Morgunblaðið - 04.01.2003, Blaðsíða 20

Morgunblaðið - 04.01.2003, Blaðsíða 20
AKUREYRI 20 LAUGARDAGUR 4. JANÚAR 2003 MORGUNBLAÐIÐ Blaðbera vantar • Skerjafjörður Upplýsingar fást í síma 569 1122 Hjá Morgunblaðinu starfa um 600 blaðberar á höfuðborgarsvæðinu í Helgamagrastræti og Munkaþverárstræti. Einnig í Oddeyrargötu og Brekkugötu. ⓦ Blaðburður verður að hefjast um leið og blaðið kemur í bæinn. Góður göngutúr sem borgar sig. Morgunblaðið, Kau vangsstræti 1, Akureyri, sími 461 1600. LANDIÐ STJÓRN Kaupfélags Eyfirðinga hefur lýst yfir vilja til þess að ráðast í endurbætur á gamla bögglageymslu- húsinu í Grófargili en áhugi er fyrir því að þar verði rekin menningar- starfsemi af ýmsum toga. Húsið er í eigu Kletta – fasteignafélags og hýsti áður sláturhús, mjólkursamlag og af- greiðslu KEA. Benedikt Sigurðarson stjórnarformaður KEA sagði að end- urbætur húsnæðisins að utan kost- uðu 6–10 milljónir króna. „Það er alveg klárt mál að mínu mati að í þær framkvæmdir verður ráðist. Spurning er hins vegar hversu fljótt okkur tekst að koma húsnæð- inu í notkun. Það hefur verið leitað eftir áhugasömum aðilum sem vilja koma þarna inn með starfsemi. Uppi eru hugmyndir um að veitingahús verði í neðri hluta hússins, hugsan- lega einhver þjónusta í millibyggingu og enn önnur starfsemi í efsta hlut- anum. Það hefur þó ekki verið tekin nein ákvörðun í málinu, enda ekki bú- ið að leigja húsnæðið eða semja við aðila um framkvæmdir.“ Benedikt sagði stefnt að því koma framkvæmdum í gang sem allra fyrst en framhaldið réðist m.a. af þeim áhuga sem aðilar sýndu því að kom- ast þarna inn með einhverja starf- semi. Hann sagði að KEA ætlaði ekki að fara búa þarna til einhverja starf- semi, heldur leggja sitt af mörkum til að þess að það verði hægt, „og klára þessa mynd þarna á Gilinu þannig að þetta verði ekki okkur til skammar. Í leiðinni getum við lokið þessum við- skilnaði á húsunum í Gilinu. Við erum og verðum í samráði við menningar- málanefnd, Gilfélagið og þá aðila sem hafa hagsmuni í Gilinu, enda vilum við ekki gera neitt sem er í andstöðu við þau markmið sem menn hafa sett sér með þetta svæði.“ Akureyrarbær keypti iðnaðarhús KEA í Grófargili fyrir nokkrum ár- um og í samvinnu við Gilfélagið og fleiri aðila hefur þeim verið breytt í lifandi menningarmiðstöð. Í kjölfarið hefur jafnan verið talað um Listagilið manna á meðal og þar eru m.a. Lista- safnið á Akureyri, Myndlistarskólinn á Akureyri, vinnustofur listamanna, gallerí, veitingastaðir, arkitekta- stofa, Ketilhúsið, Deiglan, skrifstofa Gilfélagsins og Listasumar og gesta- vinnustofa. Stefnt að endurbótum á gamla bögglageymsluhúsinu Leitað eftir aðilum til að sjá um reksturinn Morgunblaðið/Kristján Gamla bögglageymsluhúsið í Grófargili er næsta hús neðan við Ketilhúsið en hugmyndin er að gera það upp og að þar verði rekin menningarstarf- semi af ýmsum toga í framtíðinni. ÁRAMÓTIN í Snæfellsbæ fóru mjög vel fram í blíðskaparveðri og að sögn lögreglu urðu engin slys eða óhöpp. Fullt var út úr dyrum í félagsheim- ilinu Klifi, þar sem hljómsveitin Klakabandið spilaði fyrir dansi langt fram á morgun, dansleikurinn var í boði Snæfellsbæjar og var frítt inn. Aldrei hefur verið notuð eins mikil olía á áramótabrennuna á Breiðinni í Snæfellsbæ og í ár eða alls 7.000 lítr- ar, að sögn brennustjórans, Hjálm- ars Kristjánssonar. Að venju var samankominn mikill fjöldi manns til að horfa á brennuna ásamt stórkostlegri flugeldasýningu slysavarna- og björgunarsveitanna í Snæfellsbæ. Var hávaðinn það mikill að viðvörunarkerfi margra bílanna á svæðinu fóru í