Morgunblaðið - 04.01.2003, Blaðsíða 11
FRÉTTIR
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 4. JANÚAR 2003 11
FLUGSTÖÐ Leifs Eiríkssonar hf.
hefur sent frá sér tilkynningu vegna
frétta af greiðslum til stjórnar-
manna stöðvarinnar og birtir Morg-
unblaðið hana hér heild.
„Með vísan til fréttar um
greiðslur til stjórnarmanna Flug-
stöðvar Leifs Eiríkssonar (FLE) hf.
í kvöldfréttatíma Ríkisútvarpsins
þann 2. janúar s.l. er eftirfarandi
upplýst: Í nóvember 2000 var
ákveðið að leggja niður störf bygg-
ingarnefndar suðurbyggingar flug-
stöðvarinnar. Með stofnun hluta-
félags um rekstur flugstöðvarinnar
á Keflavíkurflugvelli voru verkefni
tengd byggingarnefndinni flutt yfir
til stjórnar FLE hf. Vegna þeirra
miklu fjárfestinga og skuldbindinga
sem félagið var að ráðast í á þessum
tíma taldi stjórn félagsins nauðsyn-
legt að fulltrúi stjórnar starfaði með
framkvæmdastjóra félagsins í verk-
efnisstjórn suðurbyggingar, sem
skipuð var af stjórn félagsins.
Á stjórnarfundi í byrjun árs 2001
var því samþykkt að vegna sér-
þekkingar á flugvallarsvæðinu og á
sviði byggingarframkvæmda al-
mennt yrði Sigurður Garðarsson
verkfræðingur fulltrúi stjórnar í
verkefnisstjórn. Einnig var sam-
þykkt að Sigurður fengi greitt sér-
staklega fyrir þessi ráðgjafarstörf
sem voru utan hefðbundinna stjórn-
arstarfa. Einnig var samþykkt að
fela Sigurði ákveðin verkefni sem
tengdust framtíðaruppbyggingu
flugstöðvarinnar og landnýtingar-
áformum til næstu 25 ára. Sigurður
kom einnig að vinnu við undirbún-
ing farangursleitarkerfis sem nýbú-
ið er að setja upp í flugstöðinni,
vinnu við fjölnota innritunarkerfi og
skipulag innritunar. Sigurður Garð-
arsson hefur einnig setið í forvals-
nefnd um val á rekstraraðilum í
flugstöðina. Ráðgjafarstörf Sigurð-
ar voru reikningsfærð af Hafur ehf.
sem er í eigu hans. Heildargreiðslur
vegna ráðgjafarvinnu og útlagðs
kostnaðar Hafurs ehf. á árinu 2002
voru 5.185.200 kr. án vsk.
Sigurður Garðarsson lét af
stjórnarstörfum að eigin ósk á síð-
asta ári.
Þá óskaði stjórn félagsins eftir
því að Stefán Þórarinsson tæki að
sér að vinna að ákveðnum verk-
efnum með framkvæmdastjóra s.s.
samningum við leigutaka og að sitja
í forvalsnefnd um val á rekstrarað-
ilum. Ráðgjafarstörf Stefáns Þór-
arinssonar voru reikningsfærð af
Nýsi hf. Heildargreiðslur vegna
ráðgjafarvinnu og útlagðs kostnað-
ar Nýsis hf. á árinu 2002 voru
592.194 kr. án vsk.
Vegna sérþekkingar þessara
stjórnarmanna og vegna eðlis verk-
efna tengdra fjárfestingum og
skuldbindingum félagsins taldi
stjórnin nauðsynlegt að ofangreind-
ir aðilar kæmu að þessari vinnu til
að tryggja betur hagsmuni félagsins
og spara verulega fjármuni.
Það er ljóst að félag sem stendur
í miklum framkvæmdum og í breyt-
ingum á starfsemi sinni þarf að
treysta mikið á aðkeypta ráðgjöf af
ýmsu tagi. Á árinu 2002 greiddi
Flugstöð Leifs Eiríkssonar hf. um
87 milljónir kr. án vsk. í ráðgjaf-
arvinnu, s.s. hönnun, verkfræðiþjón-
ustu, erlenda ráðgjöf, lögfræðiþjón-
ustu, endurskoðun o.fl. Heildar-
rekstrarkostnaður félagsins fyrir
utan afskriftir og fjármagnsgjöld er
áætlaður um 3.055 milljónir kr. á
árinu 2002. Aðkeypt ráðgjafarþjón-
usta alls var því um 2,8% af heild-
arrekstrarkostnaði félagsins á árinu
2002.
