Morgunblaðið - 04.01.2003, Blaðsíða 32

Morgunblaðið - 04.01.2003, Blaðsíða 32
MINNINGAR 32 LAUGARDAGUR 4. JANÚAR 2003 MORGUNBLAÐIÐ ✝ Kristín Helga-dóttir fæddist á Eskifirði 4. nóvem- ber 1920. Hún lést á fjórðungssjúkrahús- inu í Neskaupstað 28. desember síðast- liðinn. Foreldrar hennar voru Helgi Ólason verkamaður og Oddný Þóra Magnúsdóttir hús- móðir. Kristín ólst upp hjá móðurbróð- ur sínum Þórði Magnússyni og konu hans Sólveigu Sig- björnsdóttur frá þriggja ára aldri en þau bjuggu á Einars- stöðum í Stöðvarfirði. Kristín var ein sjö systkina en átti auk þeirra átta fóstursystkin. Kristín giftist Björgólfi Sveins- syni verkstjóra (f. 1913, d. 1967) 6. ágúst 1945. Hann var sonur hjónanna Sveins Björgólfs- sonar útvegsbónda á Bæjarstöðum í Stöðvarfirði og Láru Svanhvítar Sigríðar Péturs- dóttur húsfreyju. Kristín og Björgólf- ur eignuðust þrjár dætur: Svanhvíti (f. 18.3. 1946), Kol- brúnu (f. 18.3. 1952) og Berg- lindi (f. 8.1. 1961). Útför Kristínar verður gerð frá Stöðvarfjarðarkirkju í dag og hefst athöfnin klukkan 14. Nú legg ég augun aftur, ó, Guð, þinn náðarkraftur mín veri vörn í nótt. Æ, virst mig að þér taka, mér yfir láttu vaka þinn engil, svo ég sofi rótt. (S. Egilsson.) Elsku amma í Ártúni, við verðum að skilja í bili. Ég vildi óska að þú hefðir fengið lengri tíma hérna hjá okkur en þó veit ég að þú kveður sátt. Fyrir stuttu töluðum við um afa og ég tók eftir því að í stað þess að tala um afa með söknuði, talaðir þú með tilhlökkun í röddinni um að stutt væri í að þið mynduð hittast. Það var eins og þú vissir að þinn tími væri kominn. Því gleðst ég yfir því að bið þinni sé lokið. Hvernig er hægt að gráta þegar bros fylgir sérhverri hugsun um þig. Stína systir sagði mér að síð- ustu dagana sem þú lifðir hefðir þú sagt kærastanum hennar oftar en einu sinni að hann skyldi passa sig ef hann reyndist henni ekki vel. Við hlógum að tilhugsuninni, ég og Stína, að þú þyrftir að elta hann á göngugrindinni þinni, kallandi: „Ég skal ná þér þótt síðar verði.“ Síðustu daga hef ég talað við marga um minningar þeirra um þig. Minningar þeirra eru mínar minn- ingar í þeim skilningi að svo margt sem þú gafst mér gafst þú öllum sem kynntust þér. Ég man eftir þér heima í Ártúni við litlu Rafha-elda- vélina að steikja kleinur á meðan ég og vinir mínir sátum við eldhús- borðið og borðuðum kleinurnar heitar úr stóru vaskafati. Kleinun- um skoluðum við niður með kaldri mjólk ásamt vel völdum orðum um rétt og rangt. Lífssýn mín og þeirra sem stóðu þér næst mótaðist af því sem þú stóðst fyrir. Virðing fyrir náunganum og náttúrunni var þar ofarlega á baugi en þú hvattir okkur einnig til að vera vinnusöm, en kannski umfram allt heiðarleg. Án orða kenndir þú okkur öllum að var- ast sjálfsvorkunn þegar illa gengur. Ég veit að líf þitt var erfitt; kannski erfiðara en nokkurt okkar getur gert sér í hugarlund. En þú varst elskuð af öllum sem þekktu þig og þegar minn tími kemur vona ég að það verði einnig mín graf- skrift. Þangað