Morgunblaðið - 27.12.2002, Blaðsíða 14
ERLENT
14 FÖSTUDAGUR 27. DESEMBER 2002 MORGUNBLAÐIÐ
UM tíu milljónir kjósenda ganga
að kjörborðinu í Kenýa í dag og
velja sér nýjan forseta í fyrsta
sinn í 24 ár. Einnig verður kosið til
þings og sveitarstjórna. Segja
fréttaskýrendur þetta mikilvæg-
ustu kosningar er haldnar hafi
verið í landinu síðan það hlaut
sjálfstæði frá Bretum 1963.
Skoðanakannanir benda til að
mest fylgi falli í skaut Mwai
Kibakis, frambjóðanda Regn-
bogabandalagsins (NARC), sem í
eru rúmlega tíu stjórnarand-
stöðuflokkar, og er honum spáð
68% atkvæða. Næstur kemur Uh-
uru Kenyatta, frambjóðandi
stjórnarflokksins, Þjóðarsamtaka
Afríku (KANU), sem spáð er 21%
fylgi.
Daniel Arap Moi, sem hefur ver-
ið við völd síðan 1978, má ekki,
samkvæmt stjórnarskránni, bjóða
sig fram nú, en hann valdi
Kenyatta, sem hefur enga póli-
tíska reynslu en er sonur Jomos
Kenyattas, fyrrverandi forseta og
stofnanda Kenýa. Kosningabarátt-
an mun hafa farið að mestu frið-
samlega fram.
Bæði Kibaki og Kenyatta, sem
og aðrir forsetaframbjóðendur,
hafa lagt áherslu á efnahagsum-
bætur og hæfni sína til að rjúfa
tengslin við fortíðina.
Kosið í
Kenýa
Nairobi. AFP.
Reuters
Frambjóðandinn Mwai Kibaki ávarpar stuðningsmenn sína í gær.
NAPUR vindur lék um kirkjugarð-
inn og kjökrandi fylgdust íbúarnir
með þegar tvær líkkistur voru látn-
ar síga ofan í grafirnar.
En þegar kistunum hafði verið
komið fyrir tóku þeir skyndilega að
klappa. Þetta var greinilega engin
venjuleg jarðarför.
Í líkkistunum var að finna jarð-
neskar leifar níu manna frá þorpinu
Valdestillas á Norður-Spáni. Í byrj-
un borgarastríðsins á Spáni, sem
stóð frá 1936 til 1939, voru þeir
dregnir með valdi út af heimilum
sínum. Fylgismenn herhöfðingjans
Franciscos Franco voru þar að
verki. Mennirnir níu voru teknir af
lífi. Líkin voru skilin eftir í veg-
arkantinum.
Þessir níu menn voru í hópi
þeirra sem enn er „saknað“ á Spáni.
Talið er að það séu alls um 30.000
manns. Þögn hefur ríkt um örlög
þessa fólks í meira en 60 ár. Um þau
mátti ekki ræða í þá tæpu fjóra ára-
tugi sem Franco var við völd á
Spáni. Frá því lýðræði var komið á
fyrir bráðum 30 árum hafa menn
verið uppteknir við annað.
Grafir opnaðar
Nú hefur orðið breyting þar á. Á
Spáni hefur nú skapast hreyfing
sem minnir um margt á þá sem svo
mjög hefur látið til sín taka í Arg-
entínu og krafist hefur uppgjörs við
„skítuga stríðið“ þar í landi. Víða
um Spán hafa fjölskyldur komið
saman til aðgrafa upp jarðneskar
leifar ættmenna sem myrt voru í
borgarstríðinu. Líkunum var iðu-
lega ýmist kastað í nærliggjandi
skurði eða komið fyrir í ómerktum
fjöldagröfum.
„Við eigum þeim skuld að
gjalda,“ segir Asuncion Esteban
sem býr í Valdestillas. Langafi
hennar og tveir aðrir ættingjar
voru á meðal þeirra níu sem jarð-
settir voru í kirkjugarði þorpsins
fyrir skemmstu. Nokkrum dögum
áður höfðu bein þeirra fundist í
ómerktri gröf.
„Nú eru þeir komnir heim, heim
til fólksins síns og heim í þorpið.
Þetta snýst ekki aðeins um jarð-
neskar leifar þeirra heldur einnig
um nöfn þeirra og stolt fjölskyld-
unnar,“ bætir Asuncion við.
