruneyti
hringanna bíður Akademían sjálfsagt
þriðju myndarinnar áður en hún fer að
útdeila bálknum verðlaunum að ein-
hverju ráði.
Í það heila tekið er Tveggja turna
tal sannkallað stórvirki sem hefur allt
til að bera sem prýtt getur ósvikið æv-
intýri fyrir alla aldurshópa. Besta
mynd ársins og biðin hafin eftir loka-
kaflanum!
Sæbjörn Valdimarsson
„… sannkallað stórvirki sem hefur allt til
að bera sem prýtt getur ósvikið ævintýri
fyrir alla aldurshópa“, segir Sæbjörn
Valdimarsson m.a. um Tveggja turna tal,
annan hluta þríleiksins Hringadrótt-
inssögu.