Morgunblaðið - 04.01.2003, Blaðsíða 43
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 4. JANÚAR 2003 43
DAGBÓK
Bakþjálfun
Þjálfun stöðugleika mjóbaks
MT stofan, Síðumúla 37, býður upp á hóp-
tíma í æfingasal stofunnar.
Fáir í hverjum tíma.
Sértæk styrktarþjálfun til að auka stöðugleika mjó-
baks. Þjálfað samkvæmt nýjustu aðferðum.
Fyrir viðkvæm ofhreyfanleg bök (instabilitet).
Eftir tognanir.
Eftir brjósklosaðgerðir.
Eftir brjóskþófaröskun.
Við slitgigt.
7 vikna þjálfun. Hádegis- og eftirmiðdagstímar.
Æft tvisvar sinnum í viku — möguleiki á fleiri skiptum.
Skráning hefst 6. janúar.
Leiðbeinandi: Oddný Sigsteinsdóttir, sjúkraþjálfari.
Upplýsingar og skráning á MT stofunni í símum
568 3660 og 568 3748.
Jákvætt námskeið
um hjónaband
og sambúð
í Hafnarfjarðarkirkju
8. árið í röð
Skráning hefst mánudaginn 6. janúar á
hið feikivinsæla hjónanámskeið
Hafnarfjarðarkirkju, sem yfir 5.000
manns hafa tekið þátt í frá árinu 1996.
Á námskeiðinu er fjallað um samskipti
hjóna, leiðir til að styrkja hjónabandið,
orsakir sambúðarerfiðleika, leiðir út úr
vítahring deilna og átaka, ólíkar
fjölskyldugerðir, ástina, kynlífið,
hamingjuna og börnin fyrir utan allt hitt
Aðeins 15 pör komast á hvert námskeið.
Skráningarsími er 555 1295
á skrifstofutíma alla virka daga.
Leiðbeinandi á
námskeiðinu er séra
Þórhallur Heimisson
Sérgrein: Kvensjúkdómar og fæðingarhjálp
Tímapantanir daglega frá kl. 9-17
Hef opnað læknastofu
Vilhjálmur Kr. Andrésson
Domus Medica • Egilsgötu 3 • 101 Reykjavík
sími 563 1053
MT stofan býður
Axel Bragason sjúkraþjálfara og
Jón Vídalín Halldórsson sjúkraþjálfara
velkomna til starfa á nýju ári
MT stofan, sjúkraþjálfun, Síðumúla 37, Reykjavík.
Opnunartími stofu og æfingasalar frá kl. 8.00 til 19.00 virka daga.
Timapantanir í síma 568 3660.
Árnað heilla
50 ÁRA afmæli. Í dag,laugardaginn 4. jan-
úar, er fimmtug Nanna S.
Jónsdóttir, Heiðargili 6,
Keflavík. Eiginmaður henn-
ar er Björn Vífill Þorleifs-
son. Þau verða að heiman á
afmælisdaginn.
90 ÁRA afmæli. Í dag,laugardaginn 4. jan-
úar, er níræður Magnús
Baldvinsson, múrarameist-
ari, Grænuhlíð 7, Reykja-
vík. Hann tekur á móti gest-
um á heimili sínu í dag.
90 ÁRA afmæli. Í dag,laugardaginn 4. jan-
úar, er níræður Jón Vídalin
Sigurðsson, Múlavegi 32,
Seyðisfirði. Í tilefni dagsins
tekur Jón á móti ættingjum
og vinum í Öldutúni á Seyð-
isfirði milli kl. 15 og 17.
BRÚÐKAUP. Gefin voru
saman 12. október sl. í Frí-
kirkjunni í Hafnarfirði af
séra Einari Eyjólfssyni þau
Anna Kristín Jóhannsdóttir
og Atli Erlingsson. Heimili
þeirra er á Skúlaskeiði 4 í
Hafnarfirði.
LJÓÐABROT
KIRKJUGARÐSVÍSUR
Hvert helzt sem lífsins bára ber,
er bátnum hingað rennt,
í sínum stafni situr hver,
og sjá! þeir hafa lent.
