Morgunblaðið - 27.12.2002, Qupperneq 23

Morgunblaðið - 27.12.2002, Qupperneq 23
MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 27. DESEMBER 2002 23 ✝ Friðrik Jónassonkennari fæddist á Breiðavaði á Fljótsdalshéraði 23. júlí 1907. Hann lést á Elli- og hjúkrunar- heimilinu Grund hinn 9. desember síð- astliðinn. Friðrik var sonur Jónasar Ei- ríkssonar, hrepp- stjóra á Breiðavaði, áður skólastjóra á Eiðum, f. 1851, d. 1924, og Helgu Bald- vinsdóttur ráðskonu hans, f. 1871, d. 1958. Eldri hálfbræður Friðriks (börn Jónasar með konu sinni Guðlaugu Margréti Jónsdóttur, f. 1853, d. 1906) voru: a) Halldór frá Eiðum cand. phil., kennari, starfsmaður Hagstofunnar og ritstjóri, b) Jón Gunnlaugur, málari, síðan kaup- maður á Seyðisfirði, c) Benedikt, verzlunarstjóri á Vestdalseyri og kaupmaður á Seyðisfirði, d) Þór- hallur, hreppstjóri á Breiðavaði, e) Gunnlaugur, bankagjaldkeri og skrifstofustjóri á Seyðisfirði, og f) Emil Brynjólfur, símstjóri á Seyð- isfirði. Þeir bræður eru allir látnir. Friðrik var þríkvæntur. Fyrsta kona hans (g. 1928) var Hólmfríð- ur Hemmert kennari, f. 22. júní 1902, d. 25. maí 1988. Þau skildu, en hún giftist aftur. Barn þeirra: Jóhanna Arnljót kennari í Kópa- vogi, f. 12. febr. 1929, gift Baldri Þorsteinssyni skógfræðingi, f. 1924. Börn þeirra eru fimm: 1) Þorsteinn kennari í Uppsölum í Svíþjóð, f. 7. mars 1952, var kvænt- ur Ingileif Steinunni Kristjáns- dóttur líffræðingi. Þau skildu. 1990, var í sambúð með Vali Þ. Norðdahl. Dóttir þeirra er Klara, f. 29. sept. 1983. 2) Hörður iðnað- armaður, f. 11. júlí 1963. Dætur hans eru Ásthildur Ásta, f. 13. feb. 1986, með Sigurlaugu Gunnars- dóttur, og Ásta Camilla, f. 17. mars 1988, með Camillu Eyvindsdóttur. 3) Höskuldur, f. 16. febr. 1965, kvæntur Michaleu Uferbach Aðal- steinsson. Þau reka hestabúgarð í Austurríki. Börn þeirra eru Signý, f. 3. des. 1989, Aðalsteinn, f. 15. feb. 1991, Guðni Þór, f. 4. júlí 1998 og Sóley Björk, f. 27. nóv. 2002. 4) Sigríður söngkona, f. 15. febr. 1967. Fyrsti sambýlismaður henn- ar var Claus Rainer. Barn þeirra er Christian Bjarki Rainer, f. 9. okt. 1987. Annar sambýlismaður Sigríðar var Gunnar Baldvin Valdimarsson húsasmíðameistari og dætur þeirra eru Helga Sigrún, f. 24. sept. 1991 og Guðný, f. 15. maí 1993. Þriðja kona Friðriks (g. 1966) var Magnea Hjálmarsdóttir kenn- ari, f. 29. des. 1908, d. 25. feb. 1996, og var hann seinni maður hennar. Þau voru barnlaus. Friðrik lauk kennaraprófi frá Kennaraskólanum 1928 og íþróttakennaraprófi frá Statens Gymnastik-Institut í Kaupmanna- höfn 1929. Hann starfaði við kennslu, jafnt almenna og í sundi og öðrum íþróttum, á Seyðisfirði 1929–1931, á Ísafirði 1931–1947 og við ýmsa skóla í Reykjavík 1947–1972. Hann starfaði einnig sem bókavörður við bókasafn Elli- og hjúkrunarheimilisins Grundar um árabil. Friðrik starfaði við sundkennslu á sumardvalarheimili Styrktarfélags lamaðra og fatl- aðra í mörg ár, síðast í Reykjadal í Mosfellssveit, en Magnea kona hans var þar í forstöðu. Útför Friðriks verður gerð frá Fossvogskapellu í dag og hefst at- höfnin kl. 15. Dóttir þeirra er Krist- ín Þyrí félagsráðgjafi, f. 10. sept. 1977. Sam- býliskona Þorsteins var Carina E. Lindh sjúkraliði, en hún lést árið 1998. Sonur þeirra er Jóhann Frið- rik, f. 27. apr. 1987. 