Morgunblaðið - 27.12.2002, Page 9
FRÉTTIR
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 27. DESEMBER 2002 9
Glæsilegur
samkvæmis-
fatnaður
Glæsilegir galakjólar
fyrir áramótin
Engjateigi 5, sími 581 2141.
Opið í dag frá kl. 12.00—18.00, laugardag frá kl. 10.00—15.00.
Glæsilegur
fatnaður
frá Ítalíu
RAÐGREIÐSLUR
Ný sending á útsöluverði
5% aukaafsláttur m.v. staðgreiðslu
Sími 861 4883
á handhnýttum, austurlenskum gæðateppum
á Grand Hóteli, Sigtúni, Reykjavík
Útsala • Útsala
föstudag 27. desember kl. 13-19
laugardag 28. desember kl. 12-19
sunnudag 29. desember kl. 13-19
mánudag 30. desember kl. 13-19
Verðdæmi Stærð Verð áður nú staðgreitt
Pakistönsk 60x90 9.800 6.400
Pakistönsk „sófaborðsstærð“ 125x180 cm 44.900 28.400
Rauður Afghan 100x180 cm 29.300 21.900
og margar fleiri gerðir.
TÍÐARFARIÐ hefur verið fremur
óvenjulegt á landinu það sem af er
þessum vetri, a.m.k eru Vestfirð-
ingar ekki vanir því að jörð sé sem
að vori væri fram að jólum.
Sumum líkar þetta vel, öðrum
finnst vanta smá snjóþekju til að
geta notið vetraríþrótta en einnig
verður þá bjartara í svartasta
skammdeginu.
Það er ekki óvanalegt að listmál-
arar standi úti við trönur sínar á
hvaða árstíma sem er og fangi hug-
hrif sín til náttúrunnar á strigann.
En hér fyrir vestan hlýtur það að
heyra til undantekninga að hægt sé
að mála mynd af Bolungarvík í
haustlitunum þegar komið er fram í
síðustu viku í aðventu.
Jón Hermann Sveinsson, listmál-
ari á Suðureyri, hefur að undan-
förnu notað blíðuna til að ljúka við
mynd sem hann hefur verið að mála
af Bolungarvík og fjallahringnum
sem myndar hinn tignarlega bak-
grunn byggðarinnar.
Jón sagðist vera að leggja síðustu
hönd á verkið er fréttaritari Morg-
unblaðsins hitti hann við trönur sín-
ar úti við Óshólavita á dögunum.
Jón stundaði nám við Myndlista-
skólann í Reykjavík þar sem hann
naut leiðsagnar listamannanna Sig-
ríðar Björnsdóttur og Hrings Jó-
hannessonar. Hann vann við múr-
verk með listinni fram til ársins
1994 að hann veiktist í baki og varð
að hætta sem múrari. Frá því hefur
hann eingöngu unnið að list sinni.
Jón kvaðst hafa tekið þátt í all-
mörgum samsýningum og tvisvar
haldið einkasýningu, aðra í vinnu-
stofu sinni sem hann var með í
Hnífsdal fyrir fáum árum og síðan
sýndi hann í Hveragerði.
Jón segir að Bolungarvíkur-
myndin sem hann er með á trön-
unum sé fyrir nokkru seld og hún
fari nú innan tíðar í innrömmun hjá
Dagnýju Þrastar í Rammagerð Ísa-
fjarðar. Ljóst er að það mun auka
gildi myndarinnar að sýna Bolung-
arvík í þessu umhverfi á aðvent-
unni.
Morgunblaðið/Gunnar Hallsson
Jón Hermann Sveinsson við fullgert verk sitt með Bolungarvík í baksýn.
Í haustlitunum á aðventunni
Bolungarvík. Morgunblaðið.