Morgunblaðið - 09.01.2003, Side 31
LISTIR
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 9. JANÚAR 2003 31
JÓLABÓKASÖLUNNI árvissu
fylgir því óhjákvæmilega að nokkru
af bókum er skilað aftur í verslanir.
Þegar blaðamaður ræddi við verslun-
arstjóra og deildarstjóra nokkurra
bókaverslana og annara verslana er
versla með bækur í gær og kannaði
stöðu mála, var mál flestra að skil á
bókum í ár væru með svipuðu móti og
undanfarin ár og að almennt héldust
skilatölur í hendur við sölutölur fyrir
jól.
Bókaútgefendur virðast telja að
bókaskil séu yfirhöfuð með jafnasta
móti og engin sérstök bók sem stæði
sérstaklega uppúr þessi jól í skilum,
en nokkrir bóksalar minntust nokk-
urra bóka á liðnum árum sem ein-
staklega mikið hefði verið skilað af
eftir mikla sölu, þar á meðal síðustu
bókar Ólafs Jóhanns Ólafssonar,
Hallar minninganna, og Höfundar Ís-
lands eftir Hallgrím Helgason.
Tilhugalíf, Röddin og Sonja
Kristján Freyr Halldórsson, deild-
arstjóri íslenskra bóka hjá Bóka-
verslun Máls og menningar á Lauga-
vegi, sagðist telja að skil kölluðust á
við metsölulista bóka fyrir jólin. „Bók
Jóns Baldvins, Tilhugalíf eftir Kol-
brúnu Bergþórsdóttur, sem var sölu-
hæsta bókin, er til dæmis efst á lista
yfir skil. Sömuleiðis Röddin eftir Arn-
ald Indriðason og Sonja eftir Reyni
Traustason,“ sagði hann og nefndi
einnig Landnemann mikla, ævisögu
Stephans G. Stephanssonar eftir Við-
ar Hreinsson, ævisögu Jóns Sigurðs-
sonar eftir Guðjón Friðriksson og
Lovestar Andra Snæs Magnasonar.
Kristján sagðist hafa orðið var við
að fólk skilaði inn til þeirra bókum
sem ekki væru endilega keyptar í
Bókabúðum Máls og menningar.
„Það eru engin lög til um slík skil. Ef
fólk kemur hér inn með fulla Bónus-
poka af bókum, er ekkert sem segir
að við verðum að taka við þeim, þó við
gerum það yfirleitt. Það eru útgáf-
urnar sjálfar sem tapa á þessu, þar
sem þar voru önnur verð í gangi,“
segir hann og bendir á að bókabúðum
sé heimilt að skila til útgáfunnar bók-
um á því verði sem verslunin keypti
inn á.
Lítið af Röddinni
miðað við sölu
Í Bókabúð Máls og menningar við
Hlemm var álit verslunarstjóra, Dag-
bjartar Kjartansdóttur, að miðað við
fyrri ár væru skil á bókum jafnari.
„Við höfum aðallega fengið Eyði-
merkurdögun Warisar Dirie í nokkru
magni, Tilhugalíf, Nafnlausa vegi eft-
ir Einar Má Guðmundsson og Sonju,“
sagði hún. „En við tökum líka eftir því
að miðað við hvað Röddin seldist mik-
ið fyrir jólin, hefur komið mjög lítið af
henni inn til okkar. Eins er það með
Landnemann.“ Hún bendir á að sum
fyrri jól hafi einstökum bókum verið
skilað í margföldu magni umfram
aðrar, en svo sé ekki nú.
Litlu hafði verið skilað inn til Bók-
sölu stúdenta þegar blaðamaður hafði
samband við verslunina. Taldi Kristín
Gísladóttir, innkaupastjóri íslenskra
bóka, að það stafaði fyrst og fremst af
því að nemendur skiluðu bókum um
leið og þeir kæmu að versla náms-
bækur vetrarins. „Við höfum fengið
eitthvað af Jóni Sigurðssyni og Land-
nemanum, en minna af Tilhugalífi
Jóns Baldvins. Einnig nokkrar Art-
emis Fowl–Samsærið eftir Eoin Colf-
er, sem var söluhæsta bókin hjá okk-
ur fyrir jólin. Í heildina er þetta þó
ekkert magn,“ sagði hún og sagðist
ekki geta bent á neina eina bók sem
skilað hefði verið umfram aðrar.