2) Björn Eðvald raf- magnstæknifræðing- ur, f. 13. febr. 1954. 3) Friðrik Már hagfræð- ingur, f. 11. apr. 1957, kvæntur Kristínu Björnsdóttur hjúkrun- arfræðingi, en börn þeirra eru Jóhanna Katrín há- skólanemi, f. 1. apr. 1980, í sambúð með Karli J. Garðarssyni háskóla- nema, og Björn Már, f. 11. júní 1990. 4) Baldur Tumi, læknir og sérfræðingur í húðsjúkdómum, f. 30. júní 1959, kvæntur Sólveigu Önnu Bóasdóttur guðfræðingi, en börn þeirra eru Nína, f. 24. jan. 1986, og Kolbeinn Tumi, f. 24. febr. 1991. 5) Guðrún Margrét lög- fræðingur, f. 26. júní 1968. Sam- býlismaður Guðrúnar er Gunnar Sturluson hæstaréttarlögmaður. Dóttir þeirra er Borghildur, f. 8. maí 1998. Önnur kona Friðriks (g. 1935) var Sigríður Júdit Magnúsdóttir frá Sæbóli í Aðalvík, f. 29. júní 1910, d. 23. jan. 1969. Þau skildu. Dóttir þeirra er Björk Helga Frið- riksdóttir húsfreyja í Reykjavík, f. 4. nóv. 1936, giftist Aðalsteini Höskuldssyni bifreiðarstjóra, seinna starfsmanni Landsbanka Íslands, f. 1920, d. 1987. Börn þeirra eru fjögur: 1) Helga hús- móðir, f. 7. des. 1960, d. 1. ág. Afi okkar Friðrik Jónasson er genginn. Þegar barn kynnist afa sínum þá er það fyrirvaralaust og án skírskot- ana í nokkra átt. Einstaklingurinn vex síðan úr grasi og afinn eldist, inn í myndina bætist bakgrunnur afa og innsýn í það umhverfi sem hann lifði við. Ef heppnin er með þá er afa- barnið orðið þroskaður einstakling- ur þegar afinn deyr og getur bætt ofannefndu í sjóð lífsreynslu sinnar og fundið hjá sér að hann eða hún gengur rudda slóð. Að þessum orðum sögðum getum við systkinin sagt að afi okkar var kraftakarl. Svolítið einkennilegt kannski að orða þetta svona? Hann var kennari og hafði bókband og bókasöfnun að aðaltómstundagamni. En þegar skyggnst er betur í lífs- hlaupið sést að hann var óhræddur við að breyta til, og að vaxtarlagi og limaburði var hann kraftakarl. Frið- rik Jónasson fæddist og ólst upp í Eiðaþinghá, fallegri og gróðursælli sveit. Faðir hans, Jónas Eiríksson, skólastjóri Eiðaskóla, hefur verið þroskaður maður er afi var að vaxa úr grasi og getað gefið honum gott veganesti. Afi var alla tíð óskaplega stoltur af föður sínum. Eftir kenn- aranám fór afi til Kaupmannahafnar í nám í íþróttafræðum. Að ganga menntaveginn var ekki sjálfsagt á þessum tíma hvað þá að fara utan til að stunda framhaldsmenntun. Eftir eitt ár í Kaupmannahöfn var komið nóg, Friðrik Jónasson kom heim og hóf lífsstarf sitt sem var kennsla, bæði venjuleg bókleg kennsla og sund og íþróttakennsla. Hann afi okkar var alltaf þráð- beinn í baki og bar sig vel. Hann kenndi okkur bræðrunum að synda, hann var klæddur í úlpu og gekk á hvítum töflum þegar hann var við útisundlaugina í Reykjadal. Hann hrópaði leiðbeiningar dimmri röddu. Einu sinni á sumri var fatasund og björgun á sundi æfð við „raunveru- legar“ aðstæður. Er þetta gert í sundkennslu í dag? Skemmtilegt var það allavega. Önnur minning um afa var þegar hann var að gera eitthvað á heimili þeirra Magneu í Sigtúni. Þá setti hann upp hattkúf og klæddist svolít- ið eldri