til næst, amma litla, Svavar, Björgólfur og Kristín. Elsku amma Stína. Okkur þótti afar leiðinlegt að heyra að þú værir farin frá okkur og við trúðum því ekki í fyrstu. Okkur fannst líka leiðinlegt að fá ekki að sjá þig í langan tíma og svo sjá þig ekkert meir. Og hann Runólfur kynntist þér varla en honum þótti líka vænt um þig eins og mér. Mig langar að þakka fyrir allar góðu gjafirnar sem þú gafst okkur bræðrunum, þær voru aldrei van- metnar. Og allar vísurnar sem þú kenndir mér og við munum kenna Runólfi þegar hann getur lært þær. Mér fannst líka alltaf notalegt að koma inn þegar ég var búinn að vera á fullu að leika mér úti þá varstu stundum tilbúin með pönnu- kökurnar góðu sem þú bjóst svo oft til. Svo eru það ekki ófáir hlýir vett- lingar og ullarsokkar sem þú hefur gefið okkur, þeir hafa ekki verið og verða ekki lítið notaðir. Og núna þegar maður kemur inn í Ártún finnst okkur vera tómlegt og eitthvað vanta og maður veit náttúrulega strax hvað það er og ég og hin brotnuðum alveg niður innst inni og þegar ég fór að sofa þá fann ég svona ,,ömmulykt“ af rúmfötun- um. Mér fannst líka vanta að núna þegar maður kemur inn í Stöðv- arfjörð og inn í Ártún kemur engin með opið fangið að taka á móti manni, það hefur alltaf verið svo- leiðis. Við söknum þín, amma. Óðinn Kári Karlsson, Runólfur Þórbergur Hrafn Hafþórsson. Elsku amma. Einu sinni varstu hjá mér og ég man það enn þegar ég var svo lítill og við undum okkur svo vel saman. En svo varð ég stærri og stækka enn, en nú ert þú farin og ég sakna þín. Ég mun minnast þín um ókomna framtíð. Guðbrandur Magnússon. Elsku Stína. Mér brá þegar Berglind sagði mér látið þitt. En þegar ég hugsa um hvað þú varst búin að hafa fyrir lífinu undanfarin mörg ár er ég ekki hissa þótt árin yrðu ekki fleiri hér. En þótt þú vær- ir oft sárþjáð gastu alltaf slegið á létta strengi. Ég á þér skuld að gjalda, þar sem þú tókst töluverðan þátt í uppeldi mínu. Þegar ég var smástelpa elti ég þig eins og hvolpur og þú rakst mig aldrei frá þér. Eitt var það, sem ég aldrei mátti gera, og það var að koma við hárið á þér. Það var alltaf upprúllað og vel greitt, en þú þóttir hafa óvenjufallegt hár. Ekki man ég hvað ég var gömul þegar ég spurði þig af hverju þú kallaðir pabba alltaf frænda, en mömmu mömmu. Þá sagðir þú að það væri vegna þess að þau ættu þig ekki alveg. Þá varð ég leið, því ég hélt við værum systur, en þú varst systurdóttir pabba. Bína var ári eldri en þú. Þið vor- uð óaðskiljanlegar. Allt það sama gekk yfir ykkur báðar heima, og nöfnin ykkar alltaf nefnd saman af öllum, Bína og Stína. Foreldrum mínum þótti ekki síð- ur vænt um þig en okkur hin. Sögðu aldrei styggðaryrði við þig, enda launaðir þú þeim uppeldið með góð- vilja og hjálpsemi. Eitt var það sem einkenndi þig sérstaklega og það var hvað þú varst barngóð. Að lokum votta ég börnum þínum samúð mína og óska þér velfarnaðar í framandi heimkynnum. Borghildur. KRISTÍN HELGADÓTTIR ✝ Gunnar MagnúsDavíðsson fædd- ist í Efra-Skálateigi 23. júlí 1923. Hann lést á Fjórðungs- sjúkrahúsinu í Nes- kaupstað 27. desem- ber síðastliðinn. Gunnar er sonur hjónanna Davíðs Her- mannssonar, f. 30.8. 