Morgunblaðið - 09.01.2003, Síða 22
ERLENT
22 FIMMTUDAGUR 9. JANÚAR 2003 MORGUNBLAÐIÐ
PAKISTANAR brugðust í gær
ókvæða við þeim yfirlýsingum varn-
armálaráðherra Indlands, að Ind-
verjar gætu þurrkað Pakistan út af
landakortinu kæmi til kjarnorku-
stríðs. Sögðu þeir, að í slíku stríði
myndu þeir kenna Indverjum lexíu,
sem þeir gleymdu seint.
Sheikh Rashid Ahmed, upplýs-
ingarráðherra Pakistans, kallaði yf-
irlýsingu George Fernandes, varn-
armálaráðherra Indlands, „óráðs-
hjal brjálaðs manns“ og fordæmdi
„kynþáttahatur hindúaklíkunnar“ í
Indlandi.
„Við viljum ekki stríð,“ sagði Ah-
med, „en beiti þeir kjarnorkuvopn-
um munum við kenna þeim lexíu,
sem þeir gleyma aldrei.“
Musharraf dregur í land
Fernandes sagði á ráðstefnu í
fyrradag, að leiðtogar Pakistana
ættu ekkert að vera að gæla við það
sjálfsmorð, sem kjarnorkustríð yrði
fyrir þá. „Við þolum eina bombu eða
tvær og jafnvel fleiri en Pakistan
yrði þurrkað burt af landakortinu.“
Fernandes var með þessum orð-
um að svara Pervez Musharraf, for-
seta Pakistans, en hann gaf fyrir
skömmu í skyn, að þegar í odda
skarst með ríkjunum á síðasta ári,
hefði hann verið þess albúinn að
beita kjarnorkuvopnum. Síðan hef-
ur hann reynt að draga í land og
segir nú, að hann hafi átt við skæru-
hernað í Indlandi.
Indverjar betur búnir
Indverjar hafa heitið að hefja
aldrei stríð með kjarnorkuvopnum
en útiloka ekki, að þeim verði beitt,
verði ráðist á landið með hefð-
bundnum vopnum. Pakistanar hafa
ekki gefið neinar yfirlýsingar um
hvort eða hvenær þeir muni grípa
til kjarnorkuvopna. Er kjarnorku-
vopnabúr Indverja miklu stærra en
Pakistana og þeir fyrrnefndu ráða
einnig yfir fleiri langdrægum eld-
flaugum.
„Þolum
eina
bombu
eða tvær“
Islamabad. AFP.
FJÖLMIÐLAR á Ítalíu hafa
birt játningar lögreglumanna
sem segjast hafa logið upp sök-
um á fólk sem tók þátt í mót-
mælum gegn alþjóðavæðingu í
Genúa þegar leiðtogar átta
helstu iðnríkja heims komu þar
saman í júlí 2001. Þetta kemur
fram á fréttavef BBC.
Rannsókn stendur nú yfir á
aðgerðum lögreglunnar og þá
sérstaklega áhlaupi hennar á
heimavist sem notuð var til að
hýsa mótmælendur.
Háttsettur lögregluforingi er
sagður hafa viðurkennt við yf-
irheyrslur að lögreglan hafi
komið fyrir tveimur bensín-
sprengjum í heimavistinni til að
réttlæta áhlaupið. Bensín-
sprengjurnar hafi í reynd fund-
ist á öðrum stað í borginni þar
sem til átaka hafði komið milli
mótmælenda og lögreglumanna.
93 voru handteknir í heima-
vistinni og 72 þeirra urðu fyrir
meiðslum í áhlaupinu. Að
minnsta kosti 77 lögreglumenn
sæta nú rannsókn vegna meints
hrottaskapar og þrír lögreglu-
foringjar hafa verið færðir til
annarra starfa vegna málsins.
Lugu upp
sökum á
mótmæl-
endur
FRAMKVÆMDASTJÓRN Evr-
ópusambandsins blés í gær til
nýrrar sóknar gegn stjórnvöldum
þeirra aðildarríkja Efnahags- og
myntbandalags Evrópu (EMU)
sem hafa staðið sig illa í því að
standa við skilyrði stöðugleikasátt-
mála bandalagsins um strangan
aga við stjórn ríkisfjármála. Bein-
ast spjót framkvæmdastjórnarinn-
ar í þessu efni aðallega að mestu
þungavigtarlöndum evru-svæðis-
ins, Þýzkalandi, Frakklandi og
Ítalíu.
