Morgunblaðið - 09.01.2003, Qupperneq 1
STOFNAÐ 1913 7. TBL. 91. ÁRG. FIMMTUDAGUR 9. JANÚAR 2003 mbl.is
Ætla að sýna
Stanley allan
Allar 16 kvikmyndir Stanley Kubrick
sýndar hvíldarlaust Fólk 60
Markmið landsliðsins að komast á
Ólympíuleika 2004 Íþróttir C1
Vilja vernda
miðborgina
Kaupmenn í miðborginni hafa
áhyggjur af flótta verslana 24
Markmiðið
er Aþena
VIÐRÆÐUR EFTA-ríkjanna Íslands,
Noregs og Liechtenstein við Evrópu-
sambandið um aðlögun EES-samnings-
ins vegna stækkunar ESB hefjast í
Brussel í dag.
ESB hefur farið fram á allt að 27-föld-
un greiðslna frá Íslandi til fátækari að-
ildarríkja sambandsins vegna stækkun-
arinnar. Skv. heimildum Morgun-
blaðsins er Ísland einungis tilbúið að
skoða sömu eða svipaðar greiðslur og
undanfarin ár, þ.e. rúmlega 100 millj. kr.
á ári. Núverandi samningur um
greiðslur rennur út í lok þessa árs og
hefur Ísland til þessa ekki talið sig
skuldbundið að halda greiðslum áfram.
Ísland og Noregur hafna algerlega
kröfum ESB um heimild til fjárfestinga í
íslenzkum og norskum sjávarútvegi
gegn því að ríkjunum verði bættur upp
missir tollfríðinda fyrir sjávarafurðir í
nýjum aðildarríkjum ESB.
Samningaviðræður um að-
lögun EES hefjast í dag
Ísland býð-
ur óbreytt-
ar greiðslur
Tekizt á/32
BÚNAÐARBANKINN og 12,5% hlutafjáreign
hans í Fjárfestingarfélaginu Straumi varð tilefni
átaka sem urðu í viðskiptalífinu sl. sumar um yf-
irráðin í Straumi. Upplýst er í fjórðu og síðustu
grein Agnesar Bragadóttur í greinaflokknum
Baráttan um Íslandsbanka, að Jón Ásgeir Jó-
hannesson, forstjóri Bónuss, og samherjar hans
gerðu hinn 19. júní sl. skriflegan samning við
Árna Tómasson, bankastjóra Búnaðarbankans,
og Yngva Örn Kristinsson, framkvæmdastjóra
verðbréfaviðskipta bankans, um kauprétt Fjár-
fars ehf., félags í eigu Jóns Ásgeirs og fleiri, á
öllum bréfum Búnaðarbankans í Straumi og
sölurétt Búnaðarbankans á bréfum sínum.
„Sá hlutur hefði ótvírætt fært Jóni Ásgeiri og
félögum ráðandi hlut í Straumi, ef samningurinn
hefði verið efndur. Gerð þessa samnings var að-
eins á vitorði örfárra manna,“ segir í greininni.
Búnaðarbankinn sóttist eftir að fá stjórnar-
mann í Straumi en stjórnendur Íslandsbanka
höfnuðu þeirri ósk. Við svo búið krafðist Bún-
aðarbankinn þess 2. júlí sl. að hluthafafundur
yrði haldinn en krafan var afturkölluð 16. júlí. Í
millitíðinni hafði mikið gengið á milli stjórnenda
Búnaðarbanka og Íslandsbanka, sem lýstu því
yfir að ef Búnaðarbankinn héldi kröfu sinni um
hluthafafund til streitu yrði litið á það sem
stríðsyfirlýsingu, sem mætt yrði af fullri hörku.
Í greininni kemur einnig fram að á fundi aðal-
bankastjóra og formanna bankaráða Búnaðar-
bankans og Íslandsbanka, sem haldinn var
snemma í júlí, gáfu stjórnendur Búnaðarbank-
ans stjórnendum Íslandsbanka fyrirheit um að
annað hvort fengi Íslandsbanki að kaupa 12,5%
hlut Búnaðarbankans í Straumi eða Búnaðar-
bankinn ætti bréfin áfram án þess að knýja
fram breytingar í stjórn félagsins. Ekki var
upplýst á fundinum um leynisamninginn sem
Búnaðarbankinn hafði gert 19. júní við Fjárfar
o.fl. um eignarhlutinn í Straumi og fram kemur í
greininni að hvorki Sólon Sigurðsson, banka-
stjóri Búnaðarbankans, né Magnús Gunnarsson,
formaður bankaráðs, vissu á þessum tíma um
samninginn sem gerður hafði verið við Jón Ás-
geir og félaga hans.
