Morgunblaðið - 09.01.2003, Síða 12
FRÉTTIR
12 FIMMTUDAGUR 9. JANÚAR 2003 MORGUNBLAÐIÐ
ÞEIR Andrés Bertelsen og Sigurð-
ur Hannesson voru í gær að girða í
kringum tré sem standa við Miklu-
brautina.
Sögðu þeir að girðingin væri að-
allega til að verja trén fyrir vindi
og gert væri ráð fyrir að hún stæði í
tvö ár.
Morgunblaðið/Golli
Verja
trén gegn
vindi
VELFERÐARMÁLIN og það
markmið að mynda velferðarstjórn í
landinu að loknum kosningum verða
eitt af helstu baráttumálum Vinstri-
hreyfingarinnar – græns framboðs
fyrir komandi kosningar. Þetta kom
fram á fundi sem þrír efstu fram-
bjóðendur flokksins efndu til á Ak-
ureyri þar sem kynnt voru nokkur
helstu áhersluatriði nú í upphafi
kosningabaráttunnar.
Hreyfingin samþykkti framboðs-
lista sinn í Norðausturkjördæmi á
fundi sem haldinn var í Mývatnssveit
um liðna helgi, en Steingrímur J.
Sigfússon, alþingismaður, Þistilfirði,
skipar efsta sætið, Þuríður Back-
man, alþingismaður, Egilsstöðum, er
í öðru sæti og Hlynur Hallsson,
myndlistarmaður, Akureyri, í því
þriðja.
Þriðja sætið baráttusæti
„Við eigum von á góðri útkomu í
þessu kjördæmi og vonandi er þriðja
sæti á okkar lista baráttusæti, þó
ekkert sé frátekið fyrirfram væntum
við þess að vera með í keppninni um
jöfnunarsæti í kjördæminu,“ sagði
Steingrímur J. Sigfússon.
Hlynur sagðist líta á þriðja sætið
sem baráttusæti, „kannanir sýna að
hreyfingin er sterk í þessu kjördæmi
og við munum stefna að því að ná inn
þremur mönnum. Og það verður
spennandi að taka þátt í þeirri bar-
áttu.“
Þuríður Backman sagði byggða-
mál sín hjartans mál og það væri
keppikefli hreyfingarinnar að gera
landsbyggðina alla eftirsóknarverða
til búsetu. Byggðaþróun og um-
hverfisvernd færu saman en ekki
veitti af að snúa við blaðinu í þeim
efnum.
Fram kom á fundi frambjóðend-
anna þriggja að samgöngumál yrðu
gríðarlega mikilvæg enda væru þau
mönnum í kjördæminu sem og um
land allt ofarlega í huga. Meðal þess
sem hreyfingin mun leggja áherslu á
í þeim efnum er að hringtengingu
Norðausturlands við meginþjóð-
vegakerfið verði hraðað og lokið að
fullu á þessum áratug. Fyrirliggj-
andi vegaáætlun geri hins vegar ráð
fyrir að því verki verði ekki lokið fyrr
en árið 2014. „Við munum beita okk-
ur fyrir því að þessu verkefni verði
hraðað sem kostur er og því lokið ár-
ið 2010,“ sagði Steingrímur.
Þá mun VG einnig leggja áherslu á
að ekki verði hvikað frá þegar sam-
þykktum áformum um jarðganga-
framkvæmdir á svæðinu og að kann-
aðir verði til hlítar kostir þess að
ráðast þegar í gerð Vaðlaheiðar-
ganga sem sjálfstæðrar fram-
kvæmdar. Þá má einnig nefna að
hreyfingin vill stuðla að því að beint
millilandaflug verði frá Egilsstaða-
og Akureyrarflugvöllum með niður-
fellingu lendingargjalda fyrstu árin.