Flugstöð Leifs Eiríkssonar hf. er
vel rekið félag og í rekstri þess er í
hvívetna gætt ráðdeildarsemi og
leitast við að hagræða og ná niður
kostnaði. Afkoma félagsins hefur af
þessum ástæðum verið góð og þrátt
fyrir afar erfiðar ytri aðstæður á
nýliðnu ári mun félagið því geta
greitt 10% arð í ríkissjóð, eða 250
milljónir króna fyrir árið 2002.
Stjórn FLE fagnar því að Rík-
isendurskoðun mun nú fjalla um
þessi mál og telur rétt að tjá sig
ekki frekar fyrr en að þeirri skoðun
lokinni.“
Tilkynning frá Flugstöð Leifs Eiríkssonar vegna greiðslna til stjórnarmanna
Nauðsynlegt
að fá aðkeypta
ráðgjöf
RÍKISENDURSKOÐUN hefur
ákveðið að fara yfir greiðslur til
ráðgjafarfyrirtækja tveggja
stjórnarmanna í Flugstöð Leifs
Eiríkssonar hf. Sigurður Þórðar-
son, ríkisendurskoðandi, staðfesti
þetta í samtali við Morgunblaðið.
Flugstöð Leifs Eiríkssonar var
breytt í hlutafélag árið 2000 en fé-
lagið er að fullu í eigu ríkisins.
Sigurður segir að í framhaldi af
almennri umræðu um mál svipaðs
eðlis hafi verið ákveðið að skoða
þessar greiðslur til stjórnarmanna
í Flugstöðinni en þar sé þó aðeins
um frumathugun að ræða. „Þetta
eru auðvitað viðkvæmir hlutir og
við erum vakandi fyrir þeim. Í
þessu felst þó enginn áfellisdómur,
við skoðum þetta bara eins og
hvert annað mál sem til okkar
kemur.“
Aðspurður segir Sigurður að á
þessu stigi málsins tengist athug-
un ríkisendurskoðunar ekki fjár-
reiðum stöðvarinnar almennt held-
ur greiðslum til fyrirtækja stjórn-
armannanna.
Athugun
Ríkisendur-
skoðunar
lega athöfn í anddyri Orkuveitunnar að Bæjarhálsi.
Verðlaunahafarnir eru Vesturgata 147, Akranesi,
Grandaskipin í Reykjavíkurhöfn, verslunargatan við
Hamraborg í Kópavogi, Leirutangi 6, Mosfellsbæ,
Móaflöt 12, Garðabæ og Melabraut 23, Seltjarnarnesi.
ORKUVEITA Reykjavíkur veitti í gær sex ein-
staklingum og fyrirtækjum viðurkenningar fyrir
skemmtilegar og frumlegar jólaljósaskreytingar.
Verðlaunahafar eru af höfuðborgarsvæðinu og Akra-
nesi og veittu viðurkenningunum viðtöku við hátíð-
Viðurkenningar fyrir
skemmtilegar ljósaskreytingar
Morgunblaðið/Jim Smart
UM 20% fleiri leituðu eftir fjár-
hagsaðstoð hjá Reykjavíkurborg í
fyrra en árið áður. Björk Vilhelms-
dóttir, formaður félagsmálaráðs,
segir að samkvæmt bráðabirgðatöl-
um hafi útgjöld borgarinnar vegna
fjárhagsaðstoðar numið um 953
milljónum í fyrra. Hún segir að ef
atvinnuleysi haldi áfram að aukast
megi reikna með að útgjöld til þessa
málaflokks aukist enn á þessu ári.
Björk sagði að á árunum 2000 og
2001 hefði fjárhagsaðstoð aukist
nokkuð. „Á árinu 2002 verður hins
vegar sprenging í þessum mála-
flokki. Við rekjum það að nokkru
leyti til aukins atvinnuleysis. Síðan
eru í auknum mæli öryrkjar, ellilíf-
eyrisþegar og fólk í launaðri vinnu
að fá aðstoð hjá okkur. Það hefur
líka orðið aukning á aðstoð sem er
veitt vegna sérstakra erfiðleika.
Það voru 3.600 einstaklingar sem
fengu fjárhagsaðstoð hjá Reykja-
víkurborg á síðasta ári, en það eru
600 fleiri en árið á undan. Á bak við
þessa einstaklinga eru að sjálfsögðu
talsvert fleiri því margir eru með
fjölskyldu.“
Farið ofan í fjármál fólks
Björk sagði að farið væri mjög
nákvæmlega ofan í fjármál þessara
3.600 einstaklinga. Þetta væri fólk
sem byggi við sára fátækt. Fram-
færslumörk Reykjavíkurborgar
miðuðust við 67.000 kr. á mánuði.
Aðeins þeir sem ekki næðu slíkum
tekjum ættu rétt á fjárhagsaðstoð.
