Morgunblaðið - 09.01.2003, Qupperneq 54

Morgunblaðið - 09.01.2003, Qupperneq 54
DAGBÓK 54 FIMMTUDAGUR 9. JANÚAR 2003 MORGUNBLAÐIÐ MORGUNBLAÐIÐ, Kringlunni 1, 103 Reykjavík. SÍMAR: Skiptiborð: 569 1100. Auglýsingar: 569 1111. Áskriftir: 569 1122. SÍMBRÉF: Ritstjórn: 569 1329, fréttir 569 1181, íþróttir 569 1156, sérblöð 569 1222, auglýsingar 569 1110, skrifstofa 568 1811, gjaldkeri 569 1115. NETFANG: RIT- STJ@MBL.IS, / Áskriftargjald 2.100 kr. á mánuði innanlands. Í lausasölu 190 kr. eintakið. Skipin Reykjavíkurhöfn: Goða- foss og Arnarfell fara í dag. Hafnarfjarðarhöfn: Sel- foss og Atlas fara í dag. Mannamót Aflagrandi 40. Kl. 9 vinnustofa og boccia, kl. 13 vinnustofa, mynd- mennt. Árskógar 4. Kl. 9–12 baðþjónusta og opin handavinnustofa, kl. 9– 12.30 bókband og öskju- gerð, kl. 9.45–10 helgi- stund, kl. 10.15 leikfimi, kl. 11 boccia, kl. 13–16.30 opin smíða og handa- vinnustofa. Bólstaðarhlíð 43. Kl. 8– 16 hárgreiðsla, kl. 8.30– 14.30 böðun, kl. 9–9.45 leikfimi, kl. 9–12 mynd- list, kl. 9–16 handavinna, kl. 9–17 fótaaðgerð, kl. 13 bókband, kl. 14–15 dans. Eldri borgarar í Mos- fellsbæ, Kjalarnesi og Kjós. Félagsstarfið opið mánu- og fimmtudaga. Mánud.: Kl. 16 leikfimi. Fimmtud.: kl. 13 tré- skurður, kl. 14 bókasafn- ið, kl. 15–16 bókaspjall, kl. 17–19 æfing kórs eldri borgara í Damos. Félagsstarfið Dalbraut 27. Kl. 8–16 opin handa- vinnustofan, kl. 9–12 íkonagerð, kl. 10–13, verslunin opin, kl. 13–16 spilað. Félagsstarfið, Dalbraut 18–20. Kl. 9 aðstoð við böðun, kl. 9–16 opin handavinnustofan, kl. 9.30 danskennsla, kl. 14. söngstund, hárgreiðslu- stofan opin kl. 9–16.45 nema mánudaga. Félagsstarfið, Hæð- argarði 31. Kl. 9 morg- unkaffi, kl. 9–12 bað- þjónusta, kl. 9 gler- skurður, kl. 10 leikfimi, kl. 13.30 söngtími, kl. 15.15 dans hjá Sigvalda. Hárgreiðslustofan opin kl. 9–14. Félagsstarf eldri borg- ara í Grafarvogi. Korp- úlfarnir, eldri borgarar í Grafarvogi hittast á fimmtudögum kl. 10, aðra hverja viku er pútt- að á Korpúlfsstöðum en hina vikuna er keila í Keilu í Mjódd. Vatns- leikfimi er í Grafarvogs- laug á þriðjudögum kl. 9.45 og föstudögum kl. 14. Nýir félagar vel- komnir. Upplýsingar gefur Þráinn í síma 545 4500. Félag eldri borgara í Kópavogi. Opið hús verður í Gjábakka laug- ardaginn 11. janúar kl. 14. Myndasýning, upp- lestur og fleira. Kaffi og meðlæti. Félagsstarfið, Löngu- hlíð 3. Kl. 8 böðun, kl. 9 fótaaðgerð, kl. 10 hár- snyrting, kl. 13 föndur og handavinna. Félag eldri borgara, Reykjavík, Ásgarði, Glæsibæ. Kaffistofan op- in kl. 10–13 virka daga. Morgunkaffi, blöðin og matur í hádegi. Fimmtu- dagur: Brids kl. 13. Þor- valdur Lúðvíksson hrl. er lögfræðingur félags- ins, hann er til viðtals á þriðjudögum f.h. Panta þarf tíma. Baldvin Tryggvason veitir ráð- gjöf í fjármálum, hann verður til viðtals 16. jan- úar, panta þarf tíma. Skrifstofa félagsins