Morgunblaðið - 09.01.2003, Síða 29
LANDIÐ
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 9. JANÚAR 2003 29
TILKYNNT hefur verið um sigur-
vegara í samkeppni Fjarðaröld-
unnar ehf. um merki fyrir Hótel Öld-
una á Seyðisfirði. Höfundur
merkisins er Guðjón Bragi Stef-
ánsson frá Egilsstöðum. Hann veitti
verðlaununum, 100.000 krónum,
viðtöku við hátíðlega athöfn í Skaft-
felli – menningarmiðstöð á föstu-
daginn var. Jóhanna Gísladóttir,
stjórnarformaður Fjarðaröldunnar,
afhenti verðlaunin. Alls bárust átta-
tíu og átta tillögur í keppnina frá
tæplega 50 aðilum.
Guðjón Bragi lýkur námi í graf-
ískri hönnun við Listaháskóla Ís-
lands í vor. Um merkið segir hann:
„Glugginn er tákn gamallar bygg-
ingar og getur verið gluggi til for-
tíðar eða framtíðar, einnig má
hugsa sér hótelherbergið fyrir inn-
an gluggann og Seyðisfjörð fyrir ut-
an.“
Fjarðaraldan hf. er félag sem hef-
ur það hlutverk að endurbyggja hús
frá því um aldamótin 1900. Félagið á
þegar tvö hús sem munu verða hót-
el. Framkvæmdir eru hafnar og gert
ráð fyrir að fullbúin níu herbergja
eining verði opnuð í júní 2003.
Guðjón Bragi Stefánsson tekur við verðlaunum úr hendi stjórnarformanns
Fjarðaröldunnar, Jóhönnu Gísladóttur.
Hlaut verðlaun í sam-
keppni um hótelmerki
Seyðisfjörður
Á AÐVENTUKVÖLDI Reykholts-
kirkju færði Magnús Sigurðsson,
bóndi á Gilsbakka og formaður
stjórnar menningarsjóðs Sparisjóðs
Mýrasýslu, fyrir hönd Sparisjóðsins
3 milljónir króna að gjöf til bygg-
ingar Reykholtskirkju.
Guðlaugur Óskarsson, formaður
sóknarnefndar, sagði m.a. við þetta
tækifæri: „Allar götur frá upphafi
byggingar í Reykholti hefur Spari-
sjóðurinn verið þátttakandi á sinn
hátt í verkinu, með því að veita lán
þannig að unnt væri að halda áfram
þó svo að fyrirheit gjafa og styrkja
sköruðust og árstíð til athafna. Einn-
ig með því að sýna jafnan lipurð og
sanngirni varðandi vexti og gjald-
daga. En þó ekki síst með því að
treysta okkur.
Við bæði flygilkaup og uppsetn-
ingu orgels hefur sparisjóðurinn
einnig sýnt velvilja og hjálpsemi.“
Gestir á aðventukvöldinu, sem
sóknarnefnd kirkjunnar stóð fyrir,
voru Karlakór Kjalnesinga sem söng
og einnig sýndu börn úr Kleppjárns-
reykjaskóla helgileik.
Kirkjan
fær veg-
legan styrk
Ljósmynd/Sigríður Kristinsdóttir
Guðlaugur Óskarsson tekur við gjöfinni úr hendi Magnúsar Sigurðssonar.
Reykholt
ÞAÐ er afar sjaldgæft að sjá bændur
plægja akra sína á milli jóla og ný-
árs, að minnsta kosti hér í uppsveit-
um Árnessýslu þar sem vetur eru að
jafnaði kaldari hér inn til landsins en
við sjávarsíðuna. Það er þó ekki eins-
dæmi og eitthvað er um að bændur
hafi borið plóg á jörð í janúarmánuði
í bestu árum. Skúli Guðmundsson í
Birtingaholti var að plægja akur
þegar fréttaritari átti leið hjá í árs-
lok. Hann ræktar kartöflur í um 10
hekturum lands á hverju ári og brýt-
ur ávallt eitthvað af nýju landi undir
kartöfluræktina á hverju hausti. Tíð-
arfar hefur verið hér afar gott að
undanförnu og jörð með öllu klaka-
laus eins og víðast hvar á landinu.
Meðal annars má nefna að kvígur
mjólkurbænda hafa víða verið úti allt
fram að þessu og eru sumstaðar
ennþá, þeim er að sjálfsögðu gefið
hey að vild. Fáir eru farnir að gefa
útigangshrossum enda jörðin góð og
víða miklir hagar.
Morgunblaðið/Sigurður Sigmundsson
Skúli Guðmundsson í Birtingaholti sker svörðinn með öflugum plóg.
Plægt á
milli jóla
og nýárs
Hrunamannahreppur