Pedro Solbes, sem fer með efna-
hagsmál í framkvæmdastjórn ESB,
ávítti í gær stjórnvöld í Berlín,
París og Róm fyrir að gera ekki
nóg til að hafa hemil á skuldaaukn-
ingu ríkissjóðs og krafðist þess að
gripið yrði til markvissra ráðstaf-
ana til að minnka fjárlagahallann í
þessum löndum.
„Traust ríkisfjármál eru hluti af
lausninni á samdrætti í Evrópu,
ekki hluti vandans,“ fullyrti Solbes
á blaðamannafundi í Brussel í gær,
er mat framkvæmdastjórnarinnar
á stöðu ríkisfjármála í Þýzkalandi,
Frakklandi og Ítalíu var lagt fram.
Varðist Solbes með þessu þrýstingi
frá þeim sem telja að nú, er hag-
sveiflan er niður á við í kjarnalönd-
um evru-svæðisins, væri réttast að
veita meira svigrúm til útgjalda-
aukningar úr ríkissjóðum frekar en
að sýna enn meira aðhald, sem
skilyrði stöðugleikasáttmálans
krefjast.
Fái fjögurra mánaða frest
Staðan er að sögn Solbes verst í
Þýzkalandi, langstærsta þjóðhag-
kerfi álfunnar. Þar í landi hefðu
stjórnvöld nú brotið gegn ákvæði
stöðugleikasáttmála myntbanda-
lagsins um að fjárlagahalli megi
ekki vera meiri en 3% af vergri
landsframleiðslu. Á síðastliðnu ári
hefði hallinn á rekstri þýzka rík-
issjóðsins verið 3,75%. „Þar sem
hagvaxtarhorfur eru ekki að
batna,“ sagði Solbes, er hætta á að
hallinn á þessu ári verði einnig yfir
mörkunum. Framkvæmdastjórnin
mælist til þess að fjármálaráðherr-
ar ESB-landanna, sem koma næst
saman 20.-21. janúar, ákveði að
gefa þýzku ríkisstjórninni fjögurra
mánaða frest til að grípa til sann-
færandi ráðstafana til að ráða bót
á þessu, en eigi að öðrum kosti yfir
höfði sér þungar sektir, eins og
kveðið er á um í stöðugleikasátt-
málanum - sem Þjóðverjar voru
reyndar á sínum tíma aðalhvata-
mennirnir að því að semja.
Ríkisstjórn Gerhards Schröders,
kanzlara Þýzkalands, vonast til að
geta komið fjárlagahallanum á
þessu ári niður í 2,75% af VLF, en
þau áform byggjast á því að hag-
vöxtur í landinu verði að minnsta
kosti 1,5% í ár. Hagspekingum ber
flestum saman um að mjög hæpið
sé að hagvöxturinn verði það mik-
ill.
Talsmaður þýzka fjármálaráðu-
neytisins sagði þó í gær að þar
væri skýrslu framkvæmdastjórnar-
innar vel tekið; hún styddi við
áform þýzku ríkisstjórnarinnar um
að koma jafnvægi á ríkisfjármálin
fyrir árið 2006.
Kosningaloforð
Chiracs gagnrýnd
Solbes gagnrýndi einnig frönsku
ríkisstjórnina og sagði að mikil
hætta væri á því að hallinn á
frönsku fjárlögunum færi yfir 3%-
mörkin á þessu ári. Jacques Chirac
Frakklandsforseti hefur lagt
áherzlu á að staðið verði við kosn-
ingaloforð sem gefin voru fyrir for-
seta- og þingkosningarnar í fyrra
um skattalækkanir og aukin rík-
isútgjöld til vissra málaflokka.
„Meiri aga er þörf við stjórnun rík-
isfjármálanna,“ sagði Solbes.
Ítölsk stjórnvöld voru ennfremur
gagnrýnd fyrir að treysta um of á
stakar skammtímaráðstafanir til að
forðast að sprengja mörk stöðug-
leikasáttmálans og fyrir að gefa
sér of bjartsýnar forsendur fyrir
fyrirhuguðum aðgerðum sínum í
þessum efnum.
Þjóðverjar brotlegir við
stöðugleikasáttmála EMU
Brussel. AFP, AP.