1885, d. 9.10. 1963, og Ragnhildar Petru Jónsdóttir frá Rann- veigarstöðum, f. 8.8. 1892, d. 28.12. 1929. Gunnar ólst fyrst upp með foreldrum en eftir lát móður sinnar fór hann, 6 ára gam- all, að Neðra-Skálateigi sem fóst- urbarn hjónanna þar, Guðrúnar Benjamínsdóttur og Magnúsar Guðmundssonar. Systkini Gunnars eru: Hermann, f. 18.5. 1912, d. 9.1. 1991, Jón, f. 7.12. 1915, Valgeir, f. 17.11. 1917, d. 25.6. 1971, Sigríður, f. 5.3. 1920, Sveinn, f. 7.7. 1925, d. 20.12. 1974, Soffía, f. 9.12. 1926, d. 30.10. 1986, og Lúðvík, f. 20.3. 1929. Gunnar kvæntist 28.10. 1946 Nikulínu Halldórsdóttur frá Heið- arbýli í Norðfirði, f. 9.12. 1926. Börn Gunnars og Nikulínu eru: 1) Lilja Dóra, f. 22.5. 1948, gift Ingi- bergi Elíassyni, f. 6.11. 1943. Barn þeirra; Katrín, f. 1987. 2) Rúnar Már, f. 16.3. 1957, sam- býliskona Aldís Stef- ánsdóttir, f. 30.5. 1963. Börn hans frá fyrri sambúð; Hulda Rún, f. 1988 og Gunn- ar Yngvi, f. 1990. 3) Víglundur Jón, f. 29.12. 1959, kvæntur Jónu Björgu Óskars- dóttur, f. 25.10. 1959. Börn þeirra; Díana Dögg, f. 1980, og Óskar Ingi, f. 1982. 4) Dagný Petra, f. 23.12. 1961, sambýlismað- ur Magni Björn Sveinsson, f. 6.2. 1959. Börn þeirra; Ragna Nikulína, f. 1981, og Gullveig Ösp, f. 1989. 5) Gunnur Björk, f. 17.8. 1969. Gunnar var í Héraðsskólanum á Eiðum 1941–1943. Var til sjós til 1947 er hann hóf störf sem bif- reiðastjóri sem hann stundaði óslit- ið til 1980, við verslunarrekstur til 1991, rak fyrirtækið Plastbönd frá 1992 til 1998, samhliða vann hann hjá Viggó hf., síðar Eimskip til jan- úar 2002. Útför Gunnars verður gerð frá Norðfjarðarkirkju í dag og hefst athöfnin klukkan 14. Tengdafaðir minn Gunnar Davíðs- son er látinn 79 ára að aldri eftir stutta sjúkdómslegu. Fram til þessa hafði honum ekki orðið misdægurt það best ég veit. Gunnar missti móður sína sex ára gamall, heimilið leystist upp og faðir hans treysti vinafólki sínu Magnúsi og Guðrúnu í Skálateigi í Norðfjarð- arsveit til að taka drenginn að sér og ala hann upp. Gunnar var fáorður maður en ég heyrði hann fara hlýjum orðum um fósturforeldra sína. Mér er ekki nógu kunnugt um lífs- hlaup Gunnars en veit þó að hann var sjálfs síns herra nánast alla sína starfsævi. Framan af eða frá árinu 1947 var Gunnar atvinnubifreiða- stjóri og rak hann bæði eigin vöru- bifreið og leigubifreið. Annálað var hve Gunnar sinnti atvinnutækjum sínum vel með reglubundnu viðhaldi og snyrtilegri umgengni. Það var honum metnaðarmál að eiga bestu ökutæki sem buðust á hverjum tíma. Til marks um þetta er að hann kom með fyrstu dísilknúnu vörubifreiðina í byggðarlagið, þetta var nýr Volvo ár- gerð 1961. Gunnar var með vörubif- reiðar fram á árið 1980 en þá hafði hann og eiginkona hans rekið mat- vöruverslunina Melabúðina í Nes- kaupstað um þriggja ára skeið. Versl- unina stofnuðu þau árið 1977 