Erfitt tímabil
Heldur hljómar þessi saga ein-
kennilega í landi þar sem lýðræðið
stendur föstum fótum enda Spán-
verjar eitt af aðildarríkjum Evrópu-
sambandsins og Atlantshafs-
bandalagsins. En margir
Spánverjar eru þeirrar hyggju að
þetta uppgjör við borgarastríðið og
leitin að fórnarlömbum þess sé
nauðsynlegur liður í þeirri end-
urreisn lýðræðisins sem hófst eftir
að Franco gekk á fund feðra sinna
árið 1975. „Þetta er eitt erfiðasta
tímabil í nútímasögu Spánar,“ segir
Emilio Silva en hann stofnaði sam-
tök ættingja fórnarlamba stríðsins
eftir að hafa komist að því að afi
hans var grafinn í skurði rétt fyrir
utan þorpið þar sem hann bjó. „Það
hvílir skömm yfir þjóðinni vegna
þess að þetta fólk fórnaði lífi sínu
við að verja lýðveldið sem Franco
réðst gegn,“ bætir hann við.
Franco fór fyrir uppreisn hersins
gegn löglegri stjórn vinstri manna á
Spáni. Sveitir Francos voru kall-
aðar „þjóðernissinnar“ en vinstri-
menn gengu undir heitinu „lýðveld-
issinnar“. Margir útlendingar
gengu til liðs við lýðveldissinna en
Franco naut m.a. stuðnings þýskra
nasista.
Margir stuðningsmanna Francos
féllu í bardögum í borgarastríðinu á
Spáni. Minningu þeirra hefur
löngum verið haldið á lofti. Minna
fór fyrir þeim lýðveldissinnum sem
týndu lífi í þessum átökum. Þeir
nánast gleymdust enda var komið á
„óskrifuðu bandalagi þagnarinnar“,
að sögn Pauls Prestons, sem er sér-
fróður um sögu Spánar á Franco-
skeiðinu og starfar við London
School of Economics. Preston segir
að loks þegar 40 ára einræði Franc-
os var á enda runnið hafi Spánverj-
ar talið að heppilegast væri að
hrófla ekki við fortíðinni til að
tryggja framgang lýðræðisins. Árið
1977 samþykktu spænskir stjórn-
málaflokkar uppgjöf saka vegna
allra þeirra glæpa sem framdir
voru í borgarastríðinu og á einræð-
isárunum sem fylgdu í kjölfarið.
Emilio Silva segir það hins vegar
með öllu óþolandi að minningu lýð-
veldssinna sé enginn sómi sýndur á
sama tíma og grafhýsi Francos sé
upplýst í Valle de los Caidos („Dal
hinna föllnu“) skammt frá Madríd.
Grafhýsið er vinsæll ferðamanna-
staður en hundruð pólitískra fanga
týndu lífi við gerð þess. Legstaður
Francos er grafinn inn í fjall og lítt
var hugað að öryggisráðstöfunum
fyrir fangana sem þvingaðir voru til
að vinna við grafhýsið.
Deilt um fjölda fórnarlambanna
Samtök Silva áætla að Franco
hafi látið myrða um 30.000 manns.
Sumir sagnfræðingar segja að þessi
tala sé ýkt en þeir eru líka til sem
segja fórnarlömbin hafa verið fleiri.
Silva segir gögn liggja fyrir sem
sanni að aftökur á stjórnarandstæð-
ingum hafi farið fram allt til ársins
1959. Þá liggi fyrir að sumar fjölda-
grafir geymi lík allt að 4.000 stjórn-
arandstæðinga.
Trúlega er skáldið Federico
Garcia Lorca þekktasta fórnarlamb
Francos. Hann var tekinn af lífi
skammt frá Granada en jarðneskar
leifar hans hafa aldrei fundist.
Nú hafa 17 ómerktar grafir verið
opnaðar. Rúmlega 50 lík hafa fund-
ist í þeim. Í mörgum tilfellum hefur
tekist að bera kennsl á beinin vegna
klæðnaðar eða persónulegra muna
sem fórnarlömbin báru á sér. Aðrar
líkamsleifar munu fara í DNA-
greiningu.
„Í þorpunum hefur fólkið alla tíð
vitað hvar ættingjar þess voru jarð-
settir eftir að hafa verið myrtir.
Þess vegna er svo mikilvægt að
þetta fólk komi nú fram og segi frá
vitnreskju sinni. Þessi kynslóð er að
hverfa,“ segir Emilio Silva.
Íhaldssamir fjölmiðlar hafa sumir
hverjir fjallað um samtök Silva með
heldur neikvæðum hætti og vænt
hann og aðra um að opna gömul sár.
„Við höfum engin sár opnað. Þess-
um sárum var aldrei lokað. Úr þeim
blæðir enn og við viljum græða
þau,“ segir hann.
Leitin að fórnarlömbum Francos
Valdestillas. Associated Press.
Þögn hefur ríkt um
örlög þeirra þúsunda
manna sem féllu í
borgarastríðinu á
Spáni við að verja lýð-
veldið. Nú hefur risið
upp hreyfing sem
krefst þess að minn-
ingu þessa fólks sé
sómi sýndur.
AP
Francisco Franco ekur sigri hrósandi inn í Barcelona í mars 1939.