SJÁLFBOÐALIÐAR reyna í gær að
bjarga grindhvölum sem strandað
höfðu í fjörunni á Stewart-eyju á
Nýja-Sjálandi. 159 hvala hópur
hafði synt upp í fjöru og strandaði
þar og voru a.m.k. 80 hvalanna
dauðir þegar fréttist af óláni þeirra.
Dýraverndunarsinnum tókst að
bjarga um fjörutíu en ólíklegt var
talið að fleirum yrði bjargað.
Reuters
Strönduðu í fjörunni
á Stewart-eyju
GERHARD
Schröder, kanzlari
Þýzkalands, á
sannarlega ekki
sjö dagana sæla
um þessar mundir.
Um leið og vanda-
málin í þýzku efna-
hagslífi eru með
allra erfiðasta
móti og persónu-
legar vinsældir
hans hafa hrunið
vegna meintra
svika hans á kosn-
ingaloforðum er
einkalíf hans líka
komið milli tann-
anna á þjóðinni,
einu sinni enn.
Nú er hann að reyna að verjast
sögusögnum um að hjónaband
hans – sem er hans fjórða – sé í
uppnámi.
Óskráðar reglur þýzkra fjöl-
miðla um að þegja um einkalíf
stjórnmálamanna virðast vera á
hröðu undanhaldi.
„Mér býður við þeim hætti sem
sumir hafa á umfjöllun um einka-
líf stjórnmálamanna,“ sagði
Schröder á fundi með öðrum for-
ystumönnum þýzka Jafn-
aðarmannaflokksins, SPD, í gær.
Á sama tíma skiluðu menn sem
nærri standa kanzlaranum þeim
skilaboðum frá lögmönnum hans
til fjölmiðla, að hver sá sem birti
nýjustu sögusagnirnar af einka-
lífi hans gæti átt von á lögsókn.
Starfsmaður á skrifstofu
kanzlarans sagði að grein sem
birtist um helgina í brezka æsi-
fréttablaðinu Mail on Sunday,
þar sem konan er nafngreind sem
Schröder er sagður eiga vingott
við, væri „mjög særandi“ og
ósönn. John Wellington, aðstoð-
arritstjóri blaðsins, tjáði AFP að
blaðið stæði „100 prósent“ við
frásögnina.
Schröder kvæntist blaðamann-
inum Doris Köpf (nú Schröder-
Köpf) fyrir sex árum. Hann varð
kanzlari innan við ári eftir brúð-
kaupið, árið 1998.
Doris var áberandi í kosninga-
baráttunni fyrir síðustu kosn-
ingar, sem fóru fram seint í sept-
ember sl. Hún var með á myndum
af kanzlaranum á veggspjöldum
og tók þátt í spjallþáttum við hlið
manns síns og tók þannig virkari
þátt í kosningabaráttu en fyrri
dæmi eru um maka þýzks stjórn-
málaleiðtoga.
Hver sá sem „ónáðar almenn-
ing með einkalífi sínu verður að
sætta sig við slíkar sögusagnir,“
segir Frank Mangelsdorf, rit-
stjóri þýzks dagblaðs sem
Schröder hefur stefnt vegna
greinar sem það birti fyrir
skemmstu um meinta kreppu í
hjónabandi kanzlarans. Sam-
kvæmt frásögn blaðsins var sú
kreppa tilkomin af því að þau
hjónin hefðu rifizt um miklar
fjarvistir Schröders frá heimili
þeirra, sem þau halda í Hann-
over, þótt kanzlaraskrifstofan sé
í Berlín.
Fyrir u.þ.b. ári fékk kanzlarinn
lögbann á fullyrðingar um að
hann litaði á sér hárið, en því
hafði verið haldið fram í slúð-
urdálkum.
Stöku leiðarahöfundar hafa þó
sýnt málstað Schröders samúð.
„Við erum að gera okkur að at-
hlægi,“ stóð í forystugrein Berl-
iner Kurier í gær, „eins og brezk-
ar sögusagnir um hjónaband
kanzlarans væri helzta vanda-
málið sem við höfum við að glíma.
Aumingja Þýzkaland. Aum-
ingja kanzlarinn.“
Verst fregnum
af meintri hjóna-
bandskreppu
Reuters
Gerhard Schröder hlustar á eiginkonu sína,
Doris Schröder-Köpf, á kosningafundi í ágúst.
Berlín. AFP.