Allharðan þessi barning beið,
og byrinn ljúfan hinn,
en beggja liðugt skipið skreið
í skúta grafar inn.
Grímur Thomsen
1. e4 c5 2. Rf3 e6 3. d4
cxd4 4. Rxd4 Rf6 5. Rc3 d6
6. g4 Rc6 7. g5 Rd7 8. Be3
Be7 9. h4 0-0 10. Dh5 a6
11. 0-0-0 Rxd4 12. Bxd4 b5
13. Bd3 Re5 14. f4 Rxd3+
15. Hxd3 Bb7 16. Hg1 b4
Staðan kom upp í þýsku
deildakeppninni 1996 þar
sem Sergei Movsesjan
hafði hvítt
gegn Ognjen
Cvitan. 17.
Rd5! exd5 18.
Hdg3! Dc7
hvíta sóknin
yrði einnig
óstöðvandi
eftir 18... g6
19. Dh6 f6 20.
gxf6 Hxf6 21.
Hxg6+ hxg6
22. Hxg6+
Kf7 23. Hg7+
Ke8 24. Dh5+
Kd7 25. Bxf6.
19. Dh6!
Dxc2+ svart-
ur yrði mát
eftir 19... gxh6 20. gxh6+.
20. Kxc2 Hfc8+ 21. Kd2
gxh6 22. gxh6+ Bg5 23.
Hxg5+ Kf8 24. exd5 Ke7
25. Hf5! Hc4 26. Kd3 Hac8
27. Hg7 og svartur gafst
upp. Íslandsmót barna fer
fram 4. og 5. janúar í fé-
lagsheimili Taflfélags
Reykjavíkur Faxafeni 12.
Það hefst kl. 13 í dag, 4.
janúar, og er opið öllum
börnum fæddum 1992 og
síðar.
SKÁK
Umsjón Helgi Áss
Grétarsson
Hvítur á leik.
STJÖRNUSPÁ
eft ir Frances Drake
STEINGEIT
Afmælisbörn dagsins:
Þið eruð hagsýn, skipulögð
og úrræðagóð. Á þessu ári
munu ykkur bjóðast margir
spennandi valkostir. Þið eruð
að halda út á nýjar brautir.
Hrútur
(21. mars - 19. apríl)
Þú finnur til samúðar með
einhverjum og löngunar til að
koma honum til hjálpar. Þú
hefur skilning á þjáningum
annarra og vilt því leggja þig
fram um að draga úr þeim.
Naut
(20. apríl - 20. maí)
Yfirmaður þinn hrífst af skiln-
ingi þínum á þörfum heildar-
innar og hæfileikum þínum til
að sjá hlutina fyrir. Þú hefur
góða yfirsýn yfir aðstæður.
Tvíburar
(21. maí - 20. júní)
Dagdraumar eiga hug þinn
allan í dag. Ástæðan er sú að
þig langar ekki til að vera þar
sem þú ert. Þig langar til að
flýja raunveruleikann.
Krabbi
(21. júní - 22. júlí)
Þig langar til að hjálpa öðrum
og gefa fé til góðgerðarmála.
Þetta er virðingarverk. Góð-
vildin er það sem skiptir
mestu máli í heiminum.
Ljón
(23. júlí - 22. ágúst)
Gætið þess að setja ekki aðra
upp á stall því það er næsta
víst að þeir muni falla niður af
honum og það mun valda ykk-
ur vonbrigðum jafnvel þótt
þið hafið sjálf skapað goð-
sögnina.
Meyja
(23. ágúst - 22. sept.)
Hlýja þín í garð samstarfs-
manna þinna laðar að þér fólk
og fær það til að leita ráða hjá
þér. Gættu þess að svara af
heiðarleika og hreinskilni.
Vog
(23. sept. - 22. okt.)
Þú hefur mikla hæfileika til
sköpunar í dag. Þú ert smekk-
vís og hugmyndaflug þitt á
sér engin takmörk. Notaðu
tækifærið til listrænnar sköp-
unar.
Sporðdreki
(23. okt. - 21. nóv.)
