Morgunblaðið - 09.01.2003, Page 40

Morgunblaðið - 09.01.2003, Page 40
BÍLAR 40 FIMMTUDAGUR 9. JANÚAR 2003 MORGUNBLAÐIÐ ALDREI áður hafa jafnmargar nýj- ungar í hugmyndabílum og fram- leiðslubílum litið dagsins ljós á bíla- sýningunni í Detroit eins og að þessu sinni. Yfir 60 heimsfrumsýn- ingar þykja til marks um síharðn- andi samkeppni bílaframleiðenda. Það sem ekki vekur sísta athygli er sókn framleiðenda inn á markað fyr- ir lúxusjeppa, sem virðist engan enda ætla að taka. Í bílablaði Morg- unblaðsins í gær var greint frá inn- komu Audi á þennan markað en jafnframt var kynntur lúxusjeppi úr ólíklegustu átt, þ.e.a.s. Maserati. Einnig kynnir BMW nýjan jeppling sem er minni en BMW X5, Nissan kynnir Murano og Lexus nýja gerð af RX300. Chrysler kynnir nýja gerð Dodge Durango, Chrysler kynnir Pacifica, sem er blanda jepp- lings og langbaks, og Dodge Kahuna er ný gerð fjölnotabíls sem á að höfða til yngri kaupenda. Chevrolet kynnir Malibu Maxx, sem er jepp- lingur byggður á Malibu fólksbíln- um. Þýsku framleiðendurnir eru all- ir með á nótunum. Porsche sýnir Cayenne jeppann, VW Touraeg, BMW, eins og fyrr segir, sýnir litla jeppann X3 sem byggður er á und- irvagni 3-línunnar, og Mercedes- Benz lýsir því yfir að von sé á litlum jeppa frá fyrirtækinu árið 2005. Sem mest fjölbreytni Þeir dagar eru liðnir í bandarísk- um bílaiðnaði þegar risarnir þrír, General Motors, Ford og Chrysler, gátu lifað áhyggjulausu lífi með því að framleiða og selja pallbíla, fjöl- notabíla og stóra jeppa. Nú snýst allt um að sýna sem mesta fjöl- breytni og risarnir eru undir þrýst- ingi um að sýna sem mest af vænt- anlegri framleiðslu. Þannig sýnir Ford 15 nýja bíla í Detroit sem er met í þeirra herbúðum á einni sýn- ingu. Stóra breytingin í heimsmynd framleiðendanna er sú að þeir verða að skapa eftirvæntingu eftir nýjum bílum og vettvangurinn til þess er í Detroit. Bandarískur bílaiðnaður ver nú meira fjármagni en áður til að þróa nýja bíla og jepplinga sem byggðir eru á undirvögnum fólks- bíla. Vistvænni bifreiðar Þetta á þó ekki síður við erlend merki sem hafa náð fótfestu í Bandaríkjunum. Það eru t.a.m. Honda og Toyota sem hafa leitt þá þróun að smíða jepplinga á grunni fólksbíla í Bandaríkjunum. Önnur ríkjandi tilhneiging vestra er sú áhersla sem framleiðendur Lúxusjeppar og sparibaukar Aldrei hafa verið fleiri frum- sýningar á bílasýningunni í Detroit en nú. Tilhneiging í bílaiðnaði þar vestra er meira úrval, jepplingar og fjölnota bílar byggðir á undirvögnum fólksbíla og hin eilífa glíma við mengunarvarnir. gugu@mbl.is AP Dodge Kahuna-hugmyndabíllinn er blanda af fjölnotabíl og jepplingi. AP Dodge Tomahawk-hugmyndamótorhjólið er með 500 hestafla Viper V-10-vél. Hjólið nær nærri 640 km hraða á klst., ef einhver þorir. AP BMW xActivity-hugmyndabíllinn, einnig þekktur sem X3. AP Nýr Lexus er 16 cm lengri en forverinn. V6-vélin er aflmeiri og komin er loft- púðafjöðrun. Hann er væntanlegur á markað hérlendis í maí. Maserati Kubang GT Wagon er fyrsti jepplingur ítalska framleiðandans sem er í eigu Fiat. leggja nú á þróun vistvænni bif- reiða. Þennan árangur eigna um- hverfisverndarsinnar sér en barátta þeirra hefur leitt til strangrar lög- gjafar á sviði mengunarvarna þar vestra. GM hefur t.a.m. í hyggju að framleiða allt að einni milljón tvinn- bíla, bílar með litlum brunahreyfli og rafmótor, á næstu fimm árum. Ford kynnir líka Focus PZEV (Partial Zero Emmission Vehicle), sem uppfyllir mengunarvarnastaðla í Kaliforníuríki. PZEV aflrásin verð- ur staðalbúnaður í öllum Foc- us-bílum sem seldir verða í Kali- forníu.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.