Enn hefur ekki verið gengið frá
formlegri stefnuskrá en fjallað er um
mennta- og atvinnumál, velferðar-
og almannaþjónustu, afkomu og
hlutverk sveitarfélaga, jöfnun lífs-
kjara og búsetuskilyrða, menningu
og listir, umhverfisvernd og sjálf-
bæra þróun sem og uppbyggilega
umræðu, jákvætt andrúmsloft og
tiltrú í helstu áhersluatriðum hreyf-
ingarinnar sem kynnt voru á fund-
inum á Akureyri.
Grunnnám í heimabyggð
Nefna má að hreyfingin vill að
samfellt grunnnám í heimabyggð til
18 ára aldurs verði regla í lok næsta
kjörtímabils og að tekið verði á fjár-
hagsvanda framhaldsskólanna, að
búsetutengdur grunnstuðningur
verði tekinn upp í landbúnaði eða til
sveita til að treysta byggð og bæta
afkomu bænda og auðvelda nýsköp-
un í atvinnumálum í strjálbýli, sem
og að hluti veiðiréttinda verði
byggðatengdur
Þá er nefnt að gera þurfi ráðstaf-
anir til að skapa skilyrði og rekstr-
argrundvöll fyrir nauðsynlega al-
mannaþjónustu í hverri byggð, m.a.
hvað varðar póst-, síma og banka-
þjónustu sem og verslun og fleira, en
slíkri þjónustu hefði stórhrakað víða
á landsbyggðinni undanfarin misseri
í tengslum við hlutafélagavæðingu
og einkavæðingu almannaþjónustu-
fyrirtækja.
Loks má nefna að hreyfingin telur
að grípa verði til róttækra aðgerða
til að bæta afkomu sveitarfélaga og
gera þeim betur kleift að uppfylla
lögboðnar skyldur, byggja upp og
bæta búsetuskilyrði á sínu svæði.
Vinstrihreyfingin – grænt framboð kynnir áherslumál í upphafi kosningabaráttu
Landsbyggðin verði öll
eftirsóknarverð til búsetu
Morgunblaðið/Kristján
Þuríður Backman, Steingrímur J. Sigfússon og Hlynur Hallsson skipa þrjú
efstu sætin á lista Vinstrihreyfingarinnar – græns framboðs í Norðaustur-
kjördæmi fyrir alþingiskosningarnar í vor.
PRÓFKJÖR framsóknarmanna í
Norðausturkjördæmi fer fram á
aukakjördæmisþingi flokksins á
laugardaginn. Fimmtán hafa gefið
kost á sér í prófkjörinu, Valgerður
Sverrisdóttir iðnaðarráðherra og
Jón Kristjánsson heilbrigðisráð-
herra sækjast bæði eftir fyrsta sæti.
Arngrímur V. Ásgeirsson íþrótta-
kennari sækist eftir 2. til 3. sæti og
þau Dagný Jónsdóttir, formaður
Sambands ungra framsóknarmanna
í Reykjavík, Daníel U. Árnason vara-
þingmaður og Þórarinn E. Sveinsson
forstöðumaður sækjast öll eftir 3.
sæti. Prófkjör framsóknarmanna í
Suðurkjördæmi verður haldið á Hót-
el Selfoss 18. janúar en framboðs-
frestur rennur út á miðnætti á laug-
ardaginn.
Valgerður og Jón
sækjast eftir 1. sæti
TÖLVUFORRIT gengur á milli
manna hér á landi sem gerir not-
endum þess kleift að horfa á læsta
dagskrá sjónvarpsstöðva án þess að
greiða afnotagjald. Samkvæmt
heimildum Morgunblaðsins leiðrétt-
ir forritið myndina á skjánum, sé
hún rugluð, svo hún sjáist skýrt.
Tölvuforritið finnur eina línu og
hliðrar henni til hægri eða vinstri
þannig að hún passi við línuna fyrir
neðan.
Sigurður G. Guðjónsson, forstjóri
Norðurljósa, segir þetta vandamál
ekki aðeins bundið við Ísland. Sjón-
varpsstöðvar alls staðar í heiminum
bregðist við þegar dagskrá þeirra sé
stolið með aðstoð tölvutækninnar.