Það er hætt við misskilningi í
samskiptum þínum við for-
eldra þína í dag. Gakktu úr
skugga um að þú sért að tala
um sömu hlutina og viðmæl-
endur þínir.
Bogmaður
(22. nóv. - 21. des.)
Þið eruð mjög næm á um-
hverfi ykkar í dag og því er
líklegt að aðrir leiti til ykkar
með vandamál sín.
Steingeit
(22. des. - 19. janúar)
Þig langar til að eyða pening-
um í munaðarvöru í dag. Þú
ættir að bíða fram á mánudag
og athuga hvort löngunin
verður enn til staðar.
Vatnsberi
(20. jan. - 18. febr.)
Dagurinn verður á margan
hátt ruglingslegur. Það er
hætt við að þú verðir misskil-
inn eða að einhver misskilji
þig eða jafnvel svíki þig.
Sýndu varkárni.
Fiskar
(19. feb. - 20. mars)
Þið eruð næm á tilfinningar
annarra í dag og ættuð því að
reyna að umgangast jákvætt
fólk.
Stjörnuspána á að lesa sem
dægradvöl. Spár af þessu tagi
eru ekki byggðar á traustum
grunni vísindalegra staðreynda.
STYRKUR blinds er á röng-
um stað og við sagnhafa blas-
ir það dapurlega hlutskipti
að fara niður áður en hann
svo mikið sem kemst að.
Vestur gefur; allir á
hættu.
Norður
♠ 754
♥ ÁKD62
♦ 7
♣8643
Suður
♠ ÁKG1063
♥ 4
♦ K5
♣9752
Vestur Norður Austur Suður
Pass Pass 1 tígull 1 spaði
3 tíglar 3 spaðar Pass 4 spaðar
Pass Pass Pass
Vestur spilar út laufkóng
og þegar blindur kemur upp
þakkar suður makker sínum
dauflega fyrir sitt framlag og
býr sig undir að taka örlög-
um sínum af karlmennsku.
En það virðist ætla að verða
einhver bið á því að vörnin
taki slagina sína. Austur yf-
irtekur laufkónginn með ás,
leggur frá sér spilin og byrj-
ar að naga neglurnar. Það er
góðs viti. Loks spilar austur
tíguláttu. Suður lætur kóng-
inn og hann heldur!
Norður
♠ 754
♥ ÁKD62
♦ 7
♣8643
Vestur Austur
♠ 8 ♠ D92
♥ G75 ♥ 10983
♦ G6432 ♦ ÁD1098
♣KDG10 ♣Á
Suður
♠ ÁKG1063
♥ 4
♦ K5
♣9752
Þetta gerðist á nokkrum
borðum í jólamóti BR á
sunnudaginn. Laufið er illa
stíflað og austur freistaðist
til að spila undan tígulásnum
í þeirri von að makker ætti
þar kónginn. Svo var ekki.
Sagnhafi getur nú tryggt
sér 10 slagi með því að taka
ÁK í spaða, trompa tígul og
henda tveimur laufum niður í
háhjarta. En þeir sem höfðu
meiri metnað tóku spaðaás-
inn, stungu tígul, hentu niður
laufum og svínuðu fyrir
spaðadrottningu. Það skilaði
11 slögum og 43 stigum af 58
mögulegum.
BRIDS
Umsjón Guðmundur
Páll Arnarson
MORGUNBLAÐIÐ birtir
tilkynningar um afmæli,
brúðkaup, ættarmót og
fleira lesendum sínum að
kostnaðarlausu. Tilkynning-
ar þurfa að berast með
tveggja daga fyrirvara virka
daga og þriggja daga fyrir-
vara fyrir sunnudagsblað.
Samþykki afmælisbarns
þarf að fylgja afmælistil-
kynningum og/eða nafn
ábyrgðarmanns og síma-
númer. Fólk getur hringt í
síma 569-1100, sent í bréf-
síma 569-1329, eða sent á
netfangið ritstj @mbl.is.
Einnig er hægt að skrifa:
Árnað heilla,
Morgunblaðinu,
Kringlunni 1,
103 Reykjavík