Í Griffli hafði einnig litlu verið skil-
að af bókum, þó að þar hafi mikið ver-
ið selt af bókum fyrir jólin, að sögn
Hauks Olavsson verslunarstjóra.
Hann taldi að skýringin gæti verið að
margir skili bókum heldur í aðrar
verslanir, þar sem Griffill selur bæk-
ur á lágu verði. „Hins vegar skiptir
það litlu máli fyrir kaupendur sem
ætla að fá sér aðra bók í staðinn, þar
sem mínar bækur eru enn ódýrar.
Hlutföllin eru því enn þau sömu. En
vonandi er skýringin bara sú að fólk
ætli að eiga bækurnar sínar,“ sagði
hann.
Don Kíkóta ekkert skilað
Benedikt Sigurðsson, verslunar-
stjóri Eymundssonar í Kringlunni,
tók í sama streng og fyrri viðmæl-
endur blaðamanns, að skil kölluðust á
við sölutölur. „Það er yfirleitt þannig.
Samt finnst mér ekkert óskaplega
mikið hafa komið inn, miðað við hvað
maður hefur oft séð af ýmsu öðru,“
sagði hann. Hann benti jafnframt á að
sumum bókum væri nánast ekkert
skilað þrátt fyrir að hafa selst vel fyr-
ir jólin, og nefnir Don Kíkóta eftir
Cervantes og Ísland á 20. öld eftir
Helga Skúla Kjartansson sem dæmi.
„Ef eitt eintak kemur inn er það strax
farið aftur. En auðvitað var upplagið
af þeim heldur ekki eins stórt. Þetta
fylgist að.“
„Tilhugalíf og Röddin hafa komið
langmest inn hjá okkur, enda seldust
þær jafnframt mest. Við áttum alveg
von á því að fá þær aftur inn,“ sagði
Ásta Júlía Theodórsdóttir, umsjónar-
maður íslensku bókadeildarinnar í
Pennanum-Eymundssyni við Austur-
stræti. Ástæðuna taldi hún liggja í því
að margir hefðu fengið fleiri en eitt
eintak af bókunum. „En auðvitað eru
ýmsar ástæður fyrir því að fólk skilar
bókum.“ Hún sagðist telja að þegar
tekið er inn í reikninginn hve miklu
var skilað af þessum tveimur bókum,
hafi bóksalan almennt verið mjög
jöfn. Topparnir í bóksölunni jafnist út
þegar skilum sé lokið.
Í Hagkaupum á Akureyri höfðu
starfsmenn ekki orðið varið við að
einni bók umfram aðra hefði verið
skilað. „Það hafa ekki verið mjög mik-
il skil á bókum almennt, finnst mér,“
sagði Þórhalla Þórhallsdóttir versl-
unarstjóri. Hún taldi ekki að mest
hefði komið inn af þeim bókum sem
seldust mest, heldur fremur að dreif-
ingin væri nokkuð jöfn. „Ég átti von á
því að Tilhugalíf, Röddin og þessar
söluháu bækur kæmu til baka í
nokkru magni en svo var alls ekki.
Þessar bækur hafa verið mjög for-
vitnilegar og góðar aflestrar og fólk
því ekki viljað skila þeim, tel ég.“
Þórhalla sagðist ekki telja að bók-
um sem voru keyptar í Hagkaupum
fyrir jól hafi frekar verið skilað í aðr-
ar bókaverslanir. „Ég held einfald-
lega að áhugaverðar bækur séu góð
eign og það sé ástæðan fyrir því að
litlu hefur verið skilað,“ sagði hún.