jakka, engin sóðaleg vinnuföt þar, líklega var stéttvitundin sterk- ari þá en nú, fyrir utan að afi var mikið snyrtimenni og smekkmaður í klæðaburði. Magnea Hjálmarsdóttir var þriðja kona afa og lífsförunautur svo langt sem við munum. Heimili þeirra var friðsælt og fallegt og kom ekkert annað til greina. Jafnvel kraftmiklum strákum fannst eins gott að vera ekki með neinn tæting heldur halda sig að bókunum en af þeim var nóg. Þau hjón voru bæði guðspekilega þenkjandi og eftir á að hyggja þá hvíldi búddísk ró yfir íbúðinni í Sigtúni. Miðlar og nátt- úrulækningamatur var í hávegum hafður. Þegar lesið var um stemn- inguna hjá Þórbergi í Sálminum um blómið fannst okkur hún eiginlega kunnugleg. Afa og Magneu fannst gaman að ferðast og fóru víða. Merkilegust var líklega ferðin til Landsins helga. Í stað þess að bögglast með myndavél keypti afi gjarna skuggamyndir sem hann síðan sýndi þeim sem áhuga höfðu, er heim kom. Þeim er kváðu dyra til að boða hitt eða þetta var einnig boðið uppá skuggamyndasýn- ingu og hermir flökkusögnin að ekki hafi verið reynt frekar að snúa guð- spekingnum í Sigtúni. Afi var þrígiftur og var amma okkar Hólmfríður Hemmert fyrsta kona hans. Þau hljóta að hafa verið glæsilegt par en slitu fljótlega sam- vistir. Ennþá er afi var um áttrætt hélt fullorðin vinkona því fram við eitt okkar að frá honum stafaði „mikil orka“. Við vísum til upphafsorða þessa pistils og finnum að viðkynningin við afa hefur gert okkur ríkari. Það að hafa kynnst því hvernig hann kaus að haga sínu lífi gefur okkur spegil að skoða okkar eigin lífsstíl í. Okkur langaði að deila þessum minningabrotum um afa okkar þess fullviss að þannig hefði hann viljað láta minnast sín, sem hnarreists manns, lífskúnstners á sinn hátt. Þessi mikli líkamsstyrkur sýndi sig í lokin þegar hver skráveifan fylgdi annarri án þess að leggja hann að velli, þar til honum var veitt hvíldin og anda hans leyft að kanna anda- heimana eins og hann hefur efalaust alltaf langað til. Hafi trú hans á framhaldslífið enst þá átti hann von á að hitta þar ástvini sína aftur. Baldur Tumi Baldursson, Björn Eðvald Baldursson, Friðrik Már Baldursson, Guðrún Margrét Baldurs- dóttir, Þorsteinn Baldursson. Fáir eru nú eftir okkar á meðal, er útskrifuðust sem barnakennarar frá Kennaraskóla Íslands þegar Magn- ús Helgason var þar skólastjóri (1908–1929). Einn af þeim síðustu var að kveðja fólk og frón. Það var hann Friðrik Jónasson. Hann lést á Grund, þar sem hann hafði dvalist um skeið, farinn að heilsu og kröft- um. Friðrik var bæði með almennt kennarapróf og íþróttakennarapróf frá Statens Gymnastik Institut í Kaupmannahöfn. Hann var því vel menntaður kennari. Um kennaraferil hans og ævi geta menn lesið í tímaritinu Heima er bezt, júní 1999. Þar segir hann frá foreldrum sínum og heimaslóðum, en fæddur var hann að Breiðavaði í Eiðaþinghá. Nám stundaði hann kornungur í Eiðaskóla, þegar Ás- mundur Guðmundsson, síðar pró- fessor og biskup, var þar skólastjóri. Friðrik vildi að námi loknu á Eiðum komast inn í annan bekk Kennara- skólans (þeir voru þá þrír), en Magn- ús skólastjóri taldi hann of ungan til þess, svo að hann hóf námið í fyrsta