gang og mátti sjá eig- endur þeirra hlaupandi í allar áttir til að slökkva á þeim. Morgunblaðið/Alfons Blíðskaparveður um áramótin Ólafsvík ÞAÐ viðraði vel á Seyðisfirði á gamlárskvöld, logn og heiðskírt. Bergmálaði vel á milli fjallanna lengi á eftir. Morgunblaðið/Einar Bragi Bergmál á milli fjallanna HEITA mátti að logn væri á gaml- ársdag og ákjósanlegt fyrir brennur og flugelda. Brenna var á Ytri-Höfða við Reykjahlíð kl. 21 og önnur í Rauðhólum við Álftagerði. Miklar flugeldasýningar voru á báðum stöð- um á vegum Björgunarsveitarinnar Stefáns. Um miðnættið varð síðan loftið eitt logandi bál, svo ekki hefur áður sést þvílíkt hér. Flugeldum var skot- ið upp fyrir meir en hálfa milljón eða nálægt 1.200 kr. á hvert mannsbarn í sveitinni. Á landsvísu væru það um 350 milljónir. Ekki urðu slys á fólki við þessa iðju. Dansleikur var í Gamla Bænum á Hótel Reynihlíð í upphafi árs við undirleik Voga-bandsins. Vel sótt samkoma og fór vel fram. Morgunblaðið/Birkir Fanndal Góð áramót í Mývatnssveit Mývatnssveit ÁRLEG þrettándagleði Íþrótta- félagsins Þórs fer fram á fé- lagssvæðinu við Hamar mánudaginn 6. janúar og hefst kl. 20.00. Þórsarar hafa staðið fyrir þrettándagleði á Akureyri í um 60 ár og er þetta uppákoma sem jafnan nýtur mikilla vinsælda. Heldur hefur verið þrengt að Þórsurum á félagssvæði þeirra vegna byggingar fjölnota íþrótta- hússins en þeir láta það ekki á sig fá og ætla að bjóða upp á fjölbreytta dagskrá að vanda. Álfakóngur og álfadrottning mæta á svæðið og verða púkar, tröll og ljósálfar í fylgd- arliði þeirra. Solla stirða skemmtir viðstöddum, leikklúbburinn Saga stígur á svið og Kór Glerárkirkju syngur. Þá munu jólasveinar kveðja bæjarbúa með söng og gleði áður en þeir halda til síns heima. Dagskránni lýkur svo að vanda með glæsilegri flugeldasýningu. Árleg þrettándagleði Þórs á mánudag ELSA Guðrún Jónsdóttir var út- nefnd íþróttamaður ársins 2002 í Ólafsfirði í hófi sem haldið var í húsi UÍÓ síðastliðinn mánudag. Er Elsa Guðrún, sem er aðeins 16 ára, vel að titlinum komin, enda var árið sérlega gott hjá henni, var á sig- urbraut í nánast hverri einustu keppni sem hún tók þátt í. Aðrir sem fengu útnefningar frá sínum deildum voru: Þorvaldur Sveinn Guðbjörnsson, knatt- spyrnudeild Leifturs; Anton Kon- ráðsson, Skotfélagi Ólafsfjarðar; Helgi S. Þórðarson, Gnýfara; Sig- urbjörn Þorgeirsson, Golfklúbbi Ólafsfjarðar. Morgunblaðið/Helgi Jónsson Elsa Guðrún Jónsdóttir var valin íþróttamaður Ólafsfjarðar. Elsa Guðrún íþrótta- maður Ólafs- fjarðar Ólafsfjörður TÍU umsóknir bárust um stöðu slökkviliðsstjóra hjá Slökkviliði Ak- ureyrar og þá bárust einnig tíu um- sóknir um lausa stöðu aðstoðar- slökkviliðsstjóra, en frestur til að sækja um er nýlega útrunninn. Þeir sem sóttu um stöðu slökkvi- liðsstjóra eru: Erling Þór Júlínus- son, Reykjavík, Georg Arnar Þor- steinsson, Reykjanesbæ, Heimir Gunnarsson, Akureyri, Ingimar Ey- dal, Akureyri, Kristján Björgvins- son, Keflavík, Óskar Stefán Óskars- son, Sauðárkróki, Páll Rúnar Guðjónsson, Reykjavík, Pétur Valdi- marsson, Kópavogi, Þorbjörn Har- aldsson, Akureyri, og Þorvaldur Helgi Auðunsson, Keflavík. Sjö þeirra sem sóttu um stöðu slökkviliðsstjóra sóttu einnig um stöðu aðstoðarslökkviliðsstjóra hjá Slökkviliði Akureyrar, þ.e. þeir Georg, Ingimar, Kristján, Páll, Pét- ur, Þorbjörn og Þorvaldur, en auk þeirra sóttu Grétar Ingi Árnason, Selfossi, Magnús Axelsson, Akur- eyri, og Magnús Viðar Arnarsson, Akureyri, um þá stöðu. Slökkvilið Akureyrar Margir sóttu um stöður yfirmanna

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.