er í Faxafeni 12, sími 588 2111. Félag eldri borgara, Hafnarfirði, Hraunseli , Flatahrauni 3. Pútt kl. 10, bingó kl. 13.30. Gerðuberg, félagsstarf. Kl. 10.30 helgistund, frá hádegi spilasalur og vinnustofur opnar. Allar upplýsingar um starf- semina á staðnum og í síma 575 7720. Gjábakki, Fannborg 8. Handavinnustofan opin, leiðbeinandi á staðnum kl. 9–15, kl. 9.05 og 9.50 leikfimi, kl. 9.30 klippi- myndir, kl. 12.30 vefn- aður, kl. 13 gler og postulínsmálun, kl. 17 myndlist, kl. 20 gömlu dansarnir, kl. 21 línu- dans. Gullsmári, Gullsmára 13. Opið frá kl. 9–17, heitt á könnunni. Hraunbær 105. Kl. 9 hjúkrunarfræðingur á staðnum, handavinna og perlusaumur, lausir tímar, kl. 10 boccia, kl. 11 leikfimi, kl. 14 fé- lagsvist. Hvassaleiti 56–58. Kl. 9 böðun og bútasaumur, kl. 10 boccia, kl. 13 handavinna, 13.30 fé- lagsvist. Fótaaðgerð, hársnyrting. Allir vel- komnir. Norðurbrún 1. Kl. 9– 16.45 opin vinnustofa og tréskurður, kl. 13–16.45 leir, kl. 10–11 ganga. Vesturgata 7. Kl. 9–16 fótaaðgerðir, og hár- greiðsla, kl. 9.15–12 að- stoð við böðun, kl. 9.15– 15.30 alm. handavinna, kl. 10–11 boccia, kl. 13– 16 kóræfing og mósaik. Vitatorg. Kl. 8.45 smíði, kl. 9 hárgreiðsla, kl. 9.30 glerskurður, körfugerð og morgunstund, kl. 10 fótaaðgerðir og boccia, kl. 13 handmennt og spilað. ÍAK, Íþróttafélag aldr- aðra í Kópavogi. Leik- fimi kl. 11.15 í Digra- neskirkju. Félag áhugamanna um íþróttir aldraðra. Leik- fimi í Bláa salnum kl. 11. Kristniboðsfélag kvenna, Háaleitisbraut 58–60. Fundur heima hjá Kjellrúnu í Viðarrima 43 kl. 16. Allar konur vel- komnar. Gullsmárabrids. Eldri borgarar spila brids að Gullsmára 13 mánu- og fimmtudaga. Skráning kl. 12.45, spil hefst kl. 13. Sjálfsbjörg, félag fatl- aðra, Hátúni 12, kl. 19.30 tafl. Minningarkort Minningarkort ABC -hjálparstarfs eru af- greidd á skrifstofu ABC- hjálparstarfs í Sóltúni 3, Reykjavík, í síma 561 6117. Minn- ingargjafir greiðast með gíróseðli eða greiðslukorti. Allur ágóði fer til hjálpar nauðstöddum börnum. Hrafnkelssjóður (stofn- að 1931). Minningarkort afgreidd í símum 551 4156 og 864 0427. Minningarkort Minn- ingarsjóðs Maríu Jóns- dóttur flugfreyju eru fá- anleg á eftirfarandi stöðum: Á skrifstofu Flugfreyjufélags Ís- lands, s. 561 4307/fax 561 4306, hjá Halldóru Filippusdóttur, s. 557 3333, og Sigurlaugu Halldórsdóttur, s. 552 2526. Minningarkort Minn- ingarsjóðs hjónanna Sigríðar Jakobsdóttur og Jóns Jónssonar á Giljum í Mýrdal við Byggðasafnið í Skógum fást á eftirtöldum stöð- um: Í Byggðasafninu hjá Þórði Tómassyni, s. 487 8842, í Mýrdal hjá Eyþóri Ólafssyni, Skeið- flöt, s. 487 1299, í Reykjavík hjá Frí- merkjahúsinu, Laufás- vegi 2, s. 551 1814, og hjá Jóni Aðalsteini Jónssyni, Geitastekk 9, s. 557 4977. Minningarkort Félags eldri borgara, Selfossi, eru afgreidd á skrif- stofunni, Grænumörk 5, miðvikudaga kl. 