bekk. Fannst Friðrik það allt annað en gott. Kennaraprófi lauk hann 1928, tvítugur að aldri, sem var óvenjulegt þá. Hann hætti kennslu hálfsjötugur. En hætti Friðrik þá allri starfsemi? Nei, ekki aldeilis. Hann var iðinn bókbindari og að sama skapi vandvirkur. Umgengni við bækur var honum hrein unun. Um skeið var hann bókavörður á Elli- og hjúkrunarheimilinu Grund (nú Dvalar- og hjúkrunarheimili) hér í borg. Það átti vel við hann. Meðan viðtalið við Friðrik í Heima er bezt var í smíðum átti ég margan fund með honum á heimili hans. Þess er gott að minnast. Kvaddur er heiðursmaður, sem skilaði góðu ævi- starfi. Ættmennum vottast samúð við brottför hans. Og hvíli hann nú í friði eftir langa og farsæla ævi. Auðunn Bragi Sveinsson. FRIÐRIK JÓNASSON ✝ Inga Jóhannes-dóttir fæddist á Seyðisfirði 28. des- ember 1912. Hún lést 17. desember síðastliðinn. For- eldrar hennar voru Jóhannes Sveinsson úrsmiður á Seyðis- firði, f. 2.6. 1866, d. 21.11. 1955, og Elín Júlíana Sveinsdóttir, kona hans, f. 10.7. 1883, d. 25.4. 1952. Systkini Ingu voru: Ágústa, f. 1898, d. 1981, Haraldur, f. 1903, d. 1982, Sigrún Svafa, f. 1905, d. 1919, Dóróthea, f. 1906, d. 1982, Sigríður, f. 1907, d. 2002, Klara, f. 1909, d. 1923, Sveinn, f. 1910, d. 1929, Einar Sveinn, f. 1914, d. 1994, Guðlaug, f. 1916, d. 1981, Ólaf- ur Gísli, f. 1917, d. 1959, Þorgerður Sigurrós, f. 1922, d. 1950, og Guðmund- ur, f. 1925, d. 1981. Inga giftist Steini Stefánssyni á Seyð- isfirði árið 1970 en þau skildu tveimur árum síðar. Eftir það bjó hún með Katli Ólafssyni, f. 1917, þar til hann lést í maí 2001. Árið 1962 tók Inga í fóstur Kristin Magnús Ólafsson, f. 1957. Inga verður jarðsett frá Foss- vogskapellu í dag og hefst at- höfnin klukkan 15. Inga er sú síðasta af börnum Jó- hannesar og Elínar sem hverfur yfir móðuna miklu. Af þessum stóra hópi lifðu þær lengst Sigríður, móðir mín og Inga enda þótt fimm ára aldurs- munur væri á þeim. Sigríður var jarðsett 16.12. og Inga kvaddi þenn- an heim deginum síðar. Inga var sjö- unda í röð barna foreldra sinna og þegar hún var nokkurra daga gömul var hún tekin í fóstur af Gunnari Bjarnasyni skósmið á Seyðisfirði og Valgerði Ingimundardóttur en þau voru nokkuð vel efnuð og barnlaus. Tengsl voru milli fjölskyldnanna þar sem Sigurður, bróðir Jóhannesar, var kvæntur systur Valgerðar, Sig- ríði Guðrúnu Ingimundardóttur. Áttu þau Sigurður og Sigríður Guð- rún eina dóttur sem einnig var skírð Inga í höfuðið á afa sínum í móður- ætt. Sigurður flutti til Vesturheims árið 1912 ásamt þremur öðrum systkinum sínum, Einari, Eyjólfi og Þóreyju. Þessum fósturforeldrum reyndist Inga ákaflega vel og þau áttu skjól hjá henni allt til dauðadags. Það verða oft blendnar tilfinningar sem börn bera með sér sem gefin eru úr stórum systkinahópi. Fyrir for- eldrunum vakir yfirleitt að bjóða börnum sínum betra atlæti en hægt var að bjóða í heimahúsi en fyrir þeim sem gefinn er verður sú spurn- ing áleitin: „Af hverju ég?