og ráku hana við góðan orðstír þar til þau seldu hana árið 1991. Ekki vildi Gunnar setjast í helgan stein enda starfsþrekið óbugað. Ásamt sonum sínum Rúnari og Víg- lundi stofnað hann fyrirtækið Plast- bönd sem framleiddi plastborða til umbúða, seldu þeir fyrirtækið úr bænum árið 1998. Nú var komið að því að hinn sjálfstæði maður færi í vinnu hjá öðrum. Starfskraftana helgaði hann vettvangi sem hann þekkti vel frá fyrri tíð, á afgreiðslu vöruflutningafyrirtækisins Viggós hf. sem flutti varning á milli Reykjavíkur og Neskaupstaðar um lengstu akst- ursleið landsins. Eftir að Eimskipa- félagið tók yfir flutningana vann Gunnar á vöruafgreiðslu þeirra fram í janúar sl. Þrátt fyrir ósérhlífni til vinnu átti Gunnar sér ýmis áhugamál. Þau hjón- in áttu sumarbústað „inni í sveit“ þar sem þau undu flestar sínar frístundir og stundaði Gunnar þar trjárækt með góðum árangri. Þá fóru þau víða inn- anlands hin seinni ár og lagði Gunnar sérlega eftir sér að þekkja vel til stað- hátta hvar sem hann kom. Gunnar tók þátt í félagslífi í heimabæ sínum bæði í skógræktarfélaginu og svo var hann Lionsmaður um áratugaskeið. Þetta ágrip sem hér gefur að lesa er í mínum huga dæmigert fyrir þá menn sem viðhalda byggðum lands- ins og eiga þökk og virðingu okkar sem starfa þeirra njótum. Ég vil sjálf- ur þakka Gunnari fyrir vinarþel og allar góðu stundirnar sem við áttum heima og heiman og hollráð við marga praktíska hluti. Línu tengda- móður minni votta ég samúð og óska þess að almættið gefi henni styrk við missi síns góða maka. Ingibergur Elíasson. Nú er komið að því að kveðja Gunnar mág minn og vin okkar sem nú er látinn eftir skyndileg veikindi. Þrátt fyrir háan aldur kom þetta okk- ur í opna skjöldu því Gunnari hafði vart orðið misdægurt svo lengi sem ég minnist. Hann var lipur og liðtæk- ur til hinstu stundar og gekk til vinnu fram á síðasta ár. Heldur hef ég aldr- ei séð hann bregða skapi, svo mikið var hans jafnlyndi og ljúfmennska. Gunnar var fyrst og fremst heima- kær fjölskyldumaður. Hann og Lína systir mín voru samhent hjón, eign- uðust fimm mannvænleg börn og stóðu þétt um þau. Síðan hefur bæst við fjöldi barnabarna og allt er þetta mannkostafólk. Þau hjónin höfðu mikið yndi af alls kyns ræktun og komu sér upp sumarbústað í gróður- sælum reit þar sem þau dvöldu tíðum og sinntu áhugamálum sínum. Oft hefur þar verið gestkvæmt þegar fjöl- skyldan og vinir hittast á góðviðris- dögum og helgum. Hann var góður félagi og vinur og jafnan reiðubúinn að aðstoða þegar þörf var á. Hann hafði t.d. daglega gætur á húseign okkar í Neskaupstað sem einkum er ætluð til sumarnota og er það eitt af mörgu sem við viljum þakka honum nú en þar á hún systir mín vissulega einnig hlut að máli. Það er svo ótal margt að þakka þegar maður lítur til baka og minnist þess hve gott var að koma til þeirra hjóna og njóta gestrisni þeirra og hlýju og alls kyns góðs atlætis. Síðast í vor þegar ég dvaldist þar eystra um hríð, var þess m.a. ætíð gætt að mig vant- aði