’ Þessum sárum var aldrei lokað. ‘
LIKUD-flokkur Ariels Sharons,
forsætisráðherra Ísraels, nýtur
mun meira fylgis en Verka-
mannaflokkurinn fyrir þing-
kosningar sem fara fram í Ísrael
28. janúar. Virðist svo sem
hneykslismál, sem tengist Lik-
ud-flokknum, hafi litlu breytt
um fylgi stærstu flokkanna.
Samkvæmt fylgiskönnun sem
birtist í gær í dagblaðinu Haar-
etz myndi flokkur Sharons fá 35
menn kjörna á þing en þar sitja
120 fulltrúar. Er það sama fylgi
og mældist í könnun í liðinni
viku. Þá dró úr stuðningi við
flokkinn eftir að upplýst var að
fólk, sem vildi komast í framboð
fyrir Likud, hefði greitt félögum
í miðstjórn hans peninga fyrir
sæti á framboðslistunum.
Samkvæmt könnun Haaretz
myndi Verkamannaflokkur
Amram Mitzna aðeins fá 22
menn kjörna. Hins vegar myndi
Shinui-flokkurinn, sem er ver-
aldlegur miðjuflokkur, stórauka
fylgi sitt og fá 15 menn kjörna
en hann á nú 6 fulltrúa á þingi.
Shas-flokkurinn, sem er
flokkur hreintrúaðra gyðinga og
hefur oftar en ekki verið í lyk-
ilstöðu í ísraelskum stjórnmál-
um, myndi hins vegar tapa
miklu fylgi og aðeins fá 8 full-
trúa en flokkurinn hefur nú 17
menn á þingi.
Mikið for-
skot Likud
Jerúsalem. AFP.
JÓHANNES Páll páfi leiddi í
gær bænir fyrir kristnum písl-
arvottum sem dáið hafa fyrir trú
sína hvarvetna í heiminum.
Gærdagurinn var dagur heilags
Stefáns, sem
talinn er
hafa verið
fyrsti kristni
píslarvottur-
inn, en hann
var grýttur
til bana árið
36. Sagði páfi
að enn þann
dag í dag
mætti fjöldi
trúaðra þola þjáningar fyrir trú
sína. Á jóladag sagði páfi í hefð-
bundnu ávarpi sínu að allt trúað
fólk í heiminum yrði að taka
höndum saman og stuðla að friði
og þótt páfi nefndi ekki Írak sér-
staklega var hann talinn skír-
skota til hugsanlegrar herfarar
Bandaríkjamanna til Íraks. Bað
páfi þess að mannkynið tæki á
móti friðarboðskap jólanna.
Illviðri í
Bandaríkj-
unum
ÞÚSUNDIR manna voru án
rafmagns í norðausturhluta
Bandaríkjanna í gær, fjölda
flugferða var aflýst og færð á
vegum var slæm sökum mikillar
snjókomu. Að sögn fjölmiðla er
talið að 18 manns hafi látist af
völdum veðursins síðan á mánu-
daginn, í flestum tilvikum í bíl-
slysum. Snjókoman í Boston á
jóladag var sú mesta sem mælst
hefur, og í Massachusetts-ríki
voru um 40 þúsund manns án
rafmagns. Svipaða sögu var að
segja frá New York-ríki og í
New York-borg voru jólin hvít í
fyrsta sinn síðan 1969.
Sakaður um
tilræði
FORSETI Túrkmenistan, Sap-
armurat Niyazov, greindi frá
því í gær að háttsettur leiðtogi
túrkmensku stjórnarandstöð-
unnar, Boris Shikhmuradov,
hefði verið handtekinn, sakaður
um að hafa lagt á ráðin um til-
ræði við Niyazov í síðasta mán-
uði. Niyazov heitir öðru nafni
Turkmenbashi, eða faðir allra
Túrkmena. Shikhmuradov er
fyrrverandi aðstoðarforsætis-
ráðherra landsins og hafði verið
í útlegð síðan árið 2000, er
stjórnvöld neyddu hann til að yf-
irgefa landið. Er hann sagður
hafa laumast inn í landið 23.
nóvember til þess að stjórna
banatilræðinu.
Grunsamlegt
listaverk
FRANSKUR listamaður á leið
til London var handtekinn
skömmu fyrir jól þegar örygg-
isvörður á flugvelli við París
taldi að listaverk, sem listamað-
urinn var með, væri dínamít.
Listamaðurinn, sem er skúlpt-
úrkennari, sagði verkið innblás-
ið af hryðjuverkum er framin
hafa verið undanfarið og væri
ætlað að heiðra minningu þeirra
er farist hefðu, en ekki til að
fremja fleiri hryðjuverk. Lista-
manninum var sleppt eftir sól-
arhrings varðhald, en lögreglan
hélt listaverkinu eftir.
STUTT
Páfi biður
fyrir písl-
arvottum
Jóhannes Páll páfi.