“ Það var fróðlegt að heyra viðhorf þeirra systra, Ingu og Siggu móður minnar, um þetta mál. Inga öfundaði Siggu af því að hafa fengið að vera í stóra hópnum og fannst að þar hlyti að hafa verið sífellt glatt á hjalla. Sigga öfundaði Ingu af því hvað hún fékk gott að borða og hvað hún átti fallegt dót og fékk að vera í friði með sitt. Mamma sagði mér af því að Inga hefði fengið bæði egg og mjólk í morgunmat sem sjaldgæft var að aðrir fengju en þau allra yngstu af stóra hópnum heima. Inga var vel gefin og hefði í raun haft mikla möguleika til mennta og sjálfstæðis en það er spurning sem aldrei fæst svarað af hverju hún sval- aði ekki sinni miklu menntunarþrá. Hún sagði mér að hún hefði verið að því komin að lesa utanskóla til að komast inn í Menntaskólann á Ak- ureyri en þá bauðst henni góð vinna og þetta tækifæri bauðst kannski aldrei aftur. Hún fór þó einn vetur til Edinborgar í enskunám og lærði þar líka bæði matreiðslu og hótelrekstur og langt fram eftir aldri var hún í ým- iss konar námi, lærði þýsku og frönsku auk enskunnar og einnig lauk hún námi fyrir leiðsögumenn eftir að hún var komin á eftirlaun. Inga fékk snemma fína vinnu á símstöðinni á Seyðisfirði sem var miðstöð samskipta á þessum árum og tengiliður Íslands við umheiminn. Inga byrjaði að vinna við Símann að- eins 16 ára, árið 1928. Hún var fljót- lega sett í ábyrgðarstöðu og hafði góð laun miðað við konur á þessum árum. Þegar hún síðan flutti til Reykjavíkur árið 1950 með fósturforeldra sína, beið hennar ný staða hjá sama fyr- irtæki og alls vann hún fyrir Land- símann samfleytt í 42 ár og gat þess vegna farið á eftirlaun árið 1970 að- eins 58 ára. Þegar Inga var fimmtug tók hún í fóstur ungan dreng, Kristin Magnús Ólafsson. Þessum dreng unni hún miklum hugarástum og sá aldrei sól- ina fyrir honum. Hún vildi honum allt það besta og var eins og æðarkollan tilbúin að reyta af sér sína síðustu fjöður til þess að búa í haginn fyrir hann. Þótt hún væri vel efnuð eftir langa starfsævi í góðu starfi kveður hún nú þennan heim án nokkurra veraldlegra gæða. Allar eigur sínar hafði hún gefið í von um að gjafir hennar gætu orðið til góðs. Það var ómetanlegur stuðningur fyrir hana hversu vel Ketill sambýlis- maður hennar hugsaði um hag henn- ar í nær þrjá áratugi. Ketill var hlýr og elskulegur maður og hvers manns hugljúfi. Hann verndaði Ingu og studdi allt þar til kallið hans kom á síðasta ári. Börn Ketils og tengda- börn hafa einnig verið Ingu ómetan- leg stoð þegar erfiðleikar steðjuðu að. Inga frænka eins og við kölluðum hana var fríð kona, hafði fallegt hár og var alltaf fín og vel til höfð. Hún var að vísu allaf nokkuð sérsinna og ég veit ekki hversu margir hafa í raun þekkt hana. Hún bar ekki til- finningar sínar á torg og mörgum þótti hún tilgerðarleg. En trúlega var þetta aðeins einhvers konar gríma sem skýldi henni fyrir sársauka heimsins. Hún var lögð til hinstu hvíldar daginn áður en hún hefði orð- ið níræð. Inga var fædd í desember og jólin voru hennar tími. Nú hafa þær báðar systurnar, Inga og Sigga, kvatt jarðvistina í þessum desem- bermánuði þegar myrkrið er dimm- ast en jólaljósin ljóma og lýsa upp myrkur norðurslóða. Saman fylgjast þær að inn á ný tilverustig þar sem von er um nýjan og bjartari dag. Sigrún Klara Hannesdóttir. INGA JÓHANNESDÓTTIR

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.