ekki við matarborðið hjá þeim. Elsku Lína systir, Lilja Dóra, Rún- ar, Víglundur, Dagný og Gunnur. Við vitum að mikill missir og eftirsjá er að slíkum manni sem Gunnar var og sendum við okkar innilegustu samúð- arkveðjur. Blessuð sé minning hans. Víglundur og fjölskylda. Kæri afi, við eigum öll eftir að sakna þín. Ég mun geyma í huga mín- um góðar minningar af skemmtileg- um samverustundum okkar í Birki- hvammi, sumarbústaðnum ykkar ömmu, og gönguferðum í Seldal. Ég minnist veiðiferðanna sem þú hafðir svo gaman af þegar við fórum saman á sjó með pabba á Emily og ég reyndi að fiska meir en þú en tókst ekki. Það verður virkilega tómlegt að hafa þig ekki í fermingunni minni í vor en þú verður þar samt í hjarta mínu. Elsku afi, takk fyrir alla snún- ingana með mig og allt annað. Megir þú hvíla í friði. Margs er að minnast, margt er hér að þakka. Guði sé lof fyrir liðna tíð. Margs er að minnast, margt er hér að þakka. Guði sé lof fyrir liðna tíð. Margs er að minnast, margs er að sakna. Guð þerri tregatárin stríð. Far þú í friði, friður Guðs þig blessi, hafðu þökk fyrir allt og allt. Gekkst þú með Guði, Guð þér nú fylgi, hans dýrðarhnoss þú hljóta skalt. (Vald. Briem.) Elsku amma, og aðrir, megi guð veita okkur öllum styrk. Gullveig Ösp Magnadóttir. Elsku afi minn, mér brá svo þegar mér var sagt að þú værir á sjúkrahús- inu. Þú sem alltaf varst svo hress og aldrei lasinn. Ég kom austur daginn áður og átti alveg eftir að heimsækja ykkur ömmu. Það hvarflaði ekki að mér að þú mundir verða veikur svona snöggt. Það var ekki fyrr en fyrir nokkrum árum að ég vissi að þú værir eldri en amma þú varst bara svo ung- legur og alltaf að. Ég man eftir því þegar þið amma áttuð Melabúðina, það var alltaf svo gaman að koma og versla. Þið laum- uðuð alltaf að mér og Óskari smá nammi, en mamma mátti ekki sjá. Ég man líka eftir því þegar ég og Lína vorum litlar, þá kepptumst við alltaf við að vera fyrri til að stökkva í fangið á þér um leið og þú komst inn úr dyrunum. Rifumst svo um það hvor okkar hefði knúsað þig lengur, endalaus metingur, en þú hlóst bara og knúsaðir okkur jafnlengi. Þegar ég var 5 ára og nýflutt til Neskaupstaðar bjuggum við í kjall- aranum hjá ykkur í u.þ.b. ár. Þá var ég vön að hlaupa upp til ykkar og fela mig undir skrifborðinu þínu, í hvert skipti sem ég var skömmuð og allt var ómögulegt. Þá hugguðuð þið mig og gáfuð mér kex og þá var allt orðið gott aftur. Svo var það líka voða sport að fá að fara á snjósleða með þér þegar við vorum inni í sumarbústað á veturna. Þið amma gerðuð líka alltaf svo mikið saman, unnuð saman í garðinum og gróðurhúsinu og okkur þótti alltaf svo gaman að koma í heimsókn til ykkar, hvort sem það var inni í sumarbústað eða heima, alltaf tókuð þið vel á móti okkur. Elsku afi minn, ég sakna þín. Hversu góður og rólegur þú varst alltaf. Guð veri með þér að eilífu. Þín sonardóttir Díana Dögg Víglundsdóttir. GUNNAR MAGNÚS DAVÍÐSSON

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.