13–15. Einnig hjá Guðmundi Geir í Grænumörk 5, sími 482 1134, og verslunni Írisi í Mið- garði. Slysavarnafélagið Landsbjörg, Stangarhyl 1, 110 Reykjavík. S. 570 5900. Fax: 570 5901. Netfang: slysavarna- felagid@landsbjorg.is. Minningarkort Rauða kross Íslands eru seld í sölubúðum Kvennadeild- ar RRKÍ á sjúkrahúsum og á skrifstofu Reykja- víkurdeildar, Fákafeni 11, s. 568 8188. Minningarkort Vina- félags Sjúkrahúss Reykjavíkur eru af- greidd í síma 525 1000 gegn heimsendingu gíró- seðils. Minningakort Breiðfirð- ingafélagsins, eru til sölu hjá Sveini Sig- urjónssyni, s. 555 0383 eða 899 1161. Minningarkort Kven- félagsins Hringsins í Hafnarfirði. Minning- arsjóður í vörslu Kven- félagsins Hringsins í Hafnarfirði. Minning- arkortin fást nú í Lyfjum og heilsu, verslunarmiðstöðinni Firði í Hafnarfirði. Kort- ið kostar 500 kr. Minningarkort Kven- félagsins Seltjarnar eru afgreidd á bæjarskrif- stofu Seltjarnarness hjá Ingibjörgu. Í dag er fimmtudagur 8. janúar, 8. dagur ársins 2003. Orð dagsins: Guð vonarinnar fylli yður öllum fögnuði og friði í trúnni, svo að þér séuð auð- ugir að voninni í krafti heilags anda. (Róm. 15, 15, 13.) K r o s s g á t a LÁRÉTT: 1 grátið, 4 bjór, 7 ís, 8 vindhana, 9 beiskja, 11 lesið, 13 freta, 14 eykta- markið, 15 pat, 17 fiskur- inn, 20 krakki, 22 víður, 23 hamingjusömum, 24 ákveð, 25 mjög æstur. LÓÐRÉTT: 1 fljót, 2 tímaritið, 3 gras- svörður, 4 bakki, 5 fláráð, 6 rödd, 10 tuldraðir, 12 auð, 13 vendi, 15 koma undan, 16 ber, 18 sjávar- dýrum, 19 auðlindir, 20 bylur, 21 sjávarrót. Víkverji skrifar... VÍKVERJI skemmti sér vel ágamlárskvöld eins og vera ber en verður að segja að hann er orðinn hundleiður á flugeldafárinu. Það eru þessi endalausu flugeldaskot í tíma og ótíma milli jóla og nýárs sem hafa gert það að verkum að Víkverja finnst ekkert gaman að þessu dóti lengur. Ef tekið er með allt flugeldafiktið milli jóla og nýárs, stakar bombur hjá krökkum og fullorðnum, allar flugeldasýningar hinna og þessara félaga, sjálft gamlárskvöld og auð- vitað þrettándinn, að ógleymdum flugeldasýningum á öllum árstímum í tilefni afmælis hjá einhverju fyrirtækinu, þá er ekki hægt að komast að annarri niðurstöðu en að maður sé kominn með upp í kok af þessu. Áður voru flugeldar jafnspenn- andi og þeir voru sjaldgæfir en nú er sprengjugleðin runnin saman í sam- fellda flugeldahátíð allt árið um kring. Já, Menningarnóttin má ekki gleymast í þessari umfjöllun. Víkverja vantaði sárlega eyrna- tappa á gamlárskvöld og ætlar að troða þeim í eyrun næsta gamlárs- kvöld. ÞAÐ ER ekki bara hávaðinn ogkæfandi púðurlyktin sem pirrar Víkverja, heldur líka hugsunin um allar aukaverkanir þessa ósiðar. Var ekki 300 tonnum skotið á loft um áramótin? Það sem fer upp kemur niður; pappírstætlur, brennisteins- sambönd og önnur eitruð sambönd. 