Björk sagði að margir aðilar í
samfélaginu tækju þátt í því að að-
stoða fátækt fólk. Hún sagðist vera
þeirrar skoðunar að þessi hjálp
væri ekki nægilega markviss og
ekki nægilega mikil áhersla lögð á
að hjálpa fólki til sjálfshjálpar. Það
væri ástæða til að reyna að bæta úr
því.
Björk sagði að í ljós hefði komið
að barnabætur færu að skerðast við
55.000 kr. mánaðarlaun. Þetta
þýddi að í raun fengi enginn
óskertar barnabætur. Þetta hlyti að
þurfa að skoða betur.
1.410 manns fengu fjárhagsað-
stoð í desembermánuði, en þeir
voru 1.195 í desember árið 2001.
Útgjöld Reykjavíkurborgar vegna fjárhagsaðstoðar
námu 950 milljónum í fyrra
20% fleiri fengu
fjárhagsaðstoð
LITLAR breytingar voru á fylgi
stjórnmálaflokkanna í lok árs miðað
við mánuðinn á undan, samkvæmt
nýjustu fylgiskönnun Gallup, og
sama átti við um breytingar á fylgi
listanna í Reykjavík frá borgar-
stjórnarkosningunum í maí.
Framsóknarflokkur nýtur stuðn-
ings 12,5%, fylgi við Vinstrihreyf-
inguna – grænt framboð er rösklega
13%. Fylgi annarra flokka stendur
nánast í stað og sama er að segja um
stuðning við ríkisstjórnina.
Miðað við nýja kjördæmaskipan
fengi Sjálfstæðisflokkurinn 26 þing-
menn, Samfylkingin 21, VG 8 og
Framsóknarflokkur 8 þingmenn en
Frjálslyndi flokkurinn engan.
Framsókn fengi einn þingmann
kjörinn í Reykjavík
Sé þingsætum deilt á flokkana eft-
ir kjördæmum samkvæmt niðurstöð-
um könnunarinnar kemur m.a. í ljós
að Framsóknarflokkurinn fengi einn
mann kjörinn í Reykjavíkurkjör-
dæmi norður en engan þingmann í
Reykjavík-suður og flokkurinn fengi
ekki heldur þingmann kjörinn í Suð-
vesturkjördæmi.
Sjálfstæðisflokkurinn fengi fimm
þingmenn í hvoru Reykjavíkurkjör-
dæmanna og Samfylkingin fengi
fjóra þingmenn í hvoru kjördæmi
borgarinnar. VG næði tveimur þing-
mönnum í Reykjavík-suður og einum
í Reykjavík-norður.
Samfylkingin fengi 5 þingmenn í
Suðvesturkjördæmi og Sjálfstæðis-
flokkurinn fengi sama þingmanna-
fjölda í því kjördæmi en VG fengi
einn þingmann þar.
Sérfræðingar Gallup benda á að
hafa beri í huga við mat á skiptingu
þingsæta milli flokka í kjördæmum
að þó að úrtakið sé stórt þurfi mjög
litla tilfærslu á fylgi milli flokka til
þess að þingsæti færist milli flokka
innan kjördæma.
Ákvörðun borgarstjóra
breytti engu
Samkvæmt könnuninni mældist
ekki marktækur munur á fylgi
listanna dagana fyrir og eftir að Ingi-
björg Sólrún Gísladóttir tilkynnti að
hún tæki sæti á lista Samfylkingar-
innar í alþingiskosningunum í vor.
Símakönnunin fór fram 28. nóvem-
ber til 30. desember. Úrtakið var
3.128 manns á aldrinum 18 til 75 ára,
valið með tilviljun úr þjóðskrá og var
um 70% svarhlutfall.
* &(
&%
+, +-.
'
&/0' *10 !&23+,
*
&3,456*
*
&&
)&
#% 578
! &
&'&
!'&
&'9
&9
:!'9
&9
:!'9
&&9
&'&9
;
8
Litlar breyting-
ar á fylgi flokka
VILHJÁLMUR Egilsson þingmað-
ur hefur ákveðið að segja af sér
þingmennsku en hann mun taka við
starfi hjá Alþjóðagjaldeyrissjóðnum
í Washington 15. janúar og gegna
því út þetta ár.
Vilhjálmur segir prófkjörsmál
vera úr sínum höndum og að hann
hafi þegar komið öllu á framfæri
sem hann vilji um þau mál segja.
„Það er auðvitað stuðningsmanna
minna að ákveða frekar um fram-
haldið.“
Adolf Berndsen, oddviti á Skaga-
strönd, mun setjast á þing í stað
Vilhjálms. Birgir Ármannsson,
varaframkvæmdastjóri Verslunar-
ráðs, tekur við starfi framkvæmda-
stjóra ráðsins af Vilhjálmi eða þar
til annað kann að verða ákveðið.
Stuðnings-
manna að
ákveða fram-
haldið