Ísfirskar bækur
vinsælar á Ísafirði
Jónas Gunnlaugsson er eigandi
Bókaverslunar Jónasar Tómassonar
á Ísafirði. „Það sem kemur mest inn,
er það sem fer mest út, í ár eru það
Sonja, Eyðimerkurdögun, Röddin og
Tilhugalíf,“ sagði hann þegar Morg-
unblaðið hafði samband. Hann sagð-
ist merkja þá þróun undanfarin ár að
bókum, sem seldar væru í stóru upp-
lagi til stórmarkaða í kring um landið
á lægra verði, væri skilað í meira
magni. Fólk skipti heldur bókunum í
hefðbundnum bókabúðum. „Við
skiptum öllum bókum sem til okkar
berast, enda er það sjálfsagt mál. Það
er nú einn af kostum bókarinnar sem
gjafavöru,“ sagði hann. „En skila-
hlutfallið er hærra en það var áður á
vinsælustu bókunum.“
Jónas sagði Tilhugalíf Jóns Bald-
vins hafa selst ákaflega vel á Ísafirði,
enda á Jón ættir að rekja þangað eins
og flestir vita. „Hann var næstæðstur
í sölu hjá mér. Hins vegar var bókin
101 ný vestfirsk þjóðsaga eftir Gísla
Hjartarson söluhæst. Sömuleiðis var
barnabókin Ferðin til Samiraka eftir
Hörpu Jónsdóttur söluhá, enda er
höfundurinn kennari hér og krakk-
arnir þekkja hana allir. Miðað við hve
mikið seldist af henni og eins af bók-
inni hans Jóns Baldvins, hefur mjög
lítið skilað sér inn,“ sagði Jónas að
lokum.
Algengast að sölu-
háum bókum sé skilað
Fyrir jólin velta menn
því gjarnan fyrir sér
hvaða bækur koma til
með að enda í jólapökk-
unum. Inga María
Leifsdóttir veltir því nú
fyrir sér ásamt nokkr-
um forsvarsmönnum
verslana er selja bækur
hvaða bækur rötuðu
úr jólapökkunum og
aftur í verslanirnar.
Morgunblaðið/Jim SmartBóksalar segja að skil séu með jafnasta móti í ár.
ingamaria@mbl.is
SÖNGSVEITIN Fílharmónía
ræðst í apríl í flutning á Mess-
íasi eftir Handel. Verkið er
samið á nokkrum dögum árið
1741. Textinn er byggður á
ritningargreinum úr Biblíunni
og fjallar um ævi Krists.
Handel starfaði í Englandi
stóran hluta ævi sinnar og þar
lést hann árið 1759. Hann var
samtímamaður J. S. Bach en
verk þeirra eru flest afar ólík
að gerð. Eftir báða liggja þó
ódauðleg tónverk sem eru
krefjandi í flutningi og njóta
sífelldra vinsælda bæði áheyr-
enda og flytjenda.
Æfingar á Messíasi hefjast
mánudaginn 13. janúar í Mela-
skóla. Ennþá eru nokkur laus
pláss í öllum röddum og er
þeim sem áhuga hafa bent á
að hafa samband í síma
898 5290. Tónleikarnir verða í
Langholtskirkju 6. og 8. apríl
nk.
Fílharm-
ónía flytur
Messías
UPPBOÐI á einu af málverkum
Dominique Ambroise lauk í Gall-
eríi Landsbankans á vefnum á
dögunum. Hæsta boð í málverkið,
Stígurinn í kjarrinu, var 60.000
kr. Dominique ánafnaði Krabba-
meinsfélagi Íslands, andvirði
kaupverðsins.
Málverk Dominique eru nú til
sýnis í húsakynnum Landsbank-
ans, Laugavegi 77, ásamt því að
hægt er að skoða verkin í Gall-
eríinu á vefnum (www.lands-
banki.is). Sýning þessi er 14.
einkasýning Dominique og sú 5
hér á landi. Áður hefur hún tekið
þátt í fjölda samsýninga í Kanada,
Evrópu og Asíu.
Á meðfylgjandi ljósmynd má sjá
Guðmund Ibsen afhenda fyrir
hönd Dominique forsvarsmönnum
Krabbameinsfélags Íslands gjafa-
bréf að andvirði 60.000 kr. F.v.
Sigurður Atli Jónsson, fram-
kvæmdastjóri verðbréfasviðs,
Guðmundur Ibsen, Guðrún Agn-
arsdóttir, forstjóri Krabbameins-
félagsins, og Valgerður Jóhann-
esdóttir, fjármálastjóri Krabba-
meinsfélagsins.
Dominique styrkir
Krabbameinsfélagið
AUGLÝSINGADEILD
netfang: augl@mbl.is eða sími 569 1111