300 tonn. Það væri margfalt minni skaði ef bændur kæmu með 300 tonn af kúamykju í haugsugum sínum og settu í gang í Ártúnsbrekkunni og dreifðu skítnum yfir borgina. Og síð- an er það slysahættan af flugeldun- um. Sagan endurtekur sig ár eftir ár og alltaf kemur fólk á slysadeildina með sködduð augu og/eða hendur. Þetta er mikið alvörumál. x x x EN björgunarsveitirnar þurfa aðfá sitt rekstrarfé og enginn vill banna þeim að afla fjárins með öllum tiltækum ráðum. Hvernig er það hins vegar í Kína, eru það ekki aðal- lega smábörn sem eru látin þræla í þessum flugeldaverksmiðjum í mis- jafnlega öruggu vinnuumhverfi svo við getum skemmt okkur með fram- leiðsluvörur fyrirtækjanna – og slas- að okkur á þeim líka? Flugeldar munu vera framleiddir víðar en í Kína, var það ekki í Hollandi sem flugeldaverksmiðja sprakk um árið með hörmulegum afleiðingum? Svo verður allt vitlaust þegar einhverj- um dettur í hug hreinlega að banna þetta. Víkverji myndi vilja banna flugelda á stundinni. Er nokkurt vit í að dreifa 300 tonnum af rusli um borg og bý að gamni sínu? Víkverji bindur miklar vonir við að margir fari að átta sig á því hversu dæmalaust vitlaust þetta flugelda- vesen er orðið. Og yfirhöfuð öll skemmtan þar sem drasli er dreift, blöðrum, pappírsmiðum og slíku. Víkverji vill í lokin taka undir með þeim sem vilja banna reykingar á veitingastöðum og svona í blálokin lýsir hann þeirri skoðun að vínsala í matvörubúðum er ekki góð hug- mynd. Drukkið fólk á eftir að leita í búðirnar með tilheyrandi leiðindum. Afgreiðslufólk á öllum aldri á eftir að lenda í vandræðum þegar krakkar undir lögaldri reyna að ná sér í vín. Og verður öryggisgæsla í matvöru- búðum með sama hætti og er í Rík- inu? Verður þetta gerlegt í fámenn- ari sveitarfélögum? Víkverji veltir þessu fyrir sér. Börnin eru bestu dómararnir ERLA Jóhannsdóttir ritaði bréf í Velvakanda föstudag- inn 27. desember sl., þar sem hún gagnrýndi nám- skeið í Söngskóla Maríu og Siggu. Um leið og ég harma óánægju Erlu vil ég benda á nokkrar staðreyndir um Söngskólann. Hann hefur nú verið starfræktur í um áratug og á þeim tíma hefur skólinn haldið fjögur nám- skeið á ári fyrir börn á aldr- inum 5 til 15 ára, auk nám- skeiða fyrir fullorðna. Þau þúsund barna sem sótt hafa námskeiðin eru oftast mjög ánægð og mörg dæmi eru um að þau komi aftur og aftur. Það er því ekki rétt að börn hafi „gefist upp“ á námskeiðum hjá okkur. Fjöldi barnanna sem kemur á námskeið veldur því að stundum þurfum við að spyrja barn að nafni þótt við höfum hitt það áður. Slíkt er auðvitað ekki skemmtilegt en lýsir á eng- an hátt afstöðu okkar til barnanna. Við leitumst við að kynnast þeim og eiga með þeim góðar stundir. Skólinn er ekki byggður upp til að rækta söng- stjörnur heldur til að byggja upp sjálfstraust barnanna í gegnum söng. Við leitumst við að sinna börnunum af metnaði og höfum lagt okkur fram um að gera