„Ef við sæjum fall í áskrifendafjölda
myndum við bregðast við hér innan-
dyra hjá okkur auk þess að leita at-
beina lögreglu til að uppræta þessa
ólöglegu iðju. Allt það efni sem við
sendum út er verndað af höfund-
arrétti og það má enginn taka án
þess að greiða fyrir. Ég tel líka að
samtök eins og höfundarréttarsam-
tök myndu fljótt láta á málið reyna
til að leita réttar síns.“
Myndgæðin léleg
Nokkrar tegundir eru til af þessu
forriti og er hægt að nálgast þau á
vefnum. Í tölvunni þarf að vera sjón-
varpskort sem sjónvarpsloftnet er
tengt við. Slíkt kort er staðalbún-
aður í mörgum betri tölvum í dag en
nothæft kort kostar nálægt tólf þús-
und krónum út úr búð. Forritið af-
ruglar myndina og hægt er að horfa
á hana á tölvuskjánum eða tengja
við venjulegt sjónvarp.
„Við erum búin að prófa öll þessi
forrit sem eru í boði og myndum
ekki treysta okkur til að selja sjón-
varpsdagskrána á þessum forsend-
um,“ segir Sigurður, sem hefur
þekkt til þessarar tækni frá árinu
1996. Norðurljós geti fullkomlega
keppt við þetta enda myndgæðunum
ekki saman að líkja. Sé myndin á
skjánum dökk, ljós eða hröð verði
hún mjög óskýr. Það kosti bæði
þekkingu og mikinn tíma að verða
sér úti um þennan búnað og tengja
hann sem síðan skili takmörkuðum
árangri.
„Við erum róleg yfir þessu. Það er
alltaf ákveðinn hópur fólks sem stel-
ur öllu sem það getur stolið en
stærstur hluti þjóðarinnar er heið-
arlegt fólk sem vill borga fyrir þjón-
ustuna sem við veitum,“ segir Sig-
urður G. Guðjónsson.
Afrugla læsta
dagskrá í heim-
ilistölvunni
Tölvuforrit í umferð sem gerir fólki
kleift að svindla sig inn á Stöð 2
GUÐJÓN Sigmundsson, betur
þekktur sem Gaui litli, hefur
hrint af stað þjóðarátaki til að
vekja landsmenn til meðvitund-
ar um heilbrigðan og hollan
lífsstíl.
„Þetta gerum við í samvinnu
Félags fagfólks gegn offitu sem
stofnað var 12. desember.“
Guðjón segir að heilbrigðis-
starfsfólk sé að átta sig á
hversu gífurlegt vandamál of-
fita sé orðin.
„Við siglum hraðbyri í sömu
átt og Bandaríkjamenn varð-
andi of þung börn og unglinga.“
Hann segir að eina leiðin til að
sporna gegn þessu séu forvarn-
ir en hins vegar séu litlir fjár-
munir veittir frá hinu opinbera
í þessi mál.
Vakning Guðjóns felst meðal
annars í átaki tveggja karl-
manna, sem ætla að létta sig, og
fylgst verður með í morgun-
sjónvarpi Stöðvar tvö. Einnig
mun íslensk kona taka þátt í
átakinu í morgunsjónvarpi í
Drammen í Noregi. „Við ætlum
að beita skynsamlegum aðferð-
um. Ekki fara af stað með
þeirri hörku sem var í Dagsljósi
á sínum tíma þar sem ég missti
53 kíló á sjö mánuðum.“ Hann
leggur áherslu á að offitan sé
ekki aðalvandamálið heldur það
sem gerir það að verkum að
fólk misnoti mat og þyngist.
„Við beinum sjónum okkar að
lífsstílnum og líðan einstak-
lingsins. Að fólk sé sátt við
sjálft sig.“
Hann segir engar skyndi-
lausnir til. Breyttur lífsstíll eigi
ekki að einskorðast við átök eft-
ir jól, páska, grillsumur og þar
fram eftir götunum. Hreyfing
sé alltaf mikilvæg en ekki sé
síður mikilvægt að velja hollt
fæði.
Þjóðar-
átak um
breyttan
lífsstíl