Jón Ásgeir, sem krafist hafði hluthafafundar í
Straumi sem halda átti 20. ágúst sl., lagði fram
ósk um nýtingu kaupréttarins á hlut Búnaðar-
bankans í Straumi 12. ágúst. Skv. ákvæði í
samningnum um að viðskipti á grundvelli kaup-
og söluréttar skyldu fara fram innan 15 daga frá
því að ósk um nýtingu bærist, gat Búnaðarbank-
inn neitað að afhenda bréf sín í Straumi fyrr en
23. ágúst, þremur dögum eftir boðaðan hlut-
hafafund. „...þannig hefði Jón Ásgeir ekki verið
kominn með tilskilinn eignarhlut á hluthafa-
fundinum, sem dygði honum til þess að ná
meirihlutanum í Straumi,“ segir í greininni.
Stríðsyfirlýsing sem yrði
svarað af fullri hörku
Lokaátökin/14–18
Bankastjórar Íslandsbanka um kröfu Búnaðarbanka um hluthafafund í Straumi
LEIÐTOGAR Bandaríkjanna og Rúss-
lands vinna að því saman, að Saddam
Hussein, forseti Íraks, fari í útlegð, hugs-
anlega í Moskvu. Var þessu haldið fram í
þýsku dagblaði í gær og einnig í ensku
dagblaði. Íraskir embættismenn neita
þessu harðlega.
Þýska blaðið Tageszeitung kvaðst hafa
fyrir því heimildir í Rússlandi og Banda-
ríkjunum, að Vladímír Pútín, forseti
Rússlands, hygðist beita sér í því skyni að
koma í veg fyrir stríð í Írak og þar væri
það lykilatriðið, að Saddam féllist á að
fara í útlegð. Hefði George W. Bush, for-
seti Bandaríkjanna, farið fram á þetta við
Pútín.
Harðlega neitað
Daily Telegraph í London sagði, að auk
Rússlands væri rætt um, að Saddam gæti
farið í útlegð í Hvíta Rússlandi, Egypta-
landi, Líbýu eða Máritaníu. Þá sagði Blas
Ople, utanríkisráðherra Filippseyja, í
gær, að ýmis ríki í Miðausturlöndum
hefðu lagt að Saddam að fara í útlegð.
Talsmenn stjórnvalda í Egyptalandi og
Máritaníu og Abbas Khalaf, sendiherra
Íraks í Moskvu, neituðu þessu í gær.
Saddam
í útlegð?
Berlín, Moskvu. AFP.
Reuters
SJÖTÍU og fimm menn fórust í
gærkvöld er flugvél frá tyrkneska
flugfélaginu Turkish Airlines brot-
lenti á flugvelli í Suðaustur-Tyrk-
landi. Í gærdag týndi 21 maður lífi
er flugvél frá bandaríska flugfélag-
inu US Airways Express fórst í flug-
taki á Charlotte-Douglas-flugvellin-
um í Charlotte í Norður-Karólínu.
Tyrkneska flugvélin, sem var af
gerðinni RG-100 og hafði lagt upp
frá Istanbul, brotlenti á eða við flug-
völlinn í borginni Diyarbakir í mik-
illi þoku. Abdulkadir Aksu, innan-
ríkisráðherra Tyrklands, sagði í
viðtali við tyrkneska sjónvarpsstöð,
að um borð í vélinni hefðu verið 75
farþegar og fimm flugliðar. Fullyrti
hann, að 75 hefðu farist en fimm
verið fluttir lífs á sjúkrahús.
„Flugvélin brotlenti með miklum
gný og varð alelda áður en hún
brotnaði í sundur,“ sagði kona, sem
lifði slysið af. Kastaðist hún út og
lenti á heysátu við flugbrautina.
Hrapaði í flugtaki
Flugvélin, sem fórst í Bandaríkj-
unum, var átta ára gömul, tveggja
hreyfla skrúfuþota af gerðinni
Beech 1900. Var hún að taka á loft í
heiðskíru veðri en allmiklum vindi
og hafði sleppt brautinni en náði sér
ekki upp. Lenti hún á horni flug-
skýlis og braust þá út mikill eldur í
henni. Tók ekki langan tíma að
slökkva hann en strax var ljóst, að
enginn um borð hafði komist af.
Reuters
Örvænting hjá ættingjum farþeganna
ÆTTINGJAR þeirra, sem voru með tyrknesku farþegaflugvélinni, söfnuðust saman grátandi í flugstöðinni í Diy-
arbakir. Með vélinni voru 80 manns og þar af fórust 75. Aðeins fimm voru fluttir lifandi á sjúkrahús, sumir mjög
mikið slasaðir. Talið er, að þoka hafi valdið slysinu en áður hafði mörgum flugferðum verið aflýst vegna hennar.
Nærri 100 manns farast
í tveimur flugslysum
Charlotte. AP, AFP.