námskeiðin bæði krefjandi og skemmtileg, þar sem þörfum hvers barns er sinnt sérstaklega. Þar höfum við meðal ann- ars notið liðsinnis Helgu Möller, sem Erla nefnir í bréfi sínu og tekur réttilega fram að Helga hafi áhuga á starfi sínu. Yngstu börnin hafa eðli- lega ekki einbeitingu til að æfa söng í klukkustund í senn heldur taka sér hlé og fylgjast með öðrum börn- um eða föndra. Það er alltaf erfitt að svara ásökunum á borð við þær sem Erla Jóhannsdótt- ir setti fram í áðurnefndu bréfi, enda ræður persónu- leg afstaða fólks miklu um hvernig það upplifir nám- skeið á borð við þau sem boðið er upp á í Söngskóla Maríu og Siggu. Okkar dómarar eru börnin, sem enn sem fyrr hópast á nám- skeiðin og biðja svo um að fá að koma aftur. Gleðilegt ár. María Björk Sverrisdóttir. Hvað þarf mörg gull? Ég vil taka undir það sem ein reið skrifar í Velvak- anda 6. janúar en þar spyr hún hvað Kristín Rós þurfi að vinna mörg gull til að vera kosin íþróttamaður ársins. Er ég mjög hneyksl- uð á þessu. Ein úr Hafnarfirði. Tapað/fundið Gervileðurjakki í óskilum Gervileðurjakki fannst á bílaplaninu við Æsufell sl. laugardagskvöld. Upplýs- ingar í síma 898 1776. Seðlaveski týndist SVART seðlaveski týndist við Ingólfstorg á gamlárs- kvöld. Finnandi vinsamleg- ast hafi samband í síma 869 0370 eða 551 2911. Fingravettlingur í óskilum Fingravettlingur fannst sl. föstudag á grasflötinni milli Hagaskóla og Háskólabíós. Upplýsingar í síma 561 9248. Lykill og hanski í óskilum KONAN sem saknar lykils og hanska eftir útskriftar- athöfn Menntaskólans í Kópavogi í Digraneskirkju 20. des. sl. er beðin að hafa samband í síma 554 5648. Dýrahald Rambo er týndur RAMBO sem er 14 ára svartur fress, týndist úr gæslu í Kattholti á jóladag. Hann er ómerktur og var með dökka ól. Íbúar á Ár- túnsholti eru beðnir að at- huga í skúrum hjá sér. Þeir sem hafa orðið varir við Rambo hafi samband við Kattholt í síma 567 2909 eða 581 2181. Birtu vantar heimili BIRTA er 18 mánaða göm- ul læða, smávaxin, mjög fal- leg, hvít og grábröndótt, og vantar nýtt heimili. Birta hefur orðið fyrir einelti og átt erfiða ævi og þarf hún heimili þar sem engar kisur eru fyrir. Þeir sem hafa áhuga á að taka Birtu að sér hafi samband í síma 869 8786. Læðu vantar heimili SVARTA læðu, 7 mánaða, vantar nýtt heimili vegna sérstakra aðstæðna. Upp- lýsingar í síma 557 8487. VELVAKANDI Svarað í síma 569 1100 frá 10-12 og 13-15. Netfang velvakandi@mbl.is 1 7 11 15 22 24 12 14 3 9 20 10 4 8 21 23 25 13 17 5 18 6 19 2 16 LAUSN SÍÐUSTU KROSSGÁTU: Lárétt: 1 táldregur, 8 vetur, 9 bógur, 10 kol, 11 reima, 13 aumur, 15 stáls, 18 hlein, 21 tól, 22 kættu, 23 angar, 24 þrautseig. Lóðrétt: 2 áætli, 3 dýrka, 4 Embla, 5 ungum, 6 svar, 7 þrár, 12 mál, 14 ull, 15 síkn, 16 ástar, 17 stunu, 